Þjóðviljinn - 17.06.1962, Side 7
Keres? Geller? Petrosjan?
Þegar þetta er skráð, er
þremur fjórðu hlutum mótsins
í Curacao að verða lokið. Má
nú fullvíst telja að einhver
Iþeirra Keresar, Gellers eða
Petrosjans verði sigurvegari á
mótinu og næsti áskorandi Bot-
vinniks. Botvinnik fær þannig
allavega nýjan andstæðing, þ.e.
imann, sem hanii hefur aldrei
teflt einvígi við áður. Ekki er
ólíklegt, að Botvinnik sé feginn
því, að ihann fær ekki Tal gegn
sér einu sinni enn (a.m.ik, ekki
í þetta sinn), því eftir fyrra
einvígi þeirra 1960 lét hann svo
ummælt, að hann teldi sig
mundu hafa haldið velli gegn
hvaða skákmanni heimsins sem
var nema Tal. Hefur Botvinnik
jafnan borið mikla virðingu
fyrir Tal og ekki fetað í fót-
spor Smisloffs, sem farið hefur
hraklegum orðum um hinn
unga meistára.
En hver hinna þriggja meist-
ara, sem verður áskorandi
Botvinniks að þessu sinni, þá
er örugg,t að sú keppni verður
hörð og spennandi. Það er erf-
itt að segja um, hver verður
honum hættulegastur. Hvort
það verður Tigran Petrosjan
með sitt rólega yfirbi-agð en
.rýtinginn uppi í erminni eða
ævintýramaðurinn Eufim Geller,
Ritstjóri
Sveinn Kristinsson
að líta, að hvorki hann né Pet-
rosjan hafa teflt líkt því eins
margar skáir gegn Botvinnik og
Keres hefur gert. Keres hefur
teflt fjölda skáka við Botvinnik
og hefur Botvinnik eitthvað 2
eða 3 skákir íram yfir úr öll-
um þeim fjölda. Er þar um
aldarfjórðungstímabil að ræða,
svo erfitt er að leggja það til
grundvallar spádómum um
einvígi þeirra í millum á næsta
ári, ef til þess kemur.
Við bíðum og sjáum hvað
setur.
Eftirfarandi skák er tefld í
14. umferð í Curacao.
Hvítt: Petrosjan
Svart: Filip.
Drottningarbragð.
1. c4, e6, 2. Rc3 d5, 3. d4, Be7.
(Fram undir þetta hefur verið
langaigengast að leika Rf6 í 3.
leik. En upp á síðk. hefur gætt
tilhneigingar í þá átt að ieika
þiskupnum fyrst til e7. Tilgang-
sem hefur synt óvenjulegt bf-* yúrinn er sá að iknýja hvítan til
yggi á þessu móti. Eða verður
það kannski snillingurinn Paul
Keres, sem um tvítugsaldur
var kominn í röð fremstu skák-
manna en hefur þó aldrei náð
heimsmeistara-titlinum? Um
þetta er erfitt að spá. Geller
hefur víst gengið bezt gegn
Botvinnik af þeim þremenningr
um fram til þessa, en á það ber
• að leika Rf3 á undan Bg5. 1
vissum afbrigðum og þá eink-
um Tartakower-afbrigðinu
(— — h6 og — — b6) gæti
nefnilega verið hagfelidara fyr-
ir hvítan að leika riddaranum
til e2. Því er hann strax knú-
inn til uppgjörs).
4. Rgl—f3, Rg8—46, 5. Bcl—f4.
( En Petrosjan er þá ekkert
upp á það kominn að leika
Bg5 en velur aðra fágætari leið,
sem. er sjálfsagt engu betri, en
minna könnuð. Honum er auð-
vitað ekki ókunnugt um, að
Tékkar eru miklir kunnáttu-
menn í skábyrjunum sbr. t.d.
Ludek Paehmann).
5. — — 0—0, 6. e3, C5.
(Eðlilegur leikur. Svajrtur
virðist geta náð auðveldri tafl-
jöfnun í þessu afbrigði).
7. dxc5, Bxc5, 8. a3.
(Petrosjan gat auðvitað drep-
ið á d5 og gefið svörtum þar
einangrað peð, en ávinningur
að þvi væri hæpinn, þar sem
svartur fengi svo gott leikrými
fyrir lið sitt).
8. —-------Rc6, 9. DcZ, Be7,
16. Ha—dl, Da5, 11. Rf3—d2,
e5.
(Filip virðist vera að ná góðu
sþili, en liði hvíts er skipulega
stillt upp og ekki svo auðvelt
að sækja að því).
