Þjóðviljinn - 27.06.1963, Blaðsíða 4
4 SlÐA----
Ctgefandi: SAmeiningarflökkur alþýðu — Sóslalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: ívar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjórar: Jón Bjamason, Sigurður V. Friðþjófsson.
' Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 65 á mánuði.
Milwoodmálið
JJæstiréttur hefur nú ákveðið að brezki togarinn
Milwood skuli kyrrsettur þar til í haust er mál
skipstjórans verður tekið til dóms. Svo er að sjá
sem ríkisstjómin telji að með þessum málatilbún-
aði sé nægilega röggsamlega á málinu haldið og
að ekki sé ætlunin að gera neinar frekari ráðstaf-
anir til þess að tryggja rétfindi íslendinga. En brot
skipstjórans á Milwood er aðeins hluti þessa alvar-
lega máls.
það er ekkert nýtf að íslendingar eigi í höggi
við brezka veiðiþjófa, og tilburðir þeirra til að
losna við refsingu sæta litlum tíðindum. En í
Milwood-málinu hafa brezka ríkisstjómin og emb-
ættismenn hennar gengið fram fyrir skjöldu og
gert málið mjög alvarlegt. Það var eitt af herskip-
um brezka flotans sem bjargaði skipstjóranum á
Milwood undan íslenzkum löggæzlumönnum,
flutti hann til Bre’tlands og sleppti honum þar á
land. Ríkisstjórn íslands virtist í fyrstu ímynda
sér að þarna hefði verið um eit’thvert persónu-
legt frumkvæði skipherrans á herskipinu að ræða,
því hún sendi brezku stjóminni kröfu um að hon-
um yrði refsað. En brezka stjómin svaraði um
hæl að hún tæki ábyrgð á öllum aðgerðum skip-
herrans og væri samþykk verkum hans í einu
og öllu. Jafnframt þverneitaði brezka stjórnin
kröfum íslenzku ríkisstjórnarinnar um að skip-
stjórinn á Milwood yrði framseldur og látinn
taka við lögmætum dómi á íslandi.
Jjar með er hversdagslegur veiðiþjófnaður orð-
inn að alvarlegu milliríkjamáli. Brezka stjórn-
in hefur í verki rofið landhelgissamninginn frá!
1961; með því að bjarga skipstjóranum á Mil-
wood undan og neita að framselja hann hefur hún
meira að segja neitað að virða undanþágulínur
þær sem þá voru dregnar. í annan stað hefur
skipherrann á Palliser brotið alþjóðalög með því
að koma í veg fyrir lögmæta handtöku á úthaf-
inu. Brezka ríkisstjómin hefur neitað að bæta
fyrir þessi brot og aðeins falið neitun sína í
kurteislegu orðagjálfri. Því ber ríkisstjóm íslands
að gera ráðstafanir til þess að brezku stjórninni
skiljist að okkur er full alvara í þessu máli. Þar
blasa við ýmsar nærtækar ráðs’tafanir, en nærtæk-
ast af öllu er að sjálfsögðu að fella tafarlaust úr
gildi allar undanþágur Breta innan 12 mílna, þar
sem brezka stjómin hefur sjálf brotið undanþágu-
samninginn.
i þessar staðreyndir hefur Þjóðviljinn margsinn-
is bent, en fyrst ríkisstjóm íslands lét allt ógert
fyrir kosningar mun naumast að vænta mikillar
röggsemi af henni þegar hún hefur dóm kjósenda
að baki sér. En heimóttarskapurinn í þessu aug-
ljósa máli spáir ekki góðu um framtíðina. Land-
helgismálið mun áfram verða á dagskrá og Bret-
ar munu enn sem fyrr ásælast ré'ttindi okkar,
þrátt fyrir alla svardaga fyrir kosningar. — m.
ÞJðÐVILTINN
-—■ÆVrtmtudagur 27. júní 1963
i i USA
Sendiíulltrúar 26 AfríkurOcja
hafa afhent bandaríska utan-
ríkisráðuneytinu mótm. vegna
í ummæla sem öldungardeildar-
liingmaðurinn Allcn Ellander
frá Louisiana hefur viðhaft um
hæfileika negranna til að ráða
sjálfir máiefnum sínum.
1 sjónvarpsviðtali um kyn-
þáttamálin sagði Ellander með-
al annars að menn þyrftu ekki
annað en líta til Eþiópiu, Li-
beríu eða Haiti til þess að kom-
' ast að raun um hversu dáð-
laust þetta fólk (negramir)
væri.
í mótmælaskjali afrísku
sendiráðanna segir að ummæli
Ellanders hafi skaðað sambúð
þjóðanna og málstað friðar-
ins vehulega.
Rithöfundur
Morðöldin í Irak
Þrjár forystukonur
dæmdur til lífláts
Þar spinna Egyptar baðmuil sína
Afríkumenn
lítilsvirtir
myrtur í
Sovétrikjanna, hefur sent
Aref Iraksforseta bei'ðni um
að hann náði konurnar þrjár,
en þeim tilmælum mun ekki
hafa verið svarað.
