Þjóðviljinn - 15.12.1962, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 15.12.1962, Blaðsíða 7
Laugardagur 15. desember 1962 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 1 Nýju smásógur nar hans Halldórs Stefánssonar Halldór Steíánsson. Blakkar rúnir. Mál ofi menning. Heimskringla, 1962. Eftir glímu sína við reykja- víkuræsku og ótrúleg örlög hennar í „Fjögurra manna pók- er“, eftir lýsingu sýna á varn- arleysi verkastráks nútímans gagnvart mannlífi og þjóðfé- lagi í skáldsögunni „Sagan af manninum sem steig ofan á höndina á sér“ snýr Halldór Stefánsson sér aftur að því formi bókmennta sem hann hefur iðkað með ágætum um langan aldur: hann gefur út safn smásagna. Lengsta saga þessarar bókar heitir einmitt Blakkar rúnir, og hún geymir reyndar margt það sem leyfir að allt safnið sé kennt við hana. Hún er þjóð- félagslýsing og sálfræðileg lýs- ing í senn — svo að við leyfum okkur að nota gömul og leiðin- leg orð. Þó eru þessir tveir þættir misjafnlega áleitnir í sögunni: hún byrjar á kunnug- legri, raunsærri lýsingu á kaupmannsfjölskyldu: þorpið er allt í reikningi hjá kauj manni, frúin var áður vinnu kona en þarf nú að beita allri orku sinni til að tryggja sér sess meðal fíns fólks, einkadótt- Halldór Stefánsson u’ina þarf að ala til glæsilegr- ’• giftingar og koma í veg fyrir ■1 lífsorka hennar brjótist fram hneykslanlegu formi. Auðvit- 1 misheppnast þetta: lausa- Sólmánuðui ÞóroJás Sólmánuður, sem Menningar- sjóður gefur út, er fjórða ljóða- bók frumsamin frá hendi Þór- odds Guðmundssonar frá Sandi, en auk þeirra hefur hann sam- an sett og látið á þrykk út ganga ævisögu föður síns, Guð- mundar Friðjónssonar, hið merkasta rit, ferðaminningar úr Vesturvegi og ljóð eftir Willi- am Blake, sem hann sneri til íslenzks máls, — og heíur hlot- ið að vera all torsótt verk, því Bleikur karl er dauður fyrir löngu, maður horfins tíma. Var hann bæði dularfullur og göldróttur og auk þess enskur; mátti því furðulegt heita hversu vel Þóroddur komst frá glímunni við þennan haugbúa. Mig minnir að vísu að Bjarni minn frá Hofteigi væri eitt- hvað að gera sig súran yfir þessum þýðingum, en enskir höfðu aðra sögu að segja og skal þeirra umsögn talin gildJ ari bæði hér og annarsstaðar, því þeir áttu manninn en ekki Bjarni. Mætti og segja mér, eft- ir því sem ég þekki til vinnu- bragða þýðandans, samvizku- semi hans og vandvirkni, að engu hafi hann spillt fyrir þessum Breta, en bætt flest. En nóg um það. Sólmánuður heitir bókin, ,sem var til um- ræðu. Og samkvæmt fyrirsögn- um eru í henni þrjátíu og sjö kvæði, en segja má að ekki sé þar oftalið, því undir þeim fyr- irsögnum eru tveir flokkar kvæða: Skálholtsljóð 1956 og Háskóli íslands 50 ára. Eru i Skálholtsljóðum ellefu kvæði og í Háskólaljóðum níu. Það er bezt að segja það strax, að svo margt góðra kvæða sem er í þessari bók, þá eru þessir flokkar báðir með því bezta og merkilegasta, sem bókin inniheldur, enda þrautunnin verk og af slíkri alúð ger að fá- Þóroddur Guðmundsson gætt má telja. Fer þar allt saman, ást og virðing höfund- ar á sögu lands og þjóðar, fag- urt og ljóðrænt tungutak, oft söngrænt, dýrir hættir löngum og glæsileg hrynjandi, en þó ríkir þar öllu ofar von skálds- ins og trú á framtíð Islands og lífsrétt og menningargildi þess fólks, sem landið byggir. Víða