Þjóðviljinn - 27.06.1962, Blaðsíða 9
Ennþd varð jafntefli
hjd KR og Fram 2:2
Það er ekki ný bóla, að leik
á milli KR og Fram lykti með
jafntefli, það þýkir orðið sjálf-
sagt. Þetta er í þriðja sinn,
sem kapparnir hittast í sumar,
og í öll skiptin hafa þeir skil-
ið jafnir. Ekki varð þessi leik-
ur til þess að skýra línurnar
í deildinni að neinu verulegu
leyti. Fram hefur jú tekið for-
ustuna með 7 stig, en síðan
koma þrjú félög fast á eftir
með 6 stig: KR, Valur og ÍA.
ÍBA er með 4 st.ig.
Öll hafa þessi lið mikla
möguleika á titlinum en hvert
hafi mestá möguleika er úti-
lokað að segja til um.
Ójafna á vellinum varð
þess valdandi að 3. mark
Fram sá ekki dagsins ljós
Framarar voru meira í
sókn fyrstu mínúturnar en skot
þeirra Hallgríms og Ásgeirs
misstu bæði marks. Gunnar
Felixson komst í færi skömmu
siðar en skaut í varnarmann
Fram og tækifærið rann út í
sandinn.
Hættulaus bolti stefnir í átt-
ina að marki Fram á 10. mín.
og Halldór miðframv, Fram
hyggst spyrna honum frá
markinu en hann „kiksar1' og
Gunnar Felixson fær knöttinn,
leikur síðan á Guðjón og
spyrnir á mark íramhjá Geir,
sem kom út o.g gat enga björg-
un veitt. Ódýrt mark að vísu
en mark þó. Og með eitt mark
undir halda Framarar áfram
baráttunni. Sókn þeirra her
árangur á 16. mín, þegar Grét-
ar sendir knöttinn til Ásgeirs,
sem leikur síðan á Hreiðar og
Ján Úlafsson til Moskvu
- Pétur í góðri þjálfun
Jón Ölafsson.
í dag leggja af stað Þeir Jón
Ólafsson ÍR, hástökkvari og
Ingi Þorsteinsson varaformaður
FRÍ, til Moskvu. Stjórn FRl
valdi Jón til fararinnar þar eð
Vilhjálmur Einarsson gat ekki
farið, sökum meiðsla í fæti, en
honum var upphaflega boðið.
Jón mun taka þátt í alþjóð-
legu íþróttamóti, sem haldið er
til minningar um þá Szna-
mensky bræður. (Þeir voru
langhlauparar fyrir stríð). Þetta
er tveggja daga mót. Hástökk-
ið er fyrri daginn. Sennilegt er
að Jón taki þátt í einhverjum
mótum á heimleiðinni. Jón
hefur nú undanfarið stokkið
tvo metra á æfingum svo
sennilegt er að hann bæti met
sitt í förinni. Við óskurn þeim
félögum góðrar ferðar.
★
Pétur Rögnvaldsson er dvel-
ur nú við nám í USA virðist
í mjög góðri þjálfun nú. Tími
hans í grindahlaupinu er 14,4
og nýtt fslandsmet. Til marks
um það að þetta hlaup hefur
ekki byggzt á eintómri heppni
má líta á önnur hlaup hans.
íHann hefur hlaupið 6 sinnum
á 14,6 tvisvar á 14,5, einnig
hefur hann náð 23,9 í 200 m
grindahl., sem er jafnt íslands-
meti hans. 6,91 er hans bezta
í langstökki og rúmir 60 m í
spjótkasti. Pétur er eini frjáls-
íþróttamaðurinn, sem hefur
náð þeim lágmarksárangri sem
þarf til að komast á EM. Hann
mun þó ekki taka þátt í því
móti vegna anna.
er þá kominn í færi við mark-
ið og spyrnir framhjá Gísla
markverði glæsilegu skotj al-
gerlega óverjandi, 1:1.
