Þjóðviljinn - 08.12.1962, Side 6
J
6 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Ijaagwdagur 8. desember 1962
!
i
Fréttir af sovézkum ballett — Gamall meistari vinnur góða sigra
— Gershwin í Moskvu — Júgóslavnesk Sagan — Merk bók
kemur út í Póllandi — Vísindarit skrifað í myrkri.
Bolsjoj-leikhúsið í Moskvu
hefur sett á svið nýjan ball-
ett byggðan á ýmsumetýðum
Skrjabíns og ber hann heitið
Skrjabíníana. Ballettnum er
lýst sem lofsöng til ástarinn-
ar — djarfrar ástar og sigur-
sællar þrátt fyrir alla erfið-
leika, blíðrar ástar og dreymn-
ar, örlátrar og áhyggjulausr-
ar. Sjötugur ballettmeistari,
Kasjan Goleizovskí, hefur
samið dansana, en hann hef-
ur ekki unnið fyrir stóra ball-
ettflokka lengi. Hann hefur
unanfarin misseri sett upp
stuttar ballettetýður með ýms
um unglingum úr ballettskól-
um og sýnt í hljómleikasöl-
um, en gagnrýnendur blaða
hafa yfirleitt átt í vandræð-
um með hans sérkennilega og
Ijóðræna stíl. Sýningin er
talin sigur fyrir Goleizovski
og er ánægjulegt til þess að
vita að honum hafa verið
fengin svo þýðingarmikil verk-
efni.
Bolsjoj-leikhúsið undirbýr
nú „Rússneskt prógramm",
stutta balletta við músík eftir
Glínka, Aljabéf, Rimskí-Kors-
akof og Ljadof.
Músíkleikhús Stanislavísks
og Némírovístj-Dantsénko ætl-
ar að færa upp Don Juan
eftir Richard Strauss og Am-
eríkumann í París eftir þann
ágæta ameríska frumkvöðul
sinfónísks djass, Gershwin.
Sá ballett var síðast sýndur
í Bandaríkjunum 1938, en
verður nú settur á svið af
Veru Bocadoro, franskri konu
sem nú nemur við Leiklistar-
háskólann í Moskvu. Gagn-
rýnendur segjast hlakka til
þessarar frumsýningar, en síð-
asta verk sem farið var upp
með í þessu húsi er talið mis-
heppnað. Það er Gulllykillinn
barnaballett gerður eftir ævin-
týri Alexei Tolstojs. Músík-
ina samdi Moisei Weinberg
og þykir honum hafa tekizt
vel upp — hann hafi sýnt
góðan smekk fyrir gamansemi
og laglega notkun á djasseff-
ektum. Hinsvegar hafi dans-
amir verið samdir af and-
legri fátækt.
Nýlega er komin út í
danskri þýðingu skáldsaga
eftir serbnesku skáldkonuna
Grozdana Olujic, sem eftir
ritfregnum að dæma virðist
vera nokkurskonar júgóslavn-
esk ' Sagan.
1 sögunni segir frá ungri
stúdínu, Minja, sem var enn
barn að aldri þegar styrjöld-
in stóð yfir. Nógu gömul til
að skilja skelfingar stríðsins
en of ung til að taka þátt í
eða skilja þann hversdags-
lega hetjuskap sem hver ein-
asti dagur í lífi hinnar mis-
þyrmdu þjóðar henr.ar krafð-
ist. En eftir styrjaldir koma
upp ástríðulausar og blekk-
ingalausar kynslóðir, álítur
þessi unga stúlka. Hún bætir
sér upp raunverulegar ástríð-
ur með ímyndaðri brókarsótt
sem rekur hana viljalaust frá
einu kynferðisævintýrinu til
annars. Tómleiki og leiði glotta
að öllum ævintýrum lífs henn-
ar.
Ekki eru danskir gagnrýn-
endur ánægðir með þessa bók.
Hún sé uppskrúfuð og til-
gerðarleg. Listbrögð verða
ekki annað en tilfæringar.
Og ekki gengur vel að trúa
hinni Sagan-sku vonsvikni.
„Máske uppgötvar Grozdana
Olujic það einn góðan veður-
dag að hún er alls ekki svona
leið á öllu”, segir gagnrýn-
andi Information.
Út er komið í Varsjá fyrsta
bindið af Kronika Iat wojny i
okupacji (Annáll stríðsára og
hernáms) eftir Ludwik Land-
Landau var þekktur hag-
fræðingur af gyðingaættum,
en var samt ekki handtekinn
af Gestapó fyrr en í febrúar
1944. í 1600 daga hafði hann
fay-t nákvæman annál þýzka
hernámsins í Póllandi. Dagbók
hans er sérkennileg að því
leyti að hún er einmitt annáll
en ekki frásögn af hans einka-
lífi. Hann minnist ekki á það I
sem honum kemur einum við J
„þetta er pólitískur, þjóðfé- I
lagslegur og efnahagslegur k
annáll skrifaður af hlutlægni |
af heiðarlegum og færum k
manni”, segir einn gagnrýn- ^
enda um verkið.
