Þjóðviljinn - 06.11.1962, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 06.11.1962, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 6, nóvember 1962 í>J ÓB VXL.TTNN SlÐA 9 PISKIMAL - Eftir Jóhcmn J. E. Kúld Arásin á kjör sjó- manna er af leiðing gerðardómsins Lúkas Kárason. Ég hitti á fömum vegi Lúkas Kárason sem stundað hefur sfldveiSar undanfarandi ár, ’ en er nú á námskeiði fiskiskip- stjóra x Stýrimannaskólanum. Ég bað um að þátturinn Fiskimál mætti leggja nokkr- ar spurningar fyrir Lúkas, og var það auðsótt mál. Telur þú það frambærilegt að kjör sjómanna á haust- síldveiðunum verði rýrð eins og útgerðarmenn fara fram á eða fulltrúar þeirra sem nú sitja að samningum með fulltrúum sjómanna? — Nei, ég tel að enginn frambmrilegur grundvöllur sé fyrir slíkri kröfu. Hinsvegar liggur það í augum uppi, að þessi krafa er fyrst og fremst fram borin vegna niðurstöðu ferðardómsins frá því í sumar. eyrum starfandi sjómanna hlýtur það að hljóma sem hrein fjarstæða að ætla að svipta skipshafnimar þeim á- vinningi sem komið hefur í þeirra hlut vegna breyttrar tækni við veiðarnar. Og þetta gerist á sama tíma og allar aðr- ar starfsstéttir krefjast bættra kjara sér til handa. Ýmsir sem litið þekkja til þessara mála tala mikið um hátt kaup síld- veiðisjómanna í ár, og taka þá alltaf sem dæmi hæstu skipin. En það vill oftast gleymast í þessu sambandi, að síldveiði- sjómenn hafa oft komið heim að enidaðri vertíð síðasta ára- tuginn með létta pyngju, sök- um þess að veiðin hafði brugð- izt. Svo.strax þegar heldur bjart- ara var framundan með afla eins og í byrjun sildarvertíðar í sumar, þá eru kjörin stórkost- lega rýrð, eins og gert var með gerðardóminum. Og nú vilja . útvegsmenn halda þeim feng. á, haustsíld- veiðunum sem þeim var þá réttur, en gegn þvJ hlýtur sjó- mannastéttin að spyrna og segja nei, Það er meira en nóg komið af þessu tagi. Ég held líka að þessa sé ekki þörf. — Reyndar held ég líka að útvegurinn sé ekki í beinni þörf fyrir það sem hann krefur nú úr hendi sjómanna. Þrátt fyrir auknar álögur á útgerð- inni og sjómönnum, eins og með útflutningstoliinum sem var margfaldaður á útfluttum sjávarafurðum, og okurvöxtum á rekstrarlánum, þá hafa út- vegsmenn yfirleitt reynt að jafna metin með því að gerast verkendur aflans í stærri og stærri stíl. Þannig er það líka orðið á síldveiðunum, að út- 'gerðarmenn - hafa söltun' BÍldBr- innar í sínum höndum að stór- um hluta, annað hvort einir -*8a ífcafélagá-'íviðu.aðna'í'SÍ.ldar- kaupendur. Fj öldi útvegs- manna fær því í raun og veru allt annað verð. fyrir saltsíldina heldur en það sem sjómönnuro er skamrntað. Hefur erfiði sjómanna minnkað með tilkomu hinna nýju veiðitækja? Nei, það er mesti misskiln- ingur að erfiði síldveiðisjó- manna hafi minnkað með til- komu hinna nýju og fullkomnu tækja. Þó hin nýju tæki geri það mögulegt að hafa færri menn á skipi, þá hefur erfiði hvers einstaklings við_ veiðarn- ar stórlega aukizt. Aður var veiðin tekin í skorpum í góðu veðri, oft með löngum og góð- um hvíldum á milli. Nú má segja að verið sé við veiðarn- ar uppihaldslaust allan sólar- hringinn þegar veiði er von, og það iðulega í misjöfnu veðri. Hin nýja tækni hefur nefnilega gerbreytt veiðunum, gert þær erfiðari en um leið ábatasamari fyrir alla aðila. Það er því hrein fjarstæða þeg- ar farið er fram á að svipta sjómenn sangjörnum launum fyrir aukið erfiði sem hin nýja tækni hefur skapað, því um leið og hið aukna erfiði gefur. sjómönnum betri afkomu þá trýggir það líka hag útgerðar- innar. Enda er það mála sann- ast, að margir útgerðarm. kvört- uðu ekki yfir þeim kjörum 'sem giltu áður en gerðardóm- urinn felldi sinn úrskurð í sumar, og mér