Þjóðviljinn - 05.05.1963, Qupperneq 12
Mótmælabréf til Breta marklaust
-100%
•75%
-50%
-25%
61
í gær fórum við í 61%.
Við færum þakkir fyrir
þau framlög. Eins og fyrri
daginn erum við að glíma
við stór vandamál, sem við
við þurfum að leysa á
næstu dögum. -Við væntum
þess að sem flestir líti til
okkar í skrifstofuna Þórs-
götu 1., opin daglega frá kl.
10—12 og 1—6 e.h. Takið
þátt í styrktarmannakerfi
Þjóðviljans. Ennfremur vilj-
um við minna á mánaðar-
mótin hjá þeim sem lofað
hafa mánaðargreiðslum.
Við viljum minna á um-
boðsmenn okkar á eftir-
töldum stöðum:
Selfoss: Þormundur Guð-
mundsson, Miðtúni 17.
Akureyri: Þorsteinn Jónat-
ansson, Verkamanninum.
Slglufjörður: Hannes Bald-
vinsson, Suðurgötu 10.
Neskaupstaður:
Þórðarson.
Bjami
Vestmannaeyjum: Haf-
steinn Stefánsson Kirkju-
bæjarbraut 15.
Isafjörður: Halldór Ólafs-
son, Pólgötu 10.
Herðum
helgina.
sóknina um
orðaskak
Ríkisstjórnin játar að ofbeldi Breta sé afleið-
ing af undanlátssemi Bjarna Benediktssonar
Þjóðviljanum barst f gær
fréttatilkynning frá utanríkis-
ráðuneytinu um mótmælaorð-
sendingu tii Breta vegna nýjasta
ofbeldisverks brezka flotans.
Eins og vænta mátti er þetta
bréf Guðmundar I. Guðmunds-
sonar aðeins tnlgangslaust orða-
skak sem ekkert mark verður
tekið á. Ekki er vikið að nein-
um aðgerðum af Islands hálfu,
ekki einusinni þeirri lágmarks-
ráðstöfun að leggja hald á tog-
arann Milwood þar til skipstjór-
inn hefur verið framseldur, hvað
þá að að því sé vdkið að ofbcldið
kunni að hafa áhrif á stjórn-
málasamband Islands og Bret-
Iands eða væntanlega „kurteis-
isheimsókn" forsetans. Hins veg-
ar er játað í orðsendingunni að
það hafi verið „ákvörðun af
Vegirnir
á Héraði
fororvilpa
’gilsstöðum í gær. — Vegir hér
Héraði mega heita ófærir
vegna aurbleytu og varla færir
farartækjum með drif á öllum
hjólum eða dráttarvélum með
beltum. Vegurinn hjá Eiðum er
líklega verstur.
Þetta torveldar flutnjnga á
mjólk, áburði og öðrum búvör-
um og hefur þetta reynzt svona
um tveggja mánaða skeið á vor-
in og eru bændur orðnir úrillir
yfir þessu ófremdarástandi í
vegamálum undanfarin ár.
Bændur halda því fram, að fjár-
magn, sem veitt hafi verið til
vegalagna hafi að miklu leyti
farið í viðhald á þeim troðn-
ingum, sem ruddir voru fyrir 20
árum, en minna orðið um ny-
lagningu framtíðarvega *— S.G.
Alþýðubandalags-
fólk, Akranesi
Kaffiveitingar verða í Rein í
kvöld kl. 21. Einnig verður kvik-
myndasýning. Félagar fjölmenn-
ið. Munið fundinn annað kvöld
kl. 21 í Rein.
hálfu íslenzkra stjórnarvalda að
beita ekki löglegu valdi“ og
hafi hún verið „misnotuð“; rikis-
stjórniin viðurkennir þannig skil-
yrðislaust að ofbeldi Breta sé
bein afleiðing af undanlátssemi
Bjarna Benediktssonar landhelg-
ismálaráðherra.
Fréttatilkynning utanrikisráðu-
neytisins er svohljóðandi:
„Utanrxkisráðherra Guðmundur
1. Guðmundsson kvaddi í dag
brezka ambassadorinn E. B.
Boothby á sinn fund og afhenti
honum orðsendingu þar sem enn
á ný var krafizt framsals brezku
stjómarinnar á Smith skipstjóra
á brezka togaranum Milwood,
sem varðskipið Óðinn stóð að
veiðum í landhelgi fyrir sunn-
an land. eins og kunnugt er af
fréttum.
Ráðherrann tók fram við am-
bassadorinn, að ríkisstjóm Is-
lands liti mjög alvarlegum aug-
um á mál þetta og ítrekaði, að
það væri skýlaus krafa af Is-
lands hálfu, aðskipstjórinn mætti
fyrir íslenzkum rétti til þess
að Standa fyrir máli sínu.
Þá var ennfremur tekið fram
í orðsendingunni, að sú ákvörðun
af hálfu íslenzkra stjómarvalda
að beita ekki löglegu valdi fyrr
en í ítrustu lög til þess að forða
lífi og eignum brezkra borgara,
hefði verið misnotuð af Hunt
Skipherra á Palliser til þess að
skjóta hinum meinta lögbrjót
undan íslenzkri lögsögu og að
brezka stjómin yrði að bæta
íslandi að fullu þetta augljósa
og grófa brot og koma fram
viðeigandi refsingu gegn þeim,
sem á því bæri ábyrgð“.
