Þjóðviljinn - 07.12.1962, Page 3

Þjóðviljinn - 07.12.1962, Page 3
Föstedagur 7. desember 1962 ÞitáWlLJlNN Flokksþingin í Prag og Róm Haldið áfram ádeilum á Kommúnistaflokk Kína PEAG og RÓM 6/12 — Á þingum kommúnistaflokka Tékkóslóvakíu og Ítalíu var í dag enn deilt á kínverska kommúnista fyrir andstöðu þeirra við stefnu Sovétríkj- anna og stuðning við Kommúnistaflokk Albaníu.. Á þingi tékkneska flokksins gagnrýndi Siroky forsætisráð- herra kínverska kommúnista harðlega fyrir að hafa tekið leið- toga albanska kommúnista, sem reyndu hvað þeir gætu að spilla fyrir friðarstefnu Sovétríkjanna, undir sinn sérstaka vemdar- væng. Tékkneska fréttastofan Ceteka segir að ræðu Sirokys hafi verið ákaft fagnað. Hann sagði að æv- intýrapólitík sú sem Albanar héldu fram myndi greiða götu hins alþjóðlega ipiperíalisma, en kalla hættu heimsstyrjaldar yfir mannkynið. Hinir albönsku leið- togar gætu ekki skýlt sér bak við innantóman byltingarvaðal né rógburð á Sovétríkin og stefnu félaga Krústjoffs, sagði Siroky. Júgóslavar svara Fulltrúi Kommúnistaflo’ks Júgóslavíu á flokksþinginu í Róm, Lazar Kolisevski, sakaði kínversku fulltrúana á þinginu um að hafa rægt júgóslavneska kommúnista og sagði að afstaða Kínverja gæti orðið til að tefja fyrir valdatöku verkalýðsins í heiminum. Kolisevski var lengi fagnað að ræðu hans lokinni. Kínverski fulltrúinn Sjao Jim- ing hafði í gær sagt að júgóslav- neskum kommúnistum væri stjórnað af klíku sem hefði end- urreist auðvaldsskipulagið og gengið í þjónustu bandarískra heimsvaldasinna. Kolisevski vís- aði þessum ásökunum á bug og sagði að júgóslayneskir komm- únistar hefðu hvergi hvikað frá kenningum Marx og Lenins, heldur hefðu þeir unnið að fram- kvæmd sósíalismans, oft við erf- ið skilyrði, en með miklum á- rangri. Hann lagði áherzlu á nauðsyn samheldni og einingar innan hinnar alþjóðlegu verka- lýðshreyfingar og sakaði Kín- verja um að spilla henni með árásum sínum á júgóslavneska flokkinn. Hann lýsti fullum stuðningi Júgóslava við friðarstefnu Sov- étríkjanna og bar lof á Krúst- joff fyrir framkomu hans í Kúpumálinu. Einum Spiegel- manna sleppt HAMBORG 6/12 — Fram- kvæmdastjóra Der Spíegel Hans Detlev Becker hefur verið sleppt úr fangélsi, en hann var einn af átta mönnum sem handteknir voru vegna landráðaákærunnar á vikublaðið. Ekki er vitað hvers vegna hann er látinn laus, en hinir ekki. Krústjoff og Tító ræddust við í gær MOSKVU 6/12 — Þeir Krústjoff forsætisráðherra og Tító forseti ræddust við í dag í Kreml og voru það fyrstu formlegu við- ræður þeirra síðan Tító kom til Sovétríkjanna á þriðjudaginn. 1 stuttri tilkynningu um fund þeirra var sagt að þeir hefðu fjallað um ráðstafanir til að bæta' enn vinsamleg samskipti Sovétríkjanna og Júgóslavíu. Ekki var sagt hvaða mál hefði borið sérstaklega á góma, né Jólabazar Máls og menningar íslenzkar brúður — Japanskar brúður — Rúmenskar brúður í bjóðbúningum — Þýzk burstasett, margar gerðir. Amerískt jólatrésskraut, óbrothætt — Úrval aí Jap- önskum leikföngum — Jólapappír — Jólabönd — ^ Jólaservíettur — Jóladúkar — Jóladreglar ofl. ofl. T k / f Handunnin myndaalbúm. k M MÁL 0 G MENNING m LJUFA VOR Eftir Magnús Hólm Árnason frá Krosshólum. Höfundur bókarinnar er Magnús Hólm Árnason, fyrr bóndi á Krónustöðum, margfróður og ágaetlega ritfær. Endurminningar hans eru frá bernsku- og æskuárunum, mjög skemmtilegar og merk menningarsöguleg heimild. í hinum eyfirzku þáttum skráir höfundur margvíslegan fróðleik, sem ekki er annars staðar að finna, og vísurnar sem ýmsar eru frumlegar og smellnar, munu fæstar hafa komið á prent áður. Bók þessi er allt eins við hæfi ungra sem roskinna og allra þeirra sem þjóðleg- um fróðleik