Þjóðviljinn - 17.06.1962, Side 9
Tékkar unnu KR 6:0
Garðar Árnason sá eini sem sýndi
getu á við Tékkana
Tékkneska unglingalandsliðið
lék þriðja lcik sinn á föstu-
dagskvöldið og mætti þá ís-
landsmeisturunum KR. Lcikn-
urn lauk eins og fyrri leikjum
Tékkanna hér með bursti, 6:0.
Leikurinn vai' að miklu leyti
sýning af hálfu Tékka, sem
ráða yfir mikilli og góðri
knattmeðferð og hafa næmt
auga fyrir samleik.
Þeir leika þá knattspyrnu
sem við erum að vona að okk-
ar leikmenn sýni, en því miður
eiga þeir enn langt í land með
að ná svo góðum árangri. Einn
leikmanna KR gaf þó von í þá
átt, en það er Garðar Árnason.
Hann var lengbeztur KR-inga
og jafnvel fyllilega á við Tékk-
ana. Ef KR-ingar hefðu átt
fleiri slíka, hefði leikurinn far-
ið á annan veg.
Bezt gekk KR þegar þeir
reyndu að leika saman og var
þeim stundum allvel ágengt, en
alltaf brást eitthvað, cg fékkst
þar af leiðandi ekki mark
skorað. í liði KR lék nýliði í
stöö'u bakv. í stað Hreiðars Ár-
sælssonar. Hét hanr. Kristinn
Jónsson og virðist efnilegur.
Bjarni var einnig drjúgur, svo
og Heimir í markinu, sem ekki
verður sakaður um mörkin.
Framv. Garðar, Hörður og
Sveinn unnu mjög vel og rugl-
uðu framlínu Tékka talsvert í
ríminu. Framlína KR var bit-
laus að mestu, en beztur þar
var Sigurþór Jakobsson svo og
Gunnar Guðmannsson.
Mörk Tékkanna
1— 0. Tæplega var liðin mínúta
þegar Tékkar settu fyrsta mark
sitt. Stokal spyrnti föstu skoti
utan vítateigs í blá hornið og
gerði Heimir enga tilraun til
varnar.
2— 0. Kvetat fékk knöttinn á 15.
mín. innan vítateigs og skoraði
örugglega.
3— 0. Holecek spymti föstu
skoti (á 38. mín) efst í mark-
Framhald á 11. siðu
Siglfirðingar í fremstu
röð á Skarðsmótinu
Jóhann Vilbdrgsson á fullri ferð í svigbrautinni. Á myndinni
kemur greinilega fram hve þétt hanh fer gegnum portin, öxl
hans nemur ah eg við stöngina. *■
Skíðamenn frá Akureyri forfölluðust
Siglufirði — Hið árlega
Skarðsmót var haldið í Siglu-
firði um hvítasunnuna.
Skarðsmótið er orðinn fastur
iiður í skíðamótum Iands-
manna og oftast í tölu hinna
skemtilegrustu.
Mótið sóttu að þessu sinni
skíðamenn frá Reykjavík,
Isafirði, Ólafsfirði og Siglu-
firði, en skíðamenn fjrá Ak-
ureyri forfölluðust.
Á laugardag fyrir hvíta-
sunnu var keppt í stórsvigi,
en kcppnin fer fram, cins og
nafnið ber með sér, í skíða-
landi við Siglufjarðarskarð.
Ágúst Stefánsson varð sigurveg-
ari í svigi í unglingaflokki.
Á laugardag va|r veður sæmi-
legt, en þoka lá yfir móts-
staðnum og sást víðast hvar
ekki nema mill tveggja porta.
1 stórsviginu urðu úrslit:
; Jóhann Vilbergssqn S 70,9
Svanberg Þórðarson Ö 73,6,
Kristinn Þorkelsson S 81,8,
Samúel Gústafsson I 82,4.
Kepþendur voru 26.
Stórsvig kvenna
Kristín Þorgeirsdóttir S 70,6,
Árdís Þórðcrdóttir S 87,0,
Sigríður Júlíusdóttir S 90,5.
Á hvítasunnudag var keppt
í svigi karla, kvenna, ungl-
inga og drengja.
Svig k;|rla
Jóhann Vilbergsson S 108,0
(hann átti beztan brautartíma
í báðum ferðum). Sverrir
Sveinsson S 119,6, Ásgrímur
Ingólfsson S 121,1, Svanberg
Þórðarson Ö 122,6.
í brautinni voru 58 hlið,
fallhæð 220 m, lengd 900. 15
luku keppni, 11 hættu og 12
mættu ekki til keppni (flest-
ir Akureyringar).
Svig kvenna
Kristín Þorgeirsdóttir S 95,2,
Árdis Þórðardóttir S 107,0,
Sigríður Júlíusdóttir 126,0.
arson S 72,8, öm Snorrason
S 76,4, Júlíus Magnússon R
84,1.
13 luku keppni, 2 hættu og
1 mætti ekki. í brautinni vora
35 hlið, fallhæð . 150 m, lengd
550 m. Brautiri sú sama og
hjá kvenfólkinu.
Drengir (8—12 ára)
Jóhann Tómasson S 72,7,
Bergur Eiríksson S 73,2,
Tómas Jónsson S 78,2.
I 4.-5. sæti voru bræðum-
ir Haraldur og Eýþór Haralds-
synir frá Reykjavík á 78,3
Hlið voru 27, fallhæð 110
m, lengd 400 m. 9 keppendur.
Alpatvíkeppni
Jóhann Vilbergsson S 0,0
stig, Svanberg Þórðarson Ö
11,75 st., Sverrir Sveinsson S
22,95 st. Samúel Gústafsson
1 23.78, Ásgrímur Ingólfsson
S 31,35.
Konur
Kristín Þorgeirsdóttir S 0.0
stig, Árdís Þórðardóttir S 29,55,
Sigríður Júlíusdóttir S 46,33.
Hjálmar Stefánsson lagði
brautirnar. Hann var undan-
fari í svigbrautinni og náði
þar beztum tíma.
Skíðafélag Siglufjarðar sá urn
mótið og mótsstjóri var Jón-
as Ásgeirsson. Að kvöldi hvíta-
sunnudags voru þátttakendur
og starfsmenn mótsins boðnir
til kaffidrykkju að Hótel Höfn.
Þar vóru verðlaun afhent og
da.ns var stiginn eftir kl. 12
68,9 um nóttina. Mótið var í alla
Unglingar
Ágúst Stef ánsson S
(hann átti beztan tírria í báð- .staði ánægjulegt og veður síð-
um ferðum). Ómar Ingimund- ari mótsdaginn var ágagtt.
uiaisnroingar toku nu i lyrsta sinn þátt í Skarðsmótinu, og hér
er einn keppandi þeirra, Sveinn Stefánsson, í brautinni.
Jóhann Tómasson, sem sigraði í svigkeppni drengja
TÉKKAR - TILRAUNALANDSLIÐ K.S.Í
keppa á Laugardalsvellinum annað kvöld (mánudagskvöldið) og hefst
leikurinn klukkan 8.30.
Dómari: Haukur Óskarsson
VERÐ AÐGÖNGUMIEÁ:
Stúkusæti ........ kr. 50.00
Stæði .............. — 35.00
Barnamiðar ......... — 10.00
V 1 K I N G U R
Sunnudagur 17. júní 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (Q