Þjóðviljinn - 19.02.1964, Page 3
Miðvikudagur 19. febrúar 1964
ÞIÖÐVILIINN
SlÐA J
Vegna viðskiptanna við Kúbu
Stjóm Bandaríkjanna hefur
svipt Breta hernaðaraSstoð
WASHINGTON 18/2 — Bandaríkjast.ióm tók í
dag þá einstæðu ákvörðun að svipta nánasta
bandamann sinn, Bretland, allri þeirri hernaðar-
aðstoð sem það hefur enn notið. Frakkar og Júgó-
slavar missa einnig af þeirri aðstoð og er þessi
ráðstöfun gerð í hefndarskyni vegna þess að
stjómir þessara ríkja hafa ekki hlýtt fyrirmælum
Bandaríkjanna um að stöðva siglingar kaupskipa
sinna og ferðir flugvéla til Kúbu. Gefið er í skyn
að fleiri ríki verði svipt bandarískri hérnað-
araðstoð, ef þau halda áfram viðskiptum við Kúbu.
Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins sagði í Was-
hington í dag að Bandaríkja-
stjórn hefði spurzt fyrir um það
hjá stjómum Spánar og Mar-
okkó, hvað þær hyggðust gera
til að koma í veg fyrir frekari
viðskipti þegna þeirra við Kúbu
og hindra að kaupskip þeirra
og flugvélar flytji þangað vam-
ing og farþega.
Nýtt ákvæði
r>essi ákvörðun er tekin í sam-
ræmi við ákvæði sem á síðasta
Bandaríkjaþingi var bætt inn í
lögin um aðstoð við erlend ríki,
en samkvæmt þvf var Banda-
ríkjastjórn gefin heimild til að
stöðva bæði hemaðar- og efna-
hagsaðstoð við þau ríki sem
hefðu ekki gert ráðstafanir til
að stöðva siglingar skipa sinna
ttl Kúbu fyrir 14. febrúar.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins sagði ennfremur að á-
kvörðunin um að svipta Breta
hernaðaraðstoð hefði verið tek-
in í samráði við brezku stjórn-
ina. Hann vildi ekki svara
spumingum um hve miklu þessi
aðstoð næmi nú, en hún hefur
farið mjög minnkandi á seinni
árum. Hann gaf þó í skyn að
Samþykkt að breyta reglum
um þegnrétt Norðurlandabúa
STOKKHÓLMI 18/2 — Norður-
landaráð samþykkti í dag með
aðeins einu mótatkvæði að
breyta Iagaákvæðum um þegn-
rétt á Norðurlöndum á þann
veg að Norðurlandaþegnar geti
fengið ríkisfang hvar sem er á
Norðurlöndum, eftir að hafa ver-
ið búsettir þar ekki lengur en
þrjú ár.
Sænski ráðherrann, Ulla Lind-
ström, sagði að 'næsta skrefið
ætti að vera að koma á sam-
eiginlegum vinnumarkaði á öll-
um Norðurlöndum, þannig að
Norðurlandabúar fái rétt til
vinnu í þeim öllum án sérstakr-
ar umsóknar.
Ráðið samþykkti einnig í dag
tilmæli til ríkisstjórnanna um
að samræma reglur um greiðsl-
til rithöfunda fyrir útlán á bók-
um þeirra frá almennum bóka-
söfnum.
ekki væri um miklar fjárhæðir
aðræða, aðstoðin væri aðallega
í sameiginlegri þjálfun og
einnig samvinnu um vopnabún-
að.
Talsmaður brezku stjómar-
innar sagði i dag að sú hern-
aðaraðstoð sem Bretar hafa not-
ið frá Bandaríkjunum sé orðin
hverfandi lítil og því telji brezka
stjómin ekki ástæðu, til að gera
neitt veður út af ákvörðun
Bandaríkjanna. 1 París var
einnig sagt að hér væri aðeins
um að ræða óverulegar fjár-
hæðir.
