Þjóðviljinn - 16.01.1964, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 16. janúar 1964
ÞlðÐVILIINN
SlÐA 3
Kínverskir leiðtogar í Albaníu
Fiskiráðstefnan í London
Bretar reyna að knýja fram
,málamiðlun' um landhelgi
LONDON 15/1 — Ljóst er að brezka ríkisstjórnin hefur
enn ekki gefið upp alla von um að takast megi að þrengja
aftur landhelgina eða a.m.k. að útvega brezkum togurum
heimild til veiða áfraan í ytra sex mílna beltinu. Þegar
fiskveiðiráðstefnan kemur aftur saman á fullskipaðan
fund í London á morgun, fimmtudag, er búizt við að
lögð verði fyrir hana brezk tillaga um , „málamiðlun“
varðandi landhelgina.
Þcir Sjú Enlæ forsætisráðherra og Sén Ji utanríkisráðherra Kina hafa undanfarið ferðazt um
mðrg hinna nýfrjálsu rikja i Afríku, en þeir ISgðu einnig iykkju á leið sína til að heilsa upp á
foringja albanskra kommúnista, sem hafa haft algera samstöðu með þeim f deilum kommúnista-
flokkanna. Myndimar eru teknar þegar þeir komu til Albaníu. Á þeirri efri fagnar Enver Hoxha,
formaður albanskra kommúnista, Sjú Enlæ á flugvellinum við Tirana, en á hinni myndinni sést
þegar þeir aka inn í borgina. Sjú Enlæ er í miðju, Hoxha til vinstri, en Mehmet Shehul forsætis-
ráðherra til hægri.
Stjornmálasambandi aftur komið á
Bandaríkin neydd til nýrra
samninga um Panamaskurð
f dag var ekki haldinn
neinn fundur, þar eð tvær
nefndir sem skipaðar höfðu ver-
ið til að undirbúa slíka mála-
miðlunartillögu unnu þá að því.
Tillagan er ruimin undan rifjum
Breta, en þeir hafa fengið í lið
með sér fulltrúa frá öllum sex
ríkjum Efnahagsbandalagsins.
Ekki Norðurlönd
Ekkert Norðurlanda, heldur
ekki Island, átti fulltrúa í þess-
um nefndum, þar sem þau hafa
öll lýst sig andvíg breytingum á
þeim landhelgissamningum sem
nú gilda, en búizt er við að allir
Norðurlandafulltrúamir mæti á
fullskipuðum fundi ráðstefnunn-
ar á morgun.
Norsk tilslökun?
Fréttamaður norsku fréttastof-
unnar NTB í London segir að
norsku fulltrúamir bíði eftir
nánari fyrirmælum að heiman,
en kvaddir voru saman fundir í
sjávarútvegs- og utanríkismála-
nefndum Stórþingsins til að
ræða þau mál sem upp hafa
komið á ráðstefnunni í London.
Fréttaritarinn segir að menn
hafi ástæðu til að ætla að
norska stjómin muni fús að fall-
ast á nokkrar tilslakanir og
muni þær sennilega vera á þann
veg, að Norðmenn gangi að því
að „biðtíminn" þar til tólf mílna
landhelgi tekur fullt gildi verði
franúengdur í 3—4 ár frá því
sem samningar kveða nú um,
eða frá 31. október 1970. Þennan
biðtíma mega brezkir togarar
veiða inn að sex mílna takmörk-
um. Ef Bretar teldu þessa til-
slökun nægilega, myndu Norð-
menn fúsir að ganga að hinni
brezku málamiðlunarlausn.
Danska fréttastofan Ritzaus
Bureau segir að embættismenn
í dönsku sjávarútvegs- og utan-
ríkisráðuneytunum séu ánægðir
með málamiðlunina. Tekið er
fram að ákvæðið um tak-
mörkuð vedðiréttindi ‘ útlendinga
á ytra sex mílna svæðinu eigi
ekki við um fiskimiðin við Fær-
eyrar og Grænland. Bretar hafi
hins vegar ekki viljað fallast á
að veita Norðmönnum sömu
undanþágu.
