Þjóðviljinn - 11.03.1962, Síða 12

Þjóðviljinn - 11.03.1962, Síða 12
Myndin sýnir lítinn hluta af sýningarsalnum. í forgrunni er batik eftir Sigrúnu Jónsdóttur: veggtjald, kjólar og lampi. Tágakairfan er gerö af Guörúnu Júlíusdóttur og veggteppið í bak- sýn hefur Ásgerður Ester Búadóttir gert. — (Ljósmynd Þjóðv. A. K.). þlÓÐVILJINN Sunnudagur 11. marz 1962 — 27. árgangur — 58. tölublað OAS Alsír myrðir í og ALGEIRSBORG — PARÍS 10/3 — Hermdarverkin í Alsír hófust aftur af fullum krafti í gær eftiv að tiltölulega rólegt hafði verið í landinu í nokkra daga. Fregnir herma að 44 menn hafi verið drepnir en 31 særður í hryðju- verkum víðsvegar um landið. 25 hinna drepnu voru Serkir. Einna verst gegndi í Oran þar sem 25 voru drepnir. 1 Algeirsborg féllu þar sem nýlega kom til átaka milii Serkja og franskra her- manna. í morgun biðu þrír menn bana og 50 særðust þegar sprengja sprakk í einni útborg Parísar, Issy-les-Moulineaux. Þeir sem féllu voru tveir lögreglumenn og stúdent sem af tilviljun átti leið fram hjá. Nokkrir hinna særðu eru í bráðri líf-shættu. 17 menn. SÝNING A NUTIMA LISTIÐN- AÐB KVENNA f SNORRASAL Ií gær var opnuð í Snorra- sal mjög athyglisverð list- iðnaðársýning, þar sem 24 konur sýna nútíma listiðnað á vegum tíma- ritsins Melkorku. Sýning- in veröur opin til 18. marz, kl.2—10 dag hvern. Hér á eftir fara nöfn i þátttakenda og verk þeirra á sýningunni, sem eru 80 talsins: i Ásdís Sveinsdóttir Thorodd- , sen: Gull- og s.'lfursmíð: Skartgripir. Ásgcrður Ester Búadóttir: Myndvefur: Veggteppi. Bergljót Eiríksdáttir: Rya- vefur: Gólfteppi. Mynd: i vefur: Sessa. Dolinda Tanner: Aladinnála- stag: Teppi. S Erna Sigurðardóttir Hansen: Myndvefur. (Teikning Vig- dís Kristjánsdóttir). i Gerður Hjörleifsdóttir: Mynd- vefur. (Teikning Vigdís Kristjánsdóttir). Guðrún Júlíusdóttir: Tág- vinna; Körfur, bakkar. Gíslrún Sigurbjörnsdóttir: Fló.smotta. Gebelinvefur: Vegghengjur. Guðrún Jónasdóttir: Hördúk- ar: Borðmottur. Treflar og sjöl. Herdís Gröndal: Vírstrengir á timbri: Veggskraut. Halldóra Jónsdóttir: Hnýtt 'teppi. (Teikning: Haíldóra Sigurðardóttir.) Kristín Jónsdóttir: Sáld- þrykk: Dúkur, veggteppi. Ragnhildur Ólafsdóttir: Til- klipp: Veggdregill. Rósa Eggertsdóttir: Jurtalím- ingar. Sigríður Björnsdóttir: Brennd- ar trémyndir. Sigríður Halldórsdóttir: Brek- án: Gólfteppi. Rya: Vegg- motta. Krabbavefur: Sessa. Glitvefur; Mottur. Sigrún Jónsdóttir: Batik: Veggtjald, kjólar, lampi. Sigrún Gunnlaugsdóttir: Steindir skartgripir: Háls- men. Steinuisn Marteinsdóttir: Keramik: Vasar, skálar. Sóiborg Gunnarsdóttir: Trefl- ar — Sjöl. (Ull, sauðalitir) Svava Gísladóttir: Myndvefur (Teikning: Vigdís Kristj- ánsdóttir). Vigdís Kristjánsdóttir: Rya- vefur: Teppi: Hrím, snjór. Myndvefur: Á hafsbotni, Tilbeiðsla. Gobelinvefur: Tungiskin. Nálaflos úr tofi: Þang-sessa. Vigdís Páisdóttir: Hnýtt teppi. Þóra Marta Stefánsdóttir: Smelt: Skál. Silfurmunir er Ásdís Sveinsdóttir Thoroddscn hefur smíöað. Tveir togarar stöðvaðir strax vegna verkfallsins 1 gær var Redga-hótelíð fyrir utan Algeirsborg algjörlega eyði- lagt með sprengingum. 1 hóteli þessu voru aðalbækistöðvar þeirra Frakka sem berjast gegn OAS, Les Bai'bouzes, eins og þeir eru kallaðir. Þeir hafa að undan- förnu svarað hermdarverkum OAS í sömu mynt. Ekki er vitað til að nokkur hafi verið í Redge- Hóteli þegar þetta gerðist. Allt mun nú orðið rólegt við landamærin milli Túnis og Al-sír, Kvenfélag sósíalista Kvenfélag sósíalista heldur félagsfund þriðjudaginn 13. marz kl. 8Í30 í Tjarnargötu 20. Fundarefni: Umræður um uppeldismál og Reykjavíkurbæ. Adda Bára Sigfúsdóttir hefur framsögu. Allar stuðningskonur Alþýðu- bandalagsins velkomnar meðan húsrúm leyfir. Japönum óar við atómsprengingum TOKIO 10/3. — Japanski forsæt- isráðherrann Hayato Ikeda beindi í dag ávarpi til Krústjoffs og skoraði á hann að gera allt sem hann gæti til að koma í kring al- þjóðlegu.m samningi um bann við kjarnorkusprengingum. Skjal- ið afhenti sendiherra Japans í Moskvu. 