Þjóðviljinn - 30.05.1962, Blaðsíða 4
plÓÐVlLJINN
<ta*Iuidli ■m»«Uilnt*rflokk«T »1MB* - Wtl»llat»llokk»rliin. — HltrtJOrail
ítunðB KJartuisson (4b.>, Mmtnúí Tortl ólolsson, BlsurOuT QuBmundsson. —
S'rtttsrttatJórmr: ívar H. Jónsson, Jón BJarnason. — Auglýslngastjórl: QuBttlr
Matnósson. - Rltstjóm. altrelBsla, auilýslntar, prsntsmlBJa: SkólavórBust. 1».
sasai 17-óGO (# llnur). AakrlítarverB kr. 55.00 & món. — LausasöluvsrB kr. S.OO,
Völdum íhaldsins verður hnekkt
X íklegast h-afa engir orðið jafnhissa á úrslitum kosn-
inganna og burgeisar Sjálfstæðisflokksins, menn-
irnir sem átt hafa í stríði við alþýðu manna í Heykja-
vík og öllu landinu undanfarin ár og óspart misbeitt
rikisvaldinu til árása á kjör fólksins. Eins og jafnan
fyrir kosningar voru þeir logandi hræddir við dóm
kjósenda. Þeir <vissu fullvel upp á sig skömmina, vissu
að þeir áttu það miklu meira en skilið að alþýðufólk
í Reykjavík og annars staðar á landinu sýndi sérhags-
munaflokki íslenzka auðvaldsins í tvo heimana. Enda
var ótti þeirra og skjálfti óvenju mikill fyrir þessar
kosningar, svo mikill að þeim t6kst hvergi nærri að
leyna honum, heldur urðu menn varir við kosninga-
ótta íhaldsins langt út fyrir flokkinn.
Jgn þeir eru hættir að skjálfa í 'bili, burgeisar íhalds-
ins, þó ekki sé þeim rótt. Auður þeirra og pen-
'ingavöld, áróðurinn sem aldrei hefur haft á sér aug-
ljósari blæ nazistafyrirmynda, (enda nazistinn Birgir
Kjaran látinn ráða þeim þættinum í hernaðaráætlun-
inni), hafði tilætluð áhrif. Með einhverju fáránlegasta
moldviðri, sem nokkru sinni hefur sézt í íslenzkri
.blaðamennsku, var beitt áróðursaðferð nazismans, að
draga hug fólksins frá því sem rauiwerulega átti að
kjósa um, íslenzk þjóðmál, og láta hann snúast um allt
annað og óskylt- Þannig óstundaði íhaldsliðið nazistíska
forheimskun og reykbom-bur, sem lengi munu hafðar
að dæmum um siðlausa og óheiðarlega þjóðmála-
baráttu.
,eir voru ekki að flíka því fyrir kosningarnar Ólafur
Thors og Bjarni Benediktsson að nú skyldi gengið
til kosninga um árásir ríkisstjórnarinnar á lífskjörin
og samninga launþeganna, þeir höfðu ótrúlega lágt um
það að fólkið ætti að sýna afstöðu sína til viðreisnar-
innar, þeir báðu ekki um dóm fólksins yfir þeirri á-
kvörðun ríkisstjórnarinnar að banna atvinnurekend-
um að standa við samkomulag um leiðréttingar á samn-
ingum jámiðnaðarmanna, þeir báðu ekki rum álit fólks-
ins um framkomu afturhaldsins í togaradeilunni. Hins
vegar voru hrekklausir lesendur íhaldsblaðanna beðnir
að trúa því að Geir Hallgrímsson væri einn bezti borg-
arstjóri í heimi, meira að segja mátti álíta að fegurð
Esjunnar og höfuðborgin sjálf væri í hættu fyrir „ræn-
ingjum“ sem að sæktu. Og þegar Morgunblaðið tók að
vitna í Þorstein Erlingsson á sjálfan kosningadaginn,
var ljóst að þar voru að verki menn sem ekki hefðu
hikað við áður fyrr að snúa faðirvorinu upp á andskot-
ann. Menn voru beðnir að njóta af margra blaðsíðna
birtingum, fölsunum og útúrsnúningum á þýfi Morg-
unblaðsins af einkabréfum íslenzkra stúdenta erlendis,
og kjósendum var sagt eitt þúsund og einu sinni að þó
misbrestur hefði orð.ið á einu eða öðru hjá íhaldinu í
bæjarstjórn skyldi í framtíðinni allt gert fyrir alla,
bára ef menn vildú gjöra svo vel og lofa íhaldinu að
sitja áfram að völdum í .Reykjavík og fleiri bæjum.
