Þjóðviljinn - 27.04.1962, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 27.04.1962, Blaðsíða 10
Kópavogsbíó hefur nú sýnt undanfarin kvöld sovézku kvikmyndina „Bliuda söng- varann“. Þetta er litmynd og býður upp á mikinn og góðan söng og hljóðfæraslátt. Aðalleikendurnir eru Artur Aidinyan, Gragia Nersesyan, Lilik Oganesyan og Vagiram Papazyan. Mönnum er ráðlagt að láta ekki dragast að sjá þessa kvikmynd, því að sýningum á henni í Kópavogsbíói mun fara fækkandi. Ráðstefna ÍSLENZKAR NÚTÍMABÓK- MENNTIR Á NORSKU Mófmœlt að- Templarahúsið á ísafirði tek- ur stakkaskiptum ISAFIRÐI — Laugardagskvöldið 14. þ.m. buðu templarar hér á Isafirði fréttamönnum og fleiri gestum að skoða breytingar þær sem gerðar hafa verið á templ- arahúsinu. Skilrúm milli kaffi- stofu og leiksviðs hefur verið tekið burt og aðalsalur hússins 'þannig stækkaður. Upphækkaður pallur er þar sem ieiksviðið var áður og hægt að loka af með tjöldum. Allt hefur húsið verið málað að nýju og er nú að allra dómi langskemmtilegasta sam- komuhúsið hér í bæ. Templarar hafa ráðizt í hinar gagngeru breytingar á samkomu- húsi sínu til að skapa vistleg húsakynni er bæjarbúar geti not- íð skemmtana án þess áfengi sé um hönd haft. Framkvæmda- stjóri Templarahússins, Gunnar Sigurjónsson, sagði að svo hefði félagslífi á fsafirði verið komið. að varla hefði verið hægt að halda skemmtun vegna áfengis- neyzlu og slagsmála. Skákþáttur Framhald af 4. .siðu Sóknin er nú í algleyming; og hvítur á fárra kosta völ. Þenn- an biskup er hann neyddur til að drepa, ef hann vill lengja lífdaga sína. Svart: Ingvar abcdef qh ABBDBPQM l Hvítt: Ingi 21. Rxgtf Dxg4, 22. Hb3 22. Hxb7 strandar auðvitað á 22. — Hxhlf, 23. Kxhl, Dh3f, 24. Kgl Rf3 mát. 22. — Hxhlý! Ingvar teflir lokin sem og skákina alla af óþrotlegum krafti og sigurvilja. 23. Kxhl Dh3t, 24. Kgl 0—0—0, 25. g4 Eitthvað varð að gera við hót- uninnj - Hh8. Nákvæmara var þó að þreifa fyrir sér um upp- gjafarskilmála. 25. — R13+, 26. Hxf3 Dxf3, 27. He3 Ddlt, 28. Kg2 Hh8, 29. Hhl Hxh3, 30. Kxh3 Df3, 31. Kh2 Dxf2t og hvítur gaf. Eftir 32. Kh3, Be5 er hann ó- verjandi mát. Stjórn Byggingar- sjóðs verkamanna Stjóm og endurskoðendur Byggingarsjóðs verkamanna til 4 ára voru kosnir á fundi sam- einaðs þings á dögunum. Kosn- ingu hlutu: Finnbogi R. Valdi- marsson (af c-lista), Eysteinn Jónsson (af b-lista), Þorvaldur G. Kristjánsson, Gunnar Helga- son og Eggert G. Þorsteinsson (af a-lista). Endurskoðendur voru kjömir: Bjami Bachmann kennari (af a- lista) og Þórarinn Sigurðsson erindreki (af b-lista). f ráði er að hefja í Noregi út- gáfu bókaflokks sem í eiga að vera þýðingar á íslenzkum nú- tímabókmenntum. Tönes Ande- næs, stjórnandi Háskólaforlags- ins í Osló, skýrði frá þessu á aðalfundi Norsk Islandsk Sam- band á dögnnum. Háskólaforlagið hyggst gefa bækurnar út í samvinnu við Norsk Islandsk Samband. Ráð- gert er að fyrsta bindið komi út á þessu ári. Fundarmenn fögnuðu máli Andenæs. Formað- ur félagsins, Halvard Mageröy dósent, sagði í spaugi að