Þjóðviljinn - 09.01.1964, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 09.01.1964, Blaðsíða 5
Fimmtudag'ur 9. janúar 1964 ÞIÓÐVILIINN Í5ÍUA tj sitt af hverju ★ John Pennel, heimsmet- hafi í stangarstökki, hefur verið útnefndur „iþróttamað- ur ársins 1963“ í Bandaríkj- unum. Bandaríska frjáls- þróttasambandið AAU til- kynnir að Pennel verði inn. an skamms afhentur John Sullivan-bikarinn, sem árlega er vcittur bezta íþróttamanni Bandaríkjanna. Annar á list- anum varð lyftingamaðurinn Tommy Kono, og er það í þriðja sinn sem hann er í því sæti. Spretthlauparinn Ro- bert Hayes varð í þriðja sæti. Pennel setti núgildandi heimsmet sitt í stangarstökki — 5,20 m. — í Coral Gables f Florida 24. ágúst. ★ Franska knattspyrnu- Grisjin blaðið „France Football“ hef- ur úrskurðað að Svíþjóð hafi átt bezta knattspyrnulands- liðið í Evrópu 1963. ítalir, Belgíumenn og Júgóslavar deila með sér öðru sætinu samkvæmt úrskurði blaðsins. í 5.—7. sæti eru Sofvétríkin, Ungverjaland og England, 8. —10. Búlgaría, Skotland og frland, 11. Vestur-Þýzkaland, 12. Frakkland, 13. Danmörk, 14. Holland, 15.—19. Spánn Luxemburg, Wales, Pólland og Rúmenía, 20.—24. Austur- Þýzkaland, Austurríki, Norð- ur-írland, Tékkóslóvakia og Noregur, 25.—26. Sviss og Tyrkland. Svíar töpuðu engum lands- leik á síðasta ári, og sigr- uðu m.a. Ungverja, Sovét- menn, Júgóslava og Vestur- Þjóðverja. ★ Heimsmethafinn í 500 m. skautahlaupinu, Evgeni Grisjin frá Sovétríkjunnm, sigraði á alþjóðlegu móti í LiIIehammer í Noregi um siðustu helgi á 41,8 sek., sem er bezti tími sem náðst hef- John Pennel ur á skautabrautinni þar. Sama dag sigraði landi hans, Boris Guljajev, á alþjóðlegu móti í Hamar á 41,5 sek. Góiur íþróttaárangur og f ramkvæmdahugur hjá KR Bygging nýrra íþróttamannvirkja á döfinni KR-ingar náðu glæsilegum árangri í ýmsum greinum íþrótta á síðastliðnu ári. Nú hefur KR á prjónunum byggingu nýs íþróttamannvirkis til viðbótar við hið myndarlega KR-hús við Kaplaskjólsveg. i.-> ■ Hið myndarlega íþróttahús KR. Nú ætla KR-ingar að auka cnn við íþróttamannvirki sín. (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Patterson og Cooper í sumar LONDON — Floyd Patter- son, fyrrv. heimsmeistari í hnefaleikum, mun sennilega keppa við Englendinginn Henry Cooper í Stokkhólmi í sumar, segir umboðsmaður þess síðarnefnda, Jim Wicks. Patterson háði s.l. mánudag fyrstu keppni sína síðan hann tapaði fyrir Sonny Liston s.l. sumar. Keppti hann við ítal- ann Amonti og sigraði auð- veldlega, eins og frá hefur ver- ið skýrt. Henry Copper er nú snjall- asti þungavigtarboxari í Evr- ópu og mun skæðari en Am- onti. Knattspymufélag Reykjavík- ur hélt aðalfund sinn í síðustu viku, og var hann hinn fjölmennasti. f skýrslu aðal- stjórnar kom m.a. fram.: að innan félag&jns starfa nú níu deildir, þar af voru tvær stofnaðar á árinu, þadminton- deild og glímudeild. að innan véþanda KR, þ. e. virkir félagar í keppni, eru um 30% af öllu íþróttafólki Rvíkur og 12% af öllu íþróttafólki landsins. að velgengni félagsins, bæði íþróttalega og félagslega var mikil á árinu. sérstaklega i knattspyrnu og frjálsíþrótta- deild. X'iðlega 1£>0 KR-ingar kepptu á