Þjóðviljinn - 11.03.1962, Síða 3
Fórnarlömb fórveðursins
NiÍurlagningaveHcsmiÍji
SiiiMiirli i s
SIGLUFIRÐI 8/1
ur t'l starfa í
verksnrðja, sem
— „í dag tek-|Jónsson og auk þessara tveggja
S’g’uf’rði ný starfa um bað bil 12 stúlkur. og
byggð er í j 2 kar'.menn við framleiðsluna.
Þessir þrlr skipsrassar á þurru, eru vestur í
Slipp og tilheyra Síríusi, sem fór túl fiski-
veiða en sneri aftur við lítinn orðstír með
dræsuna í skrúfunni; Öskju, sem í mann-
skaðaveðrinu mikla í Evrópu fyrir skömmu
bárði sér utaní bólverk og báta í skozkri
höfn svo undan létu stálbönd og plötur, og
f jarstur er togarinn Júni, sem í sama mann-
skaðaveðri tók að sér hlutvqrk brimbrjóts
fyrir norskt veðurskip, laskaðúst á stýri og
hefur verið í slipp að undanförnu.
þeirri trú, að farsælt sé fyrir
okkur íslend;n.?a að fiytja ljúf-
fengu síldina okkar á erlendan
markað matreidda í neytenda-
umbúðum, í stað þess að selja
hana úr landi í tunnum sem
hráefni fyrir verksmiðjur er-
lendis“. ' -.
Þannig fórust Vilrjálmi Guð-
mundssyni framkvæmdastjóra
hjá Síldarverksmiðjum ríkisins
orð, er hann kynnti íyrir frétta-
mönnum hina nýju starfsemi og
bauð þeim að skoða hana.
Fyrir um það bil ári var á-
kveðið að hefjast handa um
byggingu niðurlagningarverk-
sm'ðju hér í Siglufirði. Snéri
stjórn Síldarverksmiðja ríkisins
sér til Carl Sund Hansen verk-
fræðings í Stafangri til leiðbein-
ingar og undirbúnings á málinu.
Ákveðjð var að haga byrjunar-
framkvæmdum á þann hátt að
þær gætu síðar orðið liður
í stærri framkvæmdum og er
* I 2
Vörumerki
Pv<yprir>or loötmKSstöðvar í Reyk.iavík:
fyrir dtta
drum-óhafin enn
Slíkur er framkvæmdahraði bæjarstjórnaríhaldsins
Bygging kjötmiðstöðvar í
Rcykjavík hefur verið á döfinni
í átta ár og hefur verið veitt til
hennar á fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar í 7 ár, samtals 3.3
milljónir kr. .— en byggingin er
órisin enn og framkvæmdir ekki
hafnar.
Á síðasta. fundi borgarstjómar
bar Gu.ðmundur Vigfússon fram
svohljóðandi fyrirspurn til borg-
arstjóra:
„Á hvaða stigi er undirbúning-
ur að byggingu kjötmiðstöðvar í
Reykjavík, sem ætlað hefur verið
fé til á fjárhagsáætlun margra
undanfarinna ára, og hvenær má
vænta þess að framkvæmdir hefj-
ist?“
Guðmundur minnti á að árið
1955 hefðu verið áætlaðar 200
þús. kr. til byggingar kjötmið-
11 kr. siolið
í Uítesáfm HS.I.
1 gærmorgun var stolið pen-
ingakassa á skrifstofu Listasafns
Alþýðusambands íslands að
Laugavegi 18. Voru í kassanum
um 11300 krónur { neningum.
Ekki er enn fuliljóst hvemig
þjófurinn hefur getað komizt inn
í skrifstofuna. Þegar forstöðu-
maðurinn, Amór Hannibalsson,
kom að um kl. hálf ellefiu var
skrifstofan opin og kassinn horf-
inn. Starfsstúika Alþýðusam-
bandsins kveðst 'hins vegar hafa j
farið inn á skrifstofuna urn kl. i
9 um mprguninn og hafi þá I
kassinn vgrið á,. .sínum stað og I
hafi’, hún laest. dyrunuip á eftir I
sér, er hun fór þaðan út.
stöðvar á fjárhagsáætlun bæjar-
ins og síðan árlega ýmist 200,500
þús. eða 1 milljón kr., þannig að
alls næmu þessar fjárveitingar 3.3
millj. kr.
