Þjóðviljinn - 14.12.1962, Side 3
Fðstudagur 14. desember 1962
ÞJOÐVILJINN
SIÐA 3
I JÓLAMATINN
TIL MINNIS FYRIR
HOSMÆÐUR
SMURT BRAUÐ 1/1 OG
1/2 SNEIÐAR, SNITT-
UR, COCT AILSNITTUR,
CANAPE, BRAUÐ-
TERTUR. VINSAM-
LEGA PANTIÐ TÍMAN-
LEGA. — SENDUM UM
ALLA BORGINA.
VERZLUNIN
Kjöt og flskur
auglýsir í hátíðamatinn:
3VÍNAKJÖT, m.a. Hamborgarhryggir — læri — kóíel-
ettur — Lærissteikur o.fl. • ALIKÁLFAKJÖT, í buff,
Dg gullac og beinlausir fuglar, steikur og salat • FOL-
ALDAKJÖT í buff og gullac, einnig reykt og saltað.
• DILKAKJÖT ALLSKONAR m.a. útbeinuð og fyllt
læri • DILK AH AMBORGA RHR YGGIR og læri.
• ALIENDUR, HÆNSNI og HAMFLETTUR LUNDI
• DILKAHANGIKJÖTIÐ GÓÐA feitt og fallegt að
vanda. Ennfremur allar fáanlegar nýlenduvörur, öl og
gosdrykkir. — Tóbak, sælgæti, ávextir og grænme'ti. —
Einnig mjólk og brauð.
Verzlunin KJÖT & FISKUR Verzlunín KJÖT & FISKUR
Þórsgötu 17
Sími 13828
Laugarásvegi 1
Sími 38140
Grandagarði (skipadeild)
Sími 24212
Húsmæbur
Hef á boðstólum i jólamatinn:
1. flokks hangið sauðakjöt og dilka-
kjöt sérstaklega gott, nýkomið ur reyk.
Nýtt svínakjöt, nautakjöt, dilkakjöt.
Ödýrir 6 mánaða kjúklingar.
Langholtsvegi 17 (Valdimar Gíslason)
Ajóloboröiö
Svínasteik — Svínakótelettur — Svínakambur —
Hamborgarhryggur, reyktur og nýr. —
Alikálfakjöt í buff og gullas.
Folaldakjöt i buff og gullas.
Úrval af nýreyktu hanglkjöti.
Kjúklingar
Dragið ekki að gera jólainnkaupin
Komið strax í dag.
Laugalæk 2 — Sími 35020.
Kjötborg
Urvals hangikjöt, af sauðum og dilkum.
Svínakótelettur — Svínasteikur
Hamborgarhryggur — Hamborgarlæri.
Alikálfasteikur — Parísarsteikur
Beinlausir fuglar — Vienarsnitsel.
Nautabuff og gullas.
Urbeinuð og fyllt dilkalæri.
Mikið úrval af allskonar
áleggi, grænmeti,, ávöxt-
um, bökunarvörur, hrein-
lætisvörum og niðursuðu-
Kjötborg hf,
Búðargerði 10 — Kjötdeild. Sími 34999
Nýlenduvörudeiid: Sími 34945.
Nauta- og alikálfa-
kjöt í fílet.
Buff — Gullas —
Hakk. Urvals Hangikjöt.
Kjjöfbúðin Sími 19750 BÚRFELL
A jólo-
matboröiö
Svínakjöt, steik og Hamborgarhryggur
Snitsel — Pekingendur — Kjúklingar.
Úrvals hangikjöt af sauðum og dilkum.
Alls konar grænmeti.
Allt í jólabaksturinn.
Gerið jólainnkaupin tímanlega.
KJÖTBÚÐ GRENSÁSS
Sími 32947.
Nasser bauð Sovét
eldflaugastöðvar
En Sovétríkin höfnuðu boðinu
TEL AVIV 13/12 — Israelska
kvöldblaðið Maariv fullyrti í dag,
að Sovétríkin hefðu látið Egypt-
um í té mikinn fjölda eldflauga
undanfarið ár og væru þær gerð-
ar fyrir orustuþotur af gerðinni
Mig 19 og Mig 21. Sovétríkin
hafa einnig látið Egypta fá ýms-
ar aðrar gerðir eldflauga, segir
blaðið, eftir að þau höfðu hafnað
tilboði frá Egyptum um að láta
þeim í té land undir eldflauga-
stöðvar.
Blaðið segir, að eftir þessi
vopnakaup hafi Arabíska sam-
bandslýðveldið eignazt allar teg-
undir nútíma eldflaugavopna.
Margar tegundirnar eru smíðaðar
í landinu sjálfu með aðstoð
þýzkra sérfræðinga.
Gaitskell í Sovét
LONDOb, 13/12 — Formaður
brezka verkamannaflokksins,
Hugh Gaitskell, mun fara til
Moskvu um næstu áramót að
ræða við Krústjoff, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna. Talið er,
að þeir muni ræða um Berlfnar-
vandamálið, afvopnunarmál og
fleiri alþjóðleg vandamál. Gait-
skell fer til Sovétríkjanna í boði
sovézku deildarinnar í alþjóðlegu
þingmannasamtökunum.