Heimildir Landaus eru op- k
inber blöð hemámsstjórnar- I
innar á þýzku og pólsku, pólsk k
blöð og tímarit gefin út ó- ^
löglega, og rannsóknir hag- k
fræðistofnunar sem starfaði ®
neðanjarðar. Þessar heimild- k
ir kannar Landau af varúð ®
og samvizkusemi og tekst við h
hin erfiðu skilyrði hernáms- J
ins að setja saman geysi- B
merkilegt rit og vísindalegt. J
Skapstyrkur Landaus hefur ■
verið einstakur; honum tekst J
seint á árinu 1939 í sundur- I
skotinni og kúgaðri höfuðborg |
Póllands að skrifa niður hug- I
leiðingar sem þessar: „Ef k
Indland nýtur góðs af þján- 1
ingum okkar, ef að þjáning- ^
um hinna 300 milljóna sem k
það land byggja léttir nokk- *
uð, þá höfum við ekki til k
einskis þjáðst.... Þessi gang- Jl
kvæmu tengsl tveggja fjar- ■
lægra þjóða eru ekki tilvilj- J
un háð. Þau sýna það hlut- I
verk sem nazisminn hefur að J
gegna í sögunni og þróun al- I
þjóðlegra samskipta, nazism- J
inn, sem sviptir grímunni af I
heimsvaldastefnunni og ftllu w
því sem hingað til hefur yer- I
ið falið undir fölskum húm- k
anisma. Nazisminn er heims- ^
valdastefnan grímulaus, og k
þessi staðreynd mun reynast |
mannkyni gott vopn þegar |
henni verður að fullu komið *
fyrir kattamef.”
Enn eru óútkomin tvö bindi k
af þessu merka verki. @
á.b.
Andstæðingar kþrnavopna í heimsókn
Mikiið hefur verið ritað í er-
lend blöð að undanförnu um
ferðir kjarnorkuandstæðinga til
Leníngrad. Andstæðingar kjarn-
orkuvopna fóru til Sovétríkj-
anna á snekkju, sem þeir
nefndu „Everyman III” til að
mótmæla tilraunum Sovét-
manna með atómvopn. Áður
höfðu þeir farið í sams konar
leiðangra inn á tilraunasvæði
Bandaríkjamanna á Kyrrahafi.
Mótmælaskipið komst heilu og
höldnu til Leníngrad, og þar
var haldinn fundur með frið-
amefnd borgarinnar, en gest-
unum var ekki heimilað að
efna til mótmælaaðgerða á al-
mannafæri. Miklar sögur spunn-
ust um fcrðalagið og flestar
ósannar, m. a. sú, að áhöfnin
hefði sökkt skipinu í Lenín-
gradhöfn. Myndin er af fundi
Everyman III og friðarnefnd-
arinnar.
Fallhlífaævintýri í Sovétríkjunum
Lét lífið í metstökkinu
Hetjudáð ungrar stúlku
Sovézki flugmajórinn, Évgení
Andreéf, hefur sett hcimsmet
í fallhlífarstökki með því að
láta sig falla 24.000 metra, áður
en hann opnaði fallhlífina að-
eins nokkur hundruð metrum
yfir jörðu.
Samtímis lét lífið einn mesti
fallhlífarstökkvari Sovétríkj-
anna, flugofurstinn Pjotr Dolg-
of, sem átti fjölmörg heimsmet
og sovézk met í fallhlífarstökki.
Hann féll lengri leið en Andre-
éf — hann féll sem sagt alla
leið til jarðar, án þess að fall-
hlifin opnaðist.
Andreéf og Dolgof fóru upp
í 25 km hæð í loftbelg og
stukku þaðan. Andreéf majór
lét sig falla eins og ráð var
fyrir gert niður í um það bil
1300 metra hæð og opnaði þá
fallhlífina.
Dolgof ofursti. sem stökk á
eftir honum, er talinn hafa dá-
ið á leiðinni niður. Báðir voru
þeir klæddir í geimferðabún-
inga til verndar gegn kulda og
súrefnisskorti, en hitastigið var
25 stiga frost, er þeir yfirgáfu
loftbelginn.
Andreéf hefur það að atvinnu
að reyna nýsaumaðar fallhlíf-
ar. Þetta var í 1510. sinn sem
hann stökk.
Atján ára gömul stúlka, kenn-
ari að atvinnu, Valentína Tas-
énko, vann nýlega ótrúlegt
björgunarafrek í 1350 metra
hæð, er hún bjargaði félaga
sínum, sem hékk hjálparlaus í
stéli flugvélar.
Við keppni í fallhlífarstökki
fyrir nokkrum dögum var Alex-
ander Kidalof frá Kief svo ó-
heppinn að opna varafallhlífina,
sem festist í stéli flugvélarinn-
ar.