unna. o N D I heldur hve lengi viðræðumar hefðu staðið. Mikojan varafor- sætisráðherra, Gromiko utanrík- isráðherra voru einnig á fundin- um og Tító hafði með sér Ranko- vic varaforsætisráðherra og Jov- an Vesselinov, sem sæti á í framkvæmdanefnd júgóslav- neskra kommúnista. Tító fer á morgun til Lenin- grad, en kemur aftur til Moskvu á laugardaginn og verður við- ræðunum' þá haldið áfram. örstuttri fréttaklausu sem barst frá Washington í gær segir að atvinnuleysingjum hafi fjölgað í Bandaríkjunum í nóvembermánuði um 507,000 upp í 3,8 milljónir og sé það 2 mesta atvinnuleysi sem ver- ■ ið hafi í nokkrum mánuði árs- k ins og samsvari 5,8 af hundr- 8 aði vinnufærra og vinnufúsra K manna Samkvæmt venjulegu 8 mati á „fréttagildi" að frétt b sé því meiri sem hún er ný- J stárlegri og óvæntari, er sjálf- ■ sagt ekki ástæða til að gera mikið úr þessum tíðindum. Það er löngu hætt að vekja nokkra furðu, að i stærsta og B auðugasta landi auðvalds- heimsins skuli milljónir 8 manna sitja auðum höndum h 0g lifa við þau- sultarkjör ® sem naumt skorinn og tak- markaður atvinnuleysisstyrk- ur eða ölmusugjafir skammta þeim. Fréttin er þó fyrir margra hluta sakir athyglis- verð. SÍDA 3 2 Þ' ^ Sovétríkjanna ! ,essi mikla aukning atvinnu- leysisins í Bandaríkjunum ^ á þessum tíma árs er ekki H góðs viti. Haustið og fyrri J hluti vetrar er timi mikilla I athafna í Bandaríkjunum, neyzlan for þá venjulega vax- 8 andi, bílaiðnaðurinn starfaraf L fuilum krafti að smíði hinna B nýju árgerða, hátíðarnar sem b fvrir dyrum standa orsaka ™ fjörkipp í atvinnulifinu. At- b vinna er því venjulega með J meira nióti og það er fyrst ■ eftir áramótin að aftur fer að draga úr henni. Annað er 1 upp á teningnum nú: Á ein- 3 um mesta annatíma ársins 8 fjölgar atvinnuleysingjum um k hálfa milijón. Þó mun þetta 8 varia koma á óvart þeim sem h fylgzt hafa með þróun efna- 8 hagslífsins í Bandaríkjunum b undanfarið. Hið mikla verð- ™ hrun sem varð á kauphöllinni ■ í New York í vor var í senn J afleiðing þess að menn höfðu vantrú á framtiðinni og orsök þess að menn urðu enn von- w daufari en áður um að birta 8 myndi til á næstunni. Banda- k rískir kapítalistar hafa því 8 haldið að sér höndum. frest- k að nýjum framkvæmdum eða 8 hætt við þær. Enda þótt stál- fc framleiðslan sé e.t.v. ekki " lengur jafn óyggjandi mæli- b kvarði á ásigkomulag at- J vinnulifsins og áður fyrr, er D það þó athyglisvert að allt þetta ár hefur stáliðnaðurinn 8 bandaríski afkastað langt J undir getu og á þriðja fjórð- 8 ungi þessa árs gerðust þau k tiðindi að stálframteiðslan i 8 Bandaríkjunum varð í fyrsta sinn minni en stálframleiðsla Þad er tómlegt um að litast í kauphöllum og skrifstofum verð- bréfasala í Bandaríkjunum, enda er hlutabréfamarkaðurinn enn í lamasessi eftir verðhrunið mikla í maí í vor. Tómir stól- ar blasa við töflunni sem skráð er á gengi hlutabréfanna á markaðnum. Mvndin er frá Los Angeles. Atvinnuleysi vex í Bandaríkjunum Efnahagshorfurnar í Banda- ríkjunum eru ískyggileg- ar o.g fögur áform Kennedy- stjórnarinnar um stóraukna þjóðarframleiðslu hafa strand- 8 að á óumflýjanlegum stað- k reyndum hins kapítalistíska « bjóðfélags. Aukning atvinnu- k leysisins er eitt dæmi um það. 8 Hitt er þó um leið rétt að l| hafa í huga. að jafnvel þegar ™ bezt hefur árað fyrir banda- K rísku atvinnulífi undanfarið x hafa atvinnuleysingiar þar i | landi skipt milljónum og J reyndar er nú svo komið, að borgaralegir hagfræðingar telja verulegt atvinnuleysi ó- hjákvæmilegt í háþróuðum iðnaðarrikjum með auðvalds- skipulagi hvernig svo sem ár- ar. Áætlað hefur verið fjöldi atvinnuleysingja í Bandaríkjunum muni í lok þessa áratugs vena kominn upp í