Þjóðviljinn - 21.06.1962, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 21.06.1962, Qupperneq 9
iililiil 1» Attunda þingi norrœnna tra lokið Það var skemmtilegt að sjá stóran hóp af ungum strák- um taka þátt í 17. júní-mót- Inu — fimleikum, boðhiaup- um o.fl. Þegar þrístökkið fór _ fram röðuðu strákarnir sér við stökkgryfjuna og fylgdust spenntir með eins og myndin sýnir. Það er Vil hjálmur Ein- arsson, sem er að stökkva. — (Ljósm. Þjóðv.). Sigurður Sigurðsson hafði framsögu um efnið „Þjóðar- rembingur og íþróttablaða- imennska". Gerði Sigurður því efni góð skil, og nefndi glögg dæmi um hinn alkunna þjóð- arrembing í sambandi við í- þróttir og þá sérstaklega lands- keppni. Var gerður mjög góð- ur rómur að erindi Sigurðar og urðu um það miklar um- ræður. Sagði einn ræðumaður að þessi ræða þyrfti að standa í ★ Iþróttaritarar á ráðstefnu Myndin er af þátttakendum í 8. ráöstefnu norræna íþrótta- fréttaritara, sem lauk í fyrra- dag. Á myndina vantar 4—5 Svia sem stóðust ekki mátið er Ingemar Johansson keppti í Gautaborg á dögunum og flugu heim af ráöstefnunni til að horfa á keppnina. Ráð- stefnan þótti takast mjög vel og erlendu gestirnir sögðu í gamni að þetta yrði 8. og síðasta ráðstefnan, þar sem móttökur hér hefðu verið svo góðar, að ekkert hinna landanna vildi halda 9. ráð- stefnuna af ótta við saman- burð. (Ljósm. Þjóðv.). Evald Andersen frá Danmörku. Heiðursgestur þingsins var Ben. G. Waage forseti ISÍ. blöðunum árlega. Kom mönn- um saman um það að íþrótta- fréttaritarar gætu haft sína miklu þýðingu í þá átt að fjar- lægja þennan þjóðarrembing. sem væri hvimleiður og ætti að hverfa. Dr. Finnbogi Guðmundssor flutti erindi um íþróttir forn- manna, og var gerður góður rómur að erindi hans. Um það urðu síðan nokkrar umræður og fyrirspurnir. Þá var rætt um það hvort íþróttafréttamenn á Norðurlönd- um ættu að velja bezta íþrótta- mann Norðurlanda, og veita honum ígrip sem þegar væri búið að bjóða fram. Var það ein- róma skoðun ræðumanna að ekki kæmi til mála að þiggja slíkan bikar þar sem um aug- lýsingabragð væri að ræða. Mörgum fannst þó hugmyndin góð og vert væri að leita eftir Jeiðum til að koma henni fram. Við síðari umræðu um þetta mál, var ákveðið að íþrótta- blaðamenn í ihverju landi at- ihuguðv. ti.lteknar tillögur sem. fram komu, og á að vera búið að ganga frá þeim fyrir haust- ið. Um öll þessi mál sem fram komu urðu miklar umræður og ríikti mikið frjálslyndi og hinn hugsjónalegi grundvöllur í- þróttanna sat í fyrirrúmi. Forsetar iþingsins voru þeir Sven Ekström frá Svíþjóð og BORG OG LAND SKOÐAÐ Á milli fundanna var tíminn notaður til þess að sýna gest- unum það markverðasta: I- þróttamannvirki Reykjavíkur, Geysi og Gullfoss, farið í flug- ferð yfir Vestmannaeyjar og austur með Eyjafjöllum að Vík í Mýrdal og til baka yfir Eyja- fjallajökul, Þórsmörk, iHeklu og Þingvallavatn, ferð sem þeir sögðust aldrei mundu gleyma, Hringferð var farin um Krísu- vík, Sog og Þingvöll, og þar flutti síra Eiríkur J. Eiríks- son fróðlegt erindi um mynd- un Þingvalla og sögu þeirra. Þá var skoðuð hitaveitan. Að Bessastöðum voru þeir boðnir og þótti mikið til koma. I lokahófi sem þeim var hald- ið á mánudagskvöld létu full- trúar hinna fjögurra landa í Ijósi mikla aðdáun á landi og þjóð og þeim móttökum sem þeir höfðu fengið. Næsta mót íþróttafréttaritara á Norðurlöndum verður í Finn- landi næsta ár. ISLAND VANN HIN FJÖGUR LÖNDIN I KNAXTSPYRNU 4:1 Knattspyrnuleikur hefur ver- ið fastur liður á mótum iþess- um, og var ákveðið að ísland léki við úrval frá hinum lönd- unum. Fór leikurinn fram í mikilli kyrrþey, og ekki í skark- ala bæjarins en í friðsæld sveitarinnar því Afturelding lánaði völl sinn fyrir þennan menkilega leik. Úrslit urðu þau að Island vann og er það ekki daglega sem það skeður að’ við vinnum hin fjögur i kriátt- spyrnu, 'og þó höfðu þeir dóm- arann með sér, en hann var danskur. Upplýstist það síðar, að honum hafði verið „mútað“ til að dæma víti á ísland, en svo illa tókst til að knötturinn kom aðeins tvisvar inn á vítateig, og í annað skiptið varð mark! Gestirnir skoruðu fyrsta markið en svo tóku íslending- arnir leikinn í sínar hendur og sögðu stopp, og skoruðu 4 mörk. Vildu sumir halda því fram að ieikurinn hefði endað með jafntefli, þar sem Island hefði fengið 1 og Island hefði skorað 1 á hvert hinna Norð- urlandanna! Vafalaust munu margir vilja vita hvernig þetta sigursæla knattspyrnulið var skipað, en það var svona: örn Eiðsson, Kjartan Fálsson, Frímann Helgason, Jón Pétursson, Har- aldur Baldvinsson, Axel Sig- , urðsson. Valgeir Ársælsson; Bjarni Ansnæs, Gunnar Guð- mannsson, Atli Steinárssop 'og , * Sigurður Sigurðsson. Frímann. y"-; íslandsmeistara- mót í útihand- knattleik karla Islandsmótið í útihandknatt- leik karla 1962 verður háð á tímabilinu 15. júlí til 15. ágúst n.k. Handknattleiksdeild Glímufé- lagsins Ármanns hefur verið falið að sjá um framkvæmd mótsins og mun það fara fram á íþróttasvæði félagsins við Sigtún. Keppt verður í meist- araflokki en einnig er fyrir- hugað að halda mót fvrir 3ja flokk ef næg þátttaka fæst. Þátttökutiikynningar ásamt þátttökugjaldi kr. 50 pr. flckk, skulu hafa borizt í síðasta lagl 25. júní til HaÍIgríms Sveins- sonar Eélagsheimili Ármanns sími 23040. Mun hann veita all- ar nánari upplýsingar um mót- ið. --------—-------—-----------H Fram—Vahir 1 : 1 í íslandsmóti 1. deildar léku Fram og Valur í gærkvöld á Laugardalsvelli. Leikar fóru svo að jafntefli varð, 1:1., bæði, mörkin skomð í fyrri hálfleik. BILASÝNING I HÁSKÓLABIÓI Sýndar eru sjö gerðir bifreiða frá Rootes Ltd.: Hillman, Singer, Kommer. — Opin daglega frá kl. 1, Laugavegi 168 — Símar 20410 — 20411. RAFTÆKNI H.F. Fimmtudagur 21. júní 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (g

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.