Þjóðviljinn - 29.07.1962, Page 1
Sunnudagwr 29. ju i 1962 — 27. árgangur — 168. tölublað.
Síldarstúlkur! 'T
«
Alþýðubla.ðið sagði í gær, að'
það kæmi með áríðandi skila-
boð til ykkár í dag. — Rílds-
stjórnin er nefnilega búin að
ákveða að láta ykkur hætta
allri síldarsöltun!
Framleiðslubann stjórn-
arvalda reginhneyksli
ftomi »■■■■■;»■
• ■ ■ -
• Ríkissi.jórmn og meiríhluti síldarútvegs-
nefndar hafa nú lagzt á eitt að stöðva alla
síldarsöltun.
• Akvörðun meirihluta síldarútvegsnefndar,
að stöðva alla síldarsöltun er slíkt regin-
hneyksli, að fá dæmi munu um annað eins.
Þetta skeður einmitt þegar síldin er að verða
hvað bezt til söltunar, og fyrir liggur tilboð
frá Rússum um kaup á verulegu magni salt-
síldar, þótt ekki hafi enn náðst samkomulag
um verð.
• Vinnubrögð sem þessi eru algert einsdæmi
og koma þvert á fyrri yfirlýsingar nefndar-
innar að síldarsaltendum væri heimilt að salta
áfram á eigin ábyrgð. Hér er því um algert
framleiðslubann að ræða í samræmi við þá
stefnu ríkisstjórnarinnar að neita saltend-
um um ábyrgðarlán til framleiðslunnar.
Stranglega bannað
Þessar mynd'r voru tekn-
ar fyrir nokkrum dögum
í Neskaupstað, en ‘þar
hefur verið líflegt að und-
anförnu eins og víðar á
Austur- og Norðurlandi.
Á stærri myndinni sést
yfir eina söltunarstöðina í
Neskaupstað og hluta
hafnarsvæðisins þakið
tómum og uppsöltuðum
ymsu
hrópar
minni
síldartunnum og
öðru er þarf til síldar-
söl.tunar.
„Taka tunnu",
unga stúlkan á
myndiinni.
En nú, þegar bann hef-
ur verið sett við frekari
síldarsöltun, er viðbúið að
deyfðin færist yfir þessa
söltunarstöð eins ,og aðrar.
(Ljósm. Jón Ingólfsson).
Öll vinnubrögð meirihl'.uta
síldarútvcgsnefndar eru með end-
cmum hvar sem litið er.
Nefndin lióf samninga mun
seinna en venjulega og hafði því
selt mun minna magn af salt-
síld en nokkru sinni fyrr, er síld-
arvertíð hófst. Ákvöröun henn-
ar nií um stöðvun allrar
söltunar nema sérsöltunar, kem-
ur einnig þvert á fyrri tilkynn-
íngu nefndarinnar, að saltendum
sé le.vfilegt að salta á cigin á-
byrgð. Þetta gerist á sama tíma
og síldin er hvað bezt til söltun-
ar. Jafnframt liggur fyrir tilboð
frá Rússum um kaup á verulegu
magni saltsíldar, þótt enn hali
ekki náðst samkomulag um verð.
Fyrir nokkra gæðinga
Sérsöltunin, sem halda má á-
fram, mun einkum vera söltun
sykur- og kryddsíldar, sem selja
á til Svíþjódar, Bandaríkjanna og
Vestur-Þýzkalands. Er þar um að
ræða nálega 50 þúsund tunnur,
sem nokkrir gæðingar í síldar-
útvegsnefnd sitja að. Þessu er
þannig komið fyrir, að kaupend-
ur ytra íela umboðsmönnum sín-
um hér að ákveða hverjir salta
fyrir þá. Og vitanlega er séð till
þess, að umboðin séu í höndum
„réttra aðila“.
Öllum þorra síldarsaltenda cr
hins vegar bannað að halda á-
fram að framleiða, þrátt fyrir ai»
á borðinu liggur tilboð frá Rúss-
um um kaup á verulegu magni
saltsíldar. Saltendum er meira aft
segja hótað sektum, cf þeir
haldi áfram að frant eiöa, ef þeir
vilja og geta saltað áfram á eig-
in ábyrgð. Þetta er í fullu sam-
ræmi við vinnubrögð ríkisstjórn-
arinnar að neita síldarsaltendum
um ábyrgð út á framleiðslu sína.
Ríkisstjórnin og meirihluti síld-
arútvegsnefndar virðist þannig
staðráöin í því að láta fleygja i
bræðslu ágætri söltunarsíld og
valda sjómönnum og saltendum
miklu og ófyrirsjáanlegu tjónl,
auk þcss stórfú Ida tjóns, seni af
þcssu hlýzt fyrir þjóöina í heild.
Framh. á 2. síðu
Sjá 8.
siðu