er nær að < halda, að í raun og veru hafi fámennur hópur útvegsmanna komið kjaradeilunni af stað í sumar og svo hygg ég að sé ennþá, þó Landssambandið hafi gert málstað þessara manna að iSÍÍiSÍÍi® ■ <>’'■% ^ "§;+! '■'K tK i ÍÍIllllllllllll liiÍIÍÍIpÍÍÍÍÍy.' IIIIIIIIIIIIIIiII < v > í < 'í ■ V.:i: ’ VÍ- ...... :í:í:í ■ iiiii Skipverjar á Bjarnareynni kasta nótinni. (Ljósm. Þjóðv. G. O.) sínum og haldi þar af leiðandi flotanum bundnum í höfnum í stað þess að hann gæti verið búinn að flytja á land verð- mæti fyrir tugi milljóna króna. Hvað geturðu sagt mér um þá útvegsmenxi sem ekki eru í deilu, en halda þó bátun- um bundnum? — Það er lítið um þá að segja annað en það, að þeir hljóta að vera undir einhvers- konar þvingun, og þora því ekki að hreyfa báta sína. Enda gefur auga ieið að ef þeir hefðu talið ógerlegt að gera út fyrir þau. kjör sem voru gild- andi í fyrra, þá hefðu þeir að sjálfsögðu sagt upp samningum eins og hinir. Já, þú varst áð- an að minnast á gerðardóminn. Niðurstaða þess dóms var högg beint í andlit sjómannastéttar- innar, en þó sá dómur væri slæmur, þá hafði hann þó eitt gott í för með sér. Hann hefur þjappað sjómönnum þéttar saman um kjör sín. Og nú vita þeir að þeim ber fyrst og síð- ast að treysta á sjálfa sig í kjaramálum sínum. Hvað viltu svo að síðustu segja mér um kjörin á þorskveiðunum í vetur? Er það rétt að búlð sé að ganga frá þeim samningum nú? — Jú það er rétt hjá þér, vértíðarkjörin á þorskveiðum fr.á. í fyrra hafa verið fram-, lengd með litílsháttar breyting-' um á tryggingu sem hækkar samkvæmt hækkaðri vísitölu, En ég vil undirstrika, að þetta hefur ekki verið gert með sam- þykki félagsbundinna sjómajma eða með leyfi þeirra, heldur hefur Jón Sigurðsson gert þetta á sitt eindæmi án þess að hafa áður fengið til þess leyfi fé- lagsfunda, Og mér er nær að halda að þetta sé gert í fullri óþökk mikils meirihluta starf- andi sjómanna. Enda voru þessir sömu samningar tvívegis felldir á fundum í Sjómannafé- lagi Reykjavíkur í fyrravetur, Og sv.o kalla sumir menn þetta fullkomið lýðræði, Eg vil þakka Lúkasi Kára- syni hans greinargöðu svör, við þeim spurningum sem þáttur-< inn Fiskimál lagði fyrir hann. Nýjum Höfum opnað nýja húsgagnaverzlun að Hallarmúla, Reykjavík I einhverju glæsilegasta húsnæði landsins bjóðum vér yður fjölbreytt úrval hverskyps hús- gagna og heimilistækja frá helztu framleiðendum landsins. Lífið inn hjó okkur óður en þér festið kaup annars svaðar Húsgögn eru híbýlaprýði I I Hallarmúla — Sími 38177 O'Neill er fagnaí Nýr leikritahöfundur hefur kvatt sér hljóðs á Broadway, Edward Franklin Albee, 34 ára gamall, og gagnrýnendur eru sammála um, að frumsýningin á verki hans „Hver er hræddur við Virginíu Woolf?“ sé sögu- legur atburður í bandariskrl leikritagerð. Höfundurinn er hylitur, sem hinn „nýi Eugene 0’Neill“, en aðrir telja vænlegra að bíða með slíka dóma á þessu stigi málsins. Albee hefur aðallega skrifað einþáttunga hingað til og hlotið nokkur verðlaun. Næsta verk hans mun nefnast „The Ballad of the Sad Café“ (Söngurinn um drungalega kaffihúsið) eftir skáldsögu Cor- son Madullers. Betri ofli ó smokkfiskinn Isafirði 2/11. — Gæftir hafa ver- ið ákaflega tregar hjá Isafjarð- arbátum að undanfömu, en síð- ustu daga hefur afli heldur glæðzt þegar gefið hefur á sjó. Fyrir helgina fengu t.d. sumir bátanna allt upp í 13 tonn í róöri, en aflinn er misjafn og lítíll hjá sumum bátunum. Þeir sem beita smokkfiski afla bet- ur en hinir. Smokkurinn sem nú er notaður er veiddur hér við land; enn hefur ekkert borizt hingað af smokkfiski sem kej<pt- ur hefur verið til landsi'ns frá Noregi. H.Ö. * % t

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.