Annað mark Fram lét ekki
á sér standa og átti Ásgeir
einnig stóran þátt í því. Þrem-
ur mín. eftir að hann hafði
skorað sendj hann knöttinn
fyrir markið og Hörður Felix-
son nær ekki að „hreinsa"
heldúr hálf-kiksar og Guð-
mundur Óskarsson kemst inn
fyrir og spyrnir föstu, óverj-
andi skoti efst í markhornið,
sem Gísli hafði enga möguleika
á að verja.
Um þetta leyti og áður lék
framlína Fram oft skemmtilega
á KR-vörnina með skásending-
um o.g voru þær oft mjög vel
miðaðar en endahnútarnir urðu
erfiðari viðfangs. Það var eins
með KR-ingana, þeir áttu einn.
ig allgóð tækifæri en sókn
þeirra gaf ekki árangur sem
erfiði. Þriðja mark Fram lá
í loftinu á 35. mín., er Guðm.
Óskarsson spyrnti á markið
og Gísli var ,,ekki á staðnum“,
en maður kemur í manns stað,
því Hreiðar bjargaði á mark-
línunni, en það var aðeins
augnablik því Baldur Schev-
ing fékk knöttinn og lagði fyr-
ir markið til Ásgeirs, sem stóð
metra frá markteig í opnu færi,
en um leið og hann ætlar að
fara að spyrna tók knötturinn
aðra stefnu og Ásgeir greip í
tómt. Þarna bjargaði ójafna í
vellinum KR frá þungu höggi.
Síðari hálfleikur
daufur
Er 10 min. voru liðnar höfðu
bæði liðin skapað sér sæmileg
tækifæri, sem þeim tókst þó
ekki að nýta. Framundir miðj-
an hálfleikinn voru KR-ingar
öllu meira í sókn en leikurinn
var orðinn ,,]íflaus“. Leikmenn
beggja liðanna voru orðnir allt
of spenntir, sendingar yfirle:tt
ónákvæmar og míkil deyfð yf-
ir öllu og öllum. Leikmennirn-
Framhald á 11. síðu.
í úrvalsliði S.B.U.
Markverðir:
Mogens Johansen, Köge. Hef-
ur leikið 14 sinnum í úrvalsliði
S.B.U., svo og einu sinni í U-
landsliði (undir 23 ára) og einu
sinni í B-landsliði. Mjög snjall
markvörður og einn af máttar-
stólpum liðs síns, enda verið
fyrirliði þess undanfarin ár.
Johansen lék í marki S.B.U. í
heimsókninni hingað 1958.
Paul Knudsen, Lyngby. Hefur
leikið einu sinni í úrvalsliði
S.B.U. Traustur markvörður,
sem hefur átt drjúgan þátt í
uppgangi félags síns undanfar-
in ár.
Bakverðir:
John Björnholt, Köge. Hefur
leikið þrjá úrvalsleiki. Sté'rkur
Og duglegur leikmaður sem
erfitt er að leika á.
Kurt Nielsen, Köge. Hefur leik-
ið þrjá úrvalsleiki og einn leik
með U-landsliði (undir 23 ára).
Fljótur og leikinn bakvörður.
Fínn Jensen, Koskilde. Hefur
leikið tvo úrvalsleiki. Lék um
tíma með K.B., er nú einn bezti
og traustasti leikmaður Ros-
kilde. Sterkur og ágengur bak-
vörður, sem gefst ekki upp fyrr
en í fulla hnefana.
Framverðir:
Börge Andersen, Köge. Hefur
leikið 13 úrvalsleiki, tvo lands-
leiki í U-landsliði (undir 23 ára)
og í B-landsliði gegn Noregi sl.
hvítasunnudag. Grannur og
veikbyggður, en mjög teknískur
og duglegur.
Rudy Kannegaard, Köge. Hef-
ur leikið 12 úrvalsleiki. Traust-
ur, fljótur og mjög duglegur
miðframvörður. Kannegaard lék
alla leiki S.B.U. í heimsókninni
hingað 1958.
Jörgen Bendsen, A.B. Hefur
leikið í úrvalsliði Kaupmanna-
hafnar auk Sjálands. Stór og
sterkur miðframvörður, traust-
ur og jafn. Hann er fyrirliði
A.B.
Orla Astrup Madsen, Lyngby.
Hefur leikið fjóra úrvalsleiki.
