Þjóðviljinn - 09.01.1964, Side 1

Þjóðviljinn - 09.01.1964, Side 1
Góðtemplarareglan á íslandi 80 ára ■ Á morgun, 10. janúar, á góð- templarareglan á íslandi 80 ára afmæli en þann dag árið 1884 var fyrsta stúkan hér á landi stofnuð á Akureyri. Hlaut hún nafnið ísafold nr. 1 og er starfandi ennþá. Stórstúka íslands var síðan stofnuð 24. júní 1886 af 14 stúkum. ■ Nánari frétt um afmæli stúkunn- ar og starfsemi hennar hér á landi verður birt x blaðinu á morgun. Olíumölin reynist ekki sem skyldi □ Eins og menn muna var í september síðastliðnum gerð tilraxm með að bera olíumöl á vegi hérlendis. Blaðamaður og ljósmyndari Þjóðviljans litu í gær á ann- an vegarkaflann, sem borið var í, og verður ekki annað séð, en tilraunin hafi mistekizt. r „I mjóum þræðihins nauma meiríhlutu MÁLGAGN BRESKRA útgerð- armanna Fishíng News birti í sl. mánuði forystugrein varðandi viðskipti Islendinga og Breta og nefnist hún „Stríðsöxin grafin til hálfs“ GHalf-buried hatchet). Segir þar m.a. að þótt Bretar hafi talið að stríðsöxi þorska- ' stríðsins hefði verið endan- lega grafin með nýlegri heimsókn íslenzka „forsætis- ! ráðherrans". séu blöðiin í Reykjavik ekki svo viss um það. Skriða af dómum fyrir landhelgisbrot og frásagnir af óspektum brezkra skipshafna hafi ekki bætt úr skák. Og blaðið bætir við: „SEM STENDTJR hvílir hinn 6- trausti friður milli landanna á mjóum þræði hins nauma meirihluta íhaldssinnaðra stjórnmálamanna í Stórþing- inu. SÝNISHORN af þvi sem koma kynni ef tilfærslur yrðu í kosningum sést á frétt sem blaðið flytur um frumvarp sem þýða myndi þyngri sekt- ir fyrir Iandhclgisbrot er- lendra togara, ef að lögum verður. Frumvarpið er flutt af þingmönnum yzt til vinstri". í haust var olíumölin borin á tvo vegarkafla, hluta Strand- götunnar í Hafnarfirði og Stekkjarflöt í Silfurtúni. Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd er Strandgatan illa farin. Þó hefur vegurinn verið lagaður nýlega, og sagði kunnugur mað- ur, að hann hefði verið hálfu verri áður. Nú er þess að gæta, að jarð- vegur mun vera slæmur undir þessum kafla og vatnagangur mikill. Þó er auðsætt, að olíu- mölin er tæpast sú yndislausn á vegavandræðxm íslendinga. sem margir vonuðust eftir. Sænskur verkfræðingur, Gud- mund Björck að nafni, sá um framkvæmdir við lagninguna í haust. Lýsti hann þvi þá yfir, að hann skyldi borga eina krónu — sænska — fyrir hvem þann stein, er úr veginum hrykki. Strandgötukaflinn einn virðist nægur til þess að gera mann- inn öreiga. Inni í blaðinu er sagt frá viðtali við Edgar Faure, sem haft var við hann eftir heim- komu hans frá Kina. Má af þvi ráða, að Frakkar hyggj- ast koma á stjómmálasam- bandi við Kínverska Alþýðu- lýðveldið. Sjá 3. síðu im hita-! veitu á Keflavíkurflugv. ^ Þessl mynd er tekln í Hafn- arfirði þar sem hinum steypta hluta Strandgötunnar sleppir sunnan megin, en olíumölin tekur við. Ekki er hún fögur ásýndum, en mun þó hafa verið margfalt verri ekki alls fyrir löngu. Ófáir steinar hafa horfið úr götunni, og verðnr ekki annað séð en íslenzkt grjót láti sig engu varða fjár- hag hins sænska verkfræðings, sem kvaðst skyldu borga krónn sænska fyrir hvern þann stein er losnaði úr götunni. □ Bandaríska hemámsliðið á Keflavíkurflug- velli hefur látið semja áætlanir um möguleikana á því að koma upp hitaveitu á herstöðinni. Er þetta eitt með öðru til marks um það að hernáms- liðið hyggst dveljast í borg sinni á Miðnesheiði um langan aldur, því stofnkostnaður við hitaveitu er svo mikill að slíkt fyrirtæki er því aðeins hag- kvæmt að hægt verði að nota það áratugum saman. Það var Atlanzhafsdeild banda- I DEPARTMENT OF THE NAVY riska flotans sem beitti sér 1 ATLANTIC DIVISION, BURE- fyrir athuguninni, nánar tiltekið I AU