Þjóðviljinn - 07.12.1962, Side 6
G SIÐA
ÞJÓÖYILJINN
-— Föstudagur 7. desember 1962
I
SVARTIKASSINN
eitt þrætuepli
stórveldanna
I
Hugvitsmaðurinn
Björn Malmgren
Stórveldin eru mjög
nálægt því að komast
að samkomulagi um
bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn.
Nú seinustu dagana
hefur komið í ljós, að
samningar stranda
eingöngu á því, hvern-
ig eftirliti með fram-
kvæmd bannsins skuli
hagað. Bandaríkja-
menn krefjast víðtæks
eftirlits af hálfu al-
þjóðlegrar nefndar, en
Sovétr. óttast njósn-
ir um hernaðarmann-
virki sín og segja, að
einfalt tæki, svarti
kassinn svonefndi,
nægi til að fylgjast
með því, að banninu
sé hlýtt.
Sænski hugvitsmaðurinn,
Björn Malmgren, sem á hug-
myndina að alþjóðlegum eft-
irlitsstöðvum með svörtum
kössum, hefur nýlega ritað
grein í sænska blaðið Stock-
holms Tidningen og segist þar
hafa gert ýmsar endurbætur
á hugmynd sinni, m. a. með
notkun gervitungla við eftir-
litið.
Upprunalega var hugmynd-
in send til afvopnunarráð-
stefnunnar í Genf fyrir rúm-
um átta mánuðum og var
hún mikið rædd af fulltrúum
stórveldanna og vísindalegum
ráðgjöfum þeirra. Hugmynd
Svíans byggir á fyrri tillögum
ýmissa vísindamanna um að
koma upp jarðskjálftamælum
með svipuðu millibili um all-
an heim til að fylgjast með
kjarnorkusprengingum neðan-
jarðar. Malmgren leggur til,
að biámáluðum SÞ-flutninga-
bílum sé komið fyrir á af-
girtum svæðum, sem gætt sé
af lögreglu eða herliði. Bíl-
amír eiga að vera vandlega
blýinnsiglaðir og inni í þeim
eiga að vera tvö blýipnsigluð
jarðskjálftamælitæki. þ. e.
Hugvitsmaðurinn ræðir um
tækið, sem fylgzt getur með
tilraunum með atómvopn
!
i
!
VARNARLAUST FÓLK SKOTIÐ NIÐUR
svonefndir svartir kassar.
Mælitækin verða í sambandi
við segulbandstæki, sem skrá
allar jarðhræringar, en últra-
stuttbylgjusenditæki sendir
með vissu millibili skýrslu
segulbandsins til aðalstöðva
SÞ í Genf.
Gert er ráð fyrir að flutn-
ingabílunum sé komið fyrir
á stöðum, sem samkomulag
verður um, og unnt á að vera
að ganga úr skugga um, hvort
tækin eru á réttum stað með
svonefndum Dopplermæling-
um. Enginn óviðkomandi aðili
getur komizt inn í bílinn og
enn síður í svarta kassann, án
þess að vart verði við það.
því að þá koma truflanir
fram á segulbandinu og neyð-
armerki heyrast í öllum öðr-
um athugunastöðum. Á
hverju ári var ætlunin að
skipta um segulbandstæki og
kgssana átti að senda til aðal-
stöðvanna í Genf mánaðar-
lega.
Þegar tillaga Svíans kom
fram vakti hún strax mikla
eftirtekt og umræður, en vís-
indamenn gagnrýndu þó ým-
is framkvæmdaatriði.. Sumir
sögðu, að innsiglaðir kassar
kæmu að vísu að góðum not-
um, en hins vegar væri erfitt
að dreifa þeim um heilar
heimsálfur og skipta um
kassa mánaðarlega. 1 sumar
var svo haldin ráðstefna vís-
indamanna í London, svo-
nefnd Pugwashráðstefna, og
þar féllust bæði brezkir, banda-
rískir bg sovézkir vísindamenn
á það, að fullkomið eftirlit
á þessum grundvelli væri
framkvæmanlegt í raun og
veru.
