Þjóðviljinn - 05.05.1963, Síða 2
2 SIÐA
H6ÐVILJINN
Sunnudagur 5. maj 19S3
Boðskapur íhaldsins í borgarstjórní
menning varðar ekki um
ipulagsmál borgarinnar!
Tónleikar Musica Nova
Það er með öllu óþarft að taka það fram í sérstakri
samþykkt borgarstjórnar að skipulagning Reykjvíkur sé
eitt af mikilsverðustu velferðarmálum íbúa borgarinnar,
móðgandi að nefna það að þeim málum hafi jál þeasa ekki
verið gefinn nauðsynlegur gaumur, fráleitt að leggja á-
herzlu á að úr ríkjandi ófremdarástandi í þessum efnum
verði bætt og vafasamt, jafnvel hættulegt, að stuðla að
því að almenningi verði veitt fræðsla um sem flest atriði
skipulagsmálanna í því skyni að glæða áhuga hans, skiln-
ing og smekk fyrir skipulags- og byggngarlist!
Þetta voru þau „rök“. sem
einn íhaldsfulltrúinn, Þór Sand-
holt skólastjóri Iðnskólans og
arkjtekt, færði fram til frávís-
unar á ítarlegri tillögu um
skipulagsmál á fundi borgar-
stjórnar Reykjavíkur j fyrra-
kvöld Tillöguna flutti Alfreð
Gíslason, borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, og er hún svo-
hljóðandi:
„Borgarstjóm Reykjavíkur er
það ljóst, að skipulagning borg-
arinnar er eitt af mikilsverðustu
velferðarmálum íbúanna og að
hún snertir þá jafnt í efnahags-
legu sem í heilbrigðislegu og
menningarlegu tilliti.
Borgarstjórnin gerir sér einn-
jg grein fyrir, að skipulagsmál-
um Reykjavíkur hefur til þessa
ekki verið gefinn sá gaumur.
sem þurft hefði. og að um of
hefur verjð látið skeika að sköp-
uðu um þau mál, borginni til
lýta og borgarbúum þl óþæg-
inda og tjóns.
Um leið og borgarstjórnin
þannig vjðurkennir ófremdará-
stand, skipulagsmálanna. leggur
hún áherzlu á bann vilja sinn.
að úr verði bætt svo fljótt sem
unnt er. Hins vegar gerir hún
sér ljóst, að hér er við ramman
reip að draga, þar eð skipulags-
oa byggingarlist virðist enn
standa á íágu stigi í landinu, en
skÍDu’agning borga hvarvetna
mikið vandaverk j nútíma þjóð-
félagi.
Borgarstjórnin vill sérstaklega
benda á brýna þörf þess,
1) að stjórnendur borearinn-
ar kynni <:ér skipulagsmál. svo
sem aðstæður leyfa, og hina
marrrbættu bvðineu beirra mála
fyrir allt daglegt líf borgaranna,
2) að skipulagsdeild. bygging-
arnefnd og aðrir aðilar, sem ann.
ast skipulagningu og framkvæmd
hennar, sýni fyllstu ábyrgðartil-
finningu ásamt árvekni og festu
í störfum sínum og
3) að almenningi verði veitt
fræðsla um sem flest atríði
skipulagsmála i því skyni að
glæða áhuga hans, skilning og
smekk fyrír skipulags- og bygg-
ingarlist.
Til þess að örva þá þróun, sem
nauðsynlega þarf að verða í
þessum efnum. samþykkir borg-
arstjómin, að ráðnir skuli tveir
menn. sérfróðir um skipulags-
mál, til viðbótar starfsliði skipu-
lagsdeildar Reykjavíkur. Auk
Happdrætti DAS
I gær var dregið í 1. flokki
Happdrættis DAS um 150 vinn-
inga og féllu hæstu vinningar
þannig:
4ra herb. íbúð Ljósheimum 22,
2. h. (A) tilbúin undir tréverk
kom á nr. 20773. Umboð Eski-
fjörður. 2ja herb. íbúð Ljósheim-
um 22, I. hæð (D) tilbúin undir
tr'évferk kom á ’nf. 22051: Um-
boð Hafnarfjörður, 2ja herb.
íbúð Ljósheimum 22, 3. h. (E) til-
búin undir tréverk kom á nr.
3655. Umboð Akureyri. Opel
Cadett fólksbifreið kom á nr.
3889. Umboð Aðalumboð. Taunus
12M Cardinal fólksbifreið kom
á nr. 21142. Umboð Hreyfill
Volkswagen fólksbifreið kom á
nr. 19142. Umboð Aðalumboð.
NSU-PRINZ fólksbifreið kom á
nr. 40430. Umboð Mosfellssveit.
Dr.