1 skjali þessu segir Ikeda að heiminum hafi enn verið ógn- að með áframhaldandi kjarnorku- kapphlaupi. Japan hafi. sem hið eina land veraidarinnar sem reynt hafi hin skelfilegu áhrif kjarnorkusprengjunnar. hvað eft- ir annað snúið sér til kjarnorku- veldanna í því skyni að fá þau til að hætta . tilraunum sínum með slík vopn. Samkvæmt sjón- arniiði Japana væri mikilvæg- asta verkéfni . átjánríkjaráðstefn- unnar um afvopnun að semja um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn. Togaraverkfallið er hafið. Á miðnætti í fyrrinótt stöðvaðist togarinn Neptúnus við togara- bryggjuna, en þangað var hann nýkominn með síldarslatta, sem hann hafði tckið í Eyjum en ekki fengið nægilegt magn í siglingu. Síldinni var landað hér og mun þún hafa farið í bræðslu. Neptúnus er semsagt fyrsti tog- srinn sem stöðvast hé í Reykja- ,jyík af völdum verkfallsins en i gærmorgun var Gylfi frá Pat- reksfirði á ytri höfninni. Mun hann hafa stöðvast hér í gær. Hulltogarinn Macbeth lá og við bryggjuna og stóð yfir viðgerð á spili hans, en við Ægisgarð lá annar brezkur togari frá Grimsby. Ekki átti togaraafgreiðslan von á að togarar kæmu hér inn í bráð. Þeir sem voru hér inni í fyrradag aðrir en Neptúnus fóru fyrir miðnætti í fyrinótt. Togararnir veiða allir á heima- miðum, í Jökuldjúpi, á Eldeyjar- og Selvogsbanka. Þeir hafa feng- ið sæmilegan reyting. Samningafundur sá, sem sátta- semjari boðaði aðila í togara- deilunni á í fyrrakvöld, stóð fram eftir nóttu án þess árangur yrði. Þegar Þjóðviljinn fór í press- una síðdegis í gær hafði annar samningafundur ekki verið boð- laður. Hafnsrfjarðar- fundinum frestað Fundinum sem boðað var til í dag í Góðtemplarahúsinu í Ilafn- arfirði um Efnahagsbandalagið er frestað um eina viku vegna veik- inda. Sprengingin varð í vörubíl sem fylltur hafði vei'ið af sprengiefni og síðan staðsettur fyrir framan hús þar sem vinstrisinnuð friðar- samtök ætluðu síðar um daginn að halda landsmót. Rusk tll Genf WASHINGTON 10/3 — Sendi- nefnd Bandaríkjanna undir for- ustu Dean Rusk utanríkisráð- herra mun í dag fara flugleiðis til Genfar, en afvopnunarþingið þar hefst á miðvikudag. Á sunnu- dagskvöld mun Dean Rusk bjóða utanríkisráðherrunum Home lá- varði og Andrai Gromyko til kvöldverðar. í sendinefnd Banda- ríkjanna verða 32 menn, þar á meðal helztu sérfræðingar í af- vopnunarmálum og Berlínar- málinu. Utanríkisráðherrafundurinn mun fyrst og fremst fjalla um afvopnunarmál, en einnig um Berlínarvandamálið og önnur al- þjóðleg ágreinisatriði. Kroll sparkað BONN 10/3 — I gagnorðri til- kynningu frá vestur-þýzka utan- ríkisráðuneytinu segir að dr. Hans Kroll muni ekki halda stöðu sinni sem sendiherra í Moskvu. 1 stað þess mun hann verða ráðgjafi Bonn-stjórnarinn- ar um málefni Austur-Evrópu. Aktion J. Myndin er af Adolf Eichniann, afkastamesta morðingja mann- kynssögunnar, en hann var einn af þeim sem þáði vald sitt sam- kvæmt lögum þeim er Globke samdi um réttarstöðu Gyðinga r þriðja ríkinu. Munið kvikmynd- ina um Globke og glæpi hans í Austurbæjarbíói á morgun á öllum sýningum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.