Fulltrúar stórveldanna hafa
enn ekki komið sér saman
um, hvernig eftirliti skuli hátt-
að. Bandarísku fulltrúarnir
hafa ekki viljað viðurkenna,
að svörtu kassarnir nægi ein-
ir, og sovézku fulltrúamir
hafa ekki viljað fallast á, að
eftirlitsnefndum sé heimilt að
rannsaka alla staði þar sem
kössunum er komið fyrir, ef
upp kæmu deilur um eina
rannsóknarstöðina. En sænski
hugvitsmaðurinn er þolinmóð-
ur og hefur nú endurbætt hug-
mynd sína verulega.
Hann hefur gert endurbæt-
ur á tækjunum og fullyrðir
nú, að aðeins 30 tæki myndu
nægja í hvoru landi um sig,
Sovétríkjunum og Bandaríkj-
unura í stað 50 áður. Hann er
líka hættur við að láta stutt-
bylgjutækin senda upplýsing-
ar sínar beint til Genfar, en
leggur nú til, að sérstakt gervi-
tungl verði sent á loft og á
ferð sinni umhverfis jörðina
á það að safna skýrslum frá
svör.tu kössunum, einum og
einum í senn .
Utvarpsbylgjur berast mjög
greiöjega . pg. trúúúb.arlaust til
gervitungla, og er talið, að á
fimm sekúndum geti tunglið
meðtekið allar upplýsingar
frá hverri jarðhræringarann-
sóknastöð, en þegar það fer
yfir Genf er ætlunin að senda
niður í einu lagi allar upp-
lýsingar, sem tunglið hefur
safnað á hringferð sinni.
I
i
Nýjustu tillögumar um eftirlitskerfi með svokölluðum „svörl-
um kössum” til að fylgjast með því, að banni við tilraunum
með kjarnorkuvopn sé hlýtt, gera ráð fyrir, að gervitungl,
sem gengur umhverfis jörðina, safni upplýsingum frá nokkur
hundruð stöðum um jarðhræringar og sendi svo skýrslu til
Genfar með jöfnu millibili. Myndin cr af endurvarpshnett-
inum Telstar.
< -Æ í/'-VJí-"
Kynlífssiðgæði í
mótun í Englandi
Brezkir unglingar nútímans geta orðið brautryðjendur
og hafa verk að vinna í því efni að fá þjóðfélagið til
að viðurkenna kynferðislífið sem ánægjulegan hlut.
Þannig komst einn helzti sálfræðingur Breta að orði í
sjónvarpsviðtali fyrir nokkrum dögum, Ást ,en .ekJýi ,hr.ein-
lífi er fegursta dyggðin, var boðskapur prófessorsins.
— Svo virðist sem ungling-
arnir séu snögglega að breyta
þjóðfélagi okkar og fá það til
að viðurkenna kynmök fyrir
hjónabandið, en þau eru að
mínu viti bráðnauðsynlegur
skóli fyrir unga fólkið, áður
en það giftist. Það var dr.
George Carstairs, prófessor í
geðlækningum við Edinborgar-
-<S>
Tító ræddi við
Krústjoff, frúin
hlýddi á söng
MOSKVU 5/12. — Þeir Tító for-
seti og Krústjoff forsætisráð-
herra ræddust við í dag á sveita-
setri Krústjoffs skammt frá
Moskvu. Forsetafrúin Jovanka
og aðrir úr fylgdarliði Títós
hlýddu í dag á samsöng
Pjatnitskí-kórsins í hljómleika-
höllinni í Moskvu sem ber nafn
Tsajkovskís.
Þýzkir kratar
ræða við báða
BONN 5/12. — Leiðtogar vest-
urþýzkra sósíaldemókrata ræddu
í dag við foringja beggja hinna
þingflokkanna, Kristilegra og
Frjálsra demókrata, um mögu-
leika á myndun samsteypustjórn-
ar, en þeir gætu myndað meiri-
hlutastjóm með hvorum sem
væri. Viðræðunum verður hald-
ið áfram.
háskóla,- sem lét þesSi' Orð fálla
í sjónvarpsþætti, er nefnist
„England í dag”.
