Þjóðviljinn - 07.12.1962, Page 12

Þjóðviljinn - 07.12.1962, Page 12
Ra(magnsgjaldahækkunin|p|(|||y|y|||||| var harðlegaga gnrýnd Á fundi borgarstjórnar^ í gær var til fyrri um- ræðu tillaga sú um hækkun á gjaldskrá Raf- magnsveitu Reykjavík- ur, sem frá var sagt hér í blaðinu í fyrradag. Miklar umræður urðu um tillöguna og mjög deildar meiningar um réttmæti hækkunarinn- ar. Benti Guðmundur Vigfússon á, að rekstri Rafmagnsveitunnar væri injög ábótavant og tóku fleiri borgarfulltrúar undir það. Dró Guð- mundur fram mörg rök fyrir því, að hækkunin væri óþörf og óverjahdi og flutti eftirfarandi dagskrártillögu í málinu. „Þar eð a) rekstur Raímagnsveitu Reykjavíkur hefur lengi legið undir rökstuddri gagnrýni end- urskoðenda og borgarfulltrúa og einnig almennings í bænum en því ekki fengizt framgengt þrátt fyrir ítrekaðar kröfur þar um, að gagngerð rannsókn fari fram á rekstri fyrirtækisins í því skyni að koma honum á hagkvæmari grundvöll. b) að gjaldskrá Rafmagnsveit- unnar var síðast hækkuð í júlí 1961 og þá um 6%, c) heildartekjur Rafmagnsveit- unnar hækkuðu á sl. ári upp í 116.4 millj. króna úr 87.3 millj- ónum 1961, d) að rekstrarafgangur Raf- rr.agnsveitunnar nam á sl. ári alls 26.7 millj. króna í stað 12.1 millj. 1960, c) kaupmáttur launa hefur farið stórlega minnkandi sl. 3—4 ár, þá telur borgarstjóm ekki rétt eöa frambærilegt að hækka nú gjaldskrá Rafmagnsveitunnar og samþykkir að v.ísa framkomnum tíllögum um það frá og taka fyrir næsta mál á dagskrá en ákveður jafnframt að fela spam- aðamefnd í samráði við raf- magnsstjóra að taka þegar til endurskoðunar frumvarp að fjár- hagsáætlun Rafmagnsveitunnar 1963 í samræmi við þessa á- kvörðun". Dagskrártillagan var felld að við- höföu nafnakalli með 12 atkvæð- um gegn 3 atkvæðum fulltrúa Alþýðubandalagsins. Gerðu full- trúar Framsóknar þá grein fyrir atkvæði sínu, að þeir vildu að málið kæmi til 2. umræðu, þótt þeir teldu vafasamt að hækkun- in ætti rétt á sér. Fulltrúi Al- þýðuflokksins gerði einnig grein fyrir atkvæði sínu en hann flutti sjálfur breytingartillögu við gjaldskárfrumvarpið. Var málinu vísað til annarrar umræðu. Frá umræðum um májiö verð- ur sagt, nánar sér í blaðinu síðar. Aðalfundr ÆFK Aðalfundur ÆFK verður haldinn í félagsheimilinu, Þinghól, á sunnudaginn kl. 3 e,h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Stjómin. Föstudagur 7. desember 1962 Gjöfull er Kolluáll Ágætis veiði var hjá síldar- bátunum í fyrrinótt. Síldin var mjög stór og falleg og veiddist öll í Kolluál. Til Reykjavíkur komu 25 bát- ar með um 22500 tunnur. Afi- in.n var sem hér segir (áætlað) Ásgeir 800 Pétur Sigurðsson 1200, Gjafar 1000, Guðmundur Þórð- arson 1800, Halldór Jónsson, Hafþór 1100, Sigurður Bjama- son 1100, Náttfari 1100, Runólfur 700, Reynir VE 1100, Hannes lóðs 900, Svanur 700, Súlan 700, Sæ- þór 550, Helga 800, Mars 1100, Stapafell 850, Hafrún 1700, Akra- borg 500, Ólafur Bekkur 450, Björn Jónsson 900, Ólafur Magn- ússon EA 500, Helgi Flóvents- son 600, Sólrún 1600, Seley 300. Á Akranesi lönduðu þessir bátar: Sigurður 900, Keilir 900, Anna 850, Höfrungur II. 800, Sigurfari 700, Sveinn Guðmunds- son 700, Höfrungur 450, Farsæll 400, Skírnir 350, Sigrún 