Sunnudagur 5. maí 1963
árgangur — 100. tölublað.
Hitaveitan býður
út 20 millj. kr. lán
Hitaveita Reykjavikur hefur
ákveðið að bjóða út 20 mil'jón
króna vaxtabréfalán tjl að afla
fjár til hitavejtuframkvæmda
þeirra sem nú standa yfir hér
í borginni og hefst sala vaxta-
bréfanna á morgun, mánudag,
í öllum bönkum borgarinnar og
tveim sparisjóðum, Samvinnu-
Þrír dugnaðarforkar aí vestan
VIÐ BIRTUM í dag myndir af
tveimur kunnum aflaskip-
stjórum vestan af fjörðum og
clzta starfandi sjómanninum
á Bíldudal.
Afíi Ólafsvíkurbáta
Ólafsvík í gær. — Afli Ólafs-
víkurbáta frá áramótum fram að
þessu hefur reynzt 5777.1 tonn
hjá átta bátum í 454 róðrum.
Hrönnin og Bárður Snæfellsás
Þýzkir og enskir
slógust
Isafirði í gær. — I fyrrakvöld
varð róstursamt á veitingahúsinu
Uppsalir hér f bæ og sló í brýnu
milli enskra og þýzkra togara-
togarasjómanna af togurunum
Aston Villa GY 42 og Bremen
BX630.
Þetta urðu hressilegustu slags-
mál og spýttu sumir rauðu í lok-
in. Pétur Vilbergsson veitinga-
maður reyndi að stilla til friðar
í þessum hildarleik en fékk svo
vel útilátið kjaftshögg frá þýzk-
um að hann missti þrjár tenn-
ur. Hann krefst kr. 12.000.00 í
skaðabætur eða kr. 4000.00 á
tönn. Lögreglan kom á vettvang
og tókst að skakka leikinn og
voru garpamir fluttir á lögreglu-
stöðina.
Þýzki konsúllinn Úlfar Gunn-
arsson, læknir hefur sett
greiðslutryggingu fyrir skaðabót-
um og gjaldeyrisstaða landsins
batnar i vesturþýzkum mörkum
að líkindum.
halda áfram róðrum, en hinir
eru hættir róðrum á vertíðinni.
I fyrra réru 14 bátar á vertíð-
inni og reyndist afli þeirra þá
5527.1 tonn í 644 róðrum.
Afli báta frá áramótum er
sem hér segir:
Hrönn 1022.3 tonn í 79 róðrum,
Bárður Snæfellsás 849.5 í 76,
Sæfell 824.6 í 69, Steinunn 716.8
í 40, Jón Jónsson 662.6 í 46. Vala-
fell 609.1 í 45, Jökull 560.9 í 43
og Freyr 541.4 í 56 róðrum.
Senn dregur að vertíðarlokum
og má telja þetta góðan árang-
ur enda reyndust bátar feng-
sælir á Breiðafirði í vetur. Elfas.
Kvenfélag
sósíalista
Félagsfundur í Tjarnar-
götu 20 þriðjudaginn 7.
þ.m. kl. 20.30. Fundarcfni.
1. Alþingiskosningarnar,
framsaga Guðrún Guðvarð-
ardóttir. 2. Skýrt frá undir-
búningi kvennaráðstefnu í
Rostock á sumri komanda,
Margrét Ottósdóttir. 3. Fé-
Iagsmál.
Kaffiveitingar.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
TIL VINSTRI á stóru myndinni
cr Snæbjörn Arnason, skip-
stjóri á Andra frá Bíldudal.
Snæbjörn er nýlega 23 ára
gamall og hcfur þegar haslað
sér völl sem aflamaður og ör-
uggur skipstjóri. Hann tók við
Andra þegar hann var keypt-
ur til Bíldudals haustið 1961.
Andri hefur frá áramótum
aflað eingöngu á línu og er
skipstjórinn í röð aflahæstu
skipstjóra á Iandinu, sem cin-
göngu róa á línu.
TIL HÆGRI er Axel Þorkelsson
skipstjóri á v.s. Pétri Thor-
steinssyni frá Bíldudal og
hefur hann verið á skipinu
síðan það kom til landsins
1959, fyrst sem stýrimaður og
síðan skipstjóri. Axel er bú-
settur i Reykjavík. Pétur
Thorsteinsson hefur einnig
eingöngu róið með línu frá
áramótum. Axel er mikill
skákmaður og tefldi nýlega
fjöltefli við Bílddælinga og
vann 20 skákir, gerði tvö
jafntefli og tapaði einni skák.
Báðir sýnast þessir dugnaðar-
forkar f esslnu sínu á vinnu-
stað.
LITLU MYNDINNI sést elzti
starfandi sjómaður á Bíldu-
dal og heitir hann Hallgrímur
Ottósson og er matsveinn á
Pétri Thorsteinssyni. Hann er
búinn að fá margt óþvcgið í
eyra sem matsveinn á Iangri
starfsævi á sjónum, en skip-
vcrjar dafna vel undir hand-
arjaðri hans.
