Þjóðviljinn - 31.01.1964, Blaðsíða 3
Föstudagur 31. 'janúar 1964
ÞlðÐVIUINN
SlÐA
Minh hershöfðingi kominn undir lás og slá:
Ný hershöfðingjauppreisn
geri í Su&ur-Víetnam í gær
SAIGON 30/1 — Gerð hefur verið uppreisn í Suð-
ur-Víetnam og steypt af stóli herforingjastjórn
þeirri, er laut forystu Minh hershöfðingja. Nguy-
en Khan, hershöfðingi er foringi uppreisnarinnar.
Kveður hann uppreisnina hafa verið til þess gerða
að koma í veg fyrir samsæri um að gera landið
að hlutlausu ríki. Hafi þetta samsæri verið gert
með stuðningi Frakka, og verði nú stjómmála-
sambandi við þá slitið. Hersveitir Khans tóku
völdin í Saigon í sínar hendur fyrir dögun. Ekki
mun mannfall hafa orðið við þau umskipti, en
fjölmargir stuðningsmenn Minh munu hafa verið
handteknir.
Nguyen Khan, hershöfðingi,
hefur afhent Henry Cabot
liOdge, sendiherra Bandaríkj-
anna í Suður-Víetnam, skjöl er
sanna skulu fullyrðingar hans
vm „hlutleysissamsæri“ og aðild
Frakka aö því. Frá Washington
berast þær fréttir, að Johnson
forseti hafi 1 dag átt viðræður
við Dean Rusk utanríkisráðherra
um þróun mála í Suður-Víet-
nam. og talsmaður forsetans lét
Slitnar upp úr
PanamaviSræðum
WASHINGTON 30/1 — Samn-
ingar þeir, er undanfarið hafa
staðið yfir milli Bandaríkjanna
og Panama vegna deilunnar um
Panamaskurðinn, fóru í dag út
um þúfur.
Miguel Moreno, sendiherra
Panama hjá stjórnamefnd
Bandalags Ameríkuríkjanna,
ÖAS, sem aðsetur hefur í Wash-
ington, lét svo um rnælt, að
Panamastjórn hefði gert sitt
ýtrasta til þess að komast að
samkomulagi, en án árangurs.
Nú væri ekki um annað að
ræða en krefjast þess að kallað-
ur væri saman aukafundur ut-
anríkisráðherranna í löndum
OAS.
svo um mælt, að hann fylgdist
af athygli með því sem gerðist.
Nær samtímis tilkynnti banda-
ríska utanríkisráðuneytið það,
að tilhögun hinnar nýju stjóm-
ar réði því, hvort Bandaríkin
veittu henni viðurkenningu sína.
Hinn nýi valdhafi, Khan
hershöfðingi, er sagður mjög
vinveittur Bandaríkjunum og
eftir þvi andsnúinn kommúnist-
um. Er hershöfðinginn kom í
fyrsta skipti opinberlega fram
eftir valdatöku sína lýsti hann
því yfir, að herinn hefði ákveð-
ið að gera uppreisn til þess að
halda áfram byltingunni og
mæta kröfum fólksins. Hina
fyrri byltingu kvað hann ekki
hafa náð nægilega góðum ár-
angri, stjómin hefði verið á-
hrifalítil og andbyltingarsinnuð.
Hefðu meðlimir hennar lítið
gert annað en skara eld að eigin
köku. Haft er fyrir satt í Sai-
gon, að Khan muni láta ákæra
Minh fyrir ýmis afbrot framin
í stjórnartíð Diems, en Minh
er nú undir lás og slá.
Áður en Khan gerði uppreisn
sína átti hann langar viðræður
við Minh, en þær fóru út um
þúfur, með fyrrgreindum afleið-
ingum. I fréttastofufregnum seg-
ir, að Minch muni hafa neitað
að verða við þeirri kröfu, að
hann vrði aðeins opinberlega og
á ytra borði æðsti maður lands-
ins. Khan muni og hafa sett
fram þær kröfur, að fjórum
meðlimum herforingjastjómar-
innar yrði vikið frá. Er talið,
að þeir hershöfðingjar hafi ver-
ið handteknir og sendir til borg-
ar nokkurrar, um sex hundruð
kílómetra fyrir norðan Saigon.
Sendiherra Bandaríkjanna,
Cabot Lodge. lét svo um mælt,
er uppreisnin var um garð geng-
in, að Bandaríkjamenn hafi enga
aðild átt að henni. Fullyrt er
þó, að uppreisnarmenn hafi skýrt
Lodge frá áformum sínum
nokkru áður en uppreisnin var
gerð. 1 Saigon er það haft eftir
góðum heimildum, að hinir nýju
valdhafar muni útnefna Tran
Van Ly forsætisráðherra. Van
Ly var landstjóri í Mið-Víet-
nam er landið var undir
franskri stjóm. Hann er sagður
ákafur fylgismaður Bandaríkj-
anna.
Allt var rólegt í Saigon í dag.
Vilja selja hveiti
MONTREAL 30/ 1 — Það var
haft eftir góðum heimildum í
Ottawa í dag, að Kanada muni
reyna að komast að samkomu-
lagi við Sovétríkin um hveiti-
sölu. Samkvæmt núgildandi við-
skiptasamningi verða síðustu
hveitifarmamir til Sovétríkjanna
afhentir innan 31. júlí næstkom-
andi.
Pravda gerir
hríð að Kína
MOSKVU 30/1 — Pravda,
málgagn Kommúnistaflokks Sov-
étríkjanna, gerði í dag harða
hríð að stjóm Kínverska al-
þýðulýðveldisins. Er ástæðan sú,
að Kínverjar hafa ekki hirt um
að birta orðsendingar Krústjoffs
til allra landa þar sem hann
hvetur til þess að ríkin lýsi því
yfir, að þau muni ekki grípa til
vopna þó deilur kunni að koma
upp.
