Þjóðviljinn - 23.03.1963, Side 5
Laugardagur 23. marz 1963
HðÐVIlIlHH
SÍDA
Ástandið
eftir
Getgátur uppi um að Egyptaland og
ísrael heyi kiarnorkukapphiaup
Réttum mánuði ó eftlr stjórn-
arbyltingunní í Bagdad
kom stjórnarbyltingin í Dama-
skus. Nágrannalöndunum írak
og Sýflandi stjórna nú flokks-
brœður, félagar í Baath, Flokki
arabiskra sósíalistiskrar endur-
vakningar, eins og hann heitir
fullu nafni. Flokkurinn var
stofnaður fyrir tveim áratug-
um til að 'nna að sameiningu
allra araba frá Atlanzhafi i
vestri til Persaflóa í austri, og
í starfi sínu tekur hann ekkert
tillit til þeirra landamæra sem
skipta svæðinu sem arabar
byggja í ýmis ríki. Framkvæmd
byltinganna í Irak og Sýr-
landi ber með sér að á báðum
stöðum er unnið eftir sameigin-
legri óætlun. Herinn ríður á
vaðið og kollvarpar stjórninni
,sem fyrir er, skipuð er sameig-
inleg ríkisstjórn herforingja og
stjórnmálamanna úr Baath, en
æðstu vöíd eru í höndum bylt-
ingarráðs sem starfar með svo
mikjlli leynd, að ekki er einu
sinni lát.ið upp hverjir í þvi
eiga sæti. Kerfið er nákvsem-
lega eins í Bagdad og Dama-
skus.
Baath er flokkur þjóðernis-
sinnaðrar, arabiskrar borg-
arastéttar. Markmið hans er að
stófna voldugt arabaríkl sem
nói yfir alla norðurströnd Afr-
íku frá Marokkó í vestri og ar-
abalöndin fyrir botni Miðjarð-
arhafs til austurlandamæra
íraks. Annars vegar berst hann
gegn yfirráðum konungsætta og
lénsdrottna sem vilja sitja hver
að sínum skika og hafa flest-
ir látið erlendum auðhringum í
té afnot landsgæða gegn ágóða-
hlut og hernaðaraðstoð frá
Vesturveldunum til að halda
landslýðnum í skéfjum. Hins-
vegar á Baath f höggi við
kommúnista. eina flokkinn sem
gert hefur sér far um að skipu-
léggja verkalýðsstétt araba*
landanna til pólitískra átaka
ftéyndar gætir mjög mismun-
andi stefnu hjó ílnkksbrotum
Baath. Eftir valdatökuna í fr-
ak var hafin útrýmingarherferð
geen kommi'i.ni-tn.rn með f.iölda-
handtökum og aftökum, í Jór-
dan hefur aftur á móti megin-
armur Baath unnið með komm-
únistum gegn einveldisstjórn
Husseins konungs.
Einu sinni áður hafa Baath-
jstar komfzt tíi valda í ar-
abaríki, það var í Sýrlandi 1958.
Salh el-Bitar, stofnandi flokks-
ins, varð þá svo skelfdur við
vaxandi ítök kommúnista í
landinu að hann beitti sér fyr-
ir sameiningu Sýrlands og
Egyptalands að Nasser forseta
í Kairó hálfnauðu.oum. Þeirri
sameiningu lauk fyrir þrem
misserum með uppreisn í Sýr-
iandi og sambandsslitum. í-
haldsmennirnir af gamla skól-
anum sem þá komust til valda
hafa nú orðið að lúta í lægra
haldi fvrir Baath, og el-Bitar er
forsætisráðherra ný.ju stjómar-
innar. Ekki var nema vika lið-
in frá stjþrnarbyltingunni f
Damaskus þegar aðstoðarfor-
sætisráðherra hans. Nehad el-
Kassim. hélt til Kairó ásamt
Ali Saleh el-Saadi aðstoðarfor-
sætisráðherra í frak til að
leggja fyrir Nasser sameigin-
legar tillögur þeirra Baathista
um sameiningu þessara þriggja
i-íkja í nýtt rífcjábandalag.
Vildu komumenn vinda bráðan
bug að framkvæmd málsins, en
Nasser tók erindi þeirra þung-
lega. Stofnun Arabiska sam-
bandslýðveldisins var á sínum
tíma rei.kmtð honum til valda-
græðgi, bótt Baathistar ættu
frumkvæðið að þeirri ráða-
breytni. og svo hlaut hann á-
litshnekki af upplausn hins
nýja ríkis þegar Sýrland brauzt
úr sambandinu viö Egyptaland
Varð þflð úr eftír tveggja daga
fundahöld að ráðherrarnir frá
Sýrlandi og frak héldu hein
með gagntillögur frá Nasser, og
er ekki enn um þær vitað í ein-
stökum atriðum. Haldið er að
meginefni þeirra sé að Egypta-
land og Sýrland verði sameinuð
n ný eftir vandlegri undirbún-
ing en í fyrra skiptið og síðan
verði rætt um náið samstarf
þessa nýja Sambandslýðveldi-
við írak.
