Þjóðviljinn - 16.12.1962, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 16.12.1962, Qupperneq 12
ÍFrægur sovézkur píanó- isniilingur heldur þrenna Ihljómleika hér Klukkan hálítíu í gærmorg- un settist Loftleiðavél frá New York á Reykjavíkurflug- velli og út stigu þau Vladimír Asjkenazí og kona hans Þór- unn Jóhannsdóttir. Þessi á- gæti píanisti var kominn til íslands eftir að hafa sigrað heiminn. Eins og vonlegt var spurðu menn einna fyrst að þvi, hvað þau gætu verið lengi á landinu. Þau bjuggust við því, að það yrði svo sem vika. Það hafði fyrir löngu verið ákveð- ið að þau færu til London að lokinni Amerikureisunni, — ekki til hljómleikahalds held- ur til að heimsækja fjöl- skyldu Þórunnar. Og þau ætla sér að vera komin til Moskvu á gamlárskvöld. Pétur Pétursson, forstöðu- maður Skemmtikrafta, en á hans vegum er þessi för gerð, lýsti ánægju sinni yfir komu þeirra hjóna, íslenzkir hefðu lengi borið góðan þokka til Þórunnar, og ekki væri þeim síður ánægja að því að kynn- ast svo ágætum manni henn- ar. Vladímír Asjkenazí kvað af og frá að nokkur gæti haft meiri ánægju af þessari ferð en hann sjálfur. Hann hafði augsjáanlega gaman af því hve vel íslendingar þekktu Þórunni: það var hringt til þeirra á hótelherbergi í Bandaríkjunum — íslenzk rödd í símanum spyr: Er það Þórunn litla? . . Við spurðum: hvenær feng- uð þið að vita af því að þessi íslandsferð yrði farin? Það mun hafa verið 11. eða 12. desember, við vorum þá stödd í Portland á Kyrrahafsströnd- inni, sagði Asjkenazí, áður héldum við að við myndum fara beint til London. Hvort Þórunn hafi ekki hoppað af kæti? Asjkenazí brosir auð- vitað að slíkri spurningu. Það var spurt um hljóm- leikaferðina til1 Bandaríkj- anna. Þau tíðindi hafa borizt til Islands að þú sért eins vin- sæll í Bandaríkjunum og Van Cliburn í Sovét. Hittirðu hann í ferðinni? Nei, það gat varla heitið. Við töluðum saman fimm Vladímír og Þórunn Asjkenazl nýstigin úr flugvélinni. Þau hefðu átt skilið að koma hingað um sumar . . . (Ljósm. Þjóðv. A. K.). mfnútur á flugstöð; hann var að fara í eina átt, ég í aðra. En ég hitti marga ágæta músíkanta aðra: Horowitz, Heifetz og fleiri. Við fórum um öll Bandaríkin, vorum í Texas, Kalifomíu, einnig komum við til Kanada. Jú, þetta var erfitt ferðalag — ég hélt 22 konserta; en það var bráðskemmtilegt. Asjkenazí mun halda þrjá konserta hér. Á efnisskránni verða sömu verk og hann lék í Bandaríkjaförinni, því mið- ur sagði hann er ekki tími til að undirbúa nýtt prógram. Á fyrstu tónleikunum, sem verða haldnir í Þjóðleikhús- inu á morgun, leikur hann D-dúr sónötu Mozarts, sjöttu sónötu Prokoféfs, 12 etýður op. 25 eftir Chopin. Síðar mun hann leika í Háskólabíói sinfónískar etýður Schumans, b-dúr sónötu Mozarts, Mef- isto-vals Liszts og einnig verk eftir Ravel og Ovtsjínnikof, ungt rússnekt tónskáld sem Asjkenazí telur sjálfur ein- hvem efnilegasta tónsmið lands síns. Hvort þau ætluðu að skoða sig eitthvað um héma? Það var ekki gott að vita, tíminn er naumur. Ekki svo að skilja að góðan vilja skorti; Þórunn vildi helzt setjast upp í vöru- bíl og brana norður á land . . Vladímír Asjkenazí er fæddur í Moskvu 1935. Hann settist fyrst við hljóðfærið fimm ára gamall, en árið 1945 fékk hann inngöngu í Músík- skóla Tónlistarháskólans í Moskvu og lauk þaðan prófi 1955. En er hann var í næst- síðasta bekk gerðust þau tíð- indi að hann var ásamt sex öðrum ungum píanistum val- inn til að vera fulltrúi lands síns á Chopinkeppninni í Var- sjá og vann hann þá sinn fyrsta stórsigur: hlaut önur verðlaun. 