Þjóðviljinn - 07.12.1962, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 07.12.1962, Blaðsíða 4
4 SIÐA ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. desember 1962 ’ : Vandamál knattspyrn- unnar og ársþing KSI í stuttri frásögn af Knattspymuþinginu hér á síðunni var þess getið, að engar umræður hefðu orðið um skýrslu stjórnar KSÍ, — enginn mað- ur hefði tekið til máls, hvorki um þau verkefni sem þar voru nefnd eða ónefnd né heldur um reikningana, sem gáfu þó sannarlega tilefni til þakklætis, þó ekki væri annað. Vafalaust ber að skilja þessa þögn þingfulltrúa sem tákn þess að ekkert hafi verið við starfsemi stjórnar KSÍ varðandi málefni sambandsins að at- huga. Þar hafi allt verið í stak- asta lagi og ekki hægt að hafa það betra. Þeir sem til þekkja vita að störf stjómar Knattspymusam- bandsins eru margvísleg, og að því er snertir daglegan rekstur, virðist þar vel á haldið, og ekki ástæða til að vera með miklar aðfinnslur. Framtíðarmálefni En ef betur er að gáð kemur það í ljós að Knattspyrnusam- bandið ýtir á undan sér mál- efnum sem meira snerta kom- andi ár, og er þar um að ræða málefni sem hafa grundvall- andi áhrif á gengi knattspym- unnar eftir ef til vill mörg herrans ár. Þó að þessi mál heyri framtíðinni til á hverjum tíma, eru þau og eiga að vera þau málin sem hamra verður stöðugt á(, Á hverju þingi verður að taka þau til meðferðar, og gera sér raunhæfa grein fyrir því hvernig þau standa og taka á þeim saínkvæmt því. Það var þarna sem ekki var tekizt á við vandamálin eins ög þau liggja fyrir. Þetta skeði á þinginu í fyrra. Það hefði því verið eðlilegra að formaður sambandsins hefði farið fleiri orðum um þessi vandamál sem alltaf liggja fyrir stjóminni og þinginu. Hann hefði átt að hefja áróður fyrir hinni ágætu samvinnu við Iþróttaskólann á Laugarvatni um þjálfaranám- skeið og brýna það veru- lega fyrir þingfulltrúum hversu þýðingarmikið atriði þar væri um að ræða. Hvetja þá til þess að vinna að þvi í héruð- um sínum að koma slíkum námskeiðúm á með það fyrir augum að í framtíðinni gætu félög og héröð orðið að vissu marki sjálfum sér nóg, gætu hjálpað sér sjálf. Þjálfunarmálin Því miður var sem sagt varla á þetta minnzt og ekki á þann hátt að eftir því væri tekið. Þetta er þó mál mál- anna í íþróttahreyfingunni, og ætti stjórn KSl ekki sízt að vera' þetta ljóst, það oft verða þeir að segja nei þegar þeir eru beðnir að útvega þjálfara eða leiðbeinendur. öllum er það ljóst að samn- ingurinn við Iþróttakennara- skóla íslands ætti að geta brotið blað í knattspymuþjálf- un og leiðbeiningum í sam- bandi við hana. En þó málefnið sé augljós- lega gott og mikilsvert, verður að hamra á því stöðugt, og brýna menn til að koma með og vinna að því. Við lestur skýrslu stjómarinnar er ekki laust við að maður fái það á tilfinninguna að stjómin fylg- ist ekki með því hvernig útlit- ið er með þessi þjálfunamám- skeið. Þar segir í kaflanum um þjálfara — „því miður hefur jafnan reynzt mjög erfitt að fá menn til þess að taka að sér þjálfarastörf, en vonir standa til, að þess verði ekki langt að bíða, að allir sambandsaðilar verði sjálfum sér nógir í þess- Af hundavakt d hundasleða EFTIR EJNAR MIKKELSEN Þessi bók hefur hlotið óvenjumikið og verðskuld- að lof í erlendum blöðum. BERLINGSKE TIDENDE segja: „Allir geta skrafað, margir geta skrifað, en fáum er gefin frásagnarsnilld. Ejnar Mikkélsen skip- stjóri er jafnvígur á þetta þrennt .... fullur af taugaspennu og ævintýrum“. POLITIKEN segir: „Dæmálaust hefur margt drifið á daga þessa skip- stjóra. Maður verður að lesa AF HUNDAVAKT Á HUNDASLEÐA hægt, því í bókinni er efni í tvö- hundruð