— Ég er sannfærður um, að
ótti okkai; við kynlífstilraunir
æskunnar mun reynast ýktur
og að nokkru leyti ástæðulaus.
Líffræðilega og tilfinningalega
séð eru unglingar færir um að
hafa ánægju af kynlífinu þeg-
ar á kynþroskaskeiðinu, enda
þótt enn vanti nokkuð á, að
þeir hafi náð fullum líkamleg-
um og sálarlegum þroska og
séu enn fjárhagslega ósjálfstæð-
ir.
1 ýmsum samfélögum eru
börnin jafnvel hvött til þess
að gefa sig að kynlifi á unga
aldri, og það merkilega er að
reynslan sýnir, að eftir slíkt
uppeldi eru unglingarnir vel
búnir undir að lifa í góðu
hjónabandi.
Myndin er tekin í
Chile á því ógn-
þrungna augnabliki,
er lögreglunni var sig-
að á verkfallsmenn
fyrir nokkrum dögum
í úthverfi höfuðborg-
arinnar Santiago. Lög-
reglumaðurinn lyftir
byssunni, en fólkið,
þar á meðal fjöldi
kvenna og barna brýzt
um í örvæntingar-
fullri tilraun til að
flýja. Andartaki síðar
lágu sex lík í valnum
og átta særðir.
Innrás
fugla
Hveitiuppskeran í Kenya er
í mikilli hættu, því að fuglar 1
milljónatali hafa þyrpzt inn yfir
akrana frá Súdan. Fuglamergð-
in ræðst á akurlendið eins og
engisprettuplágan. Miklar ráð-
stafanir hafa verið gerðar til að
stöðva eyðilegginguna, og er að-
allega beitt dýnamíti, benzíni
og dísilolíu. Þegar hafa verið
drepnar um tvær milljónir
fugla á þennan hátt.
ihaldsstúdentar
töpuðu í Noregi
Uppreisnarhætta
í Argentínu
BUENOS AIRES 5/12. — Stjórn-
in í Argentínu afturkallaði í dag
öll orlof hermanna og fyrirskip-
aði þeim að halda kyrru fyrir
í búðum sínum. Þetta mun hún
hafa gert vegna þess að grunur
leikur á að formgjar í hernum
hyggi á valdarán.
1 síðustu viku fóru fram for-
mannskosningar í norska Stúd-
entafélaginu. Frambjóðandi í-
haldsstúdenta beið mikinn ósig-
ur fyrir frambjóðanda róttækra
og er langt síðan að formaður
félagsins hcfur verið kjörinn
með svo miklum atkvæðamun.
Hinn nýi formaður Hans
Fredrik Dahl hlaut 319 atkvæði,
en íhaldsmaöurinn aðeins 184.
Fyigi róttækra hefur farið mjög
vaxandi meðal norskra stúdenta
að undanförnu, svo að úrslitin
komu ekki á óvart, þótt ekki
hefði verið búizt við svo mikl-
um atkvæðamun.
Norskir stúdentar hafa látið
til sín taka í baráttunni gegn
kjamavopnum og einnig í and-
stöðunni gegn aðild Noregs að
Efnahagsbandalagi Evrópu. —
Sama máli gegnir um marga
háskólakennara og nægir að
benda á, að allir kennararnir
við hagfræðideild Oslóárháskóla
nema einn hafa lýst sig and-
víga aðild að Efnahagsbanda-
laginu, en fremstur í flokki
þeirra er prófessor Ragnar
Frisch.
Stúdentafélagið hyggst bjóða
ýmsum kunnum erlendum
mönnum til fyrirlestrahalds í
vetur og má nefna t.d. að
Rudolf Augstein, ritstjóri Der
Spiegel, hefur lofað að koma til
Oslóar, ef honum verður bá
sleppt úr fangelsi. Einnig er
ætlunin að sjálfstæðisleiðtogi
Tanganyika, Nyerere, haldi fyr-
irlestur um Afríku og Efna-
hagsbandalagið. Vonir standa
líka til að hið víðfræga mvézka
ljóðskáld, Évtúsénko, komi til
Oslóar í vor.
%
í
i
i