Þjóðviljinn - 16.12.1962, Síða 1
■ .-
' -i A-'' '■ S S
mmmmmmmmmmm
:W;:x-
Sunnudagur 16. desember 1962 — 27. árgangur — 276. tölublað
Lífskjarabót Gylfa
í janúar 1959 var almennt
kaup Dagsbrúnarverkamanna
kr. 23.86 á klukkustund. Þá
kostaði einn lítri af flösku-
mjólk kr. 3.40. Dagsbrúnar-
verkamaður var þannig — ..
9 mínútur að vinna sér fyrir 9
mjólkurpottinum. *
Nú er almennt kaup Dags-
brúnarmanns kr. 24.40 á klst.
Lítrinn af flöskumjólk kostar
nú kr. 4.85, og til þess að
kaupa sér einn lítra þarf
verkamaður nú að vinna í
tæpar 12 mínútur.
Lífskjarabót Gylfa Þ. Gísla-
sonar er fólgin í því að Dags-
brúnarverkamaður þarf að
vinna 3 mínútur lengur fyrir
mjólkurpottinum.____________b
“rA -
Landliðshneykslið aistaðar fordæmt
Menn Jóns Sigurðssonar og 1-
haldsþingmannsins Péturs Sig-
urðssonar í hinu sjö hundruð
manna landliði í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur
fara nú hamförum til að
reyna enn að tryggja sér yfir-
ráðin í þessu stærsta félagi ís-
lenzkra sjómanna, og svipta með
því að miklu leyti starfandi sjó-
menn áhrifum í stéttarfélagi
sínu.
Þetta landliðshneyksli er al-
staðar fordæmt og á sér enga
réttlætingu. Það er athyglisvert
að Sjómannafélag Hafnarfjarðar
hefur nú fyrir þremur árum
gert hreint fyrir sínum dyrum,
samþykkti þá í Iög sín
fasta reglu um félags-
réttindin, reglu sem er svo rúm
að enginn þarf undan henni að
kvarta, en tryggir hins vegar
að Sjómannafélag Hafnarfjarðar
sé á hverjum tíma félag starf-
andi sjómanna.
Lagagreinin, sem Sjómannafé-
lag Hafnarfjarðar samþykkti fyr-
ii þremur árum er þannig:
„Atkvæðisréttar og kjörgengis
njóta allir skuldlausir félags-
menn, sem unnið hafa á sjó
eða við beitingu tvo mánuði eða
lengur árið sem atkvæðagreiðsia
fer fram eða árið áður. Stjómar-
meðlimur heldur þó fullum rétt-
indum þótt hann fari ekki til
sjós“.
Þessi regla snertir ekki rétt
manna til að vera aukafélagar,
o
morgun
Á morgun verður dregiö um fjórða aukavinning í Skyndihapp-
drætti Þjóðviljans og er það Veritas saumavél hinn eigulegasti
gripur fyrir húsmæður.
Aðeins dregið úr seldum miðum.
1 dag er skrifstofa happdrættisáns opin frá kl. 2 til 7 og tekið
þar á móti skilum. Einnig eru þar líka til reiðu deildarskrár fyrir
félaga, sem vinna í dcildunum yfir helgina. Aukið vinnlngsmögu-
leika yðar með því að gera skil strax.
OPIÐ Á ÞÓRSGÖTU 1
FRÁ KLUKKAN 2 TIL 7
ef þeir æskja þess, en tryggir
hitt, að starfandi sjómenn séu á
hverjum tíma þeir sem taka á-
kvarðanirnar í félagi sínu og
ráða stjórn þess. Með þessu er
ekki haggað rétti nokkurs manns,
en því afstýrt að sístækkandi
landlið geti hreiðrað um sig,
í félaginu, sett starfandi sjó-
mönnum stólinn fyrir dyrnar og
tekið að ráðska með félagið,
stjórn þess og ákvarðanir eins
og landmenn ættu að hafa þar
öll völd.
Starfandi sjómenn ættu að
nota vel það tækifæri sem nú
býðst við stjórnarkosningu í
Sjómannafélagi Reykjavíkur tíl
að heimta félag sitt úr höndum
hins sjö hundruð manna land-
liðs. En til þess má enginn liggja
á liði sínu. Kosið er á skrif-
stofu Sjómannafélagsins í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu, kl.
3—6 alla virka daga, nema kl.
