Þjóðviljinn - 04.11.1962, Side 4
4 SÍÐA
Þ J ÓF> VIL.TINN
Laugardagur 3. nóvember 1962
Engin haldbær rök fyrir kjara-
skerðingarkröfu útgerðarmanna
áður heíur tíðkazt, að málinu
verði skotið til hlutaðeigandi
aðil> ti! úrlausnar
Kröfur útgerðarmanna nú eru
nánast þær sömu og í vor, að
farið sé með sjómannakjörin á
síldveiðunum langt niður fyrir
gerðardómsákvæðin. Á þessum
kröfum hafa þeir, staðið allar
þessar v’kur sem samningaum-
leitanir hafa staðið og standa
enn.
— Hvemig virðist þér samn-
ingsaðstaðan nú og horfur 5
síldveiðideilunni? Það er
Tryggvi Helgason, fulltrúi Al-
þýðusambandsfélaganna f samn-
inganefnd sjómannanna, sem er
til svara.
— Satt að segja sýnist mér
allt standa fast, svarar Tryggvi,
og ekki auðvelt að sjá ncina
breytingu framundan. Samn-
ingatilraunir eru búnar að
standa þrjár vikur. Samninga-
nefndarmenn sjómanna hafa
verið og eru á einu máli um
afstöðuna og allar fréttir scm
borizt hafa frá sjóplássunum
benda til þess að sjómenn séu
nú eins og áður ákveðnir í að
láta ekki á sig ganga í þessari
deilu. ÖII félögin sem hlut eiga
að máli hafa lýst yfir vinnu-
stöðvun frá 1. og 2. nóvember.
— Hver er tilgangur verk-
fallsins eins og nú er ástatt?
— Verkfalisboðun var nauð-
syn til þess að félögin gætu
betur haldið á málum eftir
venjulegum leiðum, og til þess
að herða á því að samningar
verði gerðir.
Vilja ofbeldislausn
— Hvað virðist þér helzt ein-
kenna afstöðu útgerðarmanna?
— Þar finnst mér vera algjör-
lega ný viðhorf, afstaða sem ég
kannast ekki við að hafa mætt
fyrr öll þáu ár sem ég hef ver-
ið við samningastörf í umboði
sjómanna, en það eru nú orðin
29 ár. Það er eins og útgerð-
armenn sjái alltaf fyfir sér
annarskonar lausn á deilunni
en tíðkazt hefur undanfama
ótatugi, að málin séu leyst á
lýðræðislegan hátt með skír-
skotun til hlutaðeigandi deilu-
aðila, til sjómanna og útgerð'-
armanna almennt, með at-
kvæðagreiðslum um lausn
málsins .
— Hvemig heldur þú að sú
afstaða útgerðarmanna sé til
komin?
.— Eg veit ekki nema þarft
væri almenningi til glöggvunar
að rifja upp aðaldrættina í að-
draganda deilunnar um síld-
■veiðikjörn. Og þá er fyrst að
athuga málatilbúnað Landssam-
bands íslenzkra útvegsmanna.
Fjárkúgrunarvíxlar
Svo virðist sem Landssam-
bandsmenn hafi átt fremur örð-
ugt að koma sér saman um
uppsagnir og kröfugerð, en
verið er að segja upp eidri
samningunum árið 1961 og á
þessu ári 1962. Jafnframt upp-
sögnunum gerði Landssam-
bandið sérstakar ráðstafanir,
sem benda til að ekki hafi allir
útgerðarmenn gengið með jafn-
ljúfu geði til þessa leiks. Stjóm
LÍÚ reyndi að styrkja sam-
heldnina innan eigin raða með
því að láta útgerðarmenn gefa
út þrjú hundruð þúsund króna
víxil fyrir hvern bát og
átti það fé að glatast eiganda
bátsins ef hann bryti í bág við
fyrirmæli LÍÚ-stjórnarinnar í
deilunni. Hefur þetta sjálfsagt
verið gert til þess að binda þá
sem tregastir voru til beirra
verka sem vinna átti.
TJt af fyrir sig er þetta víxla-
mál athyglisverður kapítuli í
viðskipta- og félagsmálastarfi
siðustu tíma. Slíkur víxill í
höndum harðdrægs handhafa
er býsna skætt vopn gagnvart
skuldugum manni, enda þótt
flestir góðir lögfræðingar telji
víxia sem þessa fjárkúgunar-
tæki, sem ekki hafi venjulegan
víxilrétt.
Óhönduglegar aðfarir
— En hvernig voru svo kröf-
ur LÍÚ um kjaraskerðingu sjó-
tnanna undirbyggðar?