Island ekki nefnt
I fréttaskeyti NTB er ekkert
á það minnzt hverjar séu tillög-
ur Breta um landhelgina við ís-
land, en að óreyndu verður að
teljast líklegast að þeir leggi
kapp á að fá að njóta áfram
þeirra fríðinda sem þeir hafa
enn í íslenzkri landhelgi, en nú-
gildandi samningar um heimild
brezkra togara til fiskveiða í ís-
lenzkri landhelgi renna út í
vor.
A.m.k: 14 biðu bana
Háhýsi í smíðum
hrundi í París
PARlS 15/1 — Um 30 metra
hátt íbúðarhús tólf hæða, sem
var í smíðum á vinstri bakka
Gylfi Þ. í Osló
WASHINGTON 15/1 — Bandaríkjastjóm hefur neyðzt til
þess að verða við kröfu Panama um að samningurinn um
Panamaskurð sem tryggir henni óskoruð yfirráð skurðar-
ins og meginhlutann af tekjum hans verði endurskoðað-
ur. f stað þess hefur Panamastjórn fallizt á að taka aft-
ur upp stjórnmálasamband við Bandaríkin sem rofið
var eftir óeirðimar fyrir helgina.
Dean Rusk utanríkisráðherra
sagði í dag þegar hann gaf ut-
anríkismálanefnd fulltrúadeild-
arinnar skýrslu um atburðina 1
Panama að hann væri vongóður
um að takast mætti að koma
aftur á lögum og reglu f land-
tnu og sagðist vera ánægður
með samkomulagið við Panama-
stjóm um að koma áftur á
stjómmálasambandi milli ríkj-
anna.
Samkomuíagið var birt í dag
og segir þar að samningsaðilar
skuldbindi sig til að hefja við-
ræður um endurskoðun samn-
ingsins frá 1903 um Panama-
skurð ekki síðar en 30 dögum
eftir að stjómmálasamband hef-
ur aftur verið tekið upp milli
þeirra.
Ekki hafa orðið óeirðir í Pan-
ama síðasta sólarhring, þótt á-
standið sé enn viðsjárvert í
landinu og aftur kunni að sjóða
upp úr ef einhverjir árekstrar
verða.
Þögull mannfjöldi horfði í dag
á fána Panama og Bandaríkj-
anna vera dregna að hún yfir
skóla þeim í Balboa þar sem ó-
eirðimar hófust fyrir helgina,
þegar bandarískir skólapiliar
rifu niður Panamafánann og
drógu þann bandaríska að hún
í staðinn. Mikið lið vopnaðra
lögreglumanna hafði verið kvatt
á vettvang, en engin átök urðu.
Meiri tckjuhluta
Víst er talið að Panamastjóm
muni leggja allt kapp á að fá í
sinn hlut meira af tekjum Pan-
amaskurðar en hún hefur feng-
ið fram að þessu og muni hún
einnig vilja fá meiri áhrif á
stjóm skurðarins. Öliklegt er
talið að Bandarfkjastjóm fallist
á það.
Skurðurinn hefur alla tíð ver-
ið Panamamönnum rýr tekju-
lind, bæði vegna þess að aðeins
lítið brot af siglingagjöldum um
skurðinn hefur runnið til henn-
ar, svo og hins að gjöld þessd
hafa staðið í stað þá hálfu öld
sem siglt hefur verið um skurð-
inn, enda þótt útgjöldin hafi
margfaldazt á þeim tíma.
Roberto ehiari, forseti Pan-
ama, sagði í dag að Panama-
stjóm yrði að fá ákvörðunarrétt
um rekstur skurðarins. Hann út-
skýrði ekki þá kröfu frekar, en
vitað er að Panamastjóm sækir
fast að fá að ráða Panamabúa
í ákveðnar stöður og þá hefur
hún löngum kvartað yfir bví að
Panamabúum sem vinna við
skurðinn séu greidd miklu lægri
laun en bandarískum starfs-
mönnum.
ehiari tók ekki fram hvenær
stjómmálasambandið yrði end-
umýjað en búizt er við að það
verði innan viku.