10—12 á laugardögum. Listi
starfandi sjómanna er B-Iistl.
iola
dog
í dag kl. 16 verður kveikt
norska jólatrénu á Austurvelli,
sem Oslóborg hefur sent Reykja-
vílc að gjöf.
Ambassador Norðmanna á ís-
landi, hr. Jóhann Cappelen mun
afhenda tréð en Geir Hallgríms-
son borgarstjóri veita því við-
töku fyrir hönd borgarbúa.
Lúðrasveit Reykjavíkur mun
leika ef veður leyfir og Dóm-
kórinn syngja undir stjóm dr.
Páls Isólfssonar. Ungfrú Astrid
Cappelen mun kveikja á trénu.
Auk trésins á Austurvelli hef-
ur Reykjavíkurborg borizt ann-
að tré frá Noregi. Er það 8 m
h'átt tré, sem komið hefur verið
fyrir á Hlemmi. Það er gjöf
frá Sogne kommune.
Svíþjóð-Danmörk 15:15
1 fyrrakvöld fór fram í Stokk-
hólmi landsleikur í hand-
knattleik milli Svíþjóðar og Dan-
merkur. Jafntefli varð — 15:15.
Komu
i gær
Þórunn Jóhannsdóttir. Hún
kom fyrst til Moskvu 1958 og
þegar útvarpið átti við hana
stutt viðtal um nýafstaðna
samkeppni tónlistarmanna
mundi hún einhvemveginn
ekki eftir öðram en Asjkenazi
. . . Vladímír Asjkenazí. 1
sumar sagði hann, að hann
myndi með mikilli ánægju
leika fyrir íslcndinga. Og nú
verður þetta ágæta loforð
efnt. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.
tók myndimar við komu
þeirra hjóna til Reykjavíkur
í gærmorgun).
Sjá vliðtal á síðu 12.
Ágæt síldveiði var á föstudags-
kvöldið. Þá fengu margir bá-
ar ágæt köst I Kolluál og Jök-
uldýpi, en um nóttina versnaði
veðrið og var ekki hægt að at-
hafna slg við veiðamar. Alls
fengru 59 skip veiði, samtals
37500 tunnur.
Þjóðviljanum er kuimugt um
afla þessara skipa: Til Reykja-
víkur komu: Steinunn 700, Hall-
dór Jónsson 1100, Sigurður
Bjamason 150, Ólafur Bekkur
400, Sæfari BA 250, Hannes lóðs
650, Helga 600, Þráinn 250, Guð-
mundur Þóröarson 1000, Hafrún
1700, Helgi Flóventsson 1800,
Sólrún 1400, Jón á Stapa 250,
Amkell 800, Pétur Sigurðsson
100, Víðir SU 750, Seley 200,
Runólfur 500, Skarðsvík 1200,
Akraborg 400, Reynir VE 650,
Súlan 100, Stapafell 1100, Sse-
úlfur 600, Gjafar 1050, Hafþór
150, Guðbjörg 450, Ólafur Magn-
ússon EA 200, Ásgeir 100.
Til Keflavíkur komu: Jón Guð-
mundsson 500, Ingiber Ólafsson
1100, Guðfinnur 550, Vonin
16—1700, Jónas Jónasson 500,
Eldey 800, Bergvík 650, Ámi Geir
850, Hilmir 750, Þórkatla 6—700.
Jón Oddson 6—700, Hrafn Svein-
bjamanson 200.
Til Akraness komu: Skímír
1200, Sveinn Guðmundsson 650,
Anna 400, Náttfari 400, Harald-
ur 200 og Heimaskagi 200.
Dagsbrónar-
fundur á
þríðjudag
★ Verkamannafélagið Dagsbrún
heldur fund í Iðnó nJk.
þriðjudagskvöld kl. 8.30.
★ Á dagskrá verða ýms félags-
mál og samningamálin.
★ Mikilvægt er að Dagsbrúnar-
menn fjölmenni á fundinn.
Fengu leyfi til
að selja jólatré
Borgarráð samþykkti á fundi
sínum sl. þriðjudag leyfi til
handa þrem aðilum til þess að
selja jólatré á eftirtöldum stöð-
um: Við AUsturver: E. B. Malm-
quist. Á horni Langholtsvegar
og Álfheima: Blómaverzlunin
Dögg. Við efra hlið Fossvogs-
kirkjugarðs: Magnea HjáJmais-
dóttir.