12. Bg5, d4, 13. Rb3, Dd3,<^
14. Be2.
(1 skjóli iþess, að peðið á d4 er
leppur drottningarinnar getur
Petrosjan haldið rólegur áfram
liðskipan sinni. Filip grípur því
til róttækra aðgerða til að
reyna að hagnast á þvi, að
hvítur hefur enn eigi hrókað.
En þær aðgerðir skila ekki til-
ætluðum árangri).
14. -------Rf6—g4, 15. Bxe7,
Dh4.
(15. Bxg4 strandar auðvitað á
15. — Bxg4, 16. Bxe7, Bxdl
o.irv.).
15. -------Dxe7, 16. exd4,
Dh4.
(Þetta drottningarævintýri
endar med sfcelfingu. Hins veg-
ar virðist Filip ekki geta spom-
að við peðstapi. T.d. 16.-------
exd4 17. Rxd4, Rxd4, 18. Hxd4,
Rxf2, (Eftir 19. Kxf2 hyggst
svartur nú skáka á f6 og vinna
annað hvort hrókinn eða knýja
hvíta kónginn til e3, iþar sem
hann væri opinn fyrir árásum).
19. Rd5, De5, (19. — — Dc5
ieiðir til svipaðrar niðurstöðu).
20. Hh4, Bf5, 21. Dxf5! og hvítur
vinnur).
17. g3, Dh3, 18. d5, Rd4, 19.
Rxd4, exd4, 20. Hxd4, Dg2.
(í fljótu bragði virðist hvítur
ekkert öfundsverður af stöð-
unni því 21. Hfl yrði svarað
með Rxh2 og hróknum yrði eigi
bjargað. En Petrosjan bægir
frá allri hættu með aðdáunar-
verðri rósemi).
21. De4!, Dxf2t, 22. Kd2, Rf6,
(22. — — — Bf5, 23. Df4).
23. De3, Dg2, 24. Dgl, Dh3.
(Svartur þolir auðvitað ekki
drottningakaupin, þar sem
hvítur á valdað frípeð framyfir).
25. Hh4, Dd7.
(Nú sjáum við hvílíkt ógn-
ar skipbrot svartur hefur beðið
í hernaðarrekstri sínum. Meira
en helmingur liðsafla hans er
svo til óvirkur, og hann hefur
nánast engin tök á miðborð-
inu. Það er auðsætt, að hann
á ekki langt líf fyrir höndum).
26. Dd4, He8, 27. Bd3, b6.
(Þar opnar hann fyrir bisk-
upnum, en skelfing er útsýn-
ið leiðinlegt!).
28. Hh—fl.
Og nú tók Filip þann kost
að gefa skákina, og er það
tvímælalaust bezti úrkostur
hans. Hvítur hótar meðal ann-
ars að fórna á f6, og svartur
á enga viðhlítandi vörn við
þeirri hótun.
LOKASTAÐAN
Hvítt Petrosjan
Segir Bormann enn á lífi
PARÍS 12/6. — 52 ára gamall
Spánverji sem kallar sig Angel
Alcrazar de Velasco tog fullyrðir
að hann hafi fyrrum verið
spænskur blaðafulltrúi í Lond-
on, sagði á blaðamannafundi í
París í dag, að hann hefði í maí
1946 hjálpað Martin Bormann,
staðsengii Hitlers, á flótta í kaf-
báti frá Spáni til Suður-Argent-
ínu.
Spánverjinn kveðst síðast hafa
séð Bormann í Ecuador árið
1958. Nazistaforsprakkinn fyrr-
verandi haf; þá verið orðinn
bersköllóttur og gamlaður fyrir
aldur fram. :Hann Mefði þá verið
búinn' áð 'g'áii^a 'þVívegis undir
uppskurð til að breyta andlits-
falli sínu, nefið hefði verið brot-
ið upp og klastrað saman á ný
o.g1 kinnarnar' vérið. innfallnar.
Ég veit ekki hvar Bormann
heldur sig núna, sagði Spánverj-
inri, en siðast er ég hitti hann
kvaðst hann alltaf koma til
Evrópu einu s’jnni á ári. Ég er
viss um að harin er enn á lífi.
FflSKRUÐSFIROINGflR!
SAMVINNUMENN!
Vér bjóðum yður ahtar fáanlegar vörutegundir
á hagkvæmasta vcrði á hverjum tíma. — Dm
leið og þér efUð yðar eigin persónulega baga með viðskiptum
yðar við kaupfélagið, þá vinnið þér að eflingu lýðræðisins
f landinu.. og skapið traustan grundvöll fyrir sjálf-
stæði landsins > framtíðinni.
Erum ávallt viðbúnir að veita yöur þá
þjónustu, sem þér óskið að vér veitum yður á verziunarsviðinu.
Fáskrúðsfirði.
14
Sunnudagur 17. júní 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (19