Þjóðviljinn - 17.01.1963, Síða 3
'mi ni initnii inti*inÉMji>a«i»i
l *;•»<»>'.
^5?5S9?5R5353I
111< i ...........
SlBA 3
rWa ©@ w&tnt©
Bretar
aiíld að
vera
••
ættu að ná til. Hann sagði að
Bretar hefðu gengið til móts
við .sjónarmið bandalagsríkjanna,
en nú væri það þeirra að slaka
á kröfum sínum.
Landbúnaðarmálin erfiðust
Enda þótt samkomulag kynni
að takast Um innflutning sam-
veldislandanna til Evrópu eftir
að Bretar væru gengnir í EBE,
myndu ráðherrarnir eiga eftir
að leysa annað Qg erfiðara á-
greiningsmál: stöðu brezka land-
búnaðarins þegar Bretland væri
komið í bandalagið.
LONDON og BRUSSEL 16/1 — Brezku blöðin
telja nú flest mjög litlar líkur á því að samn-
ingaviðræður brezku stjórnarinnar við ráðherra
Efnahagsbandalags Evrópu muni bera árangur og
leggja lítið upp úr yfirlýsingum ráðamanna í öll-
um aðildarríkjum bandalagsins nema Frakklandi
um stuðning við brezka aðild að því.
Þau eru sammála um það að
ekki sé við því að búast að
de Gaulle láti af andstöðu sinni
við aðild Bre,’--’'is að bandalag-
inu og þar sem hvert bandalags-
ríkið hefur neitunarvald geti de
Gaulle hæglega komið í veg fyr-
ir brezka aðild.
— Við verðum að horfast í
augu við þá staðreynd, segir
þannig The Times, að de Gaulle
muni ekki hvika hársbreidd frá
þeirri afstöðu sem hann hefur
teki? Og ef svo verður getur
Bret’snd ekki . gert sér neinar
vonir um að sú gagnrýni sem
látin hefur verið í Ijós á afstöðu
de Gaulle í fimm aðildarríkjum
bandalagsins hafi nokkuð raun-
hæft í för með sér.
The Guardian sem hefur verið
mjög eindregið fylgjandi brezkri
aðild að bandalaginu bendir á
neitunarvald frönsku stjórnar-
innar og gerir sér litlar voinir
um að de Gaulle muni skipta
Um skoðun.
Önnur brezk blöð sem eru
fylgandi aðild að EBE eru bo
nokkru vonbetri. Daily Telegraph
setur traust sitt á bandamenn
Frakklands í EBE, en Financial
Times gerir sér vonir um að
Bandaríkjunum muni takast að
neyða de Gaulle til að láta af
andstöðu sinni vj,ð inngöngu
Breta í bandalagið
fhaldsbiaðið Daily Express er
þeaar sannfært um að frekari
viðræður Breta við bandalagið
séu með öllu tilgangslausar og
segir bezt að hætta þeim begar
í stað og snúa sér að öðrum
þarfari verkum.
Um það hefur sérstök nefnd
sérfræðinga fjallað að undan-
fömu, en ekki hafa aukizt líkur
á samkomulagi. Franski landbún-
aðarráðherrann, Pisani, hefur
iýst yfir eindreginni .andstöðu
við að nokkuð verði slakað á
þeim skilyrðum varðandi land-
búnaðinn sem bandalagið hefur
þegar komið sér saman um, en
þau hefur brezka stjómin talið
algerlega óaðgengileg. En við það
bætist að formaður sérfræðinga-
nefndarinnar, Sicco Mansholt
sem jafnframt er framkvæmda-
stjóri iandbúnaðardeildar banda-
lagsins, hefur lagzt algerlega á
sveif með Frökkum í þessu máli,
enda þótt hin fimm aðildarríkin
hafi lýst sig fús til að slaka á
kröfunum.
Frosthörkur enn
LONDON 16/1. — Ilinir miklu
kuldar héldust enn í dag á meg-
inlandi Evrópu, allt frá Norður-
löndum suður á ltalíu, og ekk-
ert sem benti til að bráðlega
myndi hlýna aftur í veðri.
1 Hollandi, Þýzkalandi, Belgíu,
Sviss, Austurríki, Danmörku,
Noregi og Italíu mældist hitinn
á hádegi í dag alstaðar fyrir
reðan frostmark og sumstaðar
var hörkufrost, allt niður í 45
stig .
Víðasthvar í svissnesku Ölp-
unum var 20 stiga frost og í
Bolzanohéraði við ítölsku Alp
ana mældist 37 stiga frost. 1
A usturríki gekk á með hríðar-
byljum en þar hefur heldur
hlýnað í veðri.
De Gaulle viss í sinni sök
Ummæli sem höfð eru eftir
de Gaulle í dag bera með sér
að hann hefur ekki í hyggju að
fara að annarra ráðum nú frem-
ur en endranær.
Upplýsingamálaráðherra hans.
Peyrefitte, hafði eftir honum. að
frgmtíðin yrði aðeins byggð á
grundvelli raunveruleikans.
Margir væru þeirrar skoðunar í
heiminum í dag að bezt væri að
loka augunum fyrir raunveru-
leikanum og vildu helzt ekki
heyra hann nefndan. En sann-
leikurinn væri jafnan sagna
beztur og því aðeins væri hægt
að leggja traustan grundvöll að
framtíðinni, að horfzt væri í
augu við hann
De Gaulle sagði þetta_ ú ráðu-
heytisfundi frönsku stjornarinn-
ar í dag. Næsti fundur hennar
verður haldinn 24. janúar.
Viðræður í Brussel
Enda þótt þannig séu litlar
líkur á því að samningaumleit-
anir Breta við Efnahagsbanda-
lagið beri nokkurn árangur, er
haldið áfram viðræðunn ráðherra
þeirra og bandalagsins í Brussel.
1 dag var einkum rætt um þá
tillögu Breta að algerlega yrði
felldur niður tollur bandalags-
ríkjanna á ýmsum vamingi frá
samveldislöndunum sem nú er
fluttur inn tollfrjáls til Bret-
lands Er þama m.a. um að ræða
alúminíum. blý zink. blaðapapp-
ír, en einnig ýms matvæli.
Brezki ráðherrann Heath lagði
fram nákvæmlega sundurliðaðan
lista yfir 26 vörutegundir eða
vöruflokka sem tollaívilnanirnar
Harðir bardagar hafa geisað undanfarnar vikur í Suður-Vietnam milli skæruliða þjóðfrelsishreyf-
ingarinnar og nersveita einvaldans Ngo Dinh Diem, sem búnar eru fullkomnustu bandarískam
vopnum og eru undir stjórn bandarískra herforingja Engu að síður hafa hersveitir stjórnarinn-
ar farið miklar hrakfarir í þessum viðurcignum. Myndin sýnir hermenn Diems vaða í land úr
1 bandariskum herflutningaprömmum á Mekongfljóti.
Castro í ræðu í Havana
Vantrúaður á friðsamlega
þróun til sósíalismans
HAVANA 16/1 — Fidel Castro, forsætisráðherra Kúbu,
hvatti í sjónvarpsræðu í dag til einingar innan hinnar al-
þjóðlegu verkalýðshreyfingar. Hann kvaðst ekki vilja
draga í efa að hægt væri að koma á sósíalisma með frið-
samlegu móti, en hann vissi hins vegar ekki til að það
hefði tekizt fram að þessu.
Castro sem flutti ræðu si'na á
kvennaþingi í Havana skoraði
á alla byltingarsinna í rómönsku
Ameríku að vera við öllu búnir.
Hann beindi þeim tilmælum
einnig til þingfulltrúa að þær
legðu sig alla fram við að fá
íjöldann í lið með sér og búa
hann undir baráttuna.
— Það er alþýðan sem ræður
gangi sögunnar, sagði Castro, og
því þarf að efla hana til dáða.
Ef við hefðum beðið eftir því
að koma á sósíalismanum með
friðsamlegum hætti, myndum við
áreiðanlega enn búa við harð-
stjóm Batista. Hér átti sér ekki
stað nein friðsamleg þróun. Breyt-
ingarnar sem orðið hafa kostuðu
stöðuga baráttu. Byltingin verð-
ur ekki leidd til sigurs nema
alþýðan vilji berjast fyrir henni,
sagði Castrc.
En Castro lagði jafnframt
mikla áherzlu á að hann hefði
ekki í huga að blása að glæð
um þeirra deilumála sem nú eru
uppi í verkalýðshreyfingunni,
Hann teldi það skyldu sína að
berjast fyrir einingu á grund-
velli hinnar marx-lenínistísku
baráttuaðferðar .
Bandaríkjamenn burt
Hann ítrekaði fyrri yfirlýsing-
ar Kúbustjórnar að hún myndi
aldrei leyfa neinum erlendum
aðila að hnýsast í vamarmál sín
og hann endurtók kröfumar um
að Bandaríkjamenn færu burt
með her sinn frá Guantanamo,
hættu viðskiptastríðinu og gæfu
hátíðlegt loforð um að þeir
myndu ekki gera innrás á Kúbu.
Framhald af 1. síðu.
Afvopnunarmálið
Krústjoff sagði að því aðeins
væri unnt að komast að sam-
komulagi um allsherjar afvopn-
un að góð sambúð hefði tekizt
með ríkjum heims. Þýzka vanda-
málið magnar viðsjámar í
heiminum og eykur líkurnar á
árekstrum á milli hinna stóru
hemaðarbandalaga. Því yrði að
eyða ágreiningnum.
Sósíalistísku ríkin hafa enga
þörf fyrir Vestur-Berlín og það
bafa vesturveldin heldur ekki.
Þau halda því hins vegar fram
að þau verndi frelsi Vestur-
Berlínar. Við leggjum því lil
að borgarbúar fái áreiðanlegar
tryggingar fyrir því að þeir geti
búið við það þjóðfélagskerfi sem
þeim er mest að skapi. Sam-
einuðu þjóðunum ætti að vera
falið að annast framkvæmdina
og um visst árabil gætu her-
sveitir vesturveldanna verið á-
fram í Vestur-Berlfn undir fána
SÞ. Þarf frekari trygginga við?
:purði Krústjoff.
Laerdómurinn frá Kúbu
Hann sagði að enn hefðu vest-
urveldin ekki viljað höggva á
þann hnút sem Berlínarmálið
væri, en hann kvaðst vera von-
góður um að það leystist áður en
of langt liði. Báðir aðilar
verða að láta stjórnast af skyn-
semi, sagði hann. Leiðtogar vest-
urveldanna ættu að læra af því
sem gerðist á Karíbahafi.
Við erum bjartsýnir
Margir andstæðingar Sovétríkj-
anna viðurkenna, sagði Krúst-
joff, að á alþjóðavettvangi geng-
ur þróunin sósíalistísku löndun-
um í vil. Þó heldur vígbúnaðar-
kapphlaupið áfram. Sósíalistísku
ríkin og hin nýju hlutlausu ríki
ættu að taka höndum saman til
að koma í veg fyrir kjamorku-
stríð í eitt skipti fyrir öll. Við
horfum björtum augum fram á
veg. Við höfum enga ástæðu til
svartsýni. Við þurfum ekki á
neinu stríði að halda.
Á þessum stað í ræðu sinni
lagði Krústjoff frá sér handritið
og sagði eftirfarandi sögu: Ég
minnist mjög sorglegs atburðar
sem kom fyrir mig í upphafi síð-
ari heimsstyrjaldarinnar. Hers-
höfðingi kom að máli við mig og
sagði mér að deildarforingi nokk-
ur á vígstöðvunum ætti að setj-
ast af vegna ódugnaðar. Ég var
ekki á sama máli og neitaði.
Hershöfðinginn fór samt sínu
fram og sagði mér frá þvi síð-
ar. Ég reiddist og ásakaði hann
fyrir ragmennsku og sagði að
honum væri fyrir beztu að skjóta
sig. Hann gerði það beint fyrir
augunum á mér. Þetta var engin
hetjudáð. Það er enginn sérstak-
ur hetjuskapur að kunna að
deyja með sæmd. Það geta marg-
ir. Það skiptir meira máli að
kunna að lifa með sæmd.
Undanhald auðvaldsins
Hann hélt síðan áfram að lesa
hina skrifuðu ræðu sína: Heims-
valdasinnamir hafa ekki lengur
neina einokun á kjarnavopnum
og þeir hafa fyrir löngu misst
yfirburði sína að koma þeim í
skotmark með flugskeytum. Jafn-
framt hefur orðið á sú breyting
að Bandaríkjunum er ekki leng-
ur neinn akkur í landfræðilegri
legu sinni. Þau geta nú heldur
ekki varizt endurgjaldsárás.
Heimsvaldasinnum hefur ekki
einungis mistekizt að brjóta
kommúnismann á bak aftur,
heldur hafa þeir misst tangar-
hald sitt víða í heiminum.
Sigurganga verkalýðsstéttarinn-
ar um allan heim heldur áfram
og ekkert mun fá stöðvað hana.