öðru máli gegnir um hern-
aðaraðstoð Bandaríkjanna við
ýms önnur iönd sem munu fá
að kenna á þessu ákvæði lag-
anna um aðstoð við erlend ríki,
ef þau láta sér ekki segjast
og koma í veg fyrir viðskipti
þegna sinna við Kúbu.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
sagði í dag að meðan beðið væri
svara frá stjómum Marokkó og
Spánar myndu Bandaríkin ekk-
ert aðhafast og engir nýir
samningar yrðu gerðir um hern
aðaraðstoð við þau. Gizkað er
á að aðstoð sú sem Bandaríkin
veita Spáni til hemaðar nemi
31.5 milljónum dollara eða um
1400 milljónum króna á þessu
fjérhagsári.
Aukin viðskipti
Það hefur knúið Bandarikja-
stjórn til að nota sér þessa
heimild til að stöðva hemaðar-
aðstoð við ríki sem skipta við
Kúbu að viðskiptabann hennar
héfur ekki borið ‘tilætlaðan ár-
angur. Viðskipti Kúbumanna
við ríki Vestur-Evrópu hafa far-
ið mjög vaxandi undanfarin
misseri, ekki sizt vegna þess
að hið háa sykurverð á heims-
markaðnum hefur gefið mikinn
gjaldeyri í aðra hönd. Kúbu-
stjóm hefur þannig nýlega gert
stóra viðskiptasamninga bæði
við brezk og frönsk fyrirtæki
og fleiri slíkir samningar eru
f undirbúningi. Vegna þessara
auknu viðskipta hefur hún sent
sérstaka viðskiptanefnd til Vest-
ur-Evrópu sem hafa mun að-
alstöðvar í Brussel, höfuðborg
Efnahagsbandalags Evrópu.
Sjú Bnlæ kominn tíl
Karachi / Pakistan
KARACHI 18/2 — Sjú Enlæ,
forsætisráðherra Kíua, kom í
dag í opinbera heimsókn til
Pakistans og mun hann dveljast
þar ásamt fjölmennu fylgdarliði
í nokkra daga.
Hann sagði við komuna til
Karachi að sambúð Kína og
Pakistans hefði fs'i* miög batn-
andi að undanfömu og hefðu
báðar ríkisstjórnirnar aert sér
mikið far um að bæta sambúð-
ina. Landamæradeilur ríkjanna
hefðu verið iafnaðar með samn-
ingum og viðskipti þeirra hefðu
aukizt.
Þetta væri í samræmi við á-
lyktanir Bandúngráðstefnu þjóða
Asiu og Afriku árið 1955, sagði
Sjú, sem taldi að nú væri tíma-
bært að kalla ráð-
stefnu þessara ríkja.
Öryggisráð SÞ tekur Kýpurdeiluna fyrir
Fjölmennt tyrkneskt herlii
reiðubúið að sigla til Kýpur
ANKARA, NIKOSÍU og NEW YORK 18/8 — Tyrknesk
blöS skýra frá því að fjölmennt herlið hafi farið aftur
um borð 1 herskip í hafnarborginni Iskanderún og bíður
það fyrirmæla um að halda úr höfn og sigla til Kýpur.
Gizkað er á að þetta sé um 10.000 manna lið. Ekki
er þó búizt við að það verði sent af stað meðan Örygg-
isráð SÞ ræðir Kýpurmálið, en það kom saman í kvöld
að beiðni stjóma Kýpur og Rretlands.
Ovæntur vitnisburður í máli Rubys
Segist hafa vitað að
hafi átt að
drepa
Ruby
Oswald
DALLAS 18/2 — Þau óvæntu tíðindi gerðust í dag
þegar haldið var áfram réttarhöldum í máli Jacks
Rubys, morðingja Oswalds, sem sakaður var um að hafa
ráðið Kennedy forseta af dögum, að maður að nafni
David Conrad Glass skýrði frá því að hann hefði þegar
í júlí fengið um það vitneskju að Oswald ætlaði að
myrða, forsetann og einnig að Ruby hefði verið falið
að koma Oswald fyrir kattarnef.