Gunnlaugur
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
er mjög sérstæður persónu-
leiki og auðgar íslenzkt þjóð-
líf á sinn hátt. Hann er einn
þeirra manna sem ræður yfir
ósjálfráðri kímnigáfu án þess
að vita af þvi sjálfur. Hann
er aldrei jafn skoplegur og
þegar hann ímyndar sér að
hann sé alvarlegur, aldrei eins
hlægilegur og þegar hann
ætlar að vera hátíðlegur. Þar
við bætist að hann er svo
einstaklega trúgjam að verði
aðrir ekki til þess að byrla
honum eitthvað inn gerir
hann það sjálfur og trúir því
á eftir. Það lá að að menn-
ingarstofnun sú sem nefnist
útvarpsráð teldi doktor Gunn-
laug tilvalinn til að flytja
erindi frá Rússlandi, og hann
lá sannarlega ekki á liði sínu
í fyrrakvöld, skýrði frá til-
burðum sinum til svarta-
markaðsbrasks í Moskvu,
hvemig hann varð á svip-
stundu trúnaðarmaður gesta á
veitingahúsum og stúdenta í
háskólum sem röktu honnm
raunir sínar, og ekki lét hann
hjá líða að íklæðast gervi
hins pólitíska spámanns.
Sjaldan hef ég hlegið jafn
innilega á ævi minni. Auk
þess hefur þvílíkur boðskap-
ur stjómmálalegt gildi; má
ég biðja um doktor Gunnlaug í
útvarpið á hverju einasta
kvöldi fram að kosningum.
En eitt er að hafa slíka
skemmtun til heimilisnota,
annað að gera hana að út-
flutningsvöru. Dr. Gunnlaugur
Þórðarson var sendur til
Rússlands með myndlistar-
sýningu sem sérstakur full-
trúi íslenzkrar menningar,
andlegur staðgengill Gylfa Þ.
Gíslasonar menntamálaráð-
herra, og þarf ekki að eyða
orðum að því hvert muni vera
mannorð ráðherrans og þjóð-
arinnar síðan. Ég minnist þess
að þegar dr. Gunnlaugur
var sendur austur sem tákn
hins andlega lífs á íslandi
sagði einn af flokksbræðrum
hans við mig: Mér er mein-
illa við kommúnistastjómina
í Moskvu, eins og þú veizt.
En ég held þó að engin rík-
isstjóm í heimi geti verið svo
slæm að hún verðskuldi að
fá Gunnlaug Þórðarson sem
gest. — Austri.
venjulegra daglegra starfa skal
þessum sérfræðingum falið að
annast almennt kynningar- og
fræðslustarf á vegum deildarjnn.
ar.
Ef ekki reynist unnt að fá nú
þegar sérfróða menn i þjónustu
skipulagsdejldar, skal ungum
arkitektum eða nemum boðinn
ríflegur styrkur til sémáms í
skipulagsfræðum gegn því að
þeir síðan starfi í iþjónustu
borgarinnar um visst árabil.
Að lokum beinir borgarstjórn-
in þeirri áskorun til manna, sem
þekkingu hafa á skipulagsmál-
um, að láta til sín heyra opin-
berlega um þau efni og verða
með þvf móti til þess að vekja
sem flesta til umhugsunar um
þetta vandamál. sem alla borg-
arbúa snertir svo mjög.“
Frávísunartillaga fhaldsins var
samþykkt að loknum nokkrum
umræðum með atkvæðum meiri-
hlutans.
Sunnudaginn 28. apríl efndi
félagið Musica Nova til tón-
leika j gúlnasal Hótel Sögu. Á
efnisskránni voru eingöngu
verk síðustu áratuga. Til
flutnings höfðu verið valin
verk fyrir fiðlu og knéfiðlu,
með því að tónleikana önnuð-
ust að öllu leyti tónleikarar,
sem fóru með þessi hljóðfærí,
sem sé hjónin Roger Drinkall
og Derry Deane frá Bandaríkj-
unum. Er R. Drikall knéfiðlu-
leikari, en kona hans fiðiu-
leikari. Tónverkin voru eftir
þrjá kunna fulltrúa nútízkunn-
ar, þá A. Honegger, E. Krenek
og B. Martinu, og K. Kroeger,
sem er líklega yngri maður, að
minnsta kosti miður þekktur.
Skemmtilegust virtust mér í
fljótu bragði verkin eftir Hon-
egger og Martinu, „Sónatína“
og ,,Dúó“ fyrir fiðlu oig kné-
fiðlu
Hjónin eru ágætir hljóð-
færalejkarar og mjög jafnvig
á hljóðfæri sín. Var samleikur
þeirra allur hinn öruggasti og
auðheyrilega mjög vel undir-
búinn.
