Þjóðviljinn - 03.11.1962, Side 3
Föstu'dagur 2. nóvember 1962
ÞJÓÐVILJINN
SÍÐA 3
Fidel Castro í útvarpsrœðu:
Fráleitt að við afsölum okkur vörn vina
en sitjum svo uppi með herstöð óvina!
HAVANA og WASHINGTON 2/11 — Fidel Castro,
forsætisráðherra Kúbu, hélt útvarps- og sjónvarps-
ræðu seint í gærkvold og krafðist þess, að Banda-
ríkjamenn yrðu á brott úr herstöð sinni á Kúbu,
Guantanamo. Hann sagðist mundu virða og styðja
þá ákvörðun Sovétstjórnarinnar að fjarlægja strat-
egísk vopn frá Kúbu, en mótmælti því, að varn-
ir Kúbu yrðu settar undir alþjóðlegt eftirlit. Allt
sem við höfum aðhafzt, er í samræmi við þjóðar-
rétt, sagði Castro, en USA hefur fótum troðið al-
þjóðalög. Hvers eigum við þá að gjalda?
1 ræðu sinni á fimmtudags-
kvöld lýsti Castro því yfir, að
vamarvopn af strategískri gerð
yröu fjarlægð frá Kúbu, en Kúbu-
búar myndu ekki fallast á utan-
aðkomandi eftirlit með vörnum
sínum. Tillagan um eftirlit er
sett fram til að auðmýkja okkur,
sagði Castro, — með eftirliti er
verið að ganga á rétt sjálfstæðr-
ar þjóðar til að ráða ein mál-
um sínum. Við skiljum ekki
þessa kröfu um eftirlit. Allt sem
\ið höfum aðhafzt er fullkom-
lega í samræmi við alþjóðarétt.
Við höfum ekki brotið neina þá
reglu, sem gildir í samskiptum
þjóða, en Bandaríkin hafa ráðizt
inn í landhelgi okkar og loft-
helgi og fótum troðið alþjóðXlög
um siglingar á hafinu.
Við munum aldrei afsala
okltur rcttinum til að hafa
þau vopn sem við þörfnumst,
sagði Fidel Castro. Við mun-
um aldrei gefast upp fyrir
Bandaríkjunum! Það er frá-
leitt að heimta, að við afsöl-
um okkur varnarstöðvum, sem
vinir okkar hafa hjálpað okk-
ur að koma upp, en samtímis
séum við neyddir til að sitja
uppi með herstöð óvinarins i
landi okkar!
Þrátt fyrir ágreining stendur
Kúba við hlið Sovétríkjanna.
Castro lagði sérstaka áherzlu
á það í ræðu sinni, að Kúba
væri áfram vinur Sovétríkjanna.
Hann játaði að vísu, að meðan
ó átökunum stóð, hefði oft orðið
ósamkomulag um stefnuna, en
nú ríkti fullkomin eining.
„Við erum fyrst og fremst
marx-leninistar. Og nú er eng-
inn ógreiningur milli Kúbu og
Sovétríkjanna. Við treystum al-
gjörlega sovétleiðtogunum. Þeir
hafa ákveðið að taka aftur hfh
strategísku varnarvopn, og við
virðum þá ákvörðun“. Castro
lauk miklu lofsorði á Sovétríkin
fyrir tæknilega, vísindalega og
efnahagslega hjálp þeirra á neyð-
arinnar stund.
I ræðu slnni krafðist Castro
þess aftur og aftur, að Banda-
ríkjamehn yröu á brott úr
herstöð sinni á Kúbu, Guant-
anamo. Taldi hann furðulegt,
ef Bandaríkin ættu að kom-
ast upp með að skipa sov-
ézkum hernaðarsérfræðingum
að fara burt frá Kúbu, en
sætu sjálfir með þúsundir
hermanna á eyjunni. Sovét-
menn væru þó vinir þeirra,
komnir þangað vegna beiðni
Kúbustjórnar, en Bandaríkja-
menn, óvinir Kúbumanna
sætu á eyjunni í trássi við
vilja þjóðarinnar.