Erfiðlega gengur að
hemja verðbólguna
OSLÓ 15/1 — Gylfi Þ. Gísla-
son mennta- og viðskiptamála-
ráðherra kom í dag til Oslóar
ásamt konn sinni og mnnn þau
dveljast í Noregi í tíu daga.
Gylfi ræddi við blaðamenn í
dag og varð samkvæmt frásögn
NTB einkum tíðrætt um efna-
hagsmál. Hann sagði að mikil-
vægasta verkefni rikisstjómar-
innar væri að spoma við verð-
bólguþróunina, en þetta væri sér-
lega erfitt viðfangs á Isl. vegna
þess að þar væri „verðlag og
kaupgjald“ að vissu leyti vísi
tölubundið. Því myndu verð-
hækkanir fylgja í kjölfar 15
prósent kauphækkunarinnar eft-
ir verkfallið fyrir jól. Annað
höfuðverkefni ríkisstjómarinnar
væri að koma í framkvæmd
efnahagsáætlun.
Gylfi flytur erindi á morgun
í stjórnvísindadeild Oslóarthá-
skóla og fjallar þar um verð-
bólguvandamál á íslandi, en eitt
útbreiddasta blað Noregs, „Dag-
bladet“, hefur kynnt hann sem
„sérfræðing í verðbólgu, bæði
í kenningu og framkvæmd11.
Signu í Paris hrundi f ðag eins
og spilahús og létu a. m. k. 14
verkamenn Iífið, en óttazt er um
Iíf tíu annarra.
(Jtveggir og gólf vom að
mestu fullgerð, en verið var að
steypa gólf tólftu hæðarinnar,
þegar húsið hrundi skyndilega.
Um fjörutíu menn nnnu við
bygginguna þegar hranið varð.
Nokkrir björguðu lifinu með því
að stökkva til jarðar frá neSri
hæðunum, en flestir urðu und-
ir rústunum. Ellefu fundust
Iátnir I braki hússins, en þrir
létust eftir að þelr höfðu verið
fluttir í sjúkrahús. Sextán vora
Iagðir á spítala og er sumum
þeirra ekki hugað líf.
Ekkert er enn vitað nm hvað
valdið hefur hruni hússins, sem
er við Boulevard Uefebvre S
suðurhluta borgarinnar.
Ráðstefna
kommúnista
RÖM 1571 — Samkvæmt Reut-
ersfréttastofunni skýrði einn af
leiðtogum ítalsfcra kommúnista.
Giancarlo Pajetta, frá því á
fundi með blaðamönnum í Róm
i dag að hafinn væri undirbún-
ingur að ráðstefnu kommúnista-
flokkanna í Eívrópu þar sem
fjallað yröi um ágreiningsmál-
in við kínverska flokkinn.
Samkeppni
um merki
1 samræml við samþykkt síðasta landsþings Sambands
íslenzkra sveitarfélaga hefur stjóm sambandsins ákveðið
að gangast fyrir samkeppni um merki fyrir sambandið.
Er hér með gefinn kostur á að senda tillögur að slíku
merki, og væri æskilegt að það sé að einhverju leyti
táknrænt fyrir sambandið eða starfsemi þess.
Uppdrættir skulu vera 12x18 cm. að stærð eða svo,
límdir á karton 14x21 cm. að stærð, og skulu þeir sendir
til skrifstofu sambandsins að Laugavegi 105, Reykjavík,
pósthólf 1079, fyrir 1. febrúar 1964.
Umslag skal einkennt með orðinu MERKI. Nafn höf-
undar fylgi í sérstöku umslagi, vandlega lokuðu.
Tíu þúsund króna verðlaun verða veitt fyrir það merki,
sem kann að verða valið, og áskilur stjómin sér rétt til
að nota það merki að vild sinni án frekari grelðslu fyrir
notkun.
Gerið skil. Opið til kl. 11 í kvöid — Happdrætti Þjóðviljans