Honum tókst að draga hníf
sinn úr slíðrum, en var þá svo
klaufskur að missa hann úr
höndum sér. Flugmaðurinn átti
mjög erfitt með að halda stjóm
á vélinni og þorði ekki að
lenda vegna fallhlífastökkvar-
ans, þó að áhöfnin væri í bráð-
um lífsháska. Undir þessum
kringumstæðum tók Valentína
hina djörfu ákvörðun.
Hún stökk út úr flugvélinni
og reiknaði stökkið svo vel, að
hún hafnaði á öxlum Kidalofs.
Síðan skar hún hann frá vél-
inni. Kidalof hafði meiðzt á
handlegg og gat ekki opnað að-
alfallhlífina, en Valentína hélt
þeim báðum föstum við vélina,
meðan hún var að reyna að
opna fallhlífina.
Þetta tókst, er vélin var kom-
in niður í 400 metra hæð. Hún
opnaði því næst sína fallhlíf
og bæði komu til jarðar ó-
meidd. Valentína hlaut gullarm-
bandsúr að gjöf fyrir þessa
hetjudáð.
Systír Kennedys dæmd til
að skoða bílakirkjugarða
Systir Kennedys forseta, Patr-
icia Lawford, var fyrir nokkr-
um dögum dæmd til að heim-
sækja börn, sem slasazt hafa
við umferðarslys og semia
skýrslu um ónýtar bifreiðir í
bílakirkjugörðum.
Dómarinn. Blair Gibbens,
dæmdi hana til að taka út
þessa refsingu, eftir að frú
Lawford, sem er gift hinum
heimsfræga leikara Peter Law-
ford, hafði játað sig seka uinS>
að hafa ekið bíl án þess að
hafa ökuskírteini.
Fyrir rúmum mánuði lenti
Patricia í smáárekstri og kom
þá í Ijós, að hún hafði ekki
ökuréttindi. Nú er hún dæmd
til að rannsaka, hvemig bílar
eru útleiknir, þegar ökumaður-
inn kann ekki að stjórna þeim,
og daglega ber henni að heim-
sækja slösuð börn, sem orðið
hafa fórnarlömb kærulausra
bílstjóra.
Gibbens dómari hefur áður
dæmt þá, sem brotið hafa um-
ferðarlög, til að dveljast 1 bið-
stofu sjúkrahúss, til að sópa
götur og til að heimsækja lík-
brennslur og kirkjugarða.
Eitt sinn lét hann bera lik-
kistu inn í réttarsalinn, á með-
an hann þrumaöi yfir þrjátíu
ungum mönnum, sem brotið
höfðu umferðarlögin. Og við
og við barði hann hnefanum í
kistulokið til að leggja áherzlu
á orð sín. Öðru sinni sýndi
hann hálftíma kvikmynd, sem
fjallaði öll um það óhugnan-
legasta, er gerzt getur við um-
ferðarslys.
Meiri þjóðnýting
ákveðin á Kúbu
HAVANA 5/12. — Kúbustjóm
hefur ákveQið að þjóðnýta fyrir-
tæki í vefnaðar-, glervöru-, skó-
gerðar- og jámvöruiðnaði. Þjóð-
r.ýtingin nær til allra slíkra
fyrirtækja sem enn eru í einka-
eign nema þar sem um er að
ræða alger fjölskyldufyrirtæki
sem ekki ha£a aðkeypt virinuafl.
Eigendunum verða greidd strax
tiu prósent af verðmæti hluta-
fjárins, eftirstöðvar á næstu tíu
árum.
Markviss skotvopn frá Suhl
•X-X-xry;::::
-_:<!x*x-x-x*
ÍOXlXvX-v.-.x
JSSií!ö!<;>-!Hx:x:::x
.klXOMXOklXwXw
vxöxvíSiS:::::::;::::::::
v.-:v!:::
Við seljum eftirtaldar tegundir:
Bock-tvíhleypur þrjár tegundir,
þríhleypur, fjórhleypur, einhleyp-
ur með verksmiðjumerkinu:
Merkel, TW. (áður I. P. Sauer
& Sohn), Simson, Búhag, Huber-
tus (áður Meffert und Wolf)
einnig loftbyssur af gerðinni:
Haenel und Manteuffel. Skot-
færi fyrir loftbyssur og skot-
liylki fyrir veiðibyssur getið þér
einnig fengið frá okkur.
Tvisvar á ári #ru þessir hlutir
til sýnis á kaupstefnunni í Leip-
zig í sýningarhöllinni Stentzlers-
Hof.
Umboðsmenn okkar ém:
Fyrir: Simson — Samband isl.
samvinnufélaga Reykja-
vík.
Fyrir: TW. áður I. P. Sauer &
Sohn: Nilco h.f. Freyju-
götu 1, Reykjavík.
Fyrir: Búhag — Borgarfell,
Laugavegi 18, Reykjavík.
®2§I03Ifi8>
DEUTSCHER INNEN UND
AUSSENHANDEL Berlin W 8.
Markgrafenstrasse 46 Deutsche
Demokratische Republik.
/*=
1