í þessari ljóðabók, og auðvitað ekki hvað sízt í Skál- holtsljóðum, kemur berlega í ljós ást höfundar á guðstrú og tilbeiðsluhneigð liðinna kyn- slóða. Er hvortveggja honum svo eðlislægt og skylt, að þetta er í rauninni snar þáttur i ljóðagerð hans. Má í því sam- bandi benda á Kvæði um Krist, bls. 48 og þá ekki síður á kvæðið, Ráð mitt allt þér fús ég fel, bls. 16. Er þar um að ræða sálm, sem á sínum tíma hlýtur að taka verðugan sess meðal þess sem nýtt verður upp tekið í sálmasafn kirkjunn- ar næst þegar það verður gef- Framhald á 8. síðu leiksbarn með fölsuðum lista- manni, sigling til Hafn- ar, brennivín. En þegar á líður söguna verður, æ meiri hlutur tveggja bræðra, sjó- manna, sem báðir fella hug til dóttur hússins; bein þjóðfélags- lýsing þokast aftur á baksvið, andstæðar ástríður takast á undir svörtum himni, umkomu- litlar manneskjur brjótast um í þröngum heimi og bíða ósig- ur. Örlög umkomulítilla manna einhversstaðar á afskekktum reit mannlífsins — þetta tema hef- ur lengi verið Halldóri Stefáns- syni hugstætt og oft hefur hann náð góðum árangri í túlk- un sinni á því. Ferðalag Pálínu er ein sagna þessarar ættar: einmana vinnukona í þorpi á • sér fagra dagdrauma um sveitasælu og ástir, en þegar hún á þess kost að nálgast land draumsins fer hún hvergi því að lif hennar er svo fátækt að hún hefur ekki eíni á að verða fyrir vonbrigðum. Dauðastn'ð bregður upp mynd af fullorðn- um hálfvita; Inn ógnrami lýsir sérkennilegu og kannske mjög íslenzku afbrigði vanmeta- kenndar; í Móti hinu ókunna strýkur barinn niðursetningur úr vistinni til þorpsins með heldur en ekki glæsilega drauma í höfðinu, — lýst er fyrstu sporum hans í nýjum heimi sem eru sérslaklega mis- heppnuð og ógæfuleg, en samt er von til þess að mannssálin rétti úr sér þrátt fyrir alla auðmýkingu og haldi áfram leit sinni. Slík eru söguefni Halldórs oft: minningar frá liðinni tíð, en þó ekki fjarlægri. Og hann sannar enn góða mannþekkingu sína og tök á byggingarlist smásögunnar. Honum tekst vel að láta alla þætti sögunnar vinna saman; þó kemur það fyrir að honum bregzt bogalist- in — meginhugsun sögunnar verður ofhlaðin. Þannig er til dæmis Baddi brúðgumi — þessi saga sýnir að vísu athyglisgáfu og tök höfundar á þeirri hálf- ósjálfráðu skrift sem sendibréf slíkra vinstúlkna eru, en hon- um liggur ónotalega mikið á því að koma að öllum þeim pólitíska boðskap sem þær kringumstæður sem sagan lýsir gætu gefið tilefni til. Sömuleið- is er Hvemig það byrjaði að mínu viti misheppnuð; þessi saga þýzks nazista og generáls er of formúlukennd, „utanað- komandi" ef svo mætti segja. Ekki má gleyma sögu eins og Borið af leið. í fáum myndum er brugðið upp lífssögu manns sem eitt sinn fann hamingju sína í óbrotnu lífi, lét tímann síðan freista sín fyrst til sölu- mennsku, síðan til brasks og beið að lokum margvíslegt gjaldþrot. Hér er enn komið að þeirri gömlu og góðu kenn- ingu að öll skuld greiðist hér á jörðu; en sú kenning er allt- af viðkvæmt og skemmtilegt viðfangsefni — og einkar þýð- ingarmikið á þeim tímum þeg- ar stór hluti heillar þjóðar marsérar úr á sölutorgið í víga- hug. En ef ég ætti hinsvegar að benda á þá sögu þar sem höf- undur hefur bezt leyst það verkefni sem hann setur sér þá myndi ég nefna Sendimenn Krists. Hún er kannski ekki um mikið