Þjóðviljinn - 24.08.1962, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 24.08.1962, Qupperneq 3
Frokkland Tilrœðismanna er nú leitað um allt PARÍS 23 8 — Franska lögreglan leitar nú um allt landiö aö mönn- um þeim sem í gær reyndu aö Táða de Gaulle forseta af dögum. Jafnframt hefur vaknað grunur um að menn í æðstu stöðum hafi skýrt tilræðismönnum frá fcrðum de Gaullc. Menn telj'a víst að tilræðis- menn séu úr leynihernum OAS, sem gerir sér vonir um að, geta Tuðzt til va-lda í Frakklandi í þeim glundroða sem verða myndi ■ef de Gaulle félli skyndilega frá. iLögreglan hefur fundið gulan vörubíl sem tilræðismenninnir höfðu til umráða, en skildu eftir i Meudon. Bíllinn er frá Joigny í Yonnefylki. í honum fundust tvær vélbyssur og sprengja. Tilræðismennirnir munu senni- lega hafa notað tvo aðra bíla, Citroen og Fiat. Þeir sem voru í vöru.bílnum hafa líklega kom- izt undan í Citroen-bíl sem stol- ið var í Meudon skömmu eftir tilræðið. ★ ★ ★ Minnstu munaði i þetta sinn að de Gaulle yrði ráðinn af dögum. Það er talið hafa bjarg- að lífi hans að hjóibarðar á bíl hans eru skotheldir og gat bíll- inn því haldið áfram þó að skotið væri á hjól hans. Tvær kúlur fóru inn. í bílinn og fór önnur- þeirra aðeins um þrjá sentimetra frá höfði forsetans. Dómur í máli Scblens í dag LONDON 23/8 — Mál banda- ríska læknisins, Roberts Soibl- en, kom fyrir yfirrétt í London - í dag, en hann ihefur áfrýjað úr- skurði brezka innanrikisráðu- neytisins um að 'hann skuli fytja nauðugan úr landi til Bandaríkjanna bar sem hans bíður œvilöng fangelsisvist fyrir niósnir. Rétturinn hafnaði í dag kröfu lögmanna Soblens um að innanríkisráðuneytinu yrði gert að leggja fram i réttinum ö'.l skjöl sem farið hafa á milli þess og Bandarikjastjórnar um mál skjó’.stœðings beirra. Yfirréttur- inn mun væntanlega kveða upp úrskurð sinn á morgun. • 250 tonn af heimamiðum í gærmorgun kom hingað til Reykjavíkur togarinn Ingólfur Arearson með um 250 tor.n af fiski, sem veiddist á heúnamið- um eftir fremur stutta útivist. Er unnid að löndun aflans. Islenzkri tónlist er bœgt fró erlendis Jón Leifs Það liefur þótt brenna við, að Norðuriandabúar sumir ncyttu aðstöðu sinnar til að bægja frá j íslenzkri tónlist á alþjóðamótum,! eins og þeir gætu ekki fyrirgefið okkur að hafa stofnað „Alþjóða- ( ráð tónskálda” hér á tónlistar- ! hátíðinni 1954, á tíu ára fæð- ingardegi hins endurreista ís- lenzka lýðveldis. Þannig fórust Jóni Leifs orð er blaðamenn ræddu við hann í gær. Tilefni fundarins eru hin- ir Norrænu tónlistardagar, sem haldnir verða í Ilöfn 12. til 10. september næstkomandi og Nor- ræna tónskáldaráðið gengst fyrir. Á tónleikum þessum verða flutt verk eftir fjögur íslenzk tón- skáld, þá Jón Leifs, Leif Þórar- insson, Fjölni Stefánsson og Magnús Blöndal Jóhannsson. Sitja þeir Jón og Magnús um leið aðalfund tónskáldaráðsins. Jón lét þess getið, að röðin sé komin að íslandi að hafa nor- ræna tónlistardaga árið 18P4, en íslenzk tónskáld séu óánægð vegna þess hve lítið tillit hafi verið tekið til íslenzkrar tónlist- ar við hátíðir á Norðurlöndum. Séu Islendingar tregir að taka við skyldum nema jafnréttisregl- ur verði samþykktar á aðalfund- inum nú, enda miklu dýrara fyrir okkur en hin Norðurlöndin að halda uppi slíkum samskipt- um. Þau tónverk íslenzk, sem flutt verða í Höfn að þessu sinni eru: Þrjú sönglög eftir Fjölni Stef- ánsson. Eru þau samin vorið 1958 við kvæði úr „Tíminn og vatnið” eftir Stein Steinarr. Lögin eru við þessi kvæði: Á sofinn hvarm þinn, I sólhvítu ljósi og Ég var drúpandi höfuð. Eftir Jón Leifs verður flutt- ur Kvintett op. 50, sem saminn var haustið 1960 og fluttur á Þetta myndarlega, upphleypta Islandskort blasir við augum ■fc allra þeirra sem leið eiga i -*• Ferðaskriíst. ríkisins í Gimli •^ við Lækjargötu. Kortið var áður á gaflvegg húss