Hinn rauði fáni sósíalismans
mun að lokum blakta yfir allri
heimsbyggðinni.
að í Sovétríkjunum hefði verið
smíðuð vetnissprengja með 100
megatonna sprengimátt, en það
samsvarar sprengimætti 100
miUjón lesta af TNT. Og hann
bætti því við að þetta væri eng-
in endanleg takmörk fyrir eyði-
leggingarmætti slíkra vopna.
— Ef slfk sprengja væri notuð
í stríði myndi ekki hægt að
sprengja hana yfir Vestur-Evr-
ópu. Væri hún sprengd yfir
Frakklandi t.d. eða Vestur-
Þýzkalandi myndi Sovétrikj an-
um sjálfum og bandamönnum
þeirra stafa hætta af. 1 fyrsru
lotu kjamorkustríðs mætti bú-
ast við að 70—80 milljónir manna
biðu bana. Af þessu mætti Ijóst
verða hvílík meginnauðsyn öllu
mannkyni það væri að rutt yrði
úr vegi ágreiningsefnum stór-
veldanna og bundinn endi á
vígbúnaðarkapphlaupið. Fyrsta
skrefið í þá átt væri að semja
um Vestur-Berlín og Þýzkaland.
Ágreiningurinn
við Kína
Krústjoff ræddi sérstaklega
um Kúbumálið og sagði að
heimsvaldasinnar hefðu í því beð-
ið mikinn ósigur. Þeir hefðu
r.eyðzt til að skuldbinda eig
til þess frammi fyrir öllum
heiminum að þeir hættu við fyr-
irhugaða innrás sína á Kúbu.
Þetta var sigur fyrir sósíalism-
ann, sagði hann.
í þessu sambandi vék Krúst-
joff að ágreiningnum við svo-
kallaða marxista og lenínista
sem gætu hugsað sér að koma
af stað stríði til að brjóta auð-
valdsskipulagið á bak aftur.
Hann benti á að Bandaríkin réðu
nú yfir 40.000 kjamavopnum
ýmissa tegimda og spurði hvað
menn ímynduðu sér að gerast
myndi ef þessum vopnum væri
beitt gegn stórborgum og þétt-
býlum byggðarlögum.
Krústjoff vísaði á bug þeirri
tillögu kínverskra kommiinista
að kölluð yrði saman ráðstefna
forystumanna kommúnistaflokka
beimsins til að ræða ágreinings-
málin sem komin eru upp milli
þeirra. En hann hvatti mjög ein-
dregið til sátta og sagði að
timi væri kominn til að binda
endi á gagnkvæmar ásakanír
cg klögumál. Hins vegar væru
litlar líkur á því eins og stæði
að slíkur fundur forystumanna
kommúnistaflokkanna myndi
bera nokkum árangur. Deilur
innan hinnar alþjóðlegu verka-
lýðshreyfingar væru engin nýj-
ung. Kommúnisminn væri held-
ur ekkert trúfélag sem setti þá
utangarðs sem ekki fylgdu
helgisiðum. Við höfum átt í deil-
um við Júgóslavíu, en það land
er engu að síður sósíalistískt.
Og sama máli gegnir um Alb-
aníu. Við erum ekki sammála
albönsku leiðtogunum, en í
Albaníu ríkir samt sósíalismi.
Hann er undir því kominn í
hverra höndum framleiðslutæk-
in eru.
Enginn einn kommúnistaflokk-
ur getur tekið sér vald til að
segja öðrum flokki fjrrir verk-
um og hvemig hann skuli bregð-
ast við þeim sérstöku vanda-
málum sem hann hefur við að
stríða. Hver flokkur um sig er
bezt fær um að dæma um
hvemig hann skuli haga bar-
attunni, sagði Krústjoff.
Krústjoff lagði mikla áherzlu
á þær hryllilegu hörmungar sem
kjamorkustríð myndi leiða yfir
mannkynið. Hann skýrði frá því
Fullgerðum íbúð-
um fækkaði um
400
Meinleg prentvilla varð í fyr-
irsögn á viðtalinu við Guðmund
Vigfússon er birtist á 2. síðu
blaðsins í gær. 1 yfirfyrirsögn-
inni stóð, að fullgerðum íbúðum
í Reykjavík hefði fækkað um
300 síðan 1957 en eins og fram
kom reyndar í greininni sjálfri
er fækkunin 400 íbúðir en ekki
300.
V
*
i