Glass sagði að hann hefði ver-
ið beðinn um að fara frá Alber-
querque í Nýja Mexíkó til Dall-
as til að myrða Ruby, áður en
hann gæti vegið Oswald.
Glass var handtekinn í dóm-
húsinu í Dallas í gær þar sem
réttarhöldin yfir Ruby standa
yfir og var leiddur fyrir blaða-
menn í dag. Hann neitaði að
hann hefði nú komið til Dallas
með þeim ásetningi að vega
Ruby. en kvaðst hafa farið þang-
að til að skýra fylkissaksókn-
aranum frá öllu sem hann vissi
um málið.
Hann agði áð embættismaður
í Alberquerque, friðardómari að
nafni frú Roser Goefer, hefði
sagt sér í júlí að Oswald ætl-
aði að drepa forsetann og að
Ruby hefði verið falið að myrða
Oswald. Frú Goefer hefði beð-
ið sig að fara til Dallas til að
ráða Ruby af dögum áður en
hann dræpi Oswald.
Glass svaraði spurnjngum
fréttamanna skýrt og skilmerki-
lega og þeir segja að ekkert
bendi til þess að hann sé and-
lega veill. Geðrannsókn hefur
þó verið fyrirskipuð. Lögreglan
segir að í fórum hans hafi fund-
izt rit þar sem ráðizt er á
kommúnista og gyðinga.
Erfítt dómaraval
í dag var haldið áfram að
velja menn f kviðdóminn sem
dæma á Ruby. en verjandi
hans, Belli lögmaður, ætlar að
reyna að koma í veg fyrir að
málið verði tekið fyrir í Dallas
með þvf að hafna öllum þeim
mönnum sem tilnefndir hafa
verið til að taka sæti í dómn-
um. Það getur enn dregizt á
langinn að byrjað verði að fjalla
um mál Rubys fyrir rétti.
Fyrir helgina sendu Tyrkir
herskip með fjölmennu liði her-
manna frá Iskanderún, en þau
sneru aftur til heimahafnar á
laugardaginn, eftir að tyrkneska
stjómin hafði gert það fyrir
orð sendimanns Bandaríkjanna,
George Ball. að halda að séi
höndum f tvo sólarhringa. Sá
frestur er nú liðinn, og Tyrkir
telja sig hafa fulla heimild til
að senda lið til Kýpur, ef bar-
dagar blossa þar upp aftur milli
manna af grískum og tyrknesk-
um stofni.
Ótryggt ástand
Ekki var barizt neitt á Kýpur
síðasta sólarhring og engir al-
varlegir árekstrar urðu milli
þjóðarbrotanna, en ástandið er
ótryggt, einkum á norðvestur-
hluta eyjarinnar.
300 brezkir hermenn komu í
dag til Kýpur frá Bretlandi og
hægt verður að flytja þangað
1600 til viðbótar með stuttum
fyrirvara. Jafnframt er haldið á-
fram brottflutningi kvenna og
bama brezkra þegna á Kýpur
og munu 1200 þeirra hafa lagt
af stað til Bretlands í dag.
Viðræður
Gríski utanríkisráðherrann, Pal-
amas, ræddi í dag við sendi-
herra Bretlands og Bandaríkj-
anna i Aþenu. Palamas lét í
ljós óánægju með þá ákvörðun
Breta að biðja öryggisráðið að
taka Kýpurdeiluna fyrir án þess
að hafa um það nokkurt samráð
við Grikki. Hann gagnrýndi
einnig ýms ummæli sem virðast
benda til þess að brezka stjóm-
in sé því ekki afhuga að Kýpur
verði skipt á milli þjóðarbrot-
anna.
1 New York ræddust aðalfull-
trúar Bandaríkjanna og Bret-
iands hjá SÞ, Stevenson og Pat-
riek Dean, lengi við í ■ - áð-
ur en Öryggisráðið kom saman.