Framkvæmdir eru óhafnar enn,
nema hvað fjallað hefur verið
um teikningar og byggingunni á-
kveðinn staður á Kirkjusandi.
Lengra áleiðis er þessi fram-
kvæmd ekki komin.
Guðmundur lýsti ætlunarverki
fyrirhugaðrar kjötmiðstöðvar, að
taka móti kjöti og framkvæma
gæðamat. Enda þótt kjöt væri
metið í frysti- eða sláturhúsum
úti á landi, þá gæti það tekið
miklum breytingum og spillzt í
flutningum þaðan til Reykjavík-
ur. Framkvæmd þessi væri því
fyrir löngu orðin aðkallandi.
Kvað hann . kjötmiðstöðina
þurfa að ráða yfir rúmgóðum
kæligeymslum. og fullkomnu
frystihúsi og í sambandi við
hana yrði að sjálfsögðu slátur-
hús.
Géir Hallgrímsson borgarstjóri
undirstrikaði það sem Guðmund-
ur hafði sagt um nauðsyn kjöt-
miðstöðvar. Skipulagsuppdráttur
af svæðinu hefði verið staðfestur
haustið 1959 og væri ráðgerð
þama allmikil fylling út í sjó,
væri unnið að því og hefði hann
orð borgarverkfræðings um að
þama yrði byggilegt á þessu
sumri. Teikningar væru í endur-
athugun og eins væri ófrágengið
hvort einn eða margir yrðu að-
ilar að kjötmiðstöðinni.
Þorvaldur Garðar kvaddi sér
einnig hljóds um kjötmiðstöð, en
þar sem hann fann engan þráð
yfir í gömlu þuluna sína um
vinstri stjórnina þagnaði hann
fljótlega aftur og settist.
Guðmundur Vigfússon flutti
undir umræðunum tillögu um, að
borgarstjómin teldi dráttinn á
framkvæmdum orðinn óeðlileg-
an og fæli borgarstjóra að
hrinda byggingunni í fram-
kvæmd hið fyrsta og helzt á
þessu ári. Þeirri tillögu vísaði
íhaldið frá gegn atkvæðum full-
trúa Alþýðubandalagsins og
Framsóknar.
nú fyrsta áfanga lokið og hann
tekinn í notkun.
Byggingin sem tekin er í
notkun í dag er einn fjórði hluti :
fyrirhugaðrar byggingar. Sig-
valdi Thordarson arkitekt hefur
teiknað bygginguna en verk-
fræðiskrifstofa Sigurðar Thor-
oddsen hefur annazt útreikn-
ing'a hennar. Bygg'ngafram-
kvæmdum hefur Páll Jónsson
byggingameistari Síldarverk-
smiðja ríkisihs stjórnað.
Sú síld sem verður lögð nið-
ur í vetur verður að mestu leyti
sýnishomaframleiðsla, sem send
verður á erlendan markað, en
eitthvað verður selt til neyzlu
innanlands. /Framleiðslan er
gaffalbitar í mjsmunandi krydd-
sósu, og einnig verða lögð niður
heil flök í vínsósu. Dósaumbúðir
eru búnar til í Stafangri, lit-
prentaðar í íjórum litum.
Teikningin á dósaumbúðunum
er gerð af Atla Má.
Til þess að skipuleggja byrj-
unarstarfið, kenna starfsfólkinu
handbrögð við flökun og skurð
síldarinnar hefur verið fenginn
sérfræðingur, Bernt T. Björns-
son frá Stafangri. Björnsson
hefur starfað í tvo áratugi að
niðurlagningu síldar í Noregí.
Verksmiðjuatjórii hinnar nýju
verksmiðju verður Ólafur G.
hionar nýju fram-
le ðs’.u er ,.Sigió“ o'2 á nafnið
að minna á þann stað, sem urn
áirabil hefur verið miðstöð ís=
lenzkrar síldariðju.
Kostnaður vegna þessara
fyrstu framkvæmda er orðinn 2,5
milljónir króna og skiptist
þannig að um það bil 2 millj»
ónir hafa farið í byggingunaj
sem er 3000 rúmmetrar, en hálC
milljón hefur farið í vélakaup
0g er vélakostur verksmiðjunnar
ein lokunarvél og þvottavél á
dósum. í ráði er, ef vel tekst
til með framle.'ðsluna, að auka
vélakostinn þannig að síldin
verði bæði flökuð og skorin í
vélum.