efni, (tveir bræður bregða sér í kaupstað á að- fangadag til innkaupa og lenda á fylliríi) en í henni er vel haldið á öllum spilum, vel og skemmtilega gengið frá öllum hlutum. Þessi bók Halldórs Stefáns- sonar staðfestir einkum tvennt: áhyggjufulla (en alls ekki van- stillta) samúð hans með mann- fólki — og einkum því sem aðrir gleyma máske, og vand- virkni hans og þekkingu. Á.B. Jcnni Jónsson afgrciðir viöskiptavini í gær í kjörbúð KROX á Skólavörðustíg 12. (Ljm. Þjv. A.K.) Sívaxandi dýrtíð og endur- teknar aðgerðir stjórnarvald- anria gera það að verkum, að einungis hátekju- og auð- mannastétt þjóðfélagsins þarf ekki að horfa í krónuna nú í jólainnkaupunum. Allir aðrir þurfa að gæta varúðar og hag- sýni til þess að tekjur hrökkvi fyrir útgjöldum, því meiri var- úðar og hagsýni, sem tekjurn- ar eru minni. Islenzk alþýða hefur háð harða baráttu fyrir bættum kjörum á undanförnum áratugum og stundum orðið nokkuð ágengt, þótt misvitur stjórnarvöld hafi hvað eftir annað gert árangur kjarabóta að engu með gengisfellingum og hækkandi tollum. ★ Eitt af mörgum úrræðum reykvískrar alþýðu til þess að bæta kjör sín var stofnun Kron fyrir 25 árum. Með ^tofnun fé- lagsins og örum vexti þess tókst að lækka til stórra muna vöru- verð í Reykjavík, og i aldar- fjórðung hefur félagið verið hamla á vöruverðið og haldið því niðri. Enn í dag er það svo, að á mörgum vörutegundum er verð lægra í búðum kaupfé- lagsins, heldur en hjá kaup- mönnum. Og það sem ekki má gleymast: verðið í búðum KRON er aldrei hærra en hægt er að komast af með lægst og að fullu í samræmi við gild- andi verðlagsákvæði. Kaupfé- lagsfólkið má treysta því, að í þess eigin búðum nýtur það svo mikills réttlætis í verzlun, sem kostur er, svo sem ástandið er í þeim efnum nú fyrir jólin. KRON á 20 góðar búðir víðs vegar um bæinn. Það leitast við að veita félagsmönnum sem bezta þjónustu. 1 búðunum geta félagsmenn fengið allar nauðsynjar og fjölmarga hluti aðra, sem jólunum tilheyra. Eitt af fyrstu viðbrögðum fátækrar alþýðu gegn enn meiri fátækt hefur jafnan verið það, að spara. Nú hefur sá á- rangur náðst í fjölbreyttri bar- áttu fyrir bctri kjörum, að fé- lagsmenn í KRON geta sparað, með því að nota sitt eigið hjálpartæki, sitt eigið félag og búðir þess. I önn hins hversdagslega lífs vill það gleymast, að kaupfé- lagið er okkar eigin félags- skapur, búðir þess okkar eigin búðir. Við þurfum í sumum til- fellum að ganga svolítinn spöl til þess að komast í okkar búð, en það borgar sig. Það er reynsla þeirra félagsmanna — og þeir eru margir sem muna eftir búðinni sinni og nota hana sem hjálpartæki, til þess að láta of litlar tekjur hrökkva svo langt, sem kostur er. Félagsmaður. Afmælisávarp til Idu í Steinahlíð Ida mín! Sumarið 1960 var mikil sól- tíð. Hér á Laugateignum fylgdi henni sú aukabirta, að við höfðum snilldarstúlku til að passa peyana okkar — en helmingn- um af þeim hafði þá ekki ennþá lærzt að hagnýta klósett samkvæmt ströngustu hreinlæt- iskröfum. En Ásthildur litla hélt áfram í skólanum sínum um haustið, og einhverntíma í ágústmánuði byrjuðum við að fara á fjörurnar við þig um vist fyrir snáðana á barna- heimilinu þínu í Steinahlíð. Niðurstaðan varð sú, að þú sagðir þeim að koma. Við höfð- um að vísu heyrt mjög vel af þér látið. en þekktum þig aðeins af