Nánari fréttir hafa borizt
um líflát fjölda forystumanna
hinnar róttæku verklýðshreyf-
ingar í Irak, en þeir hafa
flestir verið tekrir af lifi án
dóms og laga. Meðal þeirra
má nefna hinn kunma írakska
lögfræðing Tawfiq Munir, sem
var vararilari íi’öksku fri&ar-
hreyfingarinnar. Hann var
myrtur á heimili sínu. Einnig
Farúk Ilethaa, varaforseta
Framhald á 8. síðu.
fungelsi
Upplýsingaskrifstofa spænska
sósíalistaflokksins, sem stað-
sett er í Toulouse í Frakk-
landi, hefur skýrt frá ódæði
sem böðlar Francos frömdu
fyrir skömmu.
Ungur rithöfundur, Manuel
Moreno Barranco, var myrtur
í fangelsinu i Jerez. Yfirvöld-
in tilkynntu síðan fjölskyldu
hans að hann hefði reynt að
fremja sjálfsmorð með því
að varpa sér út um glugga
og hafi hann látizt skömmu
síðar.
Sósíaldemókratamir spænsku
fullyrða að Barranco hafi ver-
ið myrtur og kveðast þeir
þekkja með nafni lögreglu-
mennina sem misþyrmdu hon-
um.
Búlgaría er orðln eitt mesta ef ekki mesta ferðamannalandið í
Austur-Evrópu, cnda mun óvíða búið betur að gestum cn þar.
Ferðamennirnir sækjast einkum cftir að dveljast á hinni frægu
„Gullströnd" við Svartahaf, en landið hcfur upp á margt annað
að bjóða, Umhverfi höfuðborgarinnar, Sofia, er þannig rómað
fyrir fegurð einkum fjallið Vítosja sem hún stendur undir. Línu-
braut hefur nú verið lögð upp á fjallið og geta menn nú með
lítilli fyrirhöfn komizt upp á það og horft yfir borgina og um-
„ hverfi hennar.
Morðöldin sem hófst í írak
með stjórnarbyltingunni í vet-
ur þegar Baathflokkurinn
steypti Kassem forseta af
stóli heldur enn áfram. Fyrir
helgina bárust þær fréttir frá
Bagdad að þrjár konur sem
verið hafa í forystu þjóðfrels-
ishreyfingarinnar I Irak hefðu
verið dæmdar til da'uða eftir
réttarhiild sem fóru fram fyr-
ir luktum dyrum.
Koniur þessar heita Djamil
Haled, Leila E1 Rumi og
Za’"'a Hakir. Ekkert hefur
verið látið uppi um hvað þeim
hefur verið gefið að sök.
Krústjoff, forsætisráðherra
Sósíalistísku ríkin veita þróunarlöndunum margháttaða efnahagsaðstoð sem farið hefur vaxandi
með hverju ári. Megináherzla er lögð á að koma upp verksmiðjum og jafnvel heilum iðngrcinum
í þessum löndum, svo að þau geti orðið sjálfum sér nóg og þurfi ckkj að flytja út hráefni sin ó-
unnin. Gott dæmi um það er aðstoð sú sem Egyptar hafa fengið til að koma upp vefnaðariðnaði
í landl sínu í stað þess að flytja út hina verðmætu baðmull sína til annarra Ianda. Á myndinni
sést spunastöð sem Austur-Þjóðverjar hafa reist f bænum Kena í suðurhluta Egyptalands.
Teller talar um
barnaskap
WASHINGTON 25/6— Dr.
Edward Teller, maðurinn, sem
þekktur er sem faðir amerísku
kjamorkusprengjunnar, lýsti því
yfir í dag að Bandaríkin færu
með bandamenn sína eins og
börn, er um kjamorkuleyndar-
mál væri að ræða.
Dr. Teller talaði fyrir um það
bil hundrað manna hóp, og voru
það þingmenn úr fulltrúadeild
bandaríska þingsins. Ekki kvaðst
hann halda því fram, að Banda-
ríkin ættu að láta bandamenn
sína hafa kjarnorkuvopn. Hins-
vegar ættu þeir að fá hlutdeild
í kjamorkuvísindum.
athygli og þykir enn eln sönn- verið ókunnugt um það þar til
un þess að deGaulle ætli að fyrir skömmu að ráð var fyrir
knýja fram breytingu á skipu- því gert að Atlanzhafsfiotinn
lagi bandalagsins. Hins vegar
er nú haft fyrir satt og þykir
furðulegt, að forsetanum hafi
heyrði undir Nato á striðstím-1
um.
Menn höfðu talið að de Gaulle
hefði tekið þessa ákvörðun
einmitt núna til þess að storka
Kennedy sem kominn er til
Evrópu þar sem hann ætlar að
fá bandamenn Bandaríkjanna
til að fallast á hugmyndir
stjómar sinnar um skipulag
Atlanzhafsbandalagsins, en de
Gaulle hefur ekki farið dult
með að hann er þeim andvíg-
ur.
Nú fullyrða hins vegar frétta-
menn í París að svo sé ekki.
Ástæðan til þess að ákvöröunin
um að kalla Atlanzhafsflotann
undan Nato var ekki tekin fyrr
en nú er að sögn þeirra einfald-
lega sú, að de Gaulle forseta
var ekki kunnugt um að flot-
Framhald á 8. síðu.
Sú ákvörðun de GauIIe Frakk-
Iandsforseta að Atlanzhafsflot-
inn franski skuli ekki heyra
undir sameiginlega yfirstjórn
Atlanzhafsbandalagsins ef til
styrjaldar kemur hefur vakið
De Gaulle vissi ekki að
flotinn heyrði undir Nato
\
i