Forustumenn Baathista í Da-
maskus og Bagdad tala
jafnvel um fimm frelsuð araba-
ríki. Eiga þeir þó við ríkin þrjú
sem fulltrúa áttu á fundinum
í Kaíró, Alsír og Jemen. Tvö
arabaríki, Jórdan og Saudi-Ar-
abía, eru undir stjórn einvalds-
konunga og er ekki farið dult
með að unnið verði kappsam-
lega að frelsun þjóða þeirra
undan yfirráðum Hashemíta og
Saud-ættarinnar. Þrjú araba-
ríki, Libya, Túnis og Marokkó,
eru samkvæmt þessum skiln-
ingi .einhversstaðar á milli þess
að vera frelsuð og ófrelsuð.
Eftir sigrana í Sýrlandi og fr-
ak þykir Baathistum vænlega
horfa um írarognng stefnu sinn-
ar um sameiningu allra araba
í eina ríkjaheild. Þeir ei*u sam-
mála Nasser um að fvrsta verk-
efnið sé að styðja lýðveldissinna
í Jemen til fulls sigurs yfir her-
sveitum imamsins, sem njóta
fulltingis Saudi-Arabiu og Jór-
dans. En konungsstjórnir þess-
ara landa reiða sig á liðveizlu
Vesturveldanna. Bandaríkin
hafa mikilla olíuhagsmuna að
gæta í Saudi-Arabíu. Rusk ut-
anríkisráðherra í Washington
sagði eftir byltinguna í Sýr-
landi, að Bandaríkin myndu
láta „ógnanir við sjólfstæði
þessara ríkja“ til sín taka.
I"sraelsstjórn stendur stuggur
&f uppgangi þeirra afla sein
vinna að sameiningu araba,
enda hafa forystumennimir í
Kairó, Damaskus og Bagdad
allir svarið þess dýra eiða að
má ísraelsríki af landakortinu
í fyllingu tímans. Fréttir síð-
ustu daga bera því ljósan vott
að vígbúnaðarkapphlaup fsra-
els og Egyptalands ágerist sí-
fellt. Egyptar stæra sig nú af
að ráða yfir meðallangdrægum
eldílaugum sem þeir hafa smíð-
að með hjálp þýzkra eldflauga-
fræðinga. Eftir byltinguna í
Sýrlandi skýrði Heikal, ritstjóri
blaðsins A1 Ahram I Kairó og
trúnaðarmaður Nassers, frá var-
úðarráðstöfunum Egyptalands-
forseta. Jafnskjótt og fregnir
bárust af því hvað var að ger-
ast í Damaskus, segir ritstjór-
inn, skipaði Nasser svo fyrir
Salah el-Bitar, stofnandí Baath
og forsætisráðherra nýjustjórn-
arinnar í Sýrlandi.
að eldflaugasveitir egypzka
hersins skyldu vera viðbúnar
að skjóta vopnum sínum þegar
í stað ef reynt yrði með „utan-
aðkomandi íhlutun“ að hafa ó-
hrif á gang mála í Sýrlandi.
Nauðsynlegar varúðarróðstaf-
anir voru gerðar til að hindra
„að Tyrkland eða ísrael mis-
reiknuðu sig“, segir Heikal.
E1,
þótt þær séu ekki hlaðnar
öðru en venjulegu sprengiefni.
en með kjai-norkusprengju i
oddi eru þær fullkomnustu
drápstæki sem mannlegt hugvit
liefur enn fundið upp. ísraels-
stjórn fullyrðir að Egyptalands-
stjórn stefni að því að gerast
kjamorkuveldi, og misheppn-
uð tilraun ísraelsku leynþjón-
ustunnar til mannrána 1 Vest-
ur-Þýzkalandi í slðasta mánuði
er réttlætt með því að öll með-
ul séu leyfileg til að hindra
Nasser í að koma sér upp
kjamorkuvopnum. í Lörrach,
smáborg nærri landamærum
Vestur-Þýzkalands og Sviss
býr eldflaugafræðingurinn dr
Hans Kleinwaechter. Hann hef-
ur um skeið unnið sð smíði
rafeindastjómtækja í eldflaugar
fyrir egypzku herstjórnina, einn
af mörgum þýzkum vísinda-
mönnum sem hafa slík eða
skyld störf með höndum í þágu'
Egypta.-Svo bar við 20. febrúar
að tveir menn reýndu að draga
dr. Kleinwaechter út úr bíl sín-
um næn-i heimili hans og hafa
hann á brott m.eð sér. Þegar
vegfarendur komu aðvífandi
flýðu árásarmemiirnir.