Hallgrímur er öruggur og
góður sjómaður.
(Ljósmyndir: Benjamín Jós-
efsson).
Bjarni Ben. og
Baldvin Tryggva-
son í stjórn SRN
A fundi borgarstjófmar Rvík-
ur sl. fimmtudag voru kjömir
tveir menn í stjóm Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis. Kosn-
ingu hlutu af D-lista með 10 at-
kvæðum íhaldsins (Öskar Hall-
grímsson var tíunda atkvæðið)
Bjami Benediktsson ráðherra og
Baldvin Tryggvason fram-
kvæmdastjóri Almenna bókafé-
lagsins. G-listi, með nafni Sig-
urðar Guðgeirssonar prentara,
hlaut 5 atkvæði. Varð því að
varpa hlutkesti milli þeirra
Baldvins og Sigurðar og vann
það sá fyrmefndi. Endurskoð-
endur Sparisjóðsins voru kjöm-
ir á sama fundi þeir Ingimund-
ur Erlendsson og Bjöm Stefáns-
son.
sparisjóðnum og Sparisjóði
Reykjavíkur.
Samkvæmt upplýsingum hita-
veitustjóra og borgarritara á
fundi með fréttamönnum í gær
em lánsskilmálar sem hér segir:
Höfuðstóll lánsins er kr.
20.000.000.00. og eru gefin út
skuldabréf, sem hér segir:
Litra A 1—200 hvert að fjár-
hæð kr. 50.000.00 kr. 10.000.000.00.
Litra B 1—150 hvert að fjár-
hæð kr. 5.000.00 kr. 7.500.000.00.
Litra C 1—2500 hvert að fjár-
hæð kr. 1.000.00 kr. 2.500.000.00.
Lánið ávaxtast með 9 V2% —
níu og hálfum af hundraði —
ársvöxtum, og greiðast vextimir
árlega eftir á gegn afhendingu
viðeigandi vaxtamiða, í fyrsta
sinn 30. apríl 1964. Hverju bréfi
fylgja 5 vaxtamiðar, er falla í
gjalddaga, eins og á þeim greinir.
Lánið er afborgunarlaust fyrstu
5 árin, 1963—1968. en endur-
greiðist síðan að fullu með nafn-
verði 30. apríl 1968. Greiðslu-
staður vaxta og skuldabréfa er
hjá borgargjaldkeranum í Reykja-
vík. Við innlausn bréfanna skal
afhenda alla vaxtamiða, sem eru
fallnir í gjalddaga og bréfunum
eiga að fylgja.
Borgarstjórninni er heimilt,
hvenær sem er á lánstímabil-
inu, að greiða Iánið að fullu eða
hluta þess, á hvaða gjalddaga
vaxta og afborgana sem er. enda
verði slíkt tilkynnt í Lögbirt-
ingablaðinu minnst sex mánuð-
um fyrir gjalddaga. Til trygging-
ar iáninu eru eignir Reykja-
víkurborgar.
Afli rýr í apríl
Súgandafirði í gær. •— Afli
var fremur rýr í aprílmánuði og
fengu bátar eftirtalinn afla:
Friðbert Guðmundsson 117.4 tonn
í 15 sjóferðum, Freyja 106.8 tonn
í 15 sjóferðum, Gylfi 90.9 tonn
í 15 sjóferðum, Draupnir 31.6 i
3 sjóferðum (kominn á sfld). Há-
varður 85.3 tonn í 15 sjóferðum,
Stefnir 45.1 í 11 sjóferðum, Gyll-
ir 37.1 í 10 sjóferðum og Kveld-
úlfur 14.7 i 4 sjóferðum. G.Þ.
Sjómannadagur-
inn á annan í
hvitasunnu
Vegna alþingiskosninganna, sem
fram eiga að fara sunnudaginn 9.
júní n.k. hefur Sjómannadags-
ráð samþykkt að Sjómannadag-
urinn 1963 verði mánudaginn 3.
júní n.k. (2. Hvítasunnudag).
Jafnframt eru þau Sjómanna-
dagsráð utan Reykjavíkur, sem
ætla að panta merki, verðlauna-
peninga eða annað vegna Sjó-
mannadagsins beðin um að senda
pantanir sínar sem fyrst, eða bað
timanlega að þær komist örugg-
lega til viðtakenda fyrir Sjó-
mannadag.
Háskélaf y ri rlest-
ur um Rannsókna-
ráð ríkisins
Kl. 2 síðdegis í dag flytur Ás-
geir Þorsteinsson, verkfræðingur,
formaður Rannsóknarráðs ríkis-
ins, fyrirlestur í hátíðasal Há-
skólans. Nefnist fyrirlesturinn:
Rannsóknarráð ríkisins, sögulegt
yfirlit og fyrirætlanir.
Fyrirlesturinn er fluttur í boði
Háskólans og í tilefni 25 ára
afmælis atv'nnudeildar skólans.
Aðgangur er öllum
i