1955 hóf hann nám við músíkháskólann í Moskvu og lauk þaðan prófi árið 1960; kennari hans var prófessor Léf Oborín. Árið 1956 vann hann fyrstu verðlaun í sam- keppni Elisabetar Belgíu- drottningar í Bruxelles. Nú í ár hlaut Vladímír Asjkenazi ásamt enska píanóleikaranum Ogdon fyrstu verðlaun í sam- keppni píanista sem kennd er við Tsjækofskí. Asjkenazí hefur ekki haldið kyrru fyrir: hann hefur hald- ið hljómleika í Þýzkalandi, Júgóslavíu, Englandi, og nú síðast um Bandaríkin en þangað hafði hann komið áð- ur 1958. Hann er nú jafnan talinn í röð fremstu píanóleik- ara heimsins. Vladímír Asjkenazí kynntist Þóranni Jóhannsdóttur árið 1958 er fyrsta Tsjækofskísam- keppnin var haldin í Moskvu. Tveim árum síðar kom Þór- unn aftur til Moskvu til framhaldsnáms hjá Oborín. Þau giftust í febrúar 1961 og eiga einn son. I viðtali við Þjóðviljann í sumar sagði Asjkenazí að hann myndi með mikilli ánægju leika fyr- ir Islendinga — og nú verður þetta égæta loforð efnt. Á.B. ! Halldór Stefánsson spurður I dag, sunnudag, klukkan fjögur verður efnt til bók- menntakynningar x Snorrasal: kynnt verða verk Halldórs Stefánsson — en hann varð sjötugur fyrir skömmu, og hefur engu að síður sent frá sér nýtt safn smásagna, Blakkar ránir, sem kom út í afmælisútgáfu Máls og menn- ingar nú á dögunum. Mermta- skólanemendur kynna skáld- ið; þeir flytja erindi um hann, lesa upp úr verkum hans og einnig mun Halldór sjálfur lesa upp úr nýjustu bók sinni. Blakkar ránir. Allt era þetta góð tíðindi, og fullgilt tilefni til að ónáða Halldór sjálfan með einhverri hæfilegri forvitni. Ég bað hann um stutt við- tal. Ég get víst ekkert sagt þér, blessaður vertu, svarar hann. Ég lofaði að haga mér vel og skikkanlega. Og spurði hvort Halldór gæti ekki sagt tíðinda lítillega frá tilorðningu smá- sagna sinna, hvort einhverjar þeirra hefðu ekki orðið til með nokkuð sögulegum hætti. Þetta fannst Halldóri held- ur vond spurning sem eðlilegt var. Ég ætti, sagði hann, erf- itt með að gera grein fyrir því hvernig saga varð til, jafnvel þótt ég hefði nýlokið við hana. Jú, ég er ekki frá því að stundum gerast ýmsir þeir atburðir í mannlífi og þjóðlífi sem eru sá neisti sem seinna verður að sögu. En síðan getur liðið langur tími meðan þetta er að brjótast í þér. Og síðan tekur við sjálf vinnan að sögunni, löng vinna og erfið. Tíminn sem líður, vinnan sem unnin er — allt verður til þess að ótalmargir nýir hlutir skjóta upp kollin- um og fella oft það sem upp- haflega hratt sögunni af stað. Halldór vildi auðvitað ekki taka annað fram um Blakkar 'únir en að þetta væra sögur skrifaðar á síðasta áratug. Og hvað ég sé að gera núna? Jú, sagði hann, ég skrifa, þetta er orðið vani. En ég get engu lofað um það hvað úr þessu verður. Nei, Halldór vildi sem minnst tala um sjálfan sig og bækur sínar. Hinsvegar vildi hann gjama tala um aðrar bækur og aðra menn. Um út- gáfustarfsemi á Islandi og um leikritagerð hjá Frökkum, Ameríkönum og Rússum. Þannig sneri Halldór á blaða- manninn og gerði það svo stillt og rólega að hann tók ekki eftir því sjálfur. Hitt er svo annað mál að það er vitanlega til miklu betri leið til að kynnast Hall- dóri Stefánssyni en eiga við Iialldór Stefánsson hann blaðaviðtal. Þessvegna fyrirgefum við honum líka allar syndir gagnvart okkar stétt. Á.B. Jólatrésskemmtun veiður 3. jóladag kl. 3 í Iðnó. — Aðgöngumiðai í Tjainargötu 20 fiá og með þriðjudeginum 18. desember. Sósíalistafélag Reykjavíkui. Hryssan kastaði á hátíðlegri