„Ölíkt höfumst við að!“
Bandaríkin hafa sett hafnbann
á Kúbu á nýjan leik og slegið
hring herskipa um eyjuna. Mikið
var um að vera á Flórídaskaga í
dag og stöðugt berst þangað auk-
inn herstyrkur. Suðurhluti skag-
ans er sem í umsetursástandi og
hundruð skipa og flugvéla á
sveimi þar um slóðir.
Á sama tíma berast þær frétt-
ir frá Kúbu, að Castro ætli ekki
að sitja við orðin tóm, og hafin
sé vinna við brottflutning hinna
rússnesku vopna. McNamara,
varnarmálaróðherra Bandaríkj-
anna, lýsti því yfir í dag, að Ijós-
myndir teknar úr lofti sýndu,
að verið væri að rífa niður skot-
palla og fjarlægja hin umdeildu
vopn.
Eftirlit af hálfu !• •'
Rauða krossins?
Aðstoðarforsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, Anastas Mikojan kom
til New York í gær á leið sinni til
fundar við Castro í Havana.
Áttu þeir fund saman Mikojan
og Ú Þant sem var þá nýkominn
frá Kúbu ásamt fylgdarliði sínu.
Stevenson aðalfulltrúi Banda-
ríkjanna hjá SÞ átti einnig fund
með þeim hvorum fyrir sig, Mik-
ojan og Ú Þant.
Meðal fréttaritara er mikið um
það rætt, að starfsmenn Rauða
krossins verði fegnir til að hafa
eftirlit með vopnaflutningi frá
Kúbu. Fullyrt er, að Ú Þant,
framkvæmdastjóri SÞ, hafi varp-
að fram hugmyndinni um eftirlit
Rauða krossins, þegar er honum
varð ljóst, að Kúbustjóm myndi
ekki fallast á eftirlit SÞ.
Fidel Castro flytur útvarpsræðu.
Handtaka Spiegel-manná
Vaxandi horfur á að stjórn
Adenauers springa á málinu
Paradís á jörðu
ALSÍR 2/11 — í gær var þjóð-
hátíð haldin í Alsír til að minn-
ast upphafs byltingarinnar. Ben
Bella lýsti yfir í ræðu samstöðu
Alsírbúa með Kúbu. Hann sagði,
að helzta verkefni stjómar sinn-
ar væri áð breyta Saharaéyði-
mörkinni 'i parpdfs á jörðu.
BONN 2/11 —• Vaxandi horfur eru nú taldar á því að
aðför vesturþýzkra stjórnarvalda að vikublaðinu Der
Spiegel muni verða til þess að sprengja samsteypustjórn
Adenauers. Fundir hafa verið haldnir víða í landinu til
að mótmæla fangelsun blaðamannanna, en þeir hafa kom-
ið fyrir ekki, og var einn þeirra í viðbót handtekinn í gær.
Dr. Wolfgang Stammberger,
sem er úr flokki Frjálsra demó-
krata, sagði af sér embætti dóms-
málaráðherra í fyrradag, vegna
þess að undirmenn hans úr Kristi-
lega demókrataflokknum (flokki
Adenauers) höfðu leynt hann að
í bígerð væri að handtaka blaða-
mennina. Erich Mende, formað-
ur Frjálsra demókrnta, sendi Ad-
enauer bréf þar sem hann bað
um skýringu á þessu, og Aden-
auer svaraði því. Það svar telja
ráðherrar Frjálsra demókrata þó
mjög ófullnægjandi og hafa þeir
nu hótað að segja allir af sér
embætti, ef Adenauer hefur ekki
gefið svar sem þeir taka gilt í
síðasta lagi á mánudag.
