Þjóðviljinn - 23.05.1962, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 23.05.1962, Blaðsíða 4
Tryggvi Emilsson, ritari Dagsbrúnar: Atkvœðisseðillinn er vopní í lok vei'kfallsátakanna í fyrravor, kom það skýrt fram svo engum lá til launungar. að vinnuveitendur töldu höfuð- nauðsyn í samningagerð, að samið yrði til lang-s tíma, og iþannig gert um alla málhnúta að ekki kæmi til úrreks á næstunni. Vinnufriður yrði tryggður, og því gengust iþeir að lokum undir ákvæðið um 4% kauphækkun, sem kemur nú í vor til framkvæmda sam- kvæmt samningum. Milli línanna lá svo óskráð viðurkenning á framhaldi raun- verulegra, árlegra kjarabóta. Að sjálfsögðu voru þeir mðrgir sem ekki voru fullá- næ'gðir með niðurstöðurnar. Verkamenn troða gangstíg vinnuþrælkunar, og laun svara ekki til nauðþurfta. Samt sem áður, ef verðlag héldist- stöð- ugt, horfði til nokkurra úrbótá. En hvað skeður? Eftir að full- trúar verkamanna og vinnu- veitenda stóðu upp frá samn- ingaborði og verkamenn höfðu tekið til óspilltra málanna við öflun verðmæta á öllum vinnu- stöðum, kemur upp úr kaf- inu að ríkisstjórn íslands hafði setið á svikráðum við at- vinnuvegi landsmanna, og litið hatursfullum augum samninga til langs tíma. Viðreisnarloppan, sem mörgum landsmönnurn hefur veitt kröpp kiör, teygðist út úr berginu og skar á fest- ina, skar á festi frjálsra samn- inga og vinnufriðar. Sjálfir vissu ríkisstjórnar- menn að þeir voru að vinna iilt verk að yfirlögðu ráði. Gengis- fellingin var hefndarráðstöfun gagnvart verkafólki vegna þess að þau sjónarmið sigruðu i verkfallsátökunum, sem stefndu til batnandi lífskjara fyrir vinnandi fólk. Síðastliðið ár di’aup smjör af hverju strái og allir firðir voru Nylon hjólbarðar Einnig margar stærðir hjólbarða með hvítum -hliðum, á fólks- og vöru- bíla í flestum stærðum Continental Firestone Englebert. Sendum um allt land. Gúmmívinnustolan h.i. Skipholti 35, Reykjavík. Sími 18955. aróttunni fullir fiskjar. í góðærinu jós vinnandi fó!k auðæfum á land. Én sú ógæfa hvílir yfir þjóð- inni að hafa enn á dögum mik- illa möguleika ríkisstjórn og meirihluta þings sem hrekjast undan helköldum vestanstorm- um í blindri velþóknun og Tryggvi Emilsson leitast sífellt við að soga þjóð- ina í gin erlendra auðhringa. Gengisfellingin er angi af -meini sem grefur um sig inn- an íhaldsram-mans þar sem auðmannaþjónkun er í blóð- færi við dýrmætustu strauma ,-þjóðlífsins, atvinnuvegina og vinnuhendurnar. Ríkisstjórnin taldi sig ekki þurfa, vegna annarlegrar valds- eflingar og þess auðs sem þeir draga með sköttum, tollum og okurvöxtum úr hendi vinnandi fólks, að taka tillit til verka- lýðssamtakanna. En við vinnu- veitendur, sem töldu sig hafa gert góða samninga og tryggt vinnufrið í landinu, beitti rík- isstjórnin þeirri hillingatækni, að vinnuveitendur sneru and- -litum sínum í vestur, og var þá ekki lengur neitt höfuðmál að vinnufriður héldist, og allt fór þetta fram með þeirri -bak- tjaldaleynd, að ekki hafa vinnuveitendur heyrzt æmta né skræmta, þvert á móti, enn er höggvið á taug frjálsra samn- inga hjá járnsmiðum og togar- arnir stöðvaðir, þannig fótum- troða ríkisstjómarmenn lýð- ræðislegar samningagerðir og í skjóli þeirra sleikja skjólstæð- ingarnir viðbitið af köku verkamannsins. Hversu lengi þjóðin unir íor- ustu íhaldsins, fer að sjálf- sögðu eftir því hve margir festa sjón á vestræna gullkálf- inum og blindast af falsbjarm- anum. Þeir sem treysta á land- ið og þjóðina eru í andstöðu við forustumenn þeirra flokka sem -blindstara þannig á er- lendu viðreisnina. Fólk.'