Þjóðviljinn - 27.06.1963, Síða 1
síld um mi&nætti
Vaðandi
Þjóðviljinn hafði samband
við síldarleitina á Raufarhöfn
seint í gærkvöld og Ieitaði eft-
ir fréttum af miðunum. Þá
nýlega höfðu borizt fréttir af
vaðandi síld 50 sjómílur norð-
austur af Raufarhöfn og tóku
skipin þegar stefnuna á þetta
svæði. Þá höfðu einnig borizt
fréttir af vaðandi síld 30 til
40 sjómílur út af Bjarnarey
og tóku nokkur skip stefnuna
þangað. Þannig má búast við
nokkurri síldveiði í nótt á
þessum svæðum.
Sérstök blíða var á miðun-
um í gærkvöld og voru síld-
arskip stödd allt að 130 sjó-
mílur út af Hraunhafnartanga
og miðnætursól roðaði æginn.
Tíu síldarskip biðu eftir lönd-
un á Raufarhöfn og var land-
að á tveimur krönum.
Skemmtun G-listans
Skemmtun fyrir starfsfólk G-listans í nýafstöSnum
kosningum verður haldin að Hótel Borg, sunnudag-
inn 30. júní og hefst kl. 9 síðdegis. Allir þeir sem
tóku þátt í kosningastarfinu geta fengið aðgöngumiða
að skemmtuninni hjá Kjartani Ólafssyni, Tjarnargötu
20 á föstudag og laugardag. Skemmtiatriði auglýst síðar.
Aðeins 14 komust
af—en 28 fórust
A þessari mynd sést einn af hópum Vestur fslendinga, scm Loftleiðir fluttu til íslands og vinna nú við fiskvinnu í Vestmannaeyjum.
Of langur vinnutími. of lágf kaup:
w
V-lslendingarnír í Eyjum
saroanæ
ir með
••
26 þús.
mál
Síðastliðinn sólarhring
fengu 40 skip 26 þúsund
mól af síld út af Sléttu og
við Langanes og er síldar-
flotinn nær eingöngu stadd-
ur þessa daga á norðaust-
ursvæðinu. Skipin voru að
streyma í gærdag til Siglu-
fjarðar, Húsavíkur, Raufar-
hafnar og Seyðisfjarðar.
Síldarverksmiðjan á
Seyðisfirði hóf bræðslu í
fyrradag og gengur bræðsl-
an illa. Áttatíu mjölpokar
voru komnir í gærmorgun.
Byrjunarörðugleikar eru
eftir miklar breytingar og
stækkun.
1 þróm verksmiðjunnar
eru 17 þús. mál. Þessi skip
fengu afla síðastliðinn sól-
arhring: Fagriklettur 400,
Gullver 550, Rán 350, Jón
á Stapa 650, Þorlákur 600,
Akurey 900. Ásgeir 200,
Garðar 200, Hamravík 400,
Þorbjörn 700, Stapafell 400.
Helga Björg 400, Mímir 850,
Jón Jónsson 600, Helgi GK
900, Höfrungur 2 1350, Guð-
björg 500. Jón Garðar 700,
Þórkatla 500, Áskell 800,
Eldborg 500, Vörður 300.
Keilir 500, Gjafar 900, Sæ-
fari BA 350, Ólafur Bekk-
ur 1200, Höfrungur 1700,
Valafell 850, Svanur IS
500, Anna 900, Guðmundur
Þórðarson 1000, Þorgrímur
650, Vattanes 1000, Fiska-
skagi 350, Hoffell 400, Hug-
inn 350, Seley 200, Smári
250. Héðinn 700. Bára 800.
Þjóðviljinn hefur fregnað það eftir áreiðanlegum heimildum, að megn
óánægja sé ríkjandi meðal Vestur-íslendinganna frá Kanada, sem réð-
ust til starfa hjá fiskiðjuverunum í Vestmannaeyjum í vor og sumar
fyrir milligöngu séra Roberts Jack. Telja þeir að þeir hafi verið stór-
lega blekktir í samningum varðandi upplýsingar allar um kaup og
kjör hér á landi.
Sumir Vestur-íslendinganna munu þegar vera farnir að hyggja til
heimferðar aftur en margir þeirra eiga óhægt um vik þar eð fargjöld
vestur eru mjög dýr og þeim mun seint safnast fyrir farinu. Farið til
íslands fengu þeir hins vegar ókeypis enda var ekkert til sparað
kostnaði eða loforðum 'til þess að lokka þá hingað til starfa.
Ljóst er nú af frétta-
skeytum að 28 manns
hafa farizt þegar togar-
inn Múnchen fórst við
Grænland í fyrradag.
Togarinn var á leið inn
til Færeyingahafnar,
þegar slysið varð. Illt
var í sjó og annaðhvort
hefur aflinn kastazt til
í skipinu, eða þá að það
hefur steytt á skeri, sem
er þarna utanvið inn-
siglinguna, því að skipinu hvolfdi mjög snögglega.