þetta tókst einu sinni enn, þó hitt sé jafnvíst, að það
er ekki hægt að halda áfram til lengdar að hlunn-
fara svo mikinn fjölda fullorðinna alþýðumanna. Veru-
legur hiuti reykvískrar alþýðu hefur enn einu sinni lát-
ið blekkjast til að k.jósa gegn hagsmunum sínum, með
því að láta íhaldið haldá völdum í höfuðborginni. En
það er ekki tjaldað til frambúðar fyrir flokk auðvalds
og áfturhalds. Úrslit kosninganna krefjast samstöðu
alirá fihaldsandstæðinga. Vandamál Reykjavíkur, vanda-
mál allra ísienzkra bæja, vandamál íslenzkra þjóðmála
almennt kaiia' á hýja menn og nýjar lausnir þjóðfé-
lagsvánd'amála, sem steinrunnið íhaldið er ekki fært
um að gefa. Enn er óunnið mikið starf til þess að
fylkja saman andstæðingum íhaidsins í Reykjavík og
á landinu öllu, svo alþýðan geti sótt rétt sinn í hendur
burgeisuniu-m sem nú sitja yfir þeim rétti og verja
hann rneð blekkingarvéluxn áróðurs og auðs. En það.
starf verður unnið. , ý
Gleðileg tíðindi berast nú frá
Bandaríkjunum öllum þeim, sem
þjást af magasári, en þeir eru ó-
fáir hér á landi sem í öðrum
^menningarlöndum. Magasár er
hvimleiður og þrálátur sjúkdóm-
ur, enda þótt nokkuð sé hægt að
draga úr sársauka og óþægindum
af hans völdum með skynsamlegu
mataræði og lyfjum. Þeir skipta
þó hundruðum hér á landi sem
hafa ekki fengið varaníega meina-
bót með þeim hætti heldur hafa
orðið að gangast undir uppskurð,
láta skera úr sér hluta magans.
Hraðfrysting magans
í stað uppskurðar
Þau gleðitíðindi sem að
vestan • berast eru að slik-
ir uppskurðir kunni að vera
þarflausir þegar fram í sæk-
ir. og jafnvel áður en langt
líður. Dr. Owen H. Wangen-
steen og samstarfsmenn hans
við sjúkrahús Minnesotahá-
skóla. hafa fundið ráð til að
komast hjá uppskurði við
magasárj og er það fólgið í
'því að frysta magann og
stöðva þannig sýruframleiðsl-
una sem sárinu veldur.
Dr Wangensteen hefur ver-
ið brautryðjandi í magaupp-
‘skurðum og hefur gert hundr-
uð slíkra aðgerða, en hann
'hefur aldrei verið fyllilega
ánægður með árangurinn. Of
margir sjúklingar hafa mik-
il og varanleg óiþægindi eftir
uppskurðinn. Þeir geta að-
eins neytt lítillar fæðu í senn
og verða því sífellt að fá sér
ibita og hafa auk þess verki.
Þegar Wangensteen og
samstarfsmenn hans gerðu
uppskurði á sjúklingum
með tolæðandi magasár,
datt þeim snjallræði í hug.
Það hafði reynzt vel að kæla
magann til að draga úr baeði
blæðingu og sýrumyndun.
Myndi ekki frysting í stað
ikælingar draga enn meira úr
sýrumynduninni, svo mikið
að sjúklingurinn kenndi sér
ekki meins mánuðum eða
jafnvel árum saman? Með
á 150 hundum og þær gáfu
góða raun. Og nú hefur að-
ferðin verið reynd á mönnum
og árangurinn einnig orð ð
góður. Sjúklingurinn sem
ekki hefur neytt neínnar fæðu
í 15 klukkustundir svo að
magi hans sé tómur situr í
stól meðan aðgerðin fer fram.
Hann er ekki svæfður, held-
ur . fær ihann aðeins stað-
foundna deyfingu í hálsi.
