Þjóðviljinn - 30.03.1962, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 30.03.1962, Qupperneq 5
... a » Föstudagur 30. marz 1962 — ÞJÓÐVILJINN (S TRÉSMIÐAFÉLAG REYKJAVÍKUR 3. apríl n.k. HAPPDRÆTTI DAS 1 ályktuninni segir að fulltrú- ar vinnustaða og verklýðsfélaga í Kaupmannahöfn hafi kynnt sér þær upplýsingar sem fyrir liggi um Rómaiisamninginn og þau skilyrði sem sett verði fyrir þátttöku Dana í Efnahagsbanda- laginu og hafi komizt að þeirri niðurstöðu að þau séu þess eðl- is „að við hljótum að leggjast gegn aðild lands okkar að banda- laginu. Slík aðild myndi binda enda á sjálfstæði Danmerkur. Á mörgum sviðum stjórnmála og efnahagsmála yrði ákvörðunar- valdið ekki lengur í höndum dönsku þjóðarinnar og kjörinna fulltrúa hennar, og eins og póli- tískum völdum er nú háttað í núverandi bandalagslöndum, mundu það verða aíturhaidsöíl- in sem réðu ferðinni. Fyrir verkalýðsstéttina myndi aðild hafa í för með sér að kaup okkar og kjör myndu ekki leng- ur á-kvarðast af styrkleikahlut- íallinu milli danskra verka- manna og vinnuveitenda. Yfir- þjóðleg stjómarvöld munu á mörgum sviðum hafa bein af- skipti af vinnumarkaðinum í hinum einstöku löndum og at- vinnuhorfur okkar mundu komn- ar undir hagsmunum hinna er- lendu einokunarhringa og þÖ einkum þeirra þýzku.“ Að lokum er í ályktuninni skorað á verkalýðsfélögin og alla félagsbundna verkamenn að láta þetta mál til sín taka meira en verið hefur og jafnframt er rík- isstjómin og þingið vöruð við því að taka ákvörðun í málinu án þess að hafa borið það undir þjóðina. „Lífshættir í lífshættu“. Danska Stúdentafélagið hefur gengizt fyrir erindaflutningi í vetur um Efnahagsbandalagið. Síðasta erindið flutti guðfræði- prófessorinn P. G. Lindhardt og nefhdi það „Lífshættir í lífs- hættu“. Lindhardt varaði eindregið við aðild að bandalaginu og við.þeim hættum sem danskri þjóðmenn- ingu myndi stafa af henni, þótt hann jaínframt legði áherzlu á að Danir gætu ekki einangrað sig frá erlendum áhrifum og menn'ngarstraumum. Lindhardt spurði í hverra þágu Efnahags- bandalagið hefði verið stofnað. Fyrst og fremst í þágu Vestur- Þýzkalands. Hvað sem kann að standa í hinni ágætu stjórnar- skrá Rómarbandalagsins, sagði hann, verða það hvorki hin 'l'itlu 'Be'néluxlönd, fátæk Italía né sundrað Frakkland sem ráða Lífeyrissjóður husasmiða Umsóknir um fasteignaveðslán úr sjóðnum skulu hafa borist skrifstofunni í síðastalagi 2. april. Vinningar í 12. flokki 1961-62 Éi .tiitlU iUWCi cmiu. 1. Toppíbúð (Penthouse) Hátúni 4 — 4—5 herbergl og oldhús m/tvennum svölum, fullgerð. — Söluverðmæti um 1 millj. kr. 2. 4ra helrbergja iBÚÐl Ljósheimum 20, 5. hæð (A) Tilbúin undir tréverk. 3. OPEL Rckord fólksbifreið m/miðstöð 4. VOLKSWAGEN fólksbifrcið m/miðstöð 5.—9. Húsbúnaður cftir eigin vali fyrir kr. 10.000,00 hver 10.