Vilhjálmur Guðmundsson lauk
kynningarorðum sínum á þessa
leið: „Það er von forráðamanna
Síldarverksmiðja ríkisins, a3
hér sé ré'tt af stað farið og að
þessi byrjun í dag megi verða
vísir að blómlegu atvinnutæki,
Siglufirði og Siglfirðingum til
gagns og sóma“. Er óhætt að
ful'.yrða að allir bæjarbúar taka
heilshugar undir þau orð hanat
Fimmta sýning- 1
in í flsgrímssafni 1
í dag verður opnuð 5, sýna
ingin í Ásgrímssafni. Á þessarl
sýningu verða nær eingöngu
vatnslitamyndir, sumar þeirra af
atburðum úr íslendingasögum og
þjóðsögum, og málaðar á árunurn
1916—18. Ennfremur þjóðsagna-
myndir málaðar í Róm árið 1908.
Ein af þekktustu myndum Ás-
gríms Jónssonar frá aldamóta-
tímabilinu er nátttröllið á glugg-
anum(, sem hann málaði árið
1905, og birtist í Lesbók skömmu
síðar. Nú er þessi mynd sýnd
í fyrsta sinn í Ásgrímssafni.
Ofangreindum myndum hefur
verið komið fyrir í heimili Ás-
gríms, en í vinnustofu hans eru
sýndar landslagsmyndir frá ýms-
um stöðum og tímabilum.
Ásgrímssafn er opið sunnudaga*
þriðjudaga og fimmtudaga frá
klukkan 13.30—16, AðganguB
ókeypis.
Sauðárkróksmálið brátt
afgreitt frá ráðuneytinu
Eins og rækilega var skýrt
frá hér í blaðinu 26.> jam'iar sl.
kærði minnihluti bæjarstjórnar
Sauðárkróks, Erlendur Hansson
og Skafti Magnússon, til félags-
milaráðuneytisins yfir afgreiðslu
meirihluta bæjarstjórnarinnar á
reikningnm bæjarins fyrir ár-
in 1959 og 1960. Töldu bæjar-
fulltrúamir tveir reikningana
svo óljósa og ónákvæma að ekki
yrði við unað og gerðu í kæru-
bréfi tii félagsmálaráðHneytis-
ins, dagsettu 15. desember sl.,
grein fyrir 10 atriðum, sem þeir
óskuðu raimsóknar ráðuneytis-
ins á.
Eins og venja er til settdi fé-
lagsmálaráðuneytið kæruna til
bæjarstjórnar Sauðárkróks fil
umsagnar. Var það gert í janúar
sl. Fói bæjarstjómarmeirjhlutinn
bæjarstjóra að svara kæruatrið-
unum og var svar hans birt í
Morgunblaðinu 8. og 9. febrúar
sl. jafnframt því, sem það var
sent ráðuneytinu. Rituðu kær-
endur þá félagsmálaráðuneytinu
aftur bréf, þar sem þeir.tóku til
meðferðar svör bæjarstjóra og
gerðu enn frekari grein fyrir
kæruatriðunum.
Samkv. upplýsingum Hjálmars
Vilhjálmssonar ráðuneytisstjóra
í félagsmálaráðuneytinu kefur
ráðuneytið nú lokið af að fara
yfir öil atriði málsins og er bú-
izt við, að það hljóti afgreiðslu
fljótlega. Hann kvaðst hina
vegar ekki geta sagt frá þvi
opinberlega á þessu stigi, hverj»
afgreiðslu málið myndi hljóta,
enda eftir að leggja síðustu hönd
á það. Hefitr fulltrútinn, sem
annast þessa rannsókn, Hall-
grímur Dahlberg, verið er-
lendis um skeið en er vænt-
aniegur til landsins næstu daga
og mun þá vesrða gengið frá mál»
inu.
Sjálfstæðismenn eru í hrein-
um meirihluta í bæjarstjórn
Sauðárkróks, hafa 4 fulltrúa aC
7, en auk þess fylgdi fulitrúi
Framsóknarmanna i bæjarstjórn»
inni þeim við afgreiðslu rejkn-
inganna.
Sunnudagur 11. marz 1962 — ÞJÓÐVILJINN —