Hann finnur því til lítilla
óþæginda þegar læknirinn
treður gúmmiblöðru í vélind-
að niður í magann. Úr blöðr-
unni liggja tvö gúmmirör,
'hvort innan í öðru. Kalt alkó-
hól er látið renna niður í
blöðruna þar til sjúklingur-
inn finnur að maginn er far-
inn að bólgna út, eiris og eft-
ir rikulega máltíð. Þá leggst
hann á bo.rð, og byrjað er að
dæla.
Hinum kalda vökva '(-b20
C) er dælt úr blöðrunni og
hann kældur aftur o2 síðan
niður í blöðruna og þannig
koll af kolli þar til maginn er
gaddfrosinn. Fæstir sjúkling-
arnir verða varir við nokkur
óþægindi, þó að þeir séu með
fullrj meðvitund. Þeir kvarta
ekki einu sinni yfir hinu ís-
kalda röri í munni eða hálsi.
Kæljvökvinn er látinn
rerma um blöðruna í klukku-
tíma. Fimm mínútur eru látn-
ar líða svo að blaðran þiðni,
en þá er hún dregin upp.
Sjúklingurinn getur strax far-
ið á fætur og heim til sín.
Eftjr tvær klukkustundir- get-
ur hann fengið sér að borða
eins og hann lystir.
Allir þeir sjúklingar sem
gengizt hafa undir þessa að-
gerð hrósa happi. Enda þótt
stórlega hafi dregið úr sýru-
mynduninni í maganum, hef-
u'r það ekki truflað melting-
una. Og öll sárin greru á
tveimur til sex vikum. Fryst-
ingin hefur þessi áhrif ekki
einungis vegna þess að hún
eyðileggur sýrumyndandi sell-
ur i magaveggnum, heldur
einnig vegna þess að hún
Dr. Owen H. Wangensteen
drepur þá taugabrodda Sem
senda hungurboð frá magan-
um til heilans.
Taki sýrumyndunin í mag-
anum aftur að vaxa, eins og
kann að verða e.ftir nokkra
mánuði, er hægt að hrað-
frysta maga sjúklingsins aft-
ur. Og Wangensteen segir að
flestir þeirra gætu þá skropp-
ið af götunni inn í sjúkrahús
og fengið fulla bót á rúmum
klukkutíma.
Grín og alvara í húsa-
kynnum Ríkisútvarpsins
Á þessari teikningu má sjá Starfsfd’ki Rikisútvarpsins tónleikum Sinfóníuhljómsveit-’
hvernig magafrysting fer þótti það kyndugir atburðir og arinnar, að fjárhæð um 9 þús-
fram. Vínajndinn sem notaður gott grin, er embætt.'smenn und krónur.
er sem frystivökvi rennur einnar opinberrar stofnunar Útvarpsstjóri og aðrir valda-
niður í gúmmíblöðruna í fylgdu svo fast eftir innheimtu menn Ríkisútvarpsins sáu ekki
maganum eftir ljósu leiðsl- opinberra gjalda hjá annarri aðeins skoplegu hlið þessa
unni og er dælt til baka eftir opinberri stofnun að þeir settu máls heldur alvöruna líka, því
þeirri dökku. DuodeuUn á innsigli hins opinbera á inn- og að krafa mun verða gerð af
myndinni þýðir skeifugörn og útgöngudyr aðalfjármáladeilda útvarpsins hálfu um greiðslu
pylorus magaport, en í þeim síðarnefndu stofnunarinnar. skaðabóta vegna þess tjóns er
hlutum innyflanna eru sár Það gerð.'st sem sé í gær- hlauzt af þvtí að ekki var unnt
tíðust. morgun að starfsmertn toll- að lesa auglýsingar í hádegis-
* stjóraembættisins innsigluðu útvarp.i meðan innsigli Torfa
slíkri aðferð mætti alveg dyrnar að auglýsingadeild út- tollstjóra voru á hurðarhúnun-
lækna skeiíugarnarsár, sem varpsins ög skrifstofu aðal- um, auk þess sem útvarps-
magasýrurnar valdaí gjaldkera þess vegna ógrejdds menn neita að viðurkenna
Fjtsí vóru gerðar tilraunir söluskatts af aðgöngumvðum að greiðsluskylduna.
^ ÞJÚÐVILJ'INN—> Mi*vikudagur 39, iriaí 1962