stund Reykhólahreppi 5/12. — Svo bar til hér á Reykjanesi hinn 1. desember síðastliðinn, að bónd- inn á Skerðingsstöðum fór að draga undan hestunum. Þetta skeði nákvæmlega í hinn sama mund og borgarstjórinn i Reykjavík, herra hermangshluta- bréfaeigandi Geir Hallgrímsson, kom fyrir hljóðnema Ríkisút- varpsins í hátíðasal Háskóla Is- lands, hvar hann lýsti því fyrir alþjóð, hvílík ógn hann taldi, að peninga „lýðræðis“-viðreisn þeirra sjálfstæðismanna almennt stafaði af stjómmálasamtökum róttækrar alþýðu í landinu — og hans eigin hlutabréfum, og atkvæðisrétti þeirra þó alveg sérstaklega. En þegar bóndinn kom í hag- ann varð ekkert fjær huga hans en hlutabréf eða heimskomm- únismi, því þar fann hann 23 ára gamla hryssu. sem hann á, alveg nýkastaða. Hryssa þessi kastaði næst þar áður vorið 1961 og gekk folaldið undir síðastlið- inn vetur. Folaldið unga er und- an veturgömlum fola. Enginn maður hafði grun um. að svona væri ástatt fyrir hryss- unni. Litla hryssan nýfædda var lánsöm að finnast þennan dag, því um nóttina gerði vonzku- kafaldsbyl. — JJJ. Hugíeiðing í stað messu I dag kl. 2 e.h. verður hald- in helgistund í Neskirkju. Barna- kór úr Melaskóla syngur jóla- söngva undir stjórn Daníels Jón- assonar söngkennara og tveir ungir piltar úr Hagaskóla leika saman á orgel og trompet. Loks verður almennur safnaðarsöngur og sungnir jólasálmar með að- stoð kirkjukórsins. Ennfremur lesa leikmenn úr ritningunni og flutt verður jólahugleiðing. 1 GÆR urðu allmargir árekstr- ar, enda umferð mikil síðara hluta dagsins, en engin slys urðu á mönnum. Deilda- keppnin 9. deild: Kleppsholt 55%. 15. deild: Selás og Smálönd. 53%. 5. deild: Norðuimýx-i 51%. 1. deild: Vesturbær 46%, 7. deild: Rauðarárholt 40%. 8. deild a: Teigarnir 40%. 10. deild b: Vogamir 40%. 3. deild: Skerjafjörður og Grímsstaðaholt 38%. 13. deild: Þingholtin 38%. 4. deild a: Þingholtin 37%. 14. deild: Herskálakampur 37%. 4. deild b: Skuggahverfi 36%. 11. deild: Smáíbúðahverfi, vestanmegin 32%. 10. deild a: Heimamir 31%. 2. deild: Melamir, Skjólin og Seltjamarnes 29%. 6. deild: Hlíðamar 29%. 8. deild b: Lækimir 26%. 12. deild: Sogamýrin og Gerðin 18%. Hvað er athyglisvert við skrána í dag. Kleppsholtið rýkur upp í fyrsta sæti úr fjórða sæti og er það vel af sér vikið og hafa þeir félagar verið í ágætri sókn þessa daga. Vrlamir hoppa í 7. sæti úr 10. sæti og voru fyrir nokkram dögum í þrettánda sæti. Þeirstefna greinilega á toppinn. Þá hefur Rauðarárholtið farið í 5. sæti úr 8. sæti og Blesugrófin í 9. sæti úr 11. sæti. Allsstaðar var þakkarverð hreyfing í bænum. En óð- um líður að lokadegi og herðum sókiýna þessa síð- ustu daga. Minnumst kjör- orðsins. Skilum aðeins pen- ingum, engum miðum. Skipver|i á Gullfossi |áfar smygl á viSfœkfum Þegar GuIIfoss kom (iil Reykja- víkur sl. mánudag hófst rann- sókn í smyglmáli, er upp kom við næst síðustu komu skipsins hingað þann 18. nóvember sl., en við tollleit í skipinu þá fund- ust 40 transistorviðtæki falin undlir rúmi í klefum skipverja. Rannsóknarlögreglan fékk máí þetta ekki til meðferðar fyrr en eftir að Gullfoss var farinn aft- ur til útlanda og gat rannsókn því ekki hafizt fyrr en nú. Einn skipverja játaði á sig að vera eigandi að öllum tækjunum og hann hefði keypt þau í Hamborg á sem svarar 800 kr. íslenzkar hvert tæki eða fyrir samtals 32 þúsund krónur. Málið mun nú fara til dóms. Beinið viðskiptum ykkur uð öðru jöfnu tii þeirn sem uuglýss í Þjóðviljunum

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.