— Uppsagnirnar sjálfar tók-
ust ekki alltof hönduglega
hjá stjórn Landssambandsins.
og virðast forystumenn þess
ekki hafa talið sig þurfa að
líta i lagafyrirmæli oa reglur
er gilda um uppsögn samninga.
Fjórtán eða fimmtán útgerðar-
stöðum síldveiðiskipa barst
ekki nein uppsön á síldveiðl-
samningunum, svo að um það
bil þriðjungur síldveiðiskip
anna lepti utan við þær upp-
sagnir sem sambandið var að
framkvæma.
Ennfremur hafði stjóm LÍÚ
látið undir höfuð leggjast að
segja upp samningum við Far-
manna- og fiskamannasamband
íslands, en þeir samningar taka
til allra skipstjóra, stýrimanna
og sennilega allt að helmings
vélstjóra síldveiiðskipanna.
Stefnt að misrétti
Þannig var sýnt að aðalkraf-
an sem útgerðarmenn báru
fram, sem nánast V§r 22—25°4
til lækkunar á fyrri kjörum
gat ekki tekið til meira en í
hæsta lagi til helmings þeirra
sem að síldveiðinni starfa á
skipunum. Hefði verið gengið
að þeirri kröfu hefði ekki ein-
ungis skapazt það misrétti, að
skip sem vom að veiðum hlið
við hlið væru með stórkostlega
misjöfn kjör, heldur var þá
einnig stofnað til misréttis inn-
byrðis á hverju skipi, þar sem
hæst launuðu mennirnir, skip-
stjórarnir og allmargir vél-
stjórar unnu samkvæmt eldri
samningum. Og þeim mun
fremur var þetta með öllu ó-
hæft að þarna var ekki um
neitt smáatriði að ræða, það
var ekki ætlazt til að einungis
væri fiktað við samningana,
heldur var krafa útgerðar-
manna hvorki meira né minna
en fjórðungs lækkun á kaupi
mannanna sem sagt var upp
hjá.
Tæki fái tvo
hásetahluti
— Hverjar voru helztu rök-
semdir útgerðarmanna fyrir
lækkun?
— Röksemdirnar voru fyrst
og fremst varðandi nýju tækin.
Á undanförnum fimm, sex, sjö
árum hafa verið að koma betri
og fullkomnari fiskileitartæki <
flest skipin, og auk þess hafa
tækin hækkað stórlega í verði
nú síðustu árin eins og annað.
Vegna þessara tækja vildu
útgerðarmenn fá tvo háseta-
hluti sem takast skyldu af
þeim hluta aflans sem skips-
höfninni hefur verið greiddur.
Tæki sem þessi hafa verið
að koma sem mikilvæg ný-
breytni í fiskiskip þeirra þjóða
sem helzt beita tækninni við
fiskveiðar sínar, svo það er
ekkert sérstakt fyrir íslenzku
fiskiskipin. En ekki er um það
kunnugt, að neins staðar ann-
arsstaðar séu uppi kröfur um
að sjómennirnir verði að fórna
nokkrum hluta af aflahlut sín-
um til greiðslu kostnaðar við
ný tæki. Heldur ekki hér hafa
neinar slíkar kröfur verið
bornar fram við neinskonar
fiskveiðar aðrar.
Kraftblakkarbullið
— Var ekki talað mikið um
Kraftblökkina frægu til stuðn-
ings kröfum útgerðarmanna?
— Jú, það var í kröfum út-
gerðarmanna að fynr kraft-
blökkina skyldi tekinn einn há-
setahlutur. einnig af þeim
hundraðshluta aflans sem sjó-
mennirnir höfðu. Og þetta var
ekki einungis hugsað þannig að
útgerðarmaðurinn skyldi með
þessu móti fá kostnað greiddan
af því að eignast kraftblökkina
og setja hana í bátinn, heldur
átti heill hásetahlutur að verða
varanleg greiðsla vegna rekst-
urs þessa tækis og aukins
kostnaðar við næturnar sem af
þvi leiddi.
Og útgerðarmenn spöruðu
ekki að gera þann kostnað sem
mestan í útreikningum. Samn-
inganefnd sjómanna reyndi í
sumar að gera sér nokkra grein
fj'rir þeim aukna kostnaði, og
taldi hann ekki nema lítinn
hluta af þvi sem útgerðarmenn
vildu vera láta. Og með hinum
stórauknu aflamöguleikum
hefur, reynsla undanfarinna ára
sýnt að útgerðarmenn hafa
fengið meira en uppborinn
þann kostnað af sínum hlut.