Atburðir af þessu tagi hafa
áður gorzt í Suður-Þýzka-
landi, til dæmis er ekki langt
umliðið síðan eðlisfræðingur að
nafni Heinz Krug hvarf í
Múnchen og hefur ekkert spurzt
til háns „síðan. Sá hafði haft
með höndum ráðningu vísinda-
manna í þjónustu ;Bgyptálands-
stjórnar, og er nú talið víst að
ísraelska leyniþjonustan hafi
rænt honum, en óvíst er enn
hvort hann hefur verið myrtur
eða fluttur á laun til ísraels.
Máski fæst' vitneskja um það
við yfirheyrslur yfir þeim tveim
sem réðust á dr. Kleinwaecht-
er, en þeir sitja nú í haldi í
Sviss. Hafði svissneska lögregl-
ah hendur í hári þeirra, þegar
þeir reyndu að laumast yfir
landamærin eftir hið misheppn-
aða mannrán. Annar er ísraels-
maður en hinn er austurrískur
geislunarfræðingur, Otto Franz
Joklick. Um skeið starfaði
Joklicli þessi fyrir Egypta, en
á síðasta ári yfirgaf hann
Egyptaland. Fréttamenn í ísrael
hafa fregnað að hann hafi þá
snúið sér til ísraelskra yfir-
valda og tjáð þeim að hann
hafi komizt að raun um að
Egyptar séu að reyna að smíða
kjarnorkusprengjur í eldflaug-
ar sínar með hjálp Þjóðverja.
Israelsku leyniþjónustunni tókst
að telja Austurríki.smanninn á
að taka þátt í því að hræða
þýzka vísindamenn með hermd-
arverkum svo að þeir þyrðu
ekki lengur að starfa fyrir
egypzku herstjómina. Meðal
annars er Joklick og félaga
hans gefið að sök að hóta því
að myrða dóttur eðlisfræðings-
, ..jns Raul Goercke ef hann hæt'd
ekki að vinna í þágu Egypta.
ftij handtöku tvímenning-
Nasser Egyptalandsforseti (þriðji frá vinstri) á bæn ásamt ríkisstjóm siinni. Múhamcðtrúarmcnn
snúa höfði til Mekka þcgar þeir biðjast fyrir.
anna í Svjss sagði Evrópu-
fréttaritari Kol ísrael, ísraelska
ríkisútvarpsins, að vissa væri
fyi-ir að þýzkir vísindamenn
störfuðu fyrir Egypta „að smíði
vopna sem bönnuð eru og for-
dæmd að alþjóðalögum."
Granger Blair, fréttaritari New
Yorks Times í ísrael, segir að
þar sé fullyrt að hinn ísraelski
útvarpsmaður eigi við kóbalt-
sprengjur, en slikar sprengjur
ei-u til þess sniðnar að valda
sem mestu helryki. Sé kjara-
orkusprengja umlukin kóbalt-
slcurn þarf hún ekki að hafa ýkja
mikinn sprengimátt til að valda
gífurlegu manntjóni með hel-
ryksskýinu sem henni íýlgir.
Israelsmenn segja að sem stend-
ur starfi milli 30 og 40 þýzkir
Framhald á 10. síðu.
Vísindi — tækni
\ Mr * . I# »1- nv hafa monn rflvnt viíj ciálf. Koccara flf-a „rt lv5 fliriTriim „m TnS nmrri„ „a carria aA
!
Auðæfi hafsins
!
Þáð er álitið að þær
birgðir af olíu, sem þekkt-
ar eru, nægi ekki nema
til ársíns 2000. Og það er
heldur ekki hægt að álíta
að birgðir af öðrum dýr-
rnætum efnum í jörðu séu
ótakmarkaðar. Þessvegna
er nú mikið gert af því
ið leita nýrra staða og
horfa jarðfræðingar með
vonarglampa í augum á
Suðurskautslandið og jafn.
vel til tunglsins.
En því má ekki gleyma
að óendanleg auðæfi liggja
svo að segja beint fyrir
framan nefið á oikkur: í
hafinu, á landgrunní meg-
inlanda.
Olía
Fyrst skulum við ræða um
olíuna.