Mótmælafundir
Víða í Vestur-Þýzkalandi hafa
verið haldnir mótmælafundir til
að mótmæla aðförinni að Der
SpicgeL Mannréttindafélagið í
Vestur-Berlín hélt slíkan fund
þar í fyrrakvöld og rðrir fundir
voru haldnir í Hamborg, Hann-
cver og Braunschweig. 1 Ham-
borg hleypti lögreglan upp fundi
háskólastúdenta, en þeir héldu
þá fylktu liði til borgarfangelsis-
ins, en þar situr útgefandi viku-
blaðsins, Rudolf Augstein, í varð-
haldi.
Enn einn handtekinn
Enn einn af forráðamönnum
Ber Spiegel var handtekinn í
kvöld, og sitja þá fimm þeirra
í fangelsi. Sá sem í kvöld var
handtekinn er Hans Ditlev
Becker, framkvæmdastjóri blaðs-
ins.
öflurn
Þjoðviljanum
nýrra áskrif-
enda!
Sovétrtkin urðu
enn fyrri til
Sovézkir geimvísindamenn
hafa enn einu sinni orð-
ið til að ryðja brautina til
könnunar geimsins. í fyrrad.
var skotið upp frá Sovétríkj-
unum fyrsta geimfarinu sem
ætlað er að fara til Marz,
þeirrar reikistjörnu sem
jörðinni er næst af þeim sem
eru fjær sólú en hún. Þessi
tilraun var ekki óvænt. Það
hafði jafnvel verið við því bú-
izt að reynt yrði að senda
geimfar til Marz frá Sovét-
ríkjunum þegar í september
1960. Af því varð þó ekki;
sovézkir vísindamenn hafa
talið eðlilegra að reyna fyrst
að senda geimfar til Venus-
ar, en það gerðu þeir í febr-
úar 1961. Sú tilraun fór verr
en á horfðist í fyrstu, því að
senditæki Venusarfarsins bil-
uðu af ókunnum orsökum eft-
ir skamman tíma. Frekari til-
raunir til að senda geimskip
til Venusar hafa ekki veri?
gerðar í Sovétríkjunum, en
Bandaríkjamenn gerðu tvær
slíkar í ár o.g heppnaðist önn-
ur (Mariner II.) að mestu.
Nokkur hætta •er' þð á- því að
senditæki Mariners II. verði
óvirk þegar í nánd reiki-
stjörnunnar kemur í næsta:
mánuði, þar sem sólarraf-
hlöður hans hafa bilað. f stað
þess að reyna aftur að senda
geimfar til Venusar ákváðu
sovézkir vísindamenn að
senda far til Marz fyrst, þó
að vænta megi Venusarskots
frá þeim þegar afstaða jarð-
ar og Venusar verður aftur
hagstæð til slíks eftir tvö ár,
eða jafnvel fyrir þann tíma.
Enda þótt meira sé vitað um
Marz en nokkra aðra
reikistjörnu. þá er hún sízt
ógimilegri til fróðleiks en hin
leyndardómsfulla Venus.