Ú Þant framkvæmdastj. kynnti
fulltrúa Kýpur, Kyvrianou utan-
ríkisráðherra, tillc c-!-.-.- til
lausnar deilunni. en ’ ær hafa
ekki verið birtar. Litiar horfur
eru taldar á því að nokkurt
samkomuiag geti tekizt ura að
senda alþjóðlegt gæzlulið til
Kýpur. Fulltrúar Kýpur, Grikk-
lands, Tyrklands, Bretlands og
Sovétrikjanna í Örygíisráðinu
höfðu beðið um orðið þegar
fundur Öryggisráðsins hófst.
Ný grísk stjórn
Á morgun, miðvikudag, mun
hin nýja gríska stjórn taka
formlega við völdum. Forsætis-
ráðherra verður Papandreú, for-
maður Miðflokksins, sem vann
mikinn siaur í kosningunum um
helgina, hlaut 173 þingspptj af
300. íhaldsflokk"’- Karamanlis
hiaut 105 þingsæti og Lýðræðis-
bandalaaið 22. f ræðum sínum
fyrir kosnineamar gagnrýndi
Papandreú mjög Ziirich- og
I.undúnasamningana um full-
veldi Kýpur, en þeir samningar
heimila Tvrkjum og Grikkjum
að senda her til eyjarinnar, ef
þeir telja að havsmunir þjóðar-
brotanna séu fyrir borð bornir.
Gríski herinn hefur verið við
öllu búinn siðan fvrir jól, beear
átökin hðfust á Kýpur og eng-
irm vafi talinn á bví að Grikk-
ir muni senda herlið til eyjarinn-
ar, ef tyrkneskt iið gengur þar
á land.
Nauðungaruppboð
það sem auglýst var í 136. og 138. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1963 og 4. tbl. 1964 á eigninni Háveg-
ur 7, þinglýstri eign Kristjáns Sv. Kristjáns-
sonar, far fram á eigninni sjálfri föstudaginn
21. febrúar 1964, kl. 15.
Baejarfógetinn í Kópavogi
Herinn hefur tekið
öll völd í Gabon
LIBREVILLE. Gabon 18/2 —
Herforingjar undir stjórn liðs-
foringja í fallhlífarsveitunum,
Essone Valere, tóku i dag öll
völd i sínar hendur í lýðvcld-
inu Gabon á vesturströnd
Afríku.
Herforingjamir neyddu for-
seta landsins, Leon Mba. til að
biðjast lausnar og las hann
lausnarbeiðni sína í útvarpið.
Ráðherrar og þingmenn voru
handteknir.
Stjórnarbyltingin hófst í gær-
kvöld og var lítið um vamir
hjá stjómarliðinu. Bæði her og
lögregla hlýddu fyrirmælum
uppreisnarmanna sem náðu
strax á vald sitt öllum helztu
byggingum höfu ðborggarinn ar.
Byltingin fór skipulega fram og
mun ekkert manntjón hafa orð'
ið.
Nuuðunguruppboð
verður haldið í skrifstofu borgarfógetaembættisins í
Reykjavík að Skólavörðustíg 12 eftir kröfu Landsbanka
Islands, mánudaginn 24. febrúar n.k. kl. 1,30 e.h.
Seldir verða 30 víxlar, samþ. af Guðlaugi Bergmann,
hver að fjárhæð kr. 5.000,00. víxill samþ. af Heið-
ari Magnússyni, að fjárhæð kr. 30.000,00 og hluta-
fjárinneign hjá Kaupskip h.f., að fjárhæð kr. 450.000,00,
allt talin eign Sigurbjamar Eiríkssonar. Greiðsla fari
fram við hamarshöigg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Rafvirki óskast
til starfa á verkstæði Rafmagnsveitna ríkisins
við Elliðaárvog.
Upplýsingar á Raforkumálaskrifstofunni, sími
17400.
Rafmagnsveitur ríkisins.