Þjóðviljinn - 31.07.1962, Síða 4
glIÓÐVILllNH
Utgefandi Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. —
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurð-
ur Guðmundsson (áb.) — Fréttaritstjórar: Ivar H. Jónsson, Jón
Bjamason. — Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson. — Rit-
stjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 55.00 á mánuði.
Forsendiim sleppt
Tleldur hafa verið litlir kærleikar með stjórnarflokk-
onum og Framsókn unlanfarið, eða þannig hefur
það a.m.k. litið út á yfirborðinu. En alltaf öðru hvoru
. kemur þó í ljós að leyniþræðimir eru traustir enn
sem fyrr, eins og sjá mátti eftir bæjarstjórnarkosning-
arnar í vor t.d. á Akureyri ®g víðar. Alþýðuglokkur-
inn hefur samt verið dálítið afbrýðisamur af þessum
sökum. Hann má ekki til þess hugsa að íhaldið verði
frá sér tekið. Þegar Framsókn tók aftur að veita íhald-
inu blíðu sína og jafnvel að réka krataigreyin ur rúmi
til þess að getá sængað með íhaldinu eins mg fyrir
kom í Hafnarfirði, fannst Alþýðublaðinu _ nóg komið.
Hefur það undanfarið hellt sér yfir Framsóknarflokk-
inn fyrir að vera helzt til gírugur til valdanna og láta
ekki afstöðu til mála vera sér fjötur. um-fótr ef næg
völd eru í boði. Virðist í þessu fólgin hógvær bending
til íhaldsins um að aldrei muni þó kratar láta sér til
hugar koma þá ósvinnu að krefjast áhrifa á stjórn-
arstefnuna.
Pramsókn hefur aftur á'móti sent krötum föðurlega
1 áminningu um að ek’ki skuli þeir nefna snöru í
hengds manns húsi. Þeir séu falir hverjum sem hafa
vill fyrir auð og metorð, og sé það sízt betra. Kratar
■hiafa þó talið sig hafa undirtökin I þessari sérkenni-
legu deilu, og s.l. sunnudag bregður svo við, að Tím-
inn endurprentar í leiðara sínum grein úr Alþýðu-
blaðinu, þar sem skýrt er frá makki Eysteins Jónsson-
ar og Hermanns Jónassonar við ríkisstjórnina um
Efnahagsbandalagið. Framsóknarmenn fá þannig vitn-
eslkju um gerðir forystumanna sinna beint úr mál-
gögnum stjórnarinnar og minnir það óneitanlega nokk-
uð á það, þegar Íslendingar fá fyrst fregnir f-rá erlend-
um aðilum af viðræðum íslenzkra ráðamanna við þá.
Tíminn segir jafnframt, að allt sé satt og rétt, sem
Aiþýðublaðið hefur skýrt frá um ,;einkafundina“, enda
megi treysta því, að Framsóknarflokkurinn „gæti hags-
muna þjóðarinnar“, og sé það „stutt af reynslu fyrr
og síðar“. A3 - o.
* .‘1 O i d'Í ' V
fj’n Tíminn getur þess ekki, að Alþýðublaðið hefur
verið að rifja upp reynsluna af Framsókn í mál-
um sem þessum undanfarið. Á þeirri reynslu byggir
Alþýðublaðið þá niðurstöðu sína, að. fjffiíjiiljfiafi ver-
ið unnt að múta Framsókn með völd'Unáy4P%4gis við
hvaða óþurftarverk sem ér. Upplýsingar Alþýoublaðs-
ins um „einkafundi" ráðherranna og foringja Fram-
só'knarflokksins um Efnahagsbandalagið eru í beinu
samlbandi við skrif blaðsins um mútuþægni Framsókn-
arforingjanna og hljóta því að skoðast í ljósi þess.
Tíminn gleymir þessum forsendum alveg, — eða öllu
heldur sleppir þeim af ásettu ráði
Oú ályktun, sem Tíminn dregur af skrifum Alþýðu-
^ blaðsins, að óháett sé að treysta foringjum Fram-
sóknar, er því næsta ótraustur grundvöllur til að
byggja á. Enn einu smni þefur það komið í ljós, að
Framsókn leikur tveim skjöldum. Og reynsla fyrr og
; síðar sannar, að þá er Framsóknarflokknum ekki
að treysta eftir kosningar í máiiim sem þessu. Leiðin
til þess. að tryggja hagsmuni íslenzku þjóðarinnar er
því að efla Alþýðubandalagið og áhrif þess á öllum
sviðum þjóðlífsins. Það þarf ekki einungis að veita
stjórnarflokkunum hæfilega ráðningu í næstu kosn-
.ingum ti.l Alþingis. Kjósendur þurfa einnig að veita
Frgmsókn hæfilegan skell til þess að hún þori ekki
að hlaupa yfir L herbúðir íhaldsins eftir á. — b.
Lanbsmót skóta
★ Þúsundir voru við setningu
landsmóts skáta á Þingvöllum
árdegis á sunnudaginn. Var
þá blíðskaparveður, en eftir
hádegi gerði stórfellda rign-
ingu. Um kvöldíð, þegar varð-
eldur var í Hvannagjá, var
svo aftur hið indælasta veður.
★ Hér á síðunni eru þrjár
svipmyndir frá landsmótinu.
Efst sést skemmtilegt tjald-
búðahlið Víkverja í Njarðvík-
um, í miðið er brezkur skáti
að hita sér té yfir prímus-
d’.di og neðst er víkingaskipið
sem myndar hlið Skátafélags
Reykjavíkur í tjaldbúðunum.
(Ljósm. Þjóðv. A.K.).
2) — ÞJÖÐVILJINiNt
Þriðiudagur-31; júlí 1962