Að því er jarðfræðingar
allra landa álita, eru aðallind-
ir olíunnar einmitt Við strand-
lengjur. 1 Sovétríkjunum hafa
þegar verið reist heil þorp úti
í Kaspíahafi þar sem dælt er
upp olíu. Olíuleit hafa nú haf-
ið einnig þjóðir sem óður létu
sig ejrki dreyma um neina
þjóðléga olíu sér til nanda,
eins og til dæmis Englending-
ar og Hollendingar og bora
enskir og hollenzkir nú af
kappi í Norðursjó. Englend-
ingar hafa verið heppnir, þeir-
hafa fundið olíulindir við
strönd írlands, að vísu smáar.
en þær gefa góða von. Fljót-
andi olíuborunarstöðvaf
Bandaríkjanna hafa þegar
siglt yfir úthöf og eru nú á
Persaflóa við boranir, og
þangað eru Japanir komnir
lika,- enda lóta þeir mjög að
sér kveða í efnahagsmálum
um þessar mundir. Fyrirtæki
háþróaðra landa setja upp
borturna utan landhelgi van-
þróaðra þjóða og nota aðferð
skáhallrar borunar til að gera
lævísleg strandhögg inn fyrir
landhelgislínu.
Stjörnufræðilegar
tölur
Á landgrunni er- nú þegar
farið að vinna gull, eir,
brennistein, tin og kol. Þeir
slungnu Japanir taka 12 pró-
sent kolaframleiðslu sinnar úr
„neðanjarðar" námum og þar
skafa þeir upp 7 milljónir
tonna járngrýtis.
Er Sovétríkin taka til að
vinna að kappi á sínu land-
grunni, þá þýðir það að jarð
fræðingar þeirra fá til leitar
sinnar svæði sem er að flatar-
máli jafnstórt og allur Ev-
rópuhluti ríkisins. En nú þeg-
ar hafa menn reynt við sjálf-
an úthafsbotninn.
Og hvað er það, sem jarð-
fræðingar hafa uppgötvað í
því mjúka botnfalli sem falið
er undir myrkum sjó? Fyrst
og fremst margmálma-mynd-
anir, sem eru yfirleitt 2—5 sm
á stærð og innihalda járn og
nikkel og kóbalt og fleiri
fi-umefni, jafnvel úraníum.
Magn þessara myndana er svo
mikið, að það er í rauninm
ótæmandi (á að gizka 350
milljarðar tonna). Þær llggja
á yfirborði hafsbotnsins en í
töluverðu dýpi, frá 2—0 kíló
metrum. Ýmis lönd hafa haf-
ið undirbúning að , vinnslu
þessara efna og þá einkum
Bandaríkjamenn.
Á allmiklu dýpi er einnig
að finna ágætt hráefni til ai-
úmíníum- og eirvinnslu. Rauð-
ur leir, sem þekur 130 millj-
ónir ferkílómetra hafsbotnains,-
inniheldur 20—25 prósent al-
úníums. Þessi lög geta verið
100 meti-a á þykkt og magn
þeirra í tonnum vei-ður þá
aðeins talið í stjarnfræðileg-
um tölum — alúmíníum í 14
núllum. Og það er tiltölulega
mjög stutt þangað til farið
verður að vinna þessi auðævi.
Streymandi
málmgrýti
Sjórinn við strendur land-
anna er nokkurskonar eðlileg
„auðgunarfabi-ikka“ (en svo
nefnast þær verksmiðjur, sem
taka við óunnu málmgrýti)
öldurnar skella á ströndunum
Öldum saman og mola niður
bær bergteg. er þær mynda,
Str.aumarnir bera með sér hin-
ar léttari agnir út í hafsauga
en hinir þyngri málmar verða
eftir á grunninu. Einmitt þar
er að finna mikið magn af
hinum sjaldgæfustu frumefn-
um. Það nægir að segja að
60% af framleiðslu hins kapi-
talíska heims kemur úr sönd-
um við stönd Ástralíu.
En hér er þó hvergi nærrí
allt upp talið, sem hafið get-
ur gefið okkur. Sjórinn
er nokkurskonar blautt málm-
grýti, svo undarlegt sem það
nú virðist. Að visu hefur enn
ekki teldzt að finna fullnægj-
andi aðferðir til að vinná dýr-
mæt efni úr sjó, og hafa þó
margar tilraunir verið gerðar.
En það er engin óstæða til að
örvænta, þar eð efnafræðin er
í hraðri frarhför... ,
Menn vita líka, að sumar
barategundir búa yfir furðu-
legum hæfileikum til að
gleypa í sig eitt eða annað
frumefni. Menn vinna nú
þegar bróm og joð úr þangi.
Áður en langt um líður má
vera að settar verði upp þang-
plantekrur og verður uppsker*
unni bronnt og síðan unnin
ýmis dýrmæt efni úr öskunni.
Það er heldur ekki ónýtt
að vita, að í dýpstu gljúfrum
i'i.thafanna hefur tekizt að
finna náttúrulegt þungt vatn
Og halda menn að þar séu
komnar birgðir af þungu vatni
upp á 274.000 milljarða tonnat
rj
I
4
4