Tónlist eins og sú, sem þarna
var flutt. lyftir ekki andanum
í neinar svimandi hæðir og
skilur varla mikið eftir hjá
hlustanda. Eigi að síður er
hún ein af staðreyndum vorra
tíma og því þarft verk að
flytja hana öðru hverju til þess
að gefa mönnum kost á að
kynnast henni og mynda sér
um hana rökstuddar skoðanir.
B. F.
VONDUÐ
F
{lTo II R
ODYR U 0
Sjgutfiórjónsson &co
JiafnarstrœU if
9/2% hitaveitulán
borgarstjórnar Reykjavíkur
Borgarstjórn Reykjavíkur býður nér meö út 20 milljón króna skulda-
bréfalán, sem Reykjavíkurborg tekur vegna aukningar hitaveitu í borginni,
skv. ályktunum borgarstjórnar 7. des 1931 og 21. júní 1962.
Höfuðstóll lánsins er kr. 20 millj og eru gefin út skuldabréf sem hér
segir
Litra A 1— 200 hvert að fjárhæð kr. 50,000.00 kr. 10.000.000.00. -
— B 1—1500 — — — — 5.000.00 — 7.500.000.00
— C 1—2500 — — — — 1.000.00 — 2.500.000.00
Vextir af láninu er 91/2 % á ári og greiðast þeir árlega, í fyrsta sinn
30 apríi 1964.
Iánið er afborgunarlaust fyrstu 5 árm, 1963—1968, en endurgreiðist
síðan að fullu með nafnverði 30. apríl 1968.
Greiðslustaður vaxta og skulda oréfa er hjá borgargjaldkeranum í
Reykjavík
Lánið er tryggt með eignum Reykjavíkurborgar.
?kuldabréfin verða til sölu hjá eftirtöldum bönkum og sparisjóðum
1 Reykjavík frá og með mánudeginum 6 þ.m.:
Landsbanka Islands,
(Jtvegsbanka tslands,
Búnaðarbanka Islands,
Iðnaðarbanka Isiands h.í.
Verzlunarbanka fslands h.f.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis og
Samvinnusparisjóðnum.
Borgarstjórinn 1 Reykjavik, 4. maí 1963
GEIR HALLGRÍMSS0N.
PJllUSTAl
LAUGAVEGI 18^. SIMl 19113
SELJENDUR
ATHUGIÐ:
Höíum kaupendur
með miklar útborg-
anir að íbúðum og
einbýlishúsum.
TIL SÖLU:
2 herb. ný og góð íbúð við
Rauðalæk.
2 herb. kjallaraíbúð við
Karfavog
2 herb. íbúð í smíðum í
Selási.
3 herb. hæð í timburhúsi'
við Nýbýlaveg 1. veðr.
laus. Góð kjör
3 herb. ibúðir með litlar út-
borganir við Engjaveg og
Digranesveg.
3 herb. íbúð við Óðinsgötu.
3 herb. góð íbúð á Seltjam-
amesi.
3 herb. kjallaraíbúð við
Langholtsveg, sér inn-
gangur.
3 herb. góð hæð við Flóka-
götu. sér inngangur. sér
hitaveita 1. veðr. laus.
4 herb. íbúð við Flókagötu,
bflskúr. 1. veðr. laus.
4 herb. glæsileg jarðhæð
við Njörvasund.
4 herb. ný íbúð við Safa-
mýri, fullbúin til fbúðar
eftir nokkra daga.
5 herb. nýleg hæð við
Kópavogsbraut, sér inn-
gangur. bvottahús og
hiti. I veðr. laus.
5 herb. hæð í Hlíðunum, 1.
veðr. laus.
5 herb. glæsileg ibúð við
Kleppsveg.
6 herb. glæsileg efri hæð.
með öllu sér. við Ný-
býlaveg.
6 herb. ný íbúð í Laugar-
Lítið einbýlisbús við Breið- •
holtsveg, útborgun kr. 150 !;
bús.
Vandað timburhús við
1 Heiðagerði, útborgun 200
búsund.
í SMÍÐUM:
Glæsilegt einbýlishús í
Garðahreppi. á einni hæð
180 ferm. með bflskúr.
tilbúið undir tréverk og
málningu i sumar fagurt
útsýni. Arkitekt Kiartan
Sveinsson.
Parhús á tveim hæðum i
Kópavogi. Arkitekt Sig-
valdi Thordarson.
Efri hæð i tvíbýlishúsi. með
allt sér í Kópavogi.
' .!: S'l
Hafið samband við
okkur ef bér bnrfíð1
að kaupa eða selia
fasteignir.
Happdrætti
Háskóla ísiands
óskar að ráða hið fyrsta stúlkur til sfarfa
á aðalskrifsiofunni í Tjarnargötu 4.
Umsóknir sendíst happdrættinu eigi síðar
en 15. maí n.k.
Unglinga
Vantar um tíma til innheimtustarfa. fvrir
og eftir hádegi.