Þjóðviljinn - 17.04.1962, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.04.1962, Blaðsíða 5
Hin langa reynsla sem leik- fangaiðnaður í Thiiringen og Srzebirge á að baki, veldur því, að leikföng frá þessum þýzku héruðum hafa háð mikilli full- komnun bœði hvað efni og - allan frágang snertir. Framboðið er mjög fjölskrúð- ugt ogf nær allt frá hinum einföldustu leikföngum til hinna margbrotnustu. Þau cru því mjög vinsæl og eftirsótt. BERLIN W 8 Abt. D22/14 Deutsche Demokratische Republik Gerið fyrirspurnir yðar til: Ingvars Helgasonar Túngötu 4 Reykjavík. Sími: 1 96 55. / arinnar með tíu metra háum dórískum súlum, tveir 25 metra háir óbeiiskar og níu brýr. En það dróst að taka mynd- arinnar gæti hafizt: Fyrst lögðu hárgreiðslumenn niður vinnu og síðan kom Lundúnaþokan tiil sögunnar. Framleiðendurnir ráku sig ó þá óþægilegu stað- reynd að sólskin eins og það S'kín á bötekum Nílar er sjald- gæft fyrirbæri í Lundúnum. Jafnvel þá fáu daga þegar heið- skírt var skein hausitsólin þar svo dauflega að lýsa þuriti upp tökusviðið með ljóskösturum sem samtals voru nær 2 millj- ónir vatta að styrkleika. Elizabeth Taylor stóð aðeins einu sinni fyrir framan mynda- vélarnar í Pinewood. Þá sann- aðist það sem lengi hafði ver- ið almannarómur í Hollywood, að heilsa hennar væri ekki upp á marga fiski. Fyrst tók hún einhverja dularfulla hita- sótt. Læknar komust að því, að um einhvers konar heilabark- arbólgu væri að ræða. Tvisvar sinnum, í lok. október og nóv- ember var farið ' með hana í sjúkrahús. Hún þjáðist af stöð- ugri tannpínu og ráðamenn Foxfélagsins í New York og Hollywood brutu heilann um það :dögum saman hvernig þeir ættu að fara að því að láta það ekki vitnast, að þokkadísin yrði að Táta draga úr sér tönn. „Við getum ekki látið það spyrjast," sagði einn þeirra, „að glæsíleg- asta kona heims hafi skemmdar tennur“. Hið fjölmenna starfstið stytti sér stundir við að taka atriði úr myndinni án þess að aðalleik- konan væri nærri. Þegar á þessu hafði gengið í nokkra mánuði bað .MamonJjan leikstjóri um lausn frá starfi. Meðan forstjóri Foxfélagsins, Spyros Skouras, leitaði að nýjum leikstjóra, stóðu fulltrúar félagsins í stappi við tryggingafélag Lloyd’s um greiðslu á skaðabót- um vegna veiikinda Taylor. Loks féllst tryggingarfélagið á að greiða rúmar 100 milljónir króna í bætur, en það var helm- ingur framleiðslukcstnaðarins til bess tíma. Félagið vildi hins vegar elcki hafa trygginguna á- frarn nema skipt væri um leik- konu í aðalhlutverkinu. Að beirri kröfu vildi Foxfélagið ekki ganga, Það vissi sem var að eins og stendur mun engin leikkona njóta jafnmikillar hylli og Elizabeth Taylor. Þrjár síðustu kvikmyndir hennar höfðu farið mikla sigurför, „Köttur á heitu blikkþaki", „Allt í einu í fyrrasumar" cg „Butter- field 8“ og hún hafði hlotið Óskarsverðlaunin. Nafn hennar hafði einnig verið „á hvers manns vörum“ vegna hjóna- bands hennar og Eddie Fisher, sem hún tók frá \ ,beztu vinkonu“ sinni, Debbie Reynolds. Upp úr því hjónabandi slitnaði reyndar á dögunum, en það verður henni bara til ■ meiri au.glýsingar. Skouras réð nú sem leikstjóra Óskarsverðlaunahafann Joseph L. Mankiewicz sem hafði orð á sér fyrir að kunna tökin á ó- stýrilátum leikurum, en hann var varla tekinn við leikstjórn- inni, þegar Taylor veiktist enn, að þessu sinni svo heiftarlega að henni var um tíma vart hugað líf. Hún lá í lungnabólgu í þrjár vikur milli heims og heliu og ber bess meniar síðan: fjögurra sentimetra langt ör framan á hálsinum. Leikstjórinn nýi notaði veik- indi hennar til áð endurskoða allar myndatökuáætlanir. I briðja sinn var borg faraóanna byggð frá grunni, að þessu sinni í Róm. Mankiewicz: ..Hvernig í óskönunum væri hægt að taka kvi.kmvnd í Pyet- landi að vetri til sem cterast á undir sólski.nshimni Rómar e.g Egvptalands?". I fvrrahaust. rúmu ári eftir áð taka mvndarinnar hófst, var aftur b.yrjað á unnhafinu. Manki.ewicz hafði sami.