erlendum vettvangi á árinu. að íþróttamannvirki KR við Kapplaskjólsveg urðu skuld- laus á árinu, og á næsta ári er ráðgert að hefja byggingu nýs íþróttahúss. að KR verður 65 ára á þessu ári og verður afmælið haldið hátíðlegt á margan hátt. Níu deildir — Nýjar deildir Innan KR eru starfandi nú níu deildir. Badminton-deild var stofnuð á árinu að frum- kvæði hins kunna badminton- leikara Öskars Guðmundsson- ar. og sýnizt hlutverk hennar ekki sízt ætla að vera sama- staður fyrir eldri félaga úr öðrum deildum félagsins^ Að sjálfssögðu er deildin hins veg- ar opin öllum og munu félagar hennar taka þátt í opinberum mótum strax í vetur. Glímudcild var endurnýjuð innan félagsins, en hún hefur legið niðri nú um nokkurt skeið. Formaður deildarinnar er Rögnvaldur Gunnlaugsson sem er þekktur glímumaður frá fyrri árum, og undir forustu hans starfa og æfa ungir og áhugasamir menn. Handknattleiksdeildin hefur ein deilda átt í nokkrum erfið- leikum á árinu á íþróttasvið- inu, m.a. varð ekki mögulegt að senda kvennaflokk til keppni í m.flokki og m.flokkur karla þurfti að leika aukaleik til að falla ekki niður í II. deild. Hins vegar er engu að kvíða. KR-ingar urðu íslands- meistarar í III. fl. karla á ár- inu, og nú í haust fór m. fl. karla utan í keppnisferðalag. og hefur flokkurinn staðið sig^ vel í haust, varð nr. 2 í Rvík,- móti. Knattspyrnudeildin fagnaði mörgum frækilegum sigri á árinu. í íslandsmeistaramóti, Bikarkeppni og Isl. móti II. fl. samtals sigruðu KR-ingar í 14 mótum af 33. sem þeir tóku þátt i. Átta KR-ingar léku með íslenzka landsliðinu í einum og sama leiknum í sumar. Körfuknnttleiksmcnn félags- ins, stóðu sig vel, sigruðu m.a. mum endurnýjq HAPPDRÆTII HflSKÓLA ÍSLflNDS Rögnvaldur Gunnlaugsson í II. fl., bæði í Rvík. og ís- landsmóti. Frammistaða meist- araflokksins fer batnandi með hverjum leik, og ógna hinir ungu KR-ingar nú Islands- meisturum IR, sem lemgi hafa verið einráðir í þessari íþrótta- grein. Skíðadeildin á við erfiðleika að stríða, þar sem er snjóleysi. enda tókst varla að halda opin- ber mót hér syðra s.I. vetur. KR fékk einn meistara, Karó- línu Guðmundsdóttur, í Rvík. mótinu. Karólína er nú for- maður deildarinnar. Fimleikadeildín heldux uppi æfingum fyrir yngri sem eldri, karla og konur. Drengjaflokk- ur æfði í allan s. 1. vetur. Frjálsíþróttamenn íélagsins voru sigursælir á árinu. Á meistaramóti Islands vann KR 16 greinar af 32 mögulegum, og samanlögðum sveina. drengja og unglinga meistara- mótum íslands vann KR 21 grein af 39 mögulegum. Á Reykjavíkurmóti hlaut KR heitið bezta frjálsíþróttafé- Framhald á 2. síðu. Hver sigrar í Innsbruck? NÝJAR STJÖRNUR ÍSKÍÐASTÖKKI Ýirrsum getum er nú að þvá leitt hver sigra muni í skíðastökk- keppni vetrar-olympíu leikanna nú í vetur. Allmargir virðast koma til greina. Austurríkismaðurinn Baldur Preiml sigraði óvænt með miklum yfirburðum í skíða- stökkkeppni í Bischhqfshofen s.l. laugardag. Þetta var loka- keppni þýzk-austurrísku skíða- stökkvikunnar. Menn höfðu búizt við sigri Finnans Veikko Kankkonen, sem verið hefur mjög sigur- sæll í „stökkvikunni", en hann varð að láta sér nægja annað sætið. Úrslitin urðu þessi: 1) ' Baldur Preiml 242,2 st. (99 og 99 m). 