Þjóðviljinn - 21.06.1962, Side 6

Þjóðviljinn - 21.06.1962, Side 6
JÚÐVIUINN Hstludli BaiMinliictrfloKkar albf9« — MalaUstaflokknrlnn. — KltatlArmri lumðs KJartansson (ib.), Mamús Torfl Ólafsson, Slcurflur auBmundsson. — ■ríttarltstiórar: ívar H. Jónsson. Jón Blarnason. - Auglýslngastlórl: QuBcalf tasnðsson - Ritstlórn, afarslBsla. auclíslngar, prsntsmiBla: SkólavBrBust 1». iltal 17-600 (6 linur). AskrlítarverB kr. 65.00 á mán. — LausasðluvsrB fcr. 8.00. Athyglisverðar staðreyndir F'yrir nokkrum dögum birti Tíminn kafla úr árs- * skýrslu þeirri sem Erlendur Einarsson forstjóri fiutti á aðaifundi Sambands íslenzkra samvinnufélaga. Þar var m.a. vikið að samvinnu verklýðsfélaganna og samvinnufélaganna um að leysa vinnudeilurnar á s.l. sumri og rætt um viðbrögð stjórnarvaldanna af því tilefni. Koma þar fram ýmsar athyglisverðar stað- reyndir. M.a. segir forstjórinn um kauphækkanir þær sem um var samið í fyrra og stjórnarvðldin töldu tilefni gengislækkunar: „Tlvað viðvíkur Sambandi áslenzkra samvinnufélaga, þá kemur í ljós við uppgjör 1961. að unnt var að taka kauphækkanirnar inn 1 reksturinn án hœkkunar vöruverðs eða þjón.ustu. Þrátt fyrir kauphækkanirnar /skilaði iðnaðurinn sæmilegri afkomu. Tekjuaukning vérzlunarinnar vegna gengisbreytingarinnar varð mun mintii en 'gengistapið, sem fært er gjaldamegin á rekstr- arreikning. A/Ctkjin framleiðsla, aukin umsetning, auk- in afköst og vinriuhagræðing sköpuðu möguleika til ■þessKáð taka kauphæ'kkanirnar inn í reksturinn“. Ijarna er það sannað með reik’ningum stærsta fyrir- tækis land§manna að kauphækkanirnar í fyrra voru svo hófsaiplégar að atvinnurekendur gátu tekið þær á sig,5án noklkurra verðhæbkana. Vilji stjórnarblöðin e.pn'' halda því til streitu að kauphækkanirnar hafi --V'engu að síður sligað efnaíhagskerfið, getur skýringin ekki verið önnur en sú að einkarekstur sé svo miklu lakari en samvinnurekstur að hann geti ekki staðið undir sambærilegu kaupgjaldi og að gengislækfcunin hafi verið gerð til þess að bjarga einbaatvinnurekend- um sem ékki séu menn til að hafa sómasamlega stjórn á fyrirtækjum sínum. 'C'n forstjóri SÍS segir fleirö. Hann greinir þannig frá framkomu stjórnarvaldanna eftir gengislækkunina: „■pftir gengisbreytinguna í ágúst s.l. var af verðlags- nefnd tekin til athugunar breyting á álagningu á vörum og þjónustu. Yfirmaður verðlagsmála kallaði fulltrúa Sambandsins á fund til viðræðna um þessi mál. Tveir fundir um þessi mál háru meiri svip rétt- arhalda en venjulegs viðræðujundar. ítrekaðar tilraun- ir voru gerðar á þessum fundum til þess að kalla fram óskir frá fulltrúum Sambandsins um hækkaða álagn- ingu á vörur og þjónustu. Þessar tilraunir mistókust. Fulltrúar Sambandsins íérekuðu fyrri yfirlýsingar, að Sambandið hefði aldrei farið fram á hækkun álagning- ar og myndi ekfci gera nú frekar en áður“. jetta er frásögn sem landsmenn allir þurfa að veita sérstaka athygli. Þarna kemur f 1 iós að ríkisstjórn- in sjálf hefur frumkvæðið að því að knýia fram hækk- un álagningar með aðferðum sem bera svip réttarhalda. Verðlagsnefndin, sem sambvæmt lögum á að gæta þess að verðlaginu í landinu sé haldið í