ð töku- ri.tið að nviu og notið til bess aðstoðar hins nvfræaa skáldsv. Lawrence Durrel. Hann hafði ráðið nýia lei.kara. Rex Harriscn í -stað Eeter,„.F.inch J.jhiujverk Sesars og Richard Burton í stað Stephen Boyd í hlutverk Anton- iusar. Hann réð búsundir nýrra statista. hundruð dansara og dansmeyja, útvegaði heilt dvra- safn og gerði nýja kostnaðar- áæt.lun. Nú var eert ráð fvrir bvf að myndi.n mvndi kosta ?0 millión- ir dollara, 860 milljónir króna. Fvrir þessa eeysitegu fjárfúJgu hét hann að búa til „mestu og glæsilegustu kvikmynd sögunn^ ár“. Auglýsingatrommurnar vorU öspart barðar. Skýrt var frá því, að í leiksviðsbúnað mvndarinn- ar hefðu verið notaðar 12.00(1 Framhald á 10. síðtl^ Örlög Century Fox velta á heilsufari Elizabeth Taylor. Enda þótt myndin eigi enn langt í land — það verður ekkí lokið við töku hennar fyrr en í fyrsta lagi í júli — hefur Foxfélagið þegar lagt meira fé í hana en nokkru sinni hefur verið varið til einnar kvik- myndar. Það var þó alls ekki ætlun félagsins að setja þetta kostnaðanmet, þegar það hóf fyrir fimm árum undinbúning að kvikmynd um hina fögru egypzku ástmey þeirra Júilíusar Sesars og Antoníusar. Það var að vísu ætlunin að gera langa og íburðarmikla mynd í litum sem tæki há'Lfa fjórðu klukkustund að sýna, en miðað við aðrar kvikmynd- ir af sama tagi var framleiðslu- kostnaðurinn áætlaður í lægra lagi, „aðeins" 300 milljónir kr. („Ben Húr“ kostaði 645 milljón- ir, „Boðorðin tíu“ 580 milljónir króna). Foxfélagið réðist í þetta fjár- freka fyrirtæki eftir að skoð- anakönnun á þess vegum hafði leitt í Ijós að „24 miiljónir Bandaríkjamanna myndu fús- lega greiða tvo dollara hver tii að sjá Elizabeth Taylor í hlut- verki Kleópötru". Félagið samdi við hana um hæstu greiðslu sem nokkur kvikmyndaieikikona hefur feng- ið fyrir eina kvikikmynd. „Liz“ fær eina milljón dollara (43 miilljónir króna), en auk þess 50.000 dollara (2.150.000 kr.) fyr- ir hverja viku framyfir ákveð- inn tökutíma myndarinnar, sem nú er liðinn fyrir tæpum tveim- ur mánuðum, og að lokum á- góðahluta. Strax þegar „Liz“ hafði verið ráðin hófust vandræðin. Foxfé- lagið hafði látið reisa leik- tjöld fyrir 300.000 dollara í Hollywood, en því fé var kast- að á glæ: Taylor neitaði að leika í myndinni í Bandaríkj- mum vegna hinnar háu skau, prósentu þar. Hún taldi félag- ið á að láta taka myndina frá hinu sólríka Egyptalandi í þokubælinu Lundúnum. Leikstjóri hafði verið ráðinn band&ríski Armemumaðurinn Rouben Mamoulian (höfundur kvifcmyndarinnar „Porgy og Bess“) og undir stjórn hans var síðsumars 1960 reist glæsileg höll faraóanna í kvikmyndaver- inu í Pinewood við London og 6.5 milljónum ilítra af grugg- ugu vatni Temsár breytt í dökk- bláan sjó Miðjarðarhafsins. Þar var einnig reist hölil drottning- „Þegar Miss Taylor hnerrar“, sagði háðfuglínn Art Buchwald á dögun- um, „fær 20th Century-Fox lungna- bólgu“. Þessi samanburður er ekki alveg út í hött: Örlög eins stærsta kvik- myndafélags heims eru komin undir heilsufari hinnar þritugu kvik- myndadísar Elizabeth Taylor, sem leikur titilhlutverkið í kvikmynd Fox-félagsins „Kleópötru“, sem nú er verið að taka í Róm. Verði hún heilsuhraust fram á mitt árið, verð- ur þungu fargi létt af félaginu. Veik- ist hún, vofir gjaldþrot yfir því. Þriðjudagur 17. apríl 1962 — ÞJÖÐVILJINN — (51

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.