það væri tilfundið að bókaflokkur- inn skyldi hefjast 1962, þegar 700 ár eru liðin frá því íslend- ingar sóru Noregskonungi land og þegna. Vonandi yrði útflutn- ingurinn á bókmenntum frá ís- landi til Noregs menningarsam- bandi þjóðanna til meiri heilla en útflutningur konungsvaldsins frá Noregi til íslands 1262 reyndist vera. Bók Kanada um landhelg- ismálið ( Háskólaforlagið hefur þegar gefið út tvær bækur í flokki ís- lenzkra fræðirita. Þær eru eft- ir prófessorana Einar Ól. Sveins- son og Ólaf Lárusson. Verið er að þýða á norsku ritgerðasöfn eftir Kristján Eldjárn og Sigurð Nordal. Einnig er á döfinni útgáfa á íslendingasögum próf. Jóns Jó- hannessonar og riti um skyld- leika íslenzku og norsku eftir bandaríska prófessorinn K. Chapman. Komin er í prentun hjá Há- skólaforlaginu bók um land- helgismál íslendinga eftir kanad- iskan prófessor, Moris Davis. Nefnist hún Iceland Extends its Fisherries Limits. Ljósprentanir Nýr bókaflokkur sem Há- skólaforlagið hefur á döfinni er ljósprentanir á ýmsum íslenzk- um og norskum fomritum. Er þar um að ræða grundvallarút- gáfur sem lengi hafa verið ófá- anlegar og ekki er sjáanlegt að um verði bætt í náinni framtíð. Háskólaforlagið er nú mikil- virkasti bókaútgefandi í Noregi, gefur út á þriðja hundrað bæk- ur á ári. Tönnes Andenæs út- gáfustjóri hefur beitt sér fyrir því að forlagið sinnti sérstaklega útgáfu íslenzkra rita. Skipstjórinn hlaut 250 þús. króna sekt S.l. mánudagsmorgun var kveðinn upp dómur í máli skip- stjórans, Charles Alfred Grimm- er, á skozka togaranum Ben Lui A 715, sem tekinn var að ólög- legum veiðum á Selvogsbanka miðvikudaginn 18. þ.m. Var skipstjórinn æmdur i 250000 króna sekt til Landhelgis- sjóðs íslands og aíli og veiðar- færi gert uppteekt. Þá var skip- stjórinn og dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar. ilc' Noregs OSLÓ 26/4 — Rúmlega 5000 manns tóku í dag þátt í mót- mælagöngu í Osló gegn aðild Noregs til Efnahagsbandalagsins. Mótmælaaðgerðirnar hófust með fjöldafundi á Ráðhústorg- inu. Síðan var gengið til þing- hússins og forseta Stórþingsins afhent mótmælij. þar sem segir að aðild Noregs að Efnahags- bandalaginu samrýmist . ekki vilja meiri'hluta norsku þjóðar- innar. Eftir gönguna var aftur fund- ur á Ráðhústorginu. T,okaræðuna hélt Karl Svang, landlæknir Noregs. Sprengingar ’ramhald af 1. síðu. Ríkisstjórn Finnlands hefur mótmælt atómsprengingum Bandaríkjamanna, sem auki enn á þá1 óheillaþróun er fyrri kjarn- orkusprengingar hafi valdið. Indlandsstjórn segir í yfirlýs- ingu sinni, að athæfj Bandaríkja- manna sé mikill harmleikur fyrir mannkynið. Eina vonin sé að samkomulag takist í Genf. Blað Sovétstjórnarinnar, Is- vestía. segir að Bandarikjastjórn beri ábyrgðina á þeirri nýju lotu í atómsprengju-kapphlaup- inu, sem nú hljóti óhjákvæmi- lega að hefjast. Ríkisstjórnir í fjölda landa, alþjóðleg verkalýðssamtök og fjöldi stjómmála- og félagasam- taka hafa anótmæla athæfi Bandarikjanna, og telja margir það ófyrirgefanlegan glæp gagn- vart