Þjóðviljinn - 07.12.1962, Síða 1
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar lögð fram
Útsvör hækka um
53,5 millj. eða 27%
SJÓSLYS ÚT AF JÖKLG í GÆR:
p—————————■■—■ ■■■■M .... ■
Bergur VE 4
Á nínnda tímanum í
gærkvöld sökk vélbáturinn
BERGUR frá Vestmanna-
eyjum út af Jökli. Áhöfnin
komst í gúmbjörgunarbát
og var bjargað af vélbátn-
um Iialkíon.
Bergur var á leið til
lands með urn. 800 tunnur
síldar og var staddur um
11 mílur vestur að suðri
frá Malarrifi, þegar slysið
varð. Þjóðviljinn átti sím-
tal við skipstjórann á
Halkíon, Stefán Stefánsson,
er hann var á leið til hafn-
ar með mennina af Bergi..
Sagðist honum svo frá. að
austan kaldi hefði verið á,
5—6 vindstig, og talsverð
ylgja þegar bátnum
hvolfdi. Hefði hann fengið
á sig straumhnút og fyllti
dekkið; lagðist báturinn á
hliðina og rétti ekki við
aftur Seig hann hægt og
rólega í djúpið, og höfðu
mennimir nægan tíma til
að ná gúmbátnum og kom-
ast í hann. Klukkan var um
8,15. er þetta varð. X bátn-
um voru þeir 15—20 mín-
útur, áður en Hajkion kom
og bjargaði þeim. Mennirn-
ir sluppu allir ómeiddir.
Bergur var með um 600
tunnur af aflanum í lest,
en hitt á dekki.
Bergur VE 44 var 77
brúttólestir að stærð, smíð-
aður í Svíþjóð 1946. Hann
hét áður Ásþór og átti
heima á Seyðisfirði. Berg-
ur var af mjög svipaðri
gerð og vélbáturinn Hamar,
sem hvolfdi í Faxaflóa sl.
sumar. Hafa þessi skip lengi
þótt viðsjálsgripir og stöð-
ugleiki þeirra mjög dreg-
inn í efa allt frá því að
Borgarey fórst í mynni
Hornafjarðar ekki löngu
eftir að hún kom til lands-
ins. Sjómenn kalla þessa
gerð báta beinagrindur.
Skipstjóri á Bergi var
Kristinn Pálsson, þekktur
aflamaður úr Eyjum. Átti
hann bátinn sjálfur ásamt
fleirum. FTH.
:WÍ>::ís-:ííí:
,
wtii
'0m$m
MÉÉSMfiÉfill
Mgá
WIHÍÍS
•_•
í gær var fjárhagsáætl-^
un Reykjavíkurborgar
til fyrri umræðu í borg-
arstjórn. Samkvæmt
frumvarpinu nema út-
svör o g aðstöðugjöld
samtals 314,4 milljónum
króna og er það 23 pró-
sent hækkun frá fjár-
hagsáætlun yfirstand-
andi árs. Útsvörin sjálf
hækka um 53,5 milljónir
upp í 254,4 millj. kr. eða
um nær 27%.
Heildarupphæð tekna borgar-
innar er áætluð nema kr. 409
millj. króna en var á fjárhags-
áætlun 1962 337.3 milljónir.
Nemur hækkunin 71.7 millj. eða
rúmlega 21%.
Heildargjöldin eru áætluð 404
miUj. kr. Er það 66.7 míilj. kr.
hærra en á fjárhagáætlun yfir-
standandi árs eða um 20% hækk-
un. Rekstrargjöldin eru áætluð
339.4 millj. kr. og hækka um
51.9 millj. kr. eða 18%. Til eigna-
aukningar er áætlað að fari 64.6
millj. kr. Er það 14.8 millj. eða
30%, hærri upphæð en á fjár-
hagsáætlun 1962.
Flestir gjaldaliðir borgarinnar
hafa hækkað frá síðustu fjár-
hagsáætlun. Þannig hækkar til
dæmis skrifstofukostnaður við 9
skrifstofur borgarinnar um sam-
tals 3.7 milljónir króna.
Framlag til skólabygginga
hækkar hins vegar aðeins um
1 milljón eða 7%.
Framlag borgarinnar tll
íbúðabygginga er áætlað ó-
breytt frá f járhagsáætlun
1962, 9 milljóniir króna, þótt
tekjur Byggingarsjóðs lækki
samkvæmt áætluninni úr 44.9
millj. kr. 1962 í 36.2 milljónir
eða um 8.7 milljónir. Er
þannig sýnilegt að bygginga-
framkvaamdir á vegum borg-
arinnar munu dragast saman
til mikilla muna, ef frum-
varp þetta verður samþykkt
óbreytt eins og allar líkur
benda til.
Frá umræðum um fjárhagsá-
ætlunina verður sagt í blaðinu
á morgun.
■ *, r r ■ »
málin
Guðmundur Þórðarson kom
að landi í gær með 1800 mál
af síld. Meira að segja skips-
hundurinn tók þátt í löndun-
inni." Hann rak hausinn út
um brúargluggann og taldi
málin, gelti og dinglaði róf-
unni við hvert mál, sögðu
menn. Ekki erum við svo
fróðir að við getum sagt hvcr
hlutur seppa verður úr afi-
anum. Yfir svifu máfar í von
um síld í svanginn. Það má
með sannii segja að bæði
menn og málleysingjar fagna
blessaðri síldinni sem afla-
klæmár á Guðmundi Þórðar-
syni færa að Iandi. (Ljósm.