skáldsögur“. EKSTRABLADET segir: „Löng óslitin keðja ævintýralegra atvika frá þeim tímá, þegar ævintýri gerðust enn“. AF HuNDAVAKT A HUNDASLEÐA -fwllur pf lougaipennu- og tBvinfýriiTl.' ' (Attlingtke tidende'. - Einar Mikkelsen . Leiðir Ejnars Mikkelsens lágu víða, — ým- ist undir brennandi hitabeltissól, á ilmríkum eyjum, — eða á ís og nöktum kiettum norðurhjara. Jafnvel til íslands lá Ieið hans, og segir í bókinni meðal annars frá ferð á hestum frá Akureyri til Reykjavíkur og karlinum á Húsavík, sem ekki vildi kann- ast við að rauðsprettan væri fiskur. Þetta er eins og SOCIAL DEMOKRATEN segir: „Yndisleg bók, skrifuð af göfugmenni úthafanna, kennslubók handa öllum sjó- mönnum — og bók, sem allir soltnir iand- krabbar geta huggað sig við“. Fólk og f o r I ö g ÆVAR KVARAN segir frá Frásagnir af sögufrægum persónum og mikilfengleg- um atburðum, sem líkari eru ótrúlegustu ævintýr- tun en raunveruleikanum sjálfum, enda þótt sannar séu. í öllum frásögnunum gætir hins sérkennilega frá- sagnarstíls, sem gert hefur Ævar Kvaran að þjóð- kunnum útvarpsmanni; dramatísk spenna, sem held- ur lesandanum föngnum til síðustu blaðsíðu. SKUGGSJÁ Norðurlandamótin í handknattleik Unglinga og kvenna- mótín til Islands UnglingameistaramQt Norðurlanda í hand- knattleik fer fram í Hamar í Noregi 22. til 24. marz n.k. Mót þessi eru haldin árlega, og í þessum mánuði verður ákveðið hvort slíkt mdt skuli haldið á íslandi eitthvert næsta árið. um efnum, með tilkomu þeirra námskeiða, sem fram fara á vegum Tækninefndar KSl, og Iþróttakennaraskóla Islands. — Þarna kemur fram ósk stjórn- arinnar og raunar allra sem að þessum rnálum standa. Tækninefndin „harmar fáar umsóknir“ Ef svo er athuguð skýrsla Tækninefndarinnar kemur í ljós að hún er heldur svartsýn, og má lesa út úr hinum fáu orð- um hennar í skýrslunni að þess vérðí langt að þíða að félögin verði sjálfum sér nóg varðandi þjálfaríi. Þar segir m.a. — „Nefndin harmar sem fyrr hin- ar fáu umsóknir um þjálfara- námskeið, þrátt fyrir skort á leiðbeinendum, og vill enn benda sambandsaðilum á hinn hagstæða samning IKÍ og KSl um þjálfaranámskeið". Það er því greinilegt að þetta kemur ekki af sjálfu sér. Það verður að hafa um þetta mik- inn áróður og fyrir honum verð- ur stjórn KSl að standa, og þá ekki sízt á þingi sínu. Um þetta mál eitt hefðu átt að spinnast miklar umræður á þinginu, þar sem reynt hefði verið að upplýsa af hverju um- sóknimar eru svona fáar eins og Tækninefndin kvartar um. Ef stjórn KSI hefði verið l'óst hvernig málin stóðu raunveru- lega, hefði hún farið þess á leit við formann Tæknideildarinnar. að hann flytti hörku-erindi um málið og varpaði fram ákveðn- um spurningum um þessi mál til þingfulltrúa — spurningum sem hefðu þvingað þá til að taka til máls. Upp úr þeim um- ræðum hefði svo ef til vill ver- ið hægt að hefja nýtt áhlaup í þessu undirstöðumáli knatt- spymunnar í nútíð og framtíð. Treystum undirstöðuna! Nú getur Knattspymusam- bandið ekki borið við peninga- leysi, eftir þann samning sem gerður var við íþróttakennara- skólann, en það skal tekið fram að þessi samningur er mjög hagstæður knattspyrnumönnum. Það sem Knattspymusamband- inu ber að gera er því fyrst og fremst að ræða vinnu og aftur vinnu við að vekja at- hygli á þessu máli, koma sér í samband við aðila, sýna þeim fram á að með þátttöku í þessu séu þeir að hjálpa sér sjálfir. — Hjálpa til að .leysa það mál- ið sem er undirstaða undir góða knattspymu, og góða leiðsögn 1 félagsmálum, en þeir tveir þættir verða að vera mjög sam- ofnir. Vilji knattspyrnumenn í byggð og bæ ekki hlusta á stjórn KSI, bá stöndum við frammi fyrir beirri spumingu, hvort knattspymumönnum sé þá ekki við þjargandi? — Tím- inn sker úr hvort stjómin hefst handa, og þá verður svarið nei- kvætt eða jákvætt. Blöð á Norðurlöndum fjalla um þetta mál undanfarið í til- efni þess að fulltrúar hand- knattl.