OF YARÐS AND DOCKS; möguleika á saltvinnslu, en ekki NORFOLK 11; VIRGINIA. Rannsóknin var framkvæmd af fyrirtækinu VERMIR sf., en for- stöðumenn þess eru verkfræð- ingamir Gunnar Böðvarsson og Sveinn S. Einarsson. Þjóðviljinn hafði í gær tal af dr. Gunnari Böðvarssyni og spurðist fyrir um niðurstöður rannsóknarinnar. Gunnar kvað athugunina m.a. hafa beinzt að því hvort hagkvæmt væri að leiða varma frá hitasvæðinu á Reykjanestá, en þar er allmikinn varma að finna. Voru gerðar tilraunaboranir þar 1956 í sam- bandi við hugleiðingar um TRÉSMIÐAFELAG REYKJA VÍKUR voru þær - boranir miðaðar við hitaveituframkvæmdir. Kvað Gunnar niðurstöðumar af rann- sókninni nú hafa orðið þær, að það væri mjög á mörkunum að það svaraði kostnaði að leggjíi leiðslu til hitaveitu frá Reykjanestá; bæði væri vega- lengdin fulllöng, og eins bland- Framhald á 3. síðu. 160. sýning- in er í kvöld Leikrit Jökuls Jakobssonar „Hart í bak“ verður sýnt í Iðnó í 160. skipti í kvöld, finuntu- dag. Virðist ekkert lát vera á aðsókninni, enda hefur Icikritið og sýning Lcikfélags Reykjavík- ur á því slegið öll fyrri met. Landsliðii í hand- knattleik valið Keppir á heimsmeistaramótinu í Prag AUGLÝSIRKAUPTAXTA IDAG Sáttafundurinn í trésmiða- deilunni stóð til kl. 5 í fyrri- nótt og lyktaði honum með því að samkomulag tókst milli samninganefndanna um greiðslur fyrir nokkurn hlula af vinnu trésmiða. Undirrit- uðu samninganefndirnar sam- komulagið með fyrirvara um samþykki félagsfunda. Það atriði samn!nganna sem samkomulag núðist um var tímavinnukaupið og var samið um að það hækkaði um 15%, og er það veruleg- ur hluti vinnu trésmiða. Var samningur þessi samþykktur á fundi í Trésmiðafélaginu síðdegis í gær en hins vegar felldu trésmíðameistararnir samninginn á fundi sínum, sem bendir til þess, að meist- arar vilji algjöra samninga. Á samningafundinum i fyrrinótt náðist ekkert sam- komulag um greiðslu fyrir á- kvæðisvinnu. Hafa meistar- amir borið fram þá kröfu frá upphafi samningavið- ræðnanna að gerðardómur verði látinn fella úrskurð um greiðslu fyrir ákvæðisvinn- una, að því er varðar tíma- setningu. Hefur samninga- nefnd meistaranna haldið fast við- þá kröfu, eða bak við þá Vinnuveitendasambandið. Þegar kunnugt varð um það í gær að meistararnir hefðu féllt samkomulagið sem náðist í nótt um hækkun tímavinnukaupsins ákvað Trésmiðafélagiö að auglýsa kauptaxta fyrir félagið og taka þeir gildi frá og með deginum í dag, samkvæmt honum hækkar allt kaup tré- smiða, bæði í tímavinnu og ákvæðisvinnu um 15% eins og sézt annars staðar í blað- inu í auglýsingu frá þeim. Valið hefur verið landslið Is- lands í handknattleik, sein keppa skal á heimsmcistaramót- inu í handknattleik í Prag 6. til 15. marz nJc. Það er landsliðsnefnd Hand- knattleikssambands Islands, sem gerði tillögur um skipan liðs- ins, og hafa þær hlotið staðfest- ingu stjómar HSl. Landsliðið verður þannig Markmenn: Hjalti Einarsson (FH) og Guðmundur Gústafsson (Þrótti). Leikmenn: Birgir Bjömsson (FH), Einar Sigurðs- son (FH) Guðjón Jónsson (Fram), Gunnlaugur Hjálmars- son (ÍR), Hörður Kristinsson (Árm.), Ingólfur Óskarsson (Fram), Karl Jóhannss. (KR), Ragnar Jónsson (FH), Sigurð- ur Einarsson (Fram) og öm Hallsfeinsson (FH). Þjálfari landsliðsins er Karl Benediktsson og verður hann með liðinu á mótinu. 1 farar- stjórn eru; Ásbjöm Sigurjóns- son, Bjöm Ólafsson, Frímann Gunnlaugsson og Jóhann Ein- varðsson . LONDON 8/1 Brezki verka- mannaflokkurinn lagði í dag fyrir utanríkisráðuneytið tillög- ur, sem hann vill að sé skerfur Breta til afvopnunarmála. Patrick Gordon Walker tals- maður verkamannaflokksins við utanríkisráðuneytið lagði per- sónulega fram skjalið.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.