2) ' Kankkonen 227,7 st. (92,5 og 97,5 m). 3 — 4) Yggeseth r(Noregi) 227,2 st. (96,5 og 94 m.) 3—4) Recknagel (A-Þýzkal.)' 227,2 st. (96,5 og 96,5 m). 5) Moteljek ’(TékkósL) 224,7 st. (97 og 95,5 m). Eftir fjögur stökkmót skíða- stökkvikunnar er Kankkonen fremstur með 867,2 stig. 2) Yggeseth 851,1, 3) Baldur Preiml 843, 4) Immonen (Finnl.)' 836, 5) Kovalenko (Sovétr.) 830,2, 6)' J. Przyhyla (Pólland) 825, 7) John Balfanz (USA) 824 stig. Hver sigrar á OL? Kankkonen virðist ekki ó- líklegur til að sigra í skíða- stökkkeppni olympíuleikanna, en ýmsir aðrir hafa mikla möguleika líka, t. d. Preiml. Horfumar hafa breytzt talsvert Josef Przybyla frá því í fyrravetur. f janú- ar s.l. sigraði Norðmaðurinn Toralf Engan í „skíðastökkvik- unni“, og var þá lítt efazt um, að hann yrði næsti olympíu- meistari, slíka yfirburði sem hann hafði. Landi hans Ygg- eseth sigraði á Holmenkollen- mótinu og skákaði bæði Eng- an og öðrum stórkörlum. Ol- ympíumeistarinn írá 1960, Helmut Recknagel (Austur- Þýzkalandi) beið lægra hlut fyrir Engan í fyrravetur, en nú í vetur hefur hann aftur náð sér á strik og ekki talið útilokað að hann muni verja titilinn nú í vetur. s*i Pólverjinn Josef Przybyla hefur vakið mikla athygli í þessari skíðastökkkeppni. Hann er aðeins 19 ára gamall, en hefur skipað sér í raðir fremstu skíðastökkvara heims á unga aldri. Hann hefur náð geysilega löngum stökkum, en sjaldan verið öruggur um að ná báðum stökkunum góðum. Fróðir menn telja, að með frekari æfingu og keppnis- reynslu verði hann allra manna skæðastur, og geti jafn- vel náð sigri á vetrar-olymp- íuleikunum í Innsbruck. Norðurlandameistaramót kvenna í handknattleik Vígreifar Noregsstúlkur hyggjast sigra á fslandi Norskar og hollenzkar stúlkur háðu landsleik í handknattleik í Osló ’fyrir skömmu. Norsku valkyrjurnar sigruðu með 11:7, og þykjast nú sigurvissar á Norðurlandameistaramóti kvenna, sem háð verður hér í Reykjavík í sumar. Norsku handknattleiksstúlk- urnar eru mjög sigurglaðar eft- ir sigurinn yfir þeim hollenzku, enda höfðu þær þar með unnið sigur í þremur landsleikjum í röð. Norsku blöðin segja, að kvennalandsliðið hafi aldrei leikið betur en í keppninni við hollenzku stúlkurnar. Eng- inn veikur hlekkur hafi verið í liðinu, samleikur hafi verið ágætur og engar „bommertur“ sézt, sem þó sé títt í kvenna- handknattleik. Þjálfari norska liðsins, Odd Svartberg, sagði eftir leikinn að næsta verkefnið sé Norður- landameistaramótið á íslandi. Þjálfarinn er drjúgur með sig og segir: „Við ætlum að búa qkkur undir þetta mót af hundrað prósent krafti. Það er kominn tími til að norsku stúlkurnar sigri, og ég álít að þær séu færar um það. Lands- liðsstúlkurnar eru byrjaðar að æfa samkvæmt sérstakri þjálf- unardagskrá. Það sem sumar þeirra skortir er keppnis- reynsla, og hana fá þær áreið- anlega í sumar". Markvörðurinn, Wenche Frogn, þótti standa sig bezt í YVENCHE FROGN Hin knálega valkyrja í marki norska kvennalandsliðsins norska landsliðinu, en auk hennar Astrid Skei (2 mörk), Jorun Övargárd (3) og Solfrid Törrisvold (3).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.