Þjóðviljinn - 09.06.1963, Side 4
4 SÍÐA
MÖÐVILIINN
Sunimdagur 9. júní 1963
Ctgefasdl: Sameiningarflokkur altýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: ívar H. Jónsson. Magnús Kjartansson. SigurtS-
ur Guðmundsson (áb)
Fréttaritstjórar: Jón Bjarnason. Sigurður V. Friðbjófsson.
Ritstjó-" "-l- auplýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 63 á mánuði
Breytingar
A lltof oft undanfarna árafugi hafa Alþingiskosn-
ingar farið svo, að þær breyttu of litlu, mörk-
uðu of lítil skref á braut alþýðunnar til réftlætis,
til bættra lífskjara, til framíðarlandsins. Meira
að segja þegar líkt hefur s’taðið á og nú, að ó-
venjulegt los virðist á flokkatengslum manna,
reiði við afturhaldsríkisstjórn og ólga vegna á-
rása hennar á alþýðu hafa gripið almennt um
sig, má varlega treys’ta því að morgni kosninga-
dags að óánægjan komi þannig fram, að hinir
óánægðu kjósi gegn afturhaldinu og stuðli að
falli þess og breyttri stefnu í stjórnmálum. Þeg-
ar á kjördaginn kemur og kosningavél íhaldsins
tekur að mala og smala, er sem mörgum verði
hughvarf svo hann lá'ti reka sig og aka sér í sama
íhaldsdilkinn, láti enn til leiðast að kjósa yfir
sig sama afturhaldið og þjakað hefur fólkið, ráð-
izt á umsamin kjör launþega eins og freklega hef-
ur verið gert á síðasta kjörtímabili, og ýtt þeim
út í linnulausa vinnuþrælkun.
Jgngu er líkara en menn vantreys’ti vopninu sem
lagt er í hönd hvers fullorðins íslendings þenn-
an eina dag á fjögra ára fresti- En kjörseðilsvopn-
ið er beift og máttugt. Það vopn í höndum al-
þýðumanna, sem nógu margir leggjast á eitt að
beita því til varnar lífshagsmunum heimila sinna,
til sóknar í lífsbaráttunni, til verndar íslenzkum
málsfað, getur miklu breytt. Yopn kjörseðilsins í
höndum nógu margra samtaka og einbeittra kjós-
enda geta knúið fram sterka vinsfri sveiflu og
varanlega ste’fnubreýtingu í íslenzkum sfjómmál-
um. í þessum kosningum hafa þokað sér saman
róttækustu og þ’jóðræknustu öflin 1 íslenzkum
þjóðmálum. Einmitf sú sfaðreynd, sam'fylking AI-
þýðubandalagsins og Þjóðvarnar’flokksins, gefur
þau fyrirh’eit að kosningarnar geti markað tíma-
mót í sókn og vöm alþýðumálstaðar og íslenzks
sjálfstæðis.
Jjað er á valdi kjósenda að gera kosningarnar í
dag, 9. júní 1963, að minnisverðum áfanga í
íslandssögu, láfa þær valda miklum og heillarík-
um og varanlegum breytingum. Hugsi hver al-
þýðumaður, hver frjálshuga íslendingur, sem fær
kjörseðil lagðan sér í hönd: Ég get með atkvæði
mínu ,síuðlað að stórbreytingu í þjóðmálunum
ég get glæft með íslenzku alþýðufólki vonina um
lífvænleg kjör fyrir stuttan vinnudag, um afnám
vinnuþrælkunarinnar. Ég get átt hluf að því að
dagurinn á morgun rísi með ný fyrirheit um betra
mannlíf á íslandi, að bægt verði frá innlimunar-
og herstöðvahæ’ttunum sem ógna sjálfstæði lands-
ins og sjálfri tilveru þjóðarinnar; ég get orkað því
með atkvæði mínu að leiðin verði greiðari til
framtíðarlandsins.