ð er í andstöðu við stefnu fhaldsins. ísland fyrir íslendinga sjálfa, er það sem helgast er og háleitast í lífs- grunni hvers manns, þó áróður íhaldsins trufli enn margan mann og leitist við að vekjd ó- trú fólksins á landinu og fiski- miðurn þess, á atvinnuvegum landsmanna og lífsmöguleikum, en bendi sífellt á erlenda auð- jöfra sem bjargvætti. En öllum þeim sem ekki hafa fengið vestangarrann á hjart- að og heilann, sýnist nú að í mikinn voða sé stefnt. Sjálf- stæði landsins og atvinnuvegir eru i fallpúnkti þeirrar axar sem til höggs er reidd með svo- kölluðu Efnahagsbandalagi. ís- lenzkir valdamenn hafa -máski ekki enn tekið um skaftið, en því er að þeim otað, og vilji þeirra er ótvíræður. Sjálfstæði landsins og atvinnuvegir eru þannig komnir á vogarskálina og þar er mjótt mundang's- hófið. En alþýða íslands getur forðað voðanum. Á sunnudag- inn -kemur hefur hver kjósandi í hendi sér atkvæðaseðil. At- vinnulif og arðskipting eru þá í hendi kjósenda. I Reyikjavík hefur borgarstjórn svo þýðing- armikla tauma atvinnu og f jár- magns í hendi sér, að afstaða toorgarstjórnar til kaupgjalds- máÍA, getur ráðið úrslitum i þýðirigarmestu viririudeilum.. Með -því að fylkja sér um Al- þýðubandalagið í þessum kosn- ingum, er reykvísk alþýða að leggja grunn að þeim toorgar- lífsháttum, sem alhliða menn- ingarl-íf verður reist á. V.ið vitum öll að með rétt- látri tekjuskiptingu er hægt að -veita öllum sem vinna og erf- iða þau lífskjör sem gefa hverj- um manni tækifæri til menn- ingarlegs líferni-s og borginni svip þar af. Að kjósa Alþýðubandalagið er að kjósa öllum vinnandi stéttum réttinn til aðlifamann- sæmandi lífi í sínu auðuga landi. Samtök vinnandi manna er hin mifcla von borgarinnar og von íslands. Kjósurn því öll Alþýðubanda- lagið. Bannað er að auglýsa vindlinga á Italíu Róm — Hinn 15. maí sl. gcngn í gtldi ný lög á Italíu, sem banna að vindlingar séu auglýst- ir. Erlend vindlingafyrirtæki fengu vikufrest til þess að taka niður auglýsingar og skilti á almanna- færi um allt landið. Þetta verður umfangsmi-kið niðurrifsstarf, því víða í stórborgum höfðu vind- lingaverksmiðjurnar komið upp risastórum ljósaauglýsingum. — Vindlingaauglýsingar í kvik- myndahúsu-m voru bannaðar þegar frá gildistöku laganna. Auglýsingabannið nær einnig til ítalskra vindlingafyrirtækja, og það verður ti-1 þess að ítalska ríkið verður sjálft fyrir tals- verðu fjárhagstjóni, þar sem rík- ið hefur einkarétt á vindlinga- framleiðslu í landinu. Brot gegn þessum lögum varða miklum sektum. Við fyrsta brot nemur sektin allt að tveim millj- ónum líra (ca. 150.000 ísl. kr.). Hlutur Framsóknar verstur • Klofningur meðal S j áif stæ ðismanna Það vakti verðskuldaða eftir- tekt, þegar sannaðist klofning- urinn og óánægjan innan Sjólf- stæðisflokksins við kosninguna í stjórn Sogsvirkjunarinnar. Blandast nú engum hugur um það lengur, að þar á sér stað geysivíðtækur ágreiningur, sem torýzt m.a. út í því að ein-hver af forustumönnunum í borgar- stjórn hagnýtir sér leynilegar fcosningar til að undirstrika