Falsaðir útreikningar
Eitt atriði þessa aukna kostn-
aðar var kostnaðurinn við nót-
ina. Sá liður var metinn af
tvejmur dómkvöddum mönn-
um, skipstjóra og netagerðar-
meistara. Það mat varð sem
næst helmingi Iægra en út-
gerðarmenn höfðu áætlað!
Blökkin er tæki, sem búið er
að nota um langt árabil við
ýmiskonar nótaveiðar hjá Kön-
unum og nokkuð einnig hér í
Evrópu. Höfum við ekki getað
fcngið spurnir af því að þessi
vélavinna við það að draga
veiðarfæri inn í skip hafi
nokkurs staðar verið notuð til
þess að breyta skiptakjörum
sjómannanna, frekar en önnur
véltæki sem komiö hafa til
sögunnar undanfarna áratugi,
svo sem línuspil, dragnótaspil,
vélar og véldrifin spil í nóta-
hóta né önnur vinnutæki
Enginn grundvöllir
að kröfum LÍÚ
Þegar hvort tveggja er haft
i huga, hvernig það fór stjórn
LÍÚ úr hendi að segja upp
samningunum, þannig að kraf-
an um kjaraskerðinguna tekur
ekki til nema nokkurs hluta
síldveiðisjómannanna, og hins
vegar að þau tæki, sem hér
eru notuð til að rökstyðja með
kjaraskerðingarkröfuna, hafa
verið að koma í skipin um
margra ára bil og geta ekki
haft neina sérstöðu umfram
aðrar tækninýjungar, má Ijóst
verða að ekki er til neinn hald-
bær grundvöllur fyrir þessum
kröfum útgerðarmanna.
Sjómenn leggja fram
sinn hlut
— Hver mótrök önnur hafa
sjómenn helzt flutt fram gegn
kjaraskerðingarkröfunum auk
hinna augljósu um dýrtið og
nauðsyn kjarabóta?
— Sjómenn hafa réttilega
bent á að með notkun þessara
nýju tækja og hinum aukna
afla sem þeim hefur fylgt hef-
ur vinna sjómannanna aukizt
að sama skapi.
Áður urðu menn að leita og
bíða eftir því að síld væði á
, yfirborðinu, en nú er hægt að
leita með síldarleitartækjum á
öllum tíma sólarhringsins og
einnig í miklu verra veðri en
oft áður. Sjómenn leggja því
fram af sinni hálfu miklu
meiri vinnu, kasta t. d. miklu
oftar á vertíðinni, og að sjálf-
sögðu fylgir auknum afla meiri
vinna við löndun. Sjómenn
leggja þannig fyllilega fram
sinn hlut á móti þessum nýju
tækjum, það er þeirra vinna.
Augljóst er einnig að með
þessu móti verður miklu meiri
nýting á skipi og veiðarfærum.
Skipshöfnin þarf alltaf að
vera til taks meðan skipið er
að veiðum. á öllum tímum sól-
arhringsins, hún leggur ábyggi-
lega fullkomlega fram sinn
hlut.
Bera sjómenn
of mikið úr býtum?
— Og svo er áróðurinn um
að sjómenn beri alltof mikið
úr býtum.
— í því sambandi ættu menn
að athuga hve mikil tízka það
er orðin að tala um akkorðs-
fyrirkomulag sem æskilegt.
Þeir sem gera það hafa tekið
eftir því hve harðir keppnis-
menn íslendingar eru yfirleitt.
Eðlilegt er að líta á skipshöfn
sem akkorðshóp, sem fær viss-
an hundraðshluta af afla að
vinnulaunum. Og þar kemur
berlega fram hve harðir keppn-
ismenn íslenzkir sjómenn eru.
Á hverri verfcíð eru menn og
bátar sem bera úr býtum marg-
faldan hlut á við þá sem neðar-
lega eru í afla eða hafa lökust
tæki, og ná ekki þeim keppn-
isárangri.
Það er einmitt þessi keppnis-
árangur skipstjóra og skips-
hafnar sem skapar háu hlut-
ina. Toppmennirnir svonefndu,
mennirnir er ná þessum mikla
árangri, eru svo dregnir fram
í sviðsljósið í áróðrinum, endur-
tekið er í sífellu í blöðum og út-
varpi, þetta hafa síldarsjómenn,
svona hafa þeir háar tekjur!