Hár vexti (1.93 sm) og sterkur
leikmaður með mjög góðae
kbllspyrnur. Leikur miðfram-
vörð með félagi sínu og þykir
einn efnilegasti leikmaður Dana
í þeirri stöðu, en leikur hliðar-
framvörð með S.B.U.
Erik Nielsen, A.B. Leikur nú
í fyrsta skipti með S.B.U., en
hefur áður leikið í úrvalsliðum
Kaupmannahafnar. Mjög al-
hliða leikmaður, sem leikur
ýmist framvörð eða innherja;
enda mjög leikinn og lipur.
Framherjar:
Hans Andersen, Köge. Hefur
leikið 18 úrvalsleiki og fimm
landsleiki með U-landsliði (und-
ir 23 ára). Er af mörgum tajinn
bezti innherji Dana nú. þð að
danska landsliðsnefndin sé'ekki
sarrta sinnis. Mjög leikinn. dúg-
legur og ágengur leikmaður
sem veldur sérhverri vöi'n mikl-
um erfiðleikum. Andersen leik-
ur jöfnum höndum allar stöð-
ur miðjutríósins.
Ole Jörgensen, Iíöge. Hefur
leikið þrjá úrvalsleiki cg tvo
leiki í U-landsliði (undir 23
ára). Talinn einn efnilegasti
knattspyrnumaður, sem Danir
hafa lengi átt, en þykir of lin-
ur.
Finn Nielsen, A.B. Hefur leik-
ið þrisvar í úrvalsliði Kaup-
mannahafnar, en leikur nú í
fyrsta sinn fyrir S.B.U. Dugleg-
ur og ágengur miðherji og skot-
harður með báðum fótum.
Mogen Nielsen, Lyngby. Hef-
ur leikið tvo úrvalsleiki. Mjög
fljótur vinstri útherji, ágengur
og marksækinn. Hann er þótt
ungur sé þegar kominn undir
smásjá dönsku landsliðsnefnd-
arinnar.
Freddy Aaboe, Lyngby. Hefur
leikið fjóra úrvalsleiki. Mjög
leikinn og fljótur leikmaður, en
hættir til að einleika um of.
Jens Olscn, Roskilde. Ungur
og efnilegur útherji, sem leik-
ið hefur einn leik í úrvalsliði
S.B.U. Hefur vakið mikla at-
hygli fyrir hraða, dugnað og
góða knattmeðferð.
Klukkuleysið á
Vallargcstir velta því mjög
fyrír sér hvenær sá dagur
renni upp * að timakiukka
verði isett á Laugardalsvöllinn,
en hún er hið rnesta þarfa-
þing og tiil hagræðis fyrir alla
aöila. Vitað er að völlurinn á
splunkunýja klukku, en hún
mun verða að híða síns tírna,
því hún á að falla inní bygg-
ingu þá sem fyrirhuguð er á
auða svæðinu nyrzt á vcllin-
um. Ekki erum við í neinum
vafa um, að liún muni sóma
sér vel á þeim stað, en gall-
inn er bara sá, að það er allt
of llangt þangað til.
En það er til mjög einföld
Iausn á þessu máli og hún er
sú að nota klukkuna sem er úti
á Mclavelli. Ekkert ætti að
vera auðveldara, þar sem
Icikir fara ckki samtímis
fram á báðum völlunum. Þaö
þarf aðeins að smíða aðra
skífu, eins og þá sem er úti
á Mclavclli, fcsta hana síðan
upp á Laugardalsvellinum og
stinga síðan sjálfu verkinu í.
Það er ekki nema eitt hand-
tak að stinga verkinu í og
taka það síðan úr og þannig
nota klukkuna á báðum völl-
unum eftir því hvar leikur er
hverju sinni.
Vallarstjórn ætti að gera
citthvað í þessu rnáli, því all-
ir sakna klukkunnar. Einnig
ber að hafa í huga að það er
menningarbragur á þeim velli,
sem hefur slíkt verkfæri í völlurinn má ekki lengur vera
þjónustu sinni, og Laugardals- án klukku.
t
Miðvikudagur 27. júní 1962 — ÞJÓÐVILJINN —