Bif- reiðastöðvar Islands við Kalk- ofnsveg en var hlutað sund- ur og flutt í vor. Om skeið í sumar hefur verið unnið að því að koma kortinu fyrir ir á nýja staðnum cg fyrir fá- ^ um dögum lauk Helgi S. Bergmann við að mála flat- ★ lendi. fjöll og jöklana. (Ljm. Þjóðv. A. K.). tónleikum „Musica növa” í vetur. Kveðst Jón hafa „gengið í gegn- um tólftónastílinn” en orðið hon- um síðar fráhverfur og tekið að byggja á kvint íslenzka tvísöngs- ins og íslenzkum þjóðlagastíl. Eftir Leif Þórarinsson verður flutt „Mosaik” sem er sónata fyrir fiðlu og píanó. Eftir Magn- ús verður flutt „Samstirni” sem er concrete-elektrónískt verk með sópran og framsögn. Átta einkaflugvélar hið minnsta í flugkeppninní A. m. k. átta eins Hreyfiís einkaflugvélum, tveggja til fjög- urra sæta, verður flogið í flug- keppni Flugmálafélags Islands á sunnudaginn, og búizt er við tals- verðri þátttöku í flugmódelsýn- ingunni sem þá fer einnig fram. Sl. sunnudag var skýrt nokkuð fró flugkeppninni hér í Þjóðvilj- anum og skal því aðeins drepið lítillega á hana núna. Þetta er fyrst og fremst keppni um hæfni flugmannanna. Fylgzt verður með flugi þeirra yfir nágranna- sveitir. Reykjavíkur, lendingum og hvernig þeir leysa sérstakar iþrautir, t. d. að varpa niður hlutum á ákveðna, afmarkaða staði. Ellefu einkaflugvélar munu koma til greina í flugkeppni þess- ari og í gær var vitað að a.m.k. endur eru í hverri flugvél, aðal- flugmaður og aðstoðarmaður hans. Þótttakendur eru flestir at- vinnuflugmenn. Keppt er um veglegan grip sem Olíuverzlunin , Skeljungur gaf fyrir nokkrum ár- um. Hefur einu sinni verið keppt um Shéll-bikarinn, árið 1957, óg unnu hann þá þeir Reynir Guð- l mundsson . og Franz Hákonson, sem báðir eru atvinnuflugmenn. | Keppt var þá eftir nokkuð öðrum reglum en nú verður fylgt, en þær eru algerlega sniðnar eftir hliðstæðum keppnisreglum er- lendis. | Jafnhliða flugkeppninni verður, I eins og áður segir, efnt til flug- módelsýningar á Reykjavíkur- , flugvelli. Þar verða sennilega | sýnd 15—20 flug'módel af ýmsum ^gerðum: svifflugmódel, fjarstýrð- ^ ar vélflugur o. fl. Er tilgangur sýningar þessarar að kynna þessa tómstundaiðju sem ungiróggaml- ir hafa gaman af. RAUFARHÖFN — Síld- arverksmiðjan hér á Raufarhöfn hefur nú fcekið á móti meiri síld- arafla til bræðslu en nokkru sinni fyrr. Um miðja þessa viku munu hafa borizt í sumar til verk- smiðjunnar milli 255 og 260 þús- ■mál síldar. Til samanburðar má geta þéss að á allri .sildarver- tíðinni í fyrrasumar tók verk- smiðjan á rrioti samtals 250.150 málum. Á dögunum, þegar dró úr síidiveiðinni, voru menn farnir að Tbúast við þvtí að nok'kurt hlé kynni að verða á vinn.u 1 verk- smiðjunni, en það stóð á endum, þegar verksmiðjan var að ljúka við vinnslu þeirrar síldar sem í þrcim var gcymd tók veiðin að giæðast1 aftur og síldveiðiskipin að streyma að landi með afla. Eru þvií 'allar ihorfúr á því að bræðsla verði áfram óslitin um skeið. Segja má að verksmiðjan hafi stöðugt. starfað frá þvi fyrsta sí’din 'barst um mánaðamótin júní—júií og eru starfsmennirn- ir því að vonum orðnir nokkuð Lúnir á hinni miklu og löngu vinnu. Lönduðu í gær á Raufarhöfn Löndun sl. sólarhring hefur verið sem hér segir: ólal'ur Tryggvason 750, Fákur GK 1700, Jón Jónsson SH 250, Gísli lóðs GK 680, Valafell SH 650, Ásúlfur IS 200, Helgi Fló- ventsscn ÞH 1200, Ver AK 550, Baldur EA 800, Hringver VE 750, Heimir KE 350, Þor- björg GK 750, Hrafn Svein- bjarnarson II GK 550, IMímir GK 350, Freyja IS 450, Bjarmi EA 600, Hringsjá Sl 800, Guð- björg ÓF 860, Sigurbjörg SU 500, Árni Geir KE 300, Hall- dór Jónsson SH 600, Ólafur Magnússou EA 1050, Sæfart AK 700, Sigurvon AK 800, Freyja GK 500, Guðfinnur KE 700, Gnýfari SII 700 og Arn- firðingur RE 600. Föstudagur 24. ágúst 1962 — ÞJOÐVILJINN — ($

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.