Svo eru þeir gerðir að eins
konar sökudólgum, á því er
stöðugt hamrað að þessir menn
fái of mikið í sinn hlut, og
muni ekki finna mikið til þess
þó tekið sé af háum upphæð-
um. Sjaldnast eða ekki er
minnzt á hina sem eru lágir
eða með miðlungshlut.
Gerðardómurinn
ofbeldisverk og rán
— Og þetta átti að vera rök-
stuðningur fyrir kjaraskerðing-
arkröfunni og gerðardómnum.
— Já, á þessu er tönnlazt sí
og æ. Forysturhenn LÍÚ minn-
ast hins vegar varla á annað
það sem þrengir raunverulega
að útgerðinni eins og öðrum
landsmönnum, afleiðingum
,,viðreisnarinnar“ hóflausa dýr-
tíð og okurvexti og annað það
sem lagt hefur verið á atvinnu-
rekstur þeirra af ríkisvaldinu,
og sjómenn hafa raunar ekki
farið varhluta af heldur.
Og engin réttlæting hefur
fundizt fyrir gerðardómslögun-
um í sumar og gerðardómnum.
Bein afskipti ríkisvaldsins af
vinnudeilum eru venjulega flótti
frá lýðræði, flótti frá lýðræð-
islegri lausn, en hér var meira
að ’gert: Ég hika ekki við að
telja gerðardómslögin og gerð-
ardóminn í framhaldi af beim
Iöghelgað ofbeldisverk og ráns-
skap af versta tagi.
Lansrt niður fyrir
Sferðardóm t -
— Og virðist þér að útgerðar-
menn séu að bíða eftir ein-
hverju slíku?
— Nú eins og í vor bendir
allt háttalag útgerðarmanna til
þess. að þeir sjái sér enn færi
á því að geta fengið málin
leyst á einhvern annan hátt en
Sjómenn íhugi
málin vandlega
— Hvað vildir þú að lokum
segja um ástandið?
— Ég vil alveg sérstaklega
skírskota til sjómanna, ekki
sízt til þeirra vngri. að þeir
íhugi þessi mál vandlega. Sjó-
mönnum, sem fengu háa hluti
í sumar. kann einhverjum að
finnast að þeir muni standa
uppréttir þó hlutur þeirra sé
skertur mikið.
En ég vil biðja þá og heita
á þá aö minnast allra þeirra
sjómanna sem eru á bátum sem
minna afla, en eiga samkvæmt
kröfum útgerðarmanna að láta
hlutfallslega jafnmikið af hlut
sínum.
Og ekki er úr vegi að leiða
hugann að þeim seytján sumr-
um sem sjómenn hafa allflestir
komið heim af síldveiðum með
lágan hlut. Sumarið í sumar
var algerlega einstakt hvað
veðurlag og sjólag snerti. svo
rosknir ' sjómenn vart eftir
sumri sem hafi notazt jafn^töð-
ugt til veiða. Hugsa mætti
einnig til vetrarsíldveiðanna,
sem enn er ekki löng reynsla
af, og krefjast mikils erfiðis,
samfara algjörri óvissu um
mikinn afla og háa hluti.
Og ég vil heita á sjómenn að
skoða mál þetta frá sjónarhóli
sjómannastéttarinnar allrar. en
ekki frá sjónarhóli hvers og
eins.
Ég vildi mega vona að þessi
upprifjun gæti orðið til ein-
hvers gagns öllum almenningi,
sem skoða _vill þetta mál af
sanngirni. til aukins skilnings
svo menn átti sig betur á því
áróðursmoldviðri og sviðsetn-
ingum og geypi sem ætlaðerað
læða því inn að sjómenn beri
of mikið úr býtum, að kjörin
sem þeir hafa búið við sé of-
rausn í þeirra garð . — S.G.
Pökkunarstúlkur
óskast strax. — Mikil vinna.
HRAÐFRYSTIHOSIÐ FROST H.F.
Hafnarfirði — Sími 50165.
Háaleitísbverfi
Hvassaleiti
Ný verzfun
Höíum opnaS nýja kjörbúð að Háaleitisbraut 68. — Þar mun fás*
m.a.: kjötvörur, nýlenduvörur, snyrtivörur mjólk, brauð og kök-
ur, og einnig fiskur eftir bví sem hægt er að koma við.
Við munum leggja áherzlu á fjölbreytta vöru og góða biónustu.
4usturver hi.
,iáaleitisbraut 68. — Símar 32372 og 38340.
Tryggvi Helgcson. full-
trúi Alþýðusambandsins í
samninganefnd sjómanna,
skýrir fró mólatilbúnaði
LÍÚ og hrekur áróðurinn
gegn sjómönnunum