Stjömufræðingar hafa öld-
um saman beint kíkjum sín-
um að Marz og komizt að
mörgu um eðli þessa nábúa
okkar i geimnum (minnsta
fjarlægð milli jarðarinnar og
Marz er ,,ekki nema“ um 55
milljónir km). En eins og oft
vill verða hefur sú vitneskja
sem safnazt hefur saman á
löngum tíma leitt til þess að
nýjar spumingar vöknuðu
sem enn er ósvarað. Hinir
víðfrægu „skurðir" á Marz
sem ítalski stiörnufræðingur-
inn Schiaparelli taldi sig hafa
uppgötvað á síðustu öld og
teiknaði niður af mikilli ná-
kvæmni munu nú af flestum
taldir sjónblekking ein. en
komu á sínum tíma af stað
miklum bollaleggingum um
að á Marz byggiu vitsmuna-
verur. o.g „skurðirnir" væru
áveitukerfi. Engum kemur það
lengur til hugar. en hins veg-
ar hefur margt bótt benda
til þess á síðari árum og æ
fleiri visindamenn hafa ball-
azt að þeirri skoðun. að á
Marz sé frumstætt Iíf. Marz
hefur gufuhvolf. að vísu mjöe
bunnt '(við yfirborð plánet-
unnar er það svipað og í um
50 km frá jörðu) og fjar-
lægðin frá sólinni gerir sð
verkum að þar ríkir yfirleitt
mikilil fimbulvetur. Þó er hit-
inn á miðbaug plánetunnar
á háde,gi allmikið yfir frost-
marki. Það hefur verið sýnt
fram á að hér á jörðinni get-
ur frumstætt líf þrifizt við
hin erfiðustu skilyrði, bæði
kulda og þunnt loft, eins og
t.d i hæstu fjöllum, og það
eitt hefur þótt færa líkur
fyrir því að slíkt líf þróaðist
á Marz. En auk þess hafa
athuganir á yfirborði pláru
etunnar þótt renna stoðum
undir þessa hugmynd, þannig
að þar væru t-d. gróðurbelti
sem færðust til eftir árstíð-
um. Af því litla sem hér
hefur verið sagt má gera sér
í hugarlund, að vísindamenn
um allan heim bíða óþolin-
móðir eftir nýrri vitneskju
sem hið sovézka geimfar,
Marz I.. mun væntaniega
fsera þeim. en frá því hefur
verið skýrt að ætlunin sé að
geimfarið taki myndir af
Marz (og reyndar líka á rúm-
lega sjö mánaða langri leið
jarðar. Von er til að þær
myndir muni veita áreiðawlegt
svar við þeirri spurningu,
hvo.rt nokkurt líf sé á Marz.
IMoskvu hefur verið boðað
að Marz I. sé aðeins upp-
haf nð skipulögðum rannsókn-
um á plánetunni og má því
vænta fleiri slíkra geimskota
á næstu mánuðum og árum.
Rétt mun að gera ráð fyrir
að þessu fyrsta Marzfari sé
ekki ætlað að lenda á plánet-
unni. en að því mun koma
von bráðar. Hinn mikli þungi
Marz I. gæti bent til þess að
hann væri búinn nægu elds-
neyti til að hann gæti lent á
yfirborði plánetunnar, nöfnu
sinnar. Hins er þó að gæta
að auk hinna miklu og flóknu
mæli-, Ijósmynda- og sendi-
tækja mun Marz I. einnig
hafa meðferðis miklar og
þungar rafhlöður af venju-
legri gerð. Hann er einnig
búinn sólarrafhlöðum, en
bæði er það að þær ha'fa
reynzt óáreiðanlegar (sbr.
Mariner II.) og svo það að
vegna meiri fjarlægðar frá
sólinni nýtast þasT miklu verr
en í Venusarferð (við beztu
skilyrði aðeins 29% af nýt-
ingunni í Venusarfari. við
verstu aðeins 19%). Það má
telja víst að ekki verði reynt
að lenda á Marz í þetta sinn
(þó að lending þar myndi
ekki verða geysilegum örðug-
leikum bundin, af ástæðum
sem ekki verða raktar hér að
sinni) heldur muni hinum
Marzskipunum sem boðuð
hafa verið. verða ætlað það
hlutverk. Það má þannig bú-
ast við því að ætlunin sé að
myndirnar sem teknar verða
af plánétunni verði fyrst
sendar til jarðar, þegar braut
eeimfarsins nálgast jörðina
aftur.
En þótt Marz I, muni vænt-
anlega svara ýmsum
spumingum sem engin svör
voru til við áður, kann svo
enn að fara að hann veki
fleiri spumingar en hann
svarar. Þá er gott til þess að
vita. að fleiri munu koma á
eftir. og skiptir þá minnstu
hvort þeir verða sovézkir eðá
bandarískir. Það mættu þau
fréttablöð hafa í huga sem í
gær töldu ekki ómaksins vert
að skýra frá þessum nýja á-
fanga í könnun geimsins. ás.
V
>
i