■yerði þeir nógu margi-r sem þannig hugsa, og
draga þá ályktun að til þess að svo megi verða
sé vænlegast að kjósa G-listann, samfylkingu Al-
þýðubandalagsins og Þjóðvamarflokksins, mun
kosningadagsins minnzt sem heilladags í sögu al-
þýðunnar, í íslandssögu. — s.
Kosningaskrifstofiir
G-listans
Aðaimiðstöð: Tjarnargötu 20
•fyciO I7F44 Almennar upplýsingar og kosningastjórn: —Símar 17513 og
llDlð, 17511 17511.
17512, 20160 Bílaupplýsingar: Símar 17512, 20160,
18868, 15259 Kjörskrá fyrir allt landið: Símar 18868, 15259.
17808 Kosningasjóður, kosningahandbók: Sími 17808,:
36535,18077
13092, 10864
16340, 20188
17501, 17502
17503, 17504
13213, 24561
20679, 23748
10117, 18742
32413, 36026
33586, 33422
35470, 34757
33837,33080
HVERFASKRIFSTOFUR verða á eftirtöldum stöðum:
Gefa upplýsingar um kjörskrá í viðkomandi hverfum, taka á
móti upplýsingum um þá, sem kosið hafa, taka við fé í kosn-
ingasjóð; og veita fyrirgreiðslu um bíla.
1) fyrir Vesturbæ, norðan Hringbrautar og vestan Lækjar-
götu í Tjarnargötu 20. — Símar: 36535, 18077.
2) Melar, Hagar (austurhluti) og Skjól á Hjarðarhaga 26 (1.
hæð). Símar 13092, 10864.
3) Skerjafjörður, Grímsstaðaholt og vesturhluti Haga á Hjarð-
arhaga 24 (1. hæð)’. Símar: 16340, 20188.
4a) Þingholt, suð-austurhluti Skólavörðuholts (sunnan Skóla-
vörðust.1)’ á Skólavörðustíg 19 (2. hæð)\ Símar 17501, 17502.
4b) Skuggahverfi, Skólavörðuholt norðan Skólavörðustígs á
Skólavörðustíg 19 (2. hæð). Símar 17503, 17504.
5) Norðurmýri og nágrenni á Hverfisgötu 82. Símar 13213,
24561,
6J Hlíðar á Barmahlíð 26. Símar: 20679, 23748.
7)' Rauðarárholt og Túnin á Skipholti 7 (2. hæð)\ Sfmar:
10117, 18742,
8aJ Teigar á Laugateig 12. Símar: 32413, 36026.
8bJ Lækir, Laugarnesvegur, Kleppsvegur 1—60 o.fl. á Sel-
vogsgrunni 29. Sfmar: 33586, 33422.
9)] Kleppsholt á Langholtsvegi 33. Símar 35470, 34757.
10)’ Vogar og Heimar á Skeiðarvogi 99. Símar 33837, 33080.
33042, 32645
33907, 37974
32912, 32699
35471
1 1) Kringlumýri, Háaleiti, Smáíbúðahverfi, vestan Breiða-
gerðis, bæjarhús við Hólmgarð, Hæðargarð o.fl. raðhús við
Ásgarð, Tunguveg o.fl. Fossvogsblettir á Breiðagerði 35.
Símar: 33042, 32645.
12) Smáíbúðahverfi, austan Breiðagerðis, Sogamýri, Selás-
blettir, Árbæjarblettir og Smálönd, á Breiðagerði 35. Sím-
ar: 33907, 37974.
13) Breiðholtshverfi, Blesugróf, Arnarbæli Blesugróf. Sím-
ar: 32912, 32699.
14) Múlakampur og Herskálakampur, á Suðurlandsbraut
94B. Sími: 35471.
Þessar skrifstofur verða opnaðar kl. 8.30 á kjördag, og opnar þar til kosningu
lýkur.
Alþýðubandalagið skorar á alla fylgjendur G-listans í Reykjavík að taka virk-
an þátt í starfinu á kjördag. — Hafið samband við hverfp»*krifstofnr«->»»' r>p wið-
stöðina með allar upplýsingar sem þið álítið að séu til framdráttar fyrir G-
listann.