orðspori. Vikumar áð- ur en þeir fóru vorum við þess- vegna stundum að spyrja og spá, hvernig þeim mundi nú vegna: hvernig skyldi það reynast þegar til kastanna kæmi að hafa börn á dagheim- ili?, skyldi forstöðukonan haía lag á gúttunum?, mundu þeir festa traust á henni? Nú eru þeir búnir að vera hjá þér rösklega tvö ár, og reynslan hefur svarað þessum spurning- um — svo og ýmsum fleiri, sem við kunnum ekki að spyrja þá. Og svörin eru þessi: stund- um þegar þeim mislíkar við foreldra sína, þá ákalla þeir Idu í Steinahlíð; og stundum þegar þeir liggja lasnir heima, þá rekast þeir í því hvenær þeir megi fara aftur í Steina- hlíð; og stundum hefur sá eldri sagt, að hann ætli að vera í Steinahlíð þangað til hann er orðinn tólf ára; og einu sinni lýstu þeir því yfir í umræðu •um eilífðarmálin, að þeir ætl- uðu að byrja framhaldslífið með því að fljúga yfir Steina- hlíð og vita hvort þeir sæju ekki hana ídu. Og þó þeirn hafi ævinlega líkað vel við fóstrurnar sínar, þá er þó Ida alltaf bezt. Eg þarf ekki aö taka það fram, að þú leystiráð- urgreind klósettmál farsællega þegar fyrsta haustið. Og þetta er engin einkasaga okkar hér á Laugateignum. Mér skilst að öll börn, sem einu sinni hafa komið í Steinahlíð, fari þangað fúslega í annað sinn. Og sú selning, sem for- eldrar barnanna þinna hafa oftast yfir í sinn hóp þar sem þú ert á dagskrá — hún hljóð- ar svo, orðrétt: O, hún er al- veg sérstök manneskja, hún ída. Þótt ekkert barn sé skráð akkúrat á þínu nafni í þjóð- skránni, þá felst eigi að síð- ur mikil speki í því hjá þeim vitra lögrpanni Sigurði Bald- urssyni að kalla þig barns- móður okkar, þessara herra- manna sem færa þér varning- inn að morgni og sækja hann til þín að kvöldi. Þú hefur ekki kosið þér friðsælt ævistarf; og þótt húsið þitt sé svona nokk- urnveginn eins óhagkvæmt og verða má, þá ertu samt á réttri hillu í lífinu. Þú ert nefni- lega fædd barnakerling. Þess- vegna unirðu því vel að heyra ekki til sjálfrar þín allan lið- langan daginn fyrir ærustunni í, ungviðinu allt í kringum þig. Og þessvegna tekurðu börn í fóstur á næturnar líka, þeg- -ÍV,! Ida Ingólfsdóttir. ar foreldrar þeirra þurfa að bregða sér frá eða þegar vand- kvæði steðja að heimilum þeirra. Eða gerirðu það af al- mennri hjartagæzku þinni? Hvað um það: þú ert allavega einstök manneskja. Nú ætla ég sannarlega ekki að fara að mæla eftir þig, þótt þú lendir í því slysi í dag að eiga þetta ískyggilega af- mæli. Þú verður enda jafn- ungleg á morgun og þú varst í gær — bæði í lundinni og hjartanu og útlitinu, og við- mót þitt jafn glatt. Við hér á mínum bæ óskum þér ekki annars en þú megir lengi enn verða heil á húfi á ysmiklu hillunni þinni réttu — að því viðbættu þó, að þú fáir bráð- lega betra hús og hagkypem- ari aðstöðu til að veita kynslóð- inni þroska. Ég læt öðrum eft- ir að deila um það, hvort hoil- ara sé fyrir börnin að alast upp f skjóli mæðra sinna einna eða dveljast á barnaheimili hluta úr sólarhring skamma stund ævinnar. Ég segi aðeins fyrir mig: það er hollt fyrir börn að dveljast í Steinahlíð, meðan þú ræður þar ríkjum og heimilisbrag. Það væri nógu sniðugt að hafa fleiri stráka handbæra til að senda þér á barnaskólann þinn góða. undir andleiðsluna þína mjúka og styrka. Bjarni Benediktsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.