skefjum, er notuð til þess að reyna að magna dýrtíðina. Það er haft í hótunum við fyrirtæki ef þau sjá ekki ástæðu til að hækka framleiðsluvörur sinar í verði. Ríkisstjórn sem þannig hegðar sér er ekfci að gæta hagsmuna þjóð- félagsins í heild, stefna hennar er sprottin af hefnd- arhug í garð launbega og framkvæmd í bágu einstakra fjárplógsmanna. Tilgangur hennar er að misskipta þjóðartekjunum æ meir og koma í veg fyrir bað með endurteknum stjórn'araðgerðum að almenningur njóti góðs af sívaxandi framleiðslu og bættri tækni. — m. Það var morgunn í maí fyrir rúmu ári. Við höfum . staðið í brekkunni neðan spjaldsins er stjórnarvöldin hafa verið svo hugulsöm að staurfesta þar til að minna okkur á að við erum hersetin þjóð, ráðum ekki landi okkar sjálf. Her byrjar yfir- ráðasvæði stríðsfélags þess er NATÓ heitir. — Og þó hefst það ekki hér, heldu.r í hugum og hjörtum þeirra valdamanna í Reykjavík er hyggjast græða í skugga atómvopna. Þetta staursetta spjald í NATÓbrekkunni er í stíl við spjöld þau er bæjarstjórnir víðsvegar hafa komið sér upp, t. d.: „Velkcmin til Reykjavík- ur“. Áletrunina hér ber að lesa: Velkomin í skugga atómdauð- ans! í þessu landi býr hugrökk iþjóð sem ekki telur eftir sér að brennast á atómbáli svo nokkrir tugir milljónara úti í „hinum frjálsa heimi“ megi græða. Meðan staldrað er við áður en mótmælagangan gegn er- lendri hersetu hefst kemur margt í hugann í þessari NATÓ brekku. Hve margir muna enn árið sem æðsti ráðamaður Breta- veldis, Chamberlain, flaug á fund Hi.tlers og fleygði í gráð- ugt gin þýzku nazistanna heilli þjóð: Tékkóslóvakíu. Sú frið- þæging var þó líkt og að he.lla olíu í eld, því 1. sept. 1939 réð- ist þýzki herinn inn í Pólland, — heimsstyrjöldin síðari var hafin. Þann dag setti ugg í brjóst margra Isiendinga er mundu heimsstyrjöldi.na fyrri, og vissu að nú voru allar vega- lengdir „styttri". Við munum enn morguninn 10. maí 1940 — þegar fyrstu liðssveitir Breta læddust hér á land, meðan landsmenn sváfu, og hófu að traðka íslenzka jörð u. ndir stríðsmannahælum. Þetta voru yfirleitt hæglátir, fremur geðbekkir menn. u.ndir alvæoni, rekn.ir áfram af öskrandi liðs- foringiu.m, er sperrtu.st af hroka líkt og flogaveikiss.iúklingar af krampa. — Þá voru Islendingar, nær án u.ndantekninga, enn slík börn í stertimennsku cg stríði að þeir undru.ðust slíka fíflsku eða hlógu að henni. Það er heldur ekki gleymt aprílkvöldið ári síðar, þegar „verndararnir" sem ári áður stjgu hér á land tóku r.itstjórn Þjóðviljans og fluttu úr landi — að undirlagi íslenzkra manna — ollt í nafni ,,frelsi.sins“! Og enn munum við 10. júlí á.rið 1941. hegar vígdre.kar ann- arrar þjóðar lögðu að landí og bar daríski herinn marséraði hér á land. — samkvæmt „ósk“ ís- lenzkra stjórnarvalda. Árin liðu.. Stríði lauk. En bandaríski herinn fcr ekki af í°tandi. f stað þess að efna fyr- irhei.tið um að kveð.ja her sinn heim að stríði laknu kröfðust Bandarikin herstöðva hér til 99 ára. Þá var fögnuður nýfengis , sjálfstæðis enn nógu ferskur með þjóðinni til þess að það tókst, fyrir baráttu sósíalista o.fl. góðra manna, að lroma í veg fyrir þá óhamingju. En svo var það einn haustdag — 5. okt. 1S4G — að hinir 32 þingmenn borgaraflokkanna á Islandi samþykktu að leigja Bandaríkj- unum Keflavíkurflugvöll. „Þetta er bara holt og hraun“. — Já, „gefum kónginum Grímsey, því Grímsey er bara sker“. Og ná- 'kvæmlega þrem vikum síðar var það að maður að nafni Ól- afur Thors sperrti sig á palli hér uppi í Miðnesheiðinni og gól yfir forarpollana að nú hefðu Islendingar tekið við þessum flugvelli til „ævarandi yiirráða"! Þau yfirráð voru slík cð frá þeim degi þurfti banda- ríski herinn um sinn ekki að klaeðast stríðsbúningi. Flugvall- arsamningurinn var samningur um að hér skyldi bandaríska stríðsvélin klæðast sk.kkju frið- arpcstulans. Og „friður" striðsgróðamanna tók skjótum framförum. Að tveimur og hálfu ári liðnu fluttu f oringj ar stríðsgróðaf lokkanna þjóðinni þann fagnaðarboðskap að nú yrði hún, sem verið hafði vopnlaus og friðsöm um aldir, að ganga í hernaðarbandalag, — vitanlega til þess eins að friður mætti haldast!! Það gekk erfiðlega að koma þessu inn í kollinn á Islendingum, og þeir mótmæltu slíkri „friðarsókn". Þá kvöddu Ólafur Thors, Guð- mu.ndur 1. Guðmundsson og Ey- steinn Jónsson kjósendur á fund sinn við Alþingishúsið og siguðu , þar á þá . kylfubúnum Heimdellingum og létu grímu- búna lögregluþjóna skjóta á þá. Þannig er þeirra friður. Jafnframt sóru þessir herrar við allt sem þeim var heilagt að her skyldi aldrei vera á íslandi á friðartímum. Síðán vitum við að þessum mönnum er ekkert heilagt, að þegar þeir fara að sverja hafa þeir ákveðið að svíkja — og þegar þeir linna svar- dögunum er komið að fram- kvæmd svikanna. „Friðarsókn“ stríðsfélagsins 'hélt áfram — í áföngum. Á vetrardögum 1951 hóuðu stríðs- gróðafl kkarnir auðtrúa, góð- vilju.ðum landsbyggðarbi.ng- mönnu.m flokka sinna til Rvík- ur ©g hvísluðu. að þei.m því „trúaðarmáli" að yfirvofandi væri i.nnrás Rússa í landið, eina björgunin væri að verða fyrri t.il og kveðja h.ingað bandarískan her. Þeir sem ekki vildu. samþykkja slíkan laumu- verknað, eða drógu innrásar- hættuna í efa, voru teknir einn og einn og heilaþvognir unz þeir höfðu játað skipunum flokka sinna. Síðan fengu Iþeir ströng fyrirmæli um að halda þessu vandlega leyndu fyrir þjóðinni. Og þingmennirnir héldu heim og biðu komandi vordaga. Sumir hófu þegar að boða nauðsyn erlends hers í landinu. því satan sjálfur biði við austurströndina færis að hremma okkur. En ÞEIR hefðu séð við honum í tíma! Já, raunverulega töldu þeir sig hafa frelsað föðurlandið! — Það er þungu.r kross að vita sjálfan sig frelsara og mega engum segja frá því. Svo var það aðfaranótt 7. maí 1951 að vansvefta maður beið óþreyjufullur uppi á Mið- úesheiðinni, hlustandi þunnu & Haraldur Hallsson hljóði, hcrfandi til himins. Hann beið komu þeirra sveita sem allir hans valdadraumar í þessu landi voru bundnir við. Loks heyrðist gnýr í lofti — og fyrstu bandarísku liðsflutninga- vélarnar renndu inn á völlinn. Vansvefta maðurinn — Guð- mundur I. GuCmundsson, lög- Ólafur Thors talar yfir forarpollunum á Miðnesheiði 26. október 1946. g) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 21. júní 1962

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.