Þjóðv. A. K.).
.1 t
Talnaspeitingur og siðapost-
uli sviptur blekkingahjúp
Lúðvík Jósepsson hirtir viðskiptamála-
ráðherra, Gylfa Þ. Gíslason á Aljpingi
Tekið á móii
bazarmunum í dag
Bazar Kvenfélags sósíalista
verður haldinn á morgun, laug-
ardag, og hefst kl. 3 síðdcgis
t Tjarnargötu 20. Tekið verður
á móti munum á bazarinn frá
kL 2 í dag, föstudag, í Tjarn-
argötu 20 (bakdyramegin). —
Bazarnefndin.
Lúðvík Jóscpsson svaraði í
gær á fundi neðri deildar siða-
prédikun þeirri, sem viðskipta-
málaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason,
flutti fyrir nokkru vegna frum-
varpsins um stuðing við at-
vinnuvcgina, sem Lúðvík og
Karl Guðjónsson flytja. Ilafði
ráðherrann m.a. sagt, að fmm-
varpið væri „fráleitasta plagg,
sem lagt hefði verið fyrir Al-
þingi", það væri „óvirí>ing“ við
Alþingi og þar væri farið með
„rangar tölur“.
Ráfherrann hafði romsað upp
mörgum talnarunum máli sínu
tSI stuðnings, og tók Lúðvík
þessar tölur ráðherrans fyrir í
ræðu sinni og hrakti þær lið
fyrir lið. Sem dæmi um með-
ferð ráðherrans á tölum ncfndi
Lúðvík, að hann hefði talið út-
flutningsverðmæti saltsíldar 341
milljón króna, þar af væri hrá-
efniskostnaður 205 millj. króna,
viinnulaun 68 milljónir, eða sam-
tals 273 milljónir króna. En ráð-
herranum hefði láðst að reikna
með verði á tunnum undir þetta
saltsíldarmagn, en það væri ekki
undir 85 millj. króna; þessir þrír
liðir samtals gerðu því 358 millj-
ónir, eða nokkru hærri upphæð
cn ráðherrann teldi ncma út-
flutnilngsverðmæti síldarinnar.
Nefndi Lúðvík fleiri dæmi,
Gylfi Þ. Gíslason.
SkHadagur
er í dag
Eftir þrjá daga verður dregið um þriðja aukavinning í Skyndi-
happdrætti Þjóðviljans, 25 til 30 daga 'ferð með SÍS skipi tiJ
Evrópu, en aðeins gilda seldir miðar. í dag er skrifs'tofa happ-
drættisins opin á Þórsgötu 1 frá kl. 10 til 12 og 1 til 10 síð-
degis. Símar 22396 og 19113. Opið til kl. 10 í kvöld.
þar sem ráðherrann færi með
ennþá freklegri blekkingar og
staðleysur og minnti á að út-
rcikningar hans væru svipaðir
því og þegar hann hugðist sanna
það á Alþingi í nóvember 1961,
að aflamagn það ár yrði 3%
minna en árið 1959 og hefði þess
vegna þurft að lækka gengið í
ágúst 1961. Aflamagnið hefði
hins vegar orðið mcira það ár
en nokkru sinni fyrr, og verð-
mæti þess alls orðið um 170
milljónum króna meira. Og ráð-
lierrann hel'ði sjálfur orðið að
staðfesta það, að hann hefði far-
ið með blekkingar og staðleysur,
er hann undirritaði með eigin
hendi skýrslu Seðlabankans fyrir
það ár. — Gylfi Þ. Gíslasyni
færi því illa, að setja sig í þann
sess siðameistara, sem hann hefði
gert í þcssu máli, sagði Lúðvík.
Nánar er sagt frá nokkrum
atriðum ræðu Lúðvíks á blað-
síðu 5.
| Kjartan Ölafs-
|son kjörinn for-
t maður mið-
I
stjórnar
í gærkvöld lanst fyrir kl. 12
var slökkviðliðið gabbað að
Laugavegi 72. Var hringt í
síma og sagt að þar væri kvikn-
að í. 1 ljós kom að hringt haíði i
verið úr útisimanum á Laskjar-1
torgi.
Fyrsti fundur hinnar ný-
kjömu miðstjórnar Sósial-
istaflokksins var lia-ldinn í
fyrrakvöld. Samkvæmt
lagabrcytingu sem sam-
þykkt var á síðasta flokks-
þingi vom formaður og
varaformaður miðstjórnar
nú kjörnir sérstaklcga; var
Kjartan Ölafsson kosinn
formaður miðstjómar en
Guðmundur Hjartarson
varaformaður.
Einnig var framkvæmda-
ncfnd miðstjórnar Sósíal-
istaflokksins kjörin á þess-
um fundi, og er hún þannig
skipuð: Eðvarð Sigurðsson,
Einar Olgeirsson, Guðmund-
ur Hjartarson. Guðmund-
ur Vigfússon, Ingi R.
Helgason, Kjartan Ölafs-
son, Lúðvík Jósepsson,
Magnús Kjartansson, Snorri
Jónsson. Varamenn: Böðv-
ar Pétursson, Jón Böðv-
arsson, Sigurður Guðgeirs-