250, Reynir AK 200, Skipaskagi 200, Ölafur Magnússon AK 100 TiI Kcflavíkur komu: Jón Guð- mundsson 900, Árni Þorkelsson 1000, Guðfjnnur 900, Ámi Geir 700, Ingiber Ólafsson 1100, Manni 1000, Vonin 500, Bergvík 400, Þórkatla 350, Jón Oddsson 800. Hilmir lenti í nótinni hjá Jóni Finnssyni og stórskemmdi hana og hans eigin nót rifnaði einnig lítillega. Hilmir kom með 100 tunnur, en Jón Finnsson með 65. Flokksþingið rœtt á fé/ags fundií kvöld • í kvöld klukkan 20,30 er félagsfundur í Sósíal- istafélagi Reykjavíkur í Tjarnargötu 20. • Einar Olgeirsson hef- ur framsögu um nýaf- staðið flokksþing og Kjartan Helgason um Happdrætti Þjóðviljans. • Félagar eru beðnir að sýna félagsskírteini við innganginn. 21 bíll í boði - vinnandi veiur vagninn - SKYNDIHAPPDRÆTTI ÞJÓÐVIJANS Vinnuflokkur svarar uppsögn með uppsögn Ýmislcgt hefur þótt brogað við starfshætti íhalds og framsóknar í Hafnarfirði síðan það kompaní tók þar við stjórn bæjarins og ekki virðast þeir hafa skánað Stefáo Júlíusson formaðor Rithöf- undasamhandsins Á aðalfundi Rithöfundasam- bands íslands er haldinn var fyrir skömmu, skipti stjóm sam- bandsins með sér verkum fyrir næsta starfsár. Formaður sam- bandsins er Stefán Júlíusson, varaformaður Björn Th. Bjöms- son, ritari Indriði Indriðason, gjaldkeri Jóhannes úr Kötlum, meðstjómandi Guðmundur G. Hagalín. Varamenn em Ingólfur Kristjánsson og Sigfús Daðason. Rithöfundasambandið hefur opna skrifstofu í Hafnarstræti 16 og veitir Kristinn Ó. Guðmunds- son ritöfundum ýmiskonar fyr- irgreiðslu um málefni þeirra, satrtbandsins vegna. upp á síökastið. Það gerðlst fyr- ir skömmu, að forstjóri Bæjar- útgerðar Hafnarfjarðar, íhalds- maðurinn Othar Hanson, sagði upp störfum Markúsi Jónssyni verkstjóra, sem Iengi hefur starf- að hjá fyrirtækinu. Ekki var nein ástæða tilgreind, fyrir uppsögninni, enda Markús talinn góður verkstjóri af öll- um sem til þekkja, og vel látinn af sínum undirmönnum. Það er hinsvegar almannarómur í Hafn- arfirði, að uppsögnin sé fram- kvæmd af pólitískum ástæðum. Að vonum hefði þessi uppsögn vakið mikla gremju, og þá ekki sízt hjá verkamönnum, sem unn- ið hafa undir stjórn Markúsar. Hafa þeir nú allir, 14 talsins, sent Bæjarútgerðinni skriflega uppsögn og mótmæla þannig bolabrögðum forstjórans. Vinnu- flokkur þessi hefur annast alla togaraafgreiðslu hjá fyrirtækinu og verkun aflans í skreið og salt. Þetta eru sömu mennimir og Othar Hansson ætlaði í haust að segja upp vinnu fyrirvara- laust, sem alræmt var, og virð- ist hann ekki ætla að gera enda- sleppt með sín óhappaverk. Ekki er þó svo, að Othar beri þarna einn sök. Framsóknarmaðurinn Guðmundur Þorláksson er for- maður útgerðarráðs Bæjarútgerð- arinnar og hlýtur hann að telj- ast ábyrgur fyrir uppsögninni. Nánar verður sagt frá þessu máli í Þjóðviljanum á morgun. Petrosjans hefst 21. marz Heimsmeistarínn í skák, Mik- hail Botvinnik, og áskorandi lians Tigran Petrosjan, hafa nú komið sér saman um það, hve- nær einvígi þeirra um titilinn skuli hefjast — Botvinnik hafði stungið upp á 14. marz en Pet- rosjan 1. apríl og síðan komu þeir sér saman um að fara mcð- alveginn og hefja einvígið 21. marz. Botvinnik er þegar tekinn til við æfingar en Petrosjan hefur nýverið gengizt undir skurðað- gerð til þess að láta taka úr sér hálseitla og er ekki búinn að ná sér eftir hana. Hann mun þó hefja æfingar mjög bráðlega. 