Margir af áhöfninni fóru í
björgunarbátinn og gúmbáta
skipsins, en aðrir stukku í sjó-
inn björgunarvestislausir, þeir
drukknuðu allir. Björgunarbátn-
um hvolfdi strax og drukknuðu
allir sem í hohum voru. Danskir
þýzkir og færeyskir togarar, sem
komu á slysstaðinn, náðu 26
mönnum lífs og 13 iíku-m. en 12
menn létust á leiðinni í land,
eða skömmu eftir að landi var
Eins og kunnugt er sendu fisk-
iðjuverin í Vestmannaeyjum
séra Róbert Jack út af örkinni
í vor vestur til Kanada til þess
að reyna að fá Vestur-íslendinga
hingað heim til starfa. Hefur
atvinnuleysi verið talsvert þar
vestra og þótti því vænlegt um
árangur fararinnar.
Árangurinn lét heldur ekki á
sét standa því að þrír hópar
Kanadamanna komu hingað til
lands í vor og sumar, langflest
Vestur-Islendingar. Voru þetta
alls 30—40 manns.
Samkvæmt því sem Þjóðvijinn
hefur fregnað eftir Vestur-Is-
lendingunum sparaði séra Róbert
Jack hvergi fögur fyrirheit um
uppgripaatvinnu hér. Hét hann
þeim munnlega 3500 kanadadoll-
ara árstekjum, en það mun vera
nálægt 140 þús. ísl. krónur. Hitt
mun honum hafa láðst að skýra
út fyrir þeim, að til þess að
vinna fyrir þessari fjórhæð hér
á landi þyrftu þeir að þræla
dag og nótt að kalla. Mun Vest-
ur-íslendingunum heldur en ekki
hafa brugðið í brún þegar þeir
komu hingað og kynntust af
eigin raun hinum langa vinnu-
degi hér, því að í Kanada er
víðast hvar aðeins 40 stunda
vinnuvika og slíkur vinnuþræl-
dómur sem hér þekkist þar ekki
Einhverjir Vestur-fslending-
anna munu þegar ráðnir til
heimferðar en flestum mun
þeim nokkuð örðugt að komast
til baka vegna þess hve far-
gjaldið er dýrt. Eru þetta margt
kornungir menn og vill þeim
eyðast kaupið fljótt í dýrtíðinni
hér sem að líkum lætur. Farið
til íslands fengu þeir hins veg-
ar frítt.
Sumir Vest-ur-Islendinganna
hurfu frá góðri vinnu vestra er
þeir réðust til Islandsferðarinn-
ar og þykjast þeir nú illa svikn-
ir þar sem bæði kaupið er lægra og
vinnutíminn lengri en þá óraði
Framhald á 2. síðu.
Saltsíld-
arverðið
óbreytt
Verðlagsráð sjávarútvcgsins
gékk frá saltsíldarverðinu
seint í gærkvöld og verður
það sama og í fyrrasumar.
Verð fyrír uppmælda tunnu
vcrður kr. 220.00 og fyrir upp-
saltaða tunnu kr. 298.00.
Þessu vcrður ckki skotið
fyrir gerðardóms.
náð. Þriggja var enn saknað 1
gær og vonlaust talið að þeir
gætu verið á lífi.
Skipstjórinn var meðal þeirra,
sem bjöguðust, en hann fékk
alvarlegt taugaáfall þegar i land
var komið og gat ekki gefið
hinar minnstu upplýsingar um
hvemig slysið vildi til.
Strax og neyðarskeyti togarans
barst, lagði Sólfaxi Flugfélagsins
upp frá bækistöð sinni á Græn-
landi og leitaði að mönnunum
þremur, sem týndir voru. Leitin
stóð yfir allt frá hádegi í fyrra-
dag og til kvölds, en bar ekki
árangur.
Myndin sem fylgir fréttinni
var tekin af togaranum, þegar
hann var hér í Reykjavík í vet-
ur til viðgerðar. (Lm. Þjv. G.O.).
TEKINN í LANDHELGI í FYRRINÓTT
1 fyrrinótt kom varðskipið öð-
inn að brezka togaranum Dorade
SN49 frá North Shiclds, þar sem
hann var að meintum ólögleg-
um veiðum rúml. 1 sjómílu inn-
an við fiskvciðitakmörkin f
Lónsbug. Varðskipið tók togar-
ann mótspyrnulaust og fór mcð
hann til Seyðisfjarðar. Skipin
komu þangað á hádegi í gær.
Doradc cr nýlcgt skip, smíð-
að árið 1961 í Gateshead og
er 246 tonn að stærð. Myndin
er af togaranum.
Aðalfundur
Sósíalista-
félagsins
annað kvöld
Aðalfundur Sósíalistafélags
Reykjavíkur verður haldinn
annað kvöld, föstudaginn 28.
júní, og hefst fundurinn kl.
20.30 í Tjarnargötu 20. Á dag-
skrá eru venjuleg aðalfundar-
störf, en auk þess talar Einar
Olgeirsson um úrslit Alþingis-
kosninganna.
Félagar sýni félagsskírteini
við innganginn.