í greininni, segir ennfremur,
að úr lausu lofti séu gripnar þær
ásakanir Kínverja, að þessi til-
mæli Krústjoffs feli í sér sátt-
fýsi við heimsvaldasinnana. Þá
eru Kínverjar hvattir til þess að
birta opinberlega svar Johnsons
Bandaríkjaforseta og annarra
vestrænna ráðamanna við áskor-
uninni.
Sic transit gloria mundi í Suður-Víetnam
Stjórn Minhs í Suður-Víetnam hefur nú verið steypt af stóli eftir aðeins rúmlega þriggja mán-
aða valdaferil. A myndinni sjáum við þá herforinjana Duong Van Minh, Le Van Kim og Tran Van
Don hcilsa með hermannakveðju Iiðsveitum sinum. A myndina vantar Ton That Dinh, en hann
sviptu þeir félagar herstjóm. Þessi hershöfðingj aþrenning má nú muna sinn fífii fegri.
Merkur dagur í sögu geimrannsóknanna:
Einni tunglflaug og tveim
gervihnöttum skotið á loft
CAPE KENNEDY, MOSKVU 30/1 — I dag skutu
Bandaríkjamenn á loft tunglflaug, Ranger VI. og
er henni ætlað til tunglsins. Gert er ráð fyr-
ir því, að tunglflaugin verði 66 klukkustundir á
leiðinni, og nái mánanum einhverntíma milli kl.
8 til 10 á sunnudagsmorgun eftir íslenzkum tíma.
Jafnframt þessu tilkynnir Tass-fréttastofan, að
Sovétríkin hafi í dag sent tvo gervihnetíi, Elektrón
I og Elektrón II, á loft.
Ranger VI. er sjötta eldflaug-
in, sem Bandaríkjamenn hafa
ætlað að senda til mánans.
Fyrri tilraunir hafa allar mis-
tekizt og kostað landið meira
en hundrað milljónir dala. Rang-
er IV. komst næst því að verða
að gagni, eldflaugin komst til
mánans en með Ijósmyndatæki
sin biluð, og vísindalegur árang-
ur varð því enginn af tunglskot-
inu. v
Allt virðist benda til þess, að
Ranger VI. komist á leiðarenda.
Talsmenn geimferðarannsókn-
anna í Bandaríkjunum segja allt
hafa gengið að óskum, enn sem
komið er, og hljóðmerki frá eld-
flauginni hafa heyrst bæði í
Suður-Afríku og í Ástralíu.
Vísindamenn vonast til þess,
að Ranger VI. takist að senda
milli þrjú og sex þúsund ljós-
myndir til jarðar áður en eld-
flaugin lendir á mánanum.
Eldflaugin er um 20 metra á
lengd og vegur um það bil 400
kg. Jafnframt vonast bandarisk-
ir vísindamenn til þess, að ef
för Ranger VI. til mánans gangi
að óskum geri það þeim auð-
veldara að kría út úr bandaríska
þinginu nauðsynlegar fjárveit-
ingar til geimferðarannsókn-
anna.
Þá berast þær fréttir frá
Moskvu, að skotið hafi verið
á loft tveim gervihnöttum, ES-
ektrón I. og II. Gervihnöttunum
er ætlað að safna vísindalegum
upplýsingum. Elektrón I fylgir
sporöskjulagaðri braut, og er
jarðfirð hans 7100 km. en jarð-
nánd 406 km. Elektrón II hefur
jarðfirðina 68200 km og jarð-
nándina 460 km.
Nýjung
Nýjung Nýjung Nýjung
Fjölskyldan fer út að skemmta sér
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna verður í Hótel Sögu, súlnasalnum,
sunnudaginn 2. febrúar og hefst k!3 e.h. til kl. 6 e.h.
II
og
...................... 1
íandaríkjamenn hafa nú skotiö á Ioft tunglflauginni Ranger VI.
ig gcra sér vonir um að hún nái tungli á 66 klukkustundum. A
nyndinni sjáum við scrfræðinga prófa Ijósmyndatæki tunglflaugar-
nnar, en vísindamcnn gera sér vonir um að Rangcr VI. muni
lenda til jarðar milli þrjú og sex þúsund ljósmyndir af mánanum.
Ljósmyndavélar eldflaugarinnar eru sex talsms.
Ýmis skemmtiatriði. T.d.:
Tízkusýning frá tízkuverzluninni Guðrún, Rauðarárstíg 1
Herradeild P. & Ó.
Danssýningar, böm og ungt fólk.
Gamanvísur og leikþættir m.a.heimsókn frá Leikfélagi Kópavogs,
Atriði úr bamaleikritinu „Húsið í skóginum".
Farið verður í leiki bæði með börnrm og þeir fullorðnu lútnir reyna
sig í ýmsum þrautum, og margt fleira.
Mörg verzlunarfyrirtæki sýna þarna framleiðslu sína og gefa öll
verðlaun í hinum ýmsu keppnum.
Þetta er tilraun til að gefa fjölskyldunni, börnunum jafnt sem foreldrum þeirra tækifæri til að skemmta sér
saman einn sunnudagseftirmiðdag í fogrum og góðum húsakynnum.
Aðgöngumiðasala fer fram í andyri Hótel Sögu, laugardaginn 1. febrúar frá kl. 2—5 e.h. Borð tekin frá á
sama tíma. Verð aðgöngumiða er kr. 25,00 fyrir barn og 35,00 fyrir fullorðna.
Þetta litla par dansar Rumbn
og Cha-cha-cha.
Dansskóli Hermanns Ragnars