30. keppnin um skákmeistra- titil Sovétríkjanna stendur nú yfir í Armeníu. Þátttakendur eru 20, þeirra á meðal Spassky, Tal, Taimanof, Kortsnoj og Stein. Hefur Tal staðið sig vel í byrj- un mótsins og virðist vera bú- inn að ná sér eftir veikindi sín. Það dregur nokkuð úr styrk- leika mótsins, að nokkrir af fræg- ustu meis'turum Sovétríkjanna, eins og t.d. Keres, Geller og Polugajevsky taka ekki þátt í bví að þessu sinni. Keres er nú á skákferðalagi um Bretland og Svíþjóð. Kotof og Spassky munu taka þátt í Hastingsmótinu um nýárið og Bronstein, Averbach og Nona Gaprindashvili, hinn nýi heims- meistari kvenna, munu taka þátt : Beverwijkmótinu eftir nýárið. Jólabazar Máls og menningar Mál og menning hefur opnað myndalegan jólabazar og hefur þar margt og mikið á boðstól- um, sem fengur er að þegar gera skal jólainnkaupin. Svo fátt eitt sá nefnt má benda á: Islenzk- ar brúður, japanskar brúður, rúmenskar brúður í mjög skraut- legum þjóðbúningum. Þýzk burstasett, bandarískt jólatrés- skraut, jólakort alls konar, jóla- serviettur o.m.fl. og er sumt af þessu talið upp í auglýsingu á öðrum stað i blaðinu. Munið bazarinn! Minnum á bazar Kvenfélags sósíalista í Tjamargötu 20 á morgun, laugardag. Hann hefst kl. 3 síðdegis og þar verður margt góðra og eigulegra muna. Kosningalánsbréfín gengu út Sala á skuldabréfum tveggja milljóna sterlingspunda Iáns Is- lenzka ríkisins í London fór fram i gær. Bréfin scldust upp og kaupendur gáfu sig fram aö 50% meira magni en upphæð lánsins nam. 1 fréttatilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu segir, að Ham- bros Bank, sem annaðist útboð og sölu skuldabréfanna, telji árangur mjög góðan og und- irtektir á verðbréfamarkaðnum eins góð og á varð kosið. Eins og áður er skýrt frá er lánið til 26 ára með 6.7% raun- 'ærulegum vöxtum fyrir kaup- endur skuldabréfanna, en raun- eru 6.9% þegar með er talin þóknun og kostnaður greitt Ham- bros Bank, en það nemur 2*/?% af lánsupphæðínni, sem er í ís- lenzkum krónum 240 milljónir. Kaupendur skuldabréfanna greiða þau í þrennu lagi inn í reikning ríkissjóðs hjá Hambros Bank, 25% við útboð, önnur 25% 15. febrúar og afganginn 15 maí 1963. Þetta er fyrsta óbundna skuldabréfalánið sem ríki utan brezka samveldisins fær að bjóða út á peningamarkaðinum í London eftir stríð. Telja brezk- ir bankamenn hér um að ræða stefnubreytingu hjá brezkum verulegir vextir fycir ríki&sjóð I stjórnarvöldum, og búast við að f’eiri ríki komi á eftir. Hefur insútboðið því vakið verulega athygli í Bretlandi. Samkvæmt Iögunum um lán- tökuna skal ríkisstjórnin skipta því í samráði við fjárveitinga- nefnd milli framkvæmda ríkis- ir,s og annarra aðila sem mik- iivægir eru fyrir þjóðarhag. Þeg- ar Alþingi fjallaði um málið hafnaði ríkisstjómin tillögum um að þingið ákvarðaði til hvers láninu skyldi varið, en það hefur verið venjan við erlendar lán- tckur. Er af þessu sýnt að fyrir ríkisstjórninni vakir að reyna að nota lánsféð til atkvæðaveiða í næstu þingkosningum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.