mannkyninu og tákn um nýtt helsprengjukapphlaup. •.T Framhald af 1. síðu. voru lögð fram í heild og af- r‘hent fúndarmönnum fjöir'tuð. Þá talaði dr. techn. Fredrik Vogt frá Noregi um Storindustri- ens kraftforsyning og saeði þar frá reynslu Norðmanna í þeim efnum, en af henni mega íslend- ingar margt læra. Benti hann m.a. á, að Norðmenn, sem fram að þessu hefðu tal:ð sig eiga ó- þrjótandi vatnsafl ónýtt, væru nú farnir að siá fram á, ■ að því væru takmörk sett. Að loknu matarhléi flutti Bald- ur Líndal erind; um orkufrek- an útflutningsiðnað og taldi upp helztu viðfangsefni, er þar kæmu t:l greina. Síðan hófust umræð- ur um framsöguerindin. Tók Sig- urður Thóroddsen fyrstur til máls og lagði nokkrar spurning- ar fyrir hinn nor.ska Sest fund- arins. dr. Voat. Var dr. Vogt í miðri svarræðu er fund; var frestað. Kom margt fróðlegt fram í þessum framsöguerindum öllum og verða nokkur atriði úr þeim birt hér í blaðinu a morgun. f dag kl. 9-30 hefst fundur á ráðstefnunni að nýju með f'.utn- ingi þriggia framsöguerinda en siðan verður almennum umræð- urn haldið áfram. Ráðstefnunni lýkur síðdegis í dag. , -*mri S 'Ufl*'”, I Hbróttir Framh. af 9. síðu. flestir hafa verið nær vissir um, að Fram myndi vinna, því þeir höfðu yfir allan tímann, unnu fyrri hálfleik með 6:4. Víkingar krmu mun ákveðnari í síðari hálfleikinn, án þess þó að taka hann í sínar ihendur. Eftir miðjan hálfleikinn mátti s.iá að Framarar voru heldur að gefa eftiij. en spurningin var hvort þeim tækist að halda forskotinu út tímann. Það fór þannig að Víkingar skoruðu 3 síðustu mörkin, og komust yfir á síðustu mínútu. Af fyrsta-flokks leik að vera var leikurinn allgóður, en víst er að bilið milli meistaraflokks og fyrsta flokks er æði mikið. Þannig varð Víkingu.r ís- landsmeistari að þessu sinni. • KR vann Val í 3. flokki B — 8:7. Leikurinn var að ýmsu leyti vel lei'kinn miðað við B-lið. KR-drengirnir voru stærri og kröftugri, en Valsmenn léku betri handknattleik. en það nægði ekki til að standast kraft KR-inga. Valur var kominn með mikið forskot eða 6:2 rétt eftir leikhlé, en þá dróúrþeim, og stóðust ekki hina skothörðu KR-inga sem unnu 8:7. Ekki verður annað saet en að þessi „fallhættulið", KR og Valur, eiei efnivið í þriðju flokkunum til þess að leysa af hólmi hina eldri þegar þar að kemur. Sigurður Bjarnason hafði ekki góð tök á leiknum sem dómari. • Fram vann Keflavík í 2. flokki B — 8:4. FramDiltarnir léku sér að Keflvíkingunum í fyrri hálf- leik, og náðu þá oft sæmilegum leik og stóðu leikar í lok hans 6:2. Það virtist sem Keflvík- ingarnir hefðu þá fyrst áttað sig og veittu nú harðari mót- SDvrnu, og varð síðari hálfleik- u.rinn .iafn eða 2:2. Er ekki ósennilegt að þá sunnanmenn vanti meiri keppni í . stærra husi en þeirra eigið er. Þar eru innanum efnilegir piltar sem með góðri æfingu ættu að geta náð góðum árangri. 1 Frímann. V0 W&nrt/útHtifát | — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 27. apríl 1962

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.