Fomrí sætaskipun breytt
í franska binginu
PARÍS 13/12 — Forsætisráðherra
Frakklands, Georges Pompidou,
gerði í dag grein fyrir helztu
stefnumálum ríkisstjórnarinnar í
þingræðu, og sagði, að áfram yrði
unnið að því að koma upp sjálf-
stæðum, frönskum kjarnorku-
yr_ iaher.
Hann sagði einnig, að sam-
starfið við Vestur Þjóðverja væri
einn af hornsteinum franskrar
utanríkisstefnu og miðaðist að
því að skapa nýtt sterkt Evrópu-
veldi. Hann fullyrti, að franska
stjómin óskaði eftir þátttöku
Breta í Efnahagsbandalaginu, en
sagði, að innganga þeirra í
bandalagið mætti alls ekki kosta
það að hrófláð yrði við undir-
stöðuatriðum Rómars'íttmálans.
Við viljum heldur e'/.i, að sá
árangur ‘sem náðst hefur innan
bandalagsins verði eyðilagður,
sagði ráðherrann, sérstaklega ekki
vemdun , fransks .. landbúnaðar.
Um Sameinuðu þjóðimar komst
hann svo að orði, að samtökin
ættu ekki að skipta sér af þeim
málum, sem væru utan við
verkahring þeirra, og átti þá að
sjálfsögðu við afskipti SÞ af ný-
lendukúgun heimsveldanna.
Ýmsar breytingar eru áform-
aðar á aldagömlum þingvenjum
Frakka. Það hefur t. d. verið
föst venja síðan í frönsku stjóm-
arbyltingunni, að íhaldsþingmenn
sætu lengst til hægri en þeir
róttækustu til vinstri í þingsaln-
um og miðflokkamir þar á milli.
Hugtökin vinstri og hægri f
stjómmálabaráttunni um allan
heim eiga rót sína að rekja til
þessarar sætaskipunar í franska
þinginu. Nú mun í ráði að
bregða út af þessari venju og
munu fylgismenn de Gaulle eiga
að taka sér sæti öðrum megin í
þingsalnum en stjómarandstæð-
ingar munu sitja andspænis þeim.
Benn Bella vill vísa
frönskum her úr landí
HAVANA 12/12 — í viðtali við
Ben Bella, forsætisráðherra Alsír,
sem kúbanskt dagblað birti i
gær, segir hann, að Alsírbúar
muni ef til vill segja upp Evian-
samningnum við Frakka til að
fá breytt ákvæðunum um
franskar herstöðvar í landinu.
Ben Bella segir, að forsendur
samningsins hafi gjörbreytzt, því
að nú séu aðeins 200.000 Frakk-
ar í landinu í stað rúmlega
milljónar áður.
Ben Bella segir einnig í við-
talinu, að dvöl franskra her-
manna í Alsír skapi ekki vanda-
mál innanlands, en geti hinsveg-
ar valdið erfiðleikum í sambandi
við utanríkismál. Við viljum til
dæmis aðstoða fólkið í Angóla
í baráttu þess gegn portúgölsku
fasistunum, og afstaða okkar al-
mennt til málefna Afríku er í
engu samræmi við stefnu Frakka.
Hann sagði, að Alsírbúar væru
ekki andkommúnistar, enda þótt
kommúnistaflokkurinn hefði ver-
ið bannaður. En við erum held-
ur ekki kommúnistar. Hann
bætti því við, að landbúnaður-
inn í Alsír yrði skipulagður á
mjög róttækan hátt og stofnuð
yrðu alþýðubú í líkingu við sam-
yrkjubúin í Sovétríkjunum. Ben
Bella sagðist styðja eindregið
málstað Kúbumanna í baráttu
þeirra við bandaríska nýkolonial-
ismann.
Frú Bandaranaike mun
ræða við Mao og Nehru
COLOMBO NÝJU DELHI 12/12
— Ráðstefnu sex hlutlausra ríkja
í Afríku og Asíu um landamæra-
erjur Indlands og Kína lauk á
Ceylon í dag og varð samkomu-
lag um, hvaða Ieiðir skuli veija
til að reyna að fá Indverja og
Kínverja til að semja um deilu-
mál sín. Forsætisráðherra Ceylon,
frú Surimave Bandaranailce, mun
á næstunni fara til Nýju Delhi
og Peking og ræða við Ieiðtoga
þjóðanna til að reyna að fá þá
til að setjast að samningaborði.
Tillögum ráðstefnunnar um lausn
landamæradeilunnar mun fyrsí
um sinn verða haldið lcyndum.
Nehru hélt ræðu í indverska
þinginu í dag og sagði, að Ind-
verjar myndu ekki hefja samn-
ingaviðræður við Kínverja, fyrr
en þeir hefðu dregið allt herlið
sitt frá þeim stöðvum, sem þeir
hefðu hertekið i haust. Hann
fullyrti. að 197 Indverjar hefðu
fallið í bardögum á landamær-
unum, 291 hefði særzt en rúm-
lega 6000 hermanna væri sakn-
að.
Nehru endurtók það boð sitt,
að landamæradeilunni yrði vís-
að til alþjóðadómstólsins í Haag.
Hins vegar sagði hann, að ekki
kæmi til mála að vísa Kasmír-
deilunni til alþjóðadómstólsins.
Deilumar við Kínverja væru á-
greiningur um, hvar landamæri
ríkjanna ættu að vera, en deil-
urnar við Pakistan væru allt
annars eðlis, \0Í að þar væri
deilt um yfirráðin yfir heilu
landj.