—55. Húsbúnaður eftir cigin vali fyrir kr. 5.000 hver Endurnýjun stendur yíir — Dráttardagur Tizian-Rubens- stúlkur fógœtar? Italski kvikmyndastjórinn Fedcrico Fellini lýsti Jþví yfir við fréttamcnn fyrir skömmu, að hann áliti að Tizian- eða Rubens-gerðin af kvenfólki væri útdauð á okkar dögum. Hann hefði árangurslaust leitað að slíkri kventegund fyrir kvikmynd. Kvennaklúbbar á Hollandi, Þýzkalandi, Danmörku og víðar ruku upp til handa og fóta og tmótmæltu lcik- stjóranum. Fullyrtu kvennasamtökin að hin sígilda kvengerð „Juno“ værii til í ríkum mæli og væru allt eins eftirsótt og stúlkur með drengjavöxt eins og Audrey Heburn. Þá var Fellini send frá Bandaríkjunum mynd af ljósmyndafyrirsætunni Sabínu í meira cn fuliii Hkamsstætð, til þess að sanna að þess- ar þcttholda og gjörvulegu valkyrjur væru einnig tii í Ameríku. Og hér er sú mynd mikið smækkuð. oq flugvéla vex Danskir verklýðsleiðtogar gegn Efnahagsbandalagi KAUPMANNAIIÖFN — Um síðustu helgi hélt nefnd sú, sem vinnur geg’n aöild Dana að efnahagsbandalagi Evrópu (Komiteen for Oplysning om Fællesmarkedet), fimd meö 225 fulltrúum 50.000 verkamanna í Kaup- mannahöfn. Var þar samþykkt ályktun gegn aöild aö bandalaginu. munu bandalaginu, heldur Vest- ur-Þýzkaland. Draumurinn um hið þýzk-rómverska ríki er ekki gleymdur og hvað sem segja má um lýðræðið í Vestur-Þýzkalandi, er hyggilegt að vera á verði. n—ttw ji i«i»w tnw Ný skip — hraðskreið skip. Samkeppnin í alþjóðlcguni skipa- flutningum og stöðug aukning vöruflutninga með flugvélum, hefur knúð skipaeigendur og slviipaframlciðendur til að Ieita nýrra leiða í skipasmíði. Fyrst og fremst er lcitazt við að auka hraða skipanna. Nú er hraði nýrra flutninga- skipa orðinn 20 hnútar á klukku- stund, en fyrir örfáum árum voru slík skip smíðuð fyrir 15 hnúta hraða. Á íundi skipaverk- fræðinga í New York fyrir skömmu voru lagðar fram áætl- ánir um smíði svonefndra Con- tainerskipa, sem íara með 26 hnúta meðalhraða. Þessi skip á að nota í ferðum yfir Norður- Atlanzhafið, og þau eiga að verða skæðir keppinautar fyri>’ flutninga-ilugvélarnar. Mikill meirihluti skipa hefúr' þó ekki enn svona mikinn hraða Samkvæmt bandarískum skýrsl- um voru í árslok 1960 aðeins 202 hafskip sem gengu meira en 18 hnúta. Um 92 prósent allra far- skipa, sem eru yfir 1000 brúttó- lestir, ganga 16 mílur eða minna. Skipaeigendur og skipaverk- fræðingar eru langt frá því að vera sammála um kosti eða galla hraðskreiðra flutningaskipa á langleiðum. Byggingarkostnaður slíkra skipa er mun hærri þar sem þau þurfa að vera sterk- byggðari. Margir þættir kostnað- arins við rekstur þeirra eru jafnháir og hægferðugra skipa, en þau eru skemmri tíma í för- um og það er mikill kostur á öld hraðans. Elturlyf í LONDON — 1 háskólabænum fræga, Cambridge á Bretlandi, hefur eiturlyfjahringur verið af- hjúpaður. Sænsk stúlka er fund- in sek um að vera höfuðpaurinn í glæpaflokki eiturlyíjasala, sem seldi stúdentum marihuana- vindlinga. Lögreglan leitar einnig sex manna, sem framleitt hafa slíkai vindlinga, og stjórnað..dreifingu þeirra. Lögreglan kornst á slóð mari- huana-verzlunarinnar þegar 22 ára stúdent, sonur eins há- skólaprófessorsins, lézt með dul- arfullum hætti. Við læknisfræði- lega rannsókn kom í ljós að hann hafði neytt mikils magns af eit- urlyfj'um. Leynilögreglumenn Cambridge- lögreglunnar röktu spor eitur- lyfjahringsins til bóndabæjar eins, þar sem „hanf“ er ræktað,. en úr „hanf“ er marihuana unn- ið. í húsi einu í Cambridge fannst mikið magn af fullunnu mari- huana.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.