-samtakanna á Norður- löndunum 5 koma saman til fundar í Halmstad 13. þ.m. Á fundi þessum verður fjallað um samstarf Norðurlands í handknattleiksíþróttinni. Sam- kvæmt fréttum í norskum blöð- um verður þar m.a. ákveðið hvort unglingameistaramótjn skuli í framtíðinni einnig hald- in á íslandi og i Finnlandji Fulltrúi HKÍ á fundinum mun verða Rúnar Bjarnason efna- fræðingur. sem nú dvelur í Stokkhólmi. Unglingamót Norðurlanda í handknattleik eru haldin ár- lega Það síðasta var haldið í Hróarskeldu í Danmörku á önd- verðu þessu ári og var það í fyrsta sinn sem ísl. lið ' tók þátt Þar sigruðu Svíar, en á eftir fylgdu Danir, Norðroenn. fslendingar o,g,Finna1r,„Í£len^u piitarnir stóðu sig vel ög töp- uðu með mjög litlum mun. — gegri Svíum 11:14, Dönum 11:13 Norðmönnum 11:12. Jafntefíi var við Finna — 12:12. en fslendingar höfðu betra marka- hlutfall í keppninni. f fyrra átti Ármann flesta liðsmenn — 5 að töiu, en ; ár er það Val- ur sem á 6 menn í liðinu. Að- eins einn piltur úr síðasta liði keppir næst. Hámarksaldur er 18 ár miðað við keppnisdag. Þjóðviljinn snéri sér til Vaigeirs Árssælssonar. stjórn- armanns í HKÍ. og spurði hann hvort rsett hafi verið um að fá unglingamótið til íslands. Hann sagðj, að þegar íslendT ingar bófu þátttöku í mótinu í fýrra hafi HKÍ ekki bundið bátttökuna kröfu um að mót- ið yrði haldið hér. Hjnsvegar hefði yerið tekið fram að handknattleikssamtökin hér vjldu gjaman skipuleggja slíkt mót á borð við bin Norður- löndin. og taka á móti ung- lingalandsiiðum þeirra. Það sem HKÍ leggur áherzlu á i Norðurlandasamstarfinu um þessar mundir, er að tryggja það að Norðurlandameistara- mót í handknattleik kvenna verði haldið hér 1964. Slí-k mót eru haldin fjórða hvert ár. Síðasta mót var í Noregi 1960. Þar stóðu íslenzku stúlkurnar sig frábærlega vel og urðu nr. 2. HKÍ sótti um að fá að halda næsta mót hér á landi. og gáfu hinir aðilarnir vilyrði fyrir Þvi. Það er allt- af fyrir hendi viss tregða á hinum Norðurlöndunum fyrir að halda Norðurlandamótin á íslandi vegna ferðakostnaðar- ins, en vonandi verður mótið samt haldið hér næst. Undir búningur er þegar hafinn. Um þetta mál vérður væntanlega fjallað líka á fundinum ' í Halmstad á fimmtudaginn kem- ur. 15 ára hrezk stúlka, Lund- grewe, setti heimsmet í 200 m. baksundi kvenna á brczku samveldisleikjunum í Perth I Ástralíu. Hún synti á 2:35,2 mín. Það er 4/in sek- betra en gamia metið sem hún átti einnig. Þessi kornunga stúlka þykir hafa frábært keppnis- skap og sterkar taugar. Hún Ieiðir aldrei keppnina framan ■. af, en hefur gott auga með keppinautunum. Á síðustu 50 metrunum tekur hún mikinn endasprett og vinnur sigur. utnn úr heimi Reykjavíkur- móti að Ijúka Sú breyting verður á leikskrá HandknatUeiksmóts Reýkjavík- ur um helgiria, að - úcslitaleikur í m.fl. kvenna niilii, Armanns og Vals fer ekki fr^n á laug- dag, heldur verður $að fyrsti leikUr á sunnudagskVÖldið. Þess í stað verður annað kvöld auka- leikur i II. fL kvenna (b) milli Ármanns og Víkings,. þar sem bæði liðin er jöfn. '! II. fl. kv. (b) : Víkingur—Fram II. fl. kv. (a) : Árrnann—Vík. ! II. fl. k. (a) : Vík.—yálur (úrsl) II. fl. k. (b) : Víkirí|ur—Fram UI. fl. k: (a) : Vík,—l%lur (úrsl.) (• fl. k. : lR—KR. § Á sunnudag verður lokakvöld mótsins. og mun Frímann J spjalla um þá leiki á síðunni á I morgun. Frímann. SAMVINNUTRYGGINGAR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.