það, að hann beygi sig ekki í öllu og einu undir úrskurðar- vald flokksklíkunnar, sem þar ræður. Og dettur nokkrum það i hug, að óánægjan meðal ó- -breyttra kjósenda sé minni? Þeir hafa nú fengið fordæmið og geta breytt í samræmi við það á sunnudaginn. Sú gagn- rýni Sjálfstæðismanna á valda- Skrifstofumaður Óskum að ráða ungsn reglusaman mann til starfa á skrif- stofu vorri. Umsóknir ásamt upplýsíngum um menntun og fyrri störf svo og meðmæium, óskast sendar skrifstofu vorri fyrir 1. júní n.k. mevktar „Skrifstofustarf". H.F. EIMSKIPAFÉIÁG ÍSLANDS. brölt nazistaklíkunnar í Sjálf- stæðisflokknum, sem ein getur dregið úr þeim áhrifum, er að efla aðalandstöðuflokkinn í borgarstjórnarkosningunum, og kjósa G-listann eins og flokks- félagi þeirra gerði í borgar- stjórn. • Hlutleysi ekki til En það er Framsóknarflokk- urinn, sem einna gleggst upp- lýsir í þessu máli sitt rétta eðli og staðfestir greinilega, hvers af honum má vænta. Er þetta þörf ábending, sérstak- lega fyrir þá, sem alið hafa i brjósti von um að stuðningur við Framsókn væri yfirlýsing um íhaldsandstöðu. Sjálfstæðisflokkurinn með sína 10 borgarfulltrúa á ekki tilkall til að fá kjörna nema tvo menn af þremur í nefndir sem borgarstjórn kýs, og breyt- ir :þar engu um, þótt hjálpar- kokkurinn Magnús krati ellefti sláist í för með þeim. Hitt er svo aðeins í samræmi við lýð- ræðishugsjón íhaldsins að reyna að hagnýta sér sundrung minnihlutans og freista þess að fá alla þrjá fulltrúana í stjórn Sogsvirkjunarinnar kjörna úr sínum hópi. Þriðji maður á lista Sjálf- stæðisflokksins gat fengið rúm- lega þrjú atkvæði, en listi Al- þýðubandalagsins átti nákvæm- lega þrjú atkvæði. Það kom því í hlut Framsóknarfulltrú- ans að velja þarna á milli. Það var ekkert til, sem hét hlut- leysi. Með því að kjósa annað- hvort lista Sjálfstæðisflokksins eða Alþýðubandalagsins, þá réði Framsókn úrslitum kosn- ingarinnar. Með því að sitja hjá eða tojóða fram sinn eigin lista þá tók hún líka afstöðu, þ.e.a.s. -með Sjálfstæðisflokkn- um. • Framsókn í íhaldsþjónustu Framsókn valdi þann kost- inn, sem hennar var von og vísa, hún lagði fram sinn eig- inn lista. Og það er út af fyr- ir sig lærdómsríkt, að þriðji maður á framiboðslista Fram- sóknar, Björn Guðmundsson skyldi láta hafa sig í að -vera toendlaður við slíka íhaldsþjón- ustu. Því hefur e.t.v. ekki verið trúað að óreyndú, að ein- lægir vinstri sinnaðir menn létu óttann við sundrungaráróð- ur' Morgun-blaðsins villa svo um fyrir sér, að -þeir rynnu á íhaldsandstöðunni er á. hólminn var komið. Þar rættist vissu- lega óskadraumur íhaldsins að eiga hrædda og c-sjálfstæða andstæðinga. En öllum þeim, sem vilja í raun og veru hnekkja veldi nú- verandi borgarstjórnarmeiri- -hluta var þessi kosning holl lexía. Framsóknarflokkurinn læzt aðeins vera íhaldsandstæð- ingur í orði, én stuðlar að ó- eðlilega miklum á.-hrifum þess á borði. Nú getur því enginn kjós- andi, sem telui’ -sig vinstri sinn- aðan, með nokkrum rétti kosið Framsóknarflokkinn. Það er ekki lengur bara Varðbergs- armurinn sem þjónar íhaldinu, heldur allur flokkurinn. Vinstri merin éiga því aðeins einn málsvara í þessum kosn- ingum, Alþýðubandalagið. — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 23. maí 1962

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.