tíu milljónir, enda þótt þjóðarframleiðslan .aukist jafnt og þétt og mun meira en hún hefur gert undanfarin ár. Stórfellt atvinnuleysi er að þeirra áliti sjálfsagður -fylgifiskur. þeirrar nxiu iðn-. byltingar sem nú er að verða af völdum sjálfvirkninnar og annarra tækninýjunga. En það er ekki aðeins í Bandaríkjunum að at- vinnuleysi hefur aukizt á þessu hausti. enda þótt hvergi í auðvaldsheiminúm séu at- vinnuleysingjar jafn margir, líka að tiltölu. og þar. í Bret- landi fjölgaði þeim frá, miðj- um október fram í miðjan nóvember um tæp tíu af hundraði og voru þeir þá rúm hálf milljón. Þetta er mesta atvinnuleysi sem skráð hefur verið í Bretlandi á þessum tima árs í 22 ár, og er þá um leið tekið fram að í raun- inni sé það enn meira en töl- urnar gefa til kynna, þar sem ekki eru taldir með ungir menn sem hafa iokið kóla- göngu og eru að leita sér vinnu í fyrsta skipti. Gaitskell, teið- togi Verkamannaflokksins, hefur krafizt róttækra að- gerða til að stöðva stöðuga aukningu atvinnuleysisins, en honum telst til að fjöldi at- vinnuleysingja verði kominn upp í 600.000 um áramótin. Stjórn brezka alþýðusam- bandsins hefur farið fram á viðræður við Maudling fjár- málaráðherra vegna þessarar alvarlegu þróunar. 1 *vinnuleysi er enn óveru- fl gt í aðildarríkjum Efna- ;sbandalagsins nema þá í einstökum landshlutum og vissum starfsgreinum, eins og t.d. á Suður-Ítalíu og í belg- iska námuiðnaðinum. En skuggi þessa höfuðeinkennis auðvaldsskipulagsins hvílir þó yfir meginlandinu og mun verða stærri þegar tekur fyr- ir þá öru framleiðsluaukningu sem einkennt hefur efnahags- þróunina í EBE undanfarin ár. Samdráttur í atvinnulífi EBE-landanna er þegar far- inn að gera vart við sig og fyrir skömmu sagði einn af deildarforsetum bandalagsins, franski sósíaldemókratinn Ro- bert Marjolin. að búast mætti við vaxandi efnahagsörðug- leikum í bandalagslöndunum á næstu árum. Hér á fslandi hefur ekki borið á atvinnuleysi enn, bótt vísvitandi sé að því stefnt með þeim stjómarhátt- um sem nú ríkja í landinu. Hin glæsta fyrirmynd sem frumkvöðlar viðreisnarinnar höfðu fyrir augum var hið ..frjálsa", „óhefta“ efnahags- iíf, eins og því er háttað í Bandaríkjunum. Og að sjálf- sögðu hafa þeir ekki lokað augunum fyrir höfuðeinkenni þess, atvinnuleysinu: 3,8 millj- ónir atvinnuleysingja í Banda- ríkjunum samsvara 3.800 at- vinnuleysingjum á íslandi. ás. Stjórnarkreppan í Bonn Líkur eru á stjórn allra þingflokka BONN 6/12 — Líkur eru nú einna helzt taldar á því að mynduð verði stjórn allra þriggja flokkanna sem eiga full- trúa á vesturþýzka þinginu, só- síaldemókrata, Kristilegra og Frjálslyndra demókrata, segir fréttaritari AFP. Andstaða er þó í öllum flokk- um gegn slíkri stjórnarmyndun, en hvers konar samsteypustjórn sem til greina getur komið á sér einnig andstæðinga í þeim öllum. Hins vegar er Lúbke foi'seti tal- inn vera hlynntur „þjóðstjórn". Adenauer ræddi við Ollenhau- er, leiðtoga sósíaldemókrata, í dag í hálfa aðra klukkustund, eftir að hann hafði fengið full- vissun um að þeir hefðu enga á- kvörðun um það tekið, að setja sem skilyrði fyrir stjómarsam- starfi við Kristilega að Aden- auer drægi sig í hlé. Orðrómur um slíkt skilyrði hafði orðið til þess að Adenauer aflýsti fundi sem ákveðinn hafði verið í gær með honum og Ollenhauer. Adenauer ræddi einnig í dag við Erhard varaforsætisráðherra sem sagður er andstæðingur samstarfs við sósíaldemókrata, en Adenauer hefur litlar roætur á honum. Jafnframt var haldið áfram , viðræðum Kristilegra og Frjáls- ! lyndra demókrata og þeir síðar- nefndu hafa einnig boðað áfram- ■ haldandi viðræður við sósíal- demókrata.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.