Þjóðviljinn - 20.02.1964, Side 3

Þjóðviljinn - 20.02.1964, Side 3
Fimmtudagur 20. íebráar 1964 mvw c5” ' 3 Enn aukast heldur víðsjár með mönnum Englendingar senda nú 1501 manna liðsauka til Kýpur Alsírforseti á ferð í eyðimörkinni Ben Bella, forseti Alsír, hefur nýlega tekið sér ferð á hendur um vinjar Saharaeyðimerkurinnar. Hvarvetna hefur hann talað kjark i fátæka íbúa og skýrt J>eim frá því, að ætlunin sé nú að nytja auðlindir eyðimerkurinnar og bæta lífskjör íbúanna. — Á myndinni hér að ofan sjáum við Ben Bella taka kveðju íbúanna í bænum Colomb-Bechar. Uppreisnin í Gabon barin niður af frönsku herliði NEW YORK, NICOSIA, LONDON 19/2 — Enska stjórnin hefur nú ákveðið að senda 1500 hermenn til Kýpur til viðbótar þeim 5000, sem fyrir eru. Liðsflutningamir hefjast á fimmtudag. Að sögn varnarmálaráðuneytisins er þessum viðbótarher- styrk ætlað það hlutverk að aðstoða við að halda uppi lögum og reglu á eynni, unz alþjóðlegt lið getur tekið við. Jafnframt þessu verður mikill herútbúnaður fluttur til eyjarinnar. Á framhalds- fundi Öryggisráðsins gerði fulltrúi Sovétríkjanna harða hríð að yesturveldunum fyrir stefnu þeirra á Kýpur. Ekki linnir bardögum á eynni. með Makariosi voru innanríkis- ráðherrann á Kýpur, Pólykarpos Giorkadjis, og háttsettur emb- ættismaður Sameinuðu þjóðanna. Sklpuð nefnd Er Makaríos kom aftur til Nikósíu skýrði hann svo írá, að skipuð hefði verið nefnd, sem í ættu sæti fulltrúar beggja bjóðarbrota i borpinu. Hann kvaðst vona það, að ástandið myndi senn batna í bænum, og lagði á það áherzlu, að forystu- menn Tyrkja í Polis hefðu tek- ið sér vinsamlega. Makaríos kvaðst einnig hafa komið til borpsins Krima, þar sem ó- eirðir hafa orðið undanfarið. Kvaðst hann myndu fara fleiri slíkar ferðir svo fremi þess gerðist þörf. MAKARÍOS Enn berast fréttir af nýjum bardögum á Kýpur. Talsmaður stjórnarinnar lét svo um mælt á miðvikudag, að vopnaðir Tyrk- ir hefðu tekið á sitt vald sem- entsverksmiðju nokkra við þjóð- veginn milli Nikósíu og hafnar- borgarinnar Kyrenia. Komið hefði til átaka og vopnavið- skipta áður en Tyrkjunum hefði tekizt að ná verksmiðjunni á sitt vald, en að því búnu hefðu þeir dregið tyrkneska fánann að hún. Samkvæmt enskum heim- ildum munu Tyrkimir síðar hafa yfirgefið verksmiðjuna. Makaríos á ferSinni Á miðvikudag hélt Makaríos forseti Kýpur, með þyrilvængju til þorpsins Polis, en þar voru um sjö hundruð tyrkneskir Kýpurbúar umkringdir af grísk- um eyjarskeggjum fyrr í vik- unni. Haft er eftir góðum, ensk- um heimildum, að enn haldi Tyrkirnir hópinn og hafist við i skólahúsi þorpsins. f fylgd Hótað stríði Frá Ankara berast þær frétt- ir, að upplysingamalaraðherra landsins hafi látið svo um mælt í dag, að svo framarlega sem Öryggisráðinu takist eKki að finna varanlega, friðsamlega lausn Kýpurdeilunnar, hljóti að koma til ófriðar milli þjóðar- brotanna á eynni. Ráðherrann lét þessi ummæli falla á blaða- mannafundi í dag, og bætti þvi við, að ef svo kynni að fara að Makaríos lokaði dyrum skyn- seminnar yrðu Tyrkir að Ijúka þeim upp með valdi. Deilt á vesturveldin. f dag klukkan 19.15 eftir ísl. tíma hófst framhaldsfundur í öryggisráðinu um Kýpurdeiluna. Nikolai Fedorenko, fulltrúi Sov- étríkjanna, var fyrstur á mæl- endaskrá. Gerði hann harða hríð að vesturveldunum fyrir stefnu þeirra á Kýpur, og sakaði Eng- land og Tyrkland um að reyna að dylja innrásarfyrirætlanir sín- ar bak við Kýpursamninginn frá 1960. Federenko kvað Englend- inga hafa notað ófyrirgefanlegan siðferðisprédikunartón gagnvart Makaríosi og bætti því við, að einstaka vesturveldi virtust eiga furðu létt með að gleyma sinni e'gin fortíð. Fulltrúinn taldi Kýp- urbúa fullfæra um að ráða fram úr málum sínum sjálfir, og Kýp- urdeilan, eins og hún væri nú lögð fyrir öryggisráðið, væri ár- angurinn af erlendri íhlutun. Kýpursamninginn frá 1960 hefði verið reynt að nota til þess að gera eyná að hernaðar- bækistóð Nató. BONN 19/2 — Á þriðjudag var fyrrverandi SS-liðsforingi, Wil- helm Doering að nafni, dæmd- ur í fjögurra ára fangelsi. Hann var sekur fundinn um þátttöku í morði 187 sovétgyðinga í heims- styrjöldinni síðari. Jens Otto Krag er kominn til Moskvu MOSKVD 19/2 — Forsætisráð- herra Danmerkur, Jens Ottc Krag, kom síðari hluta dags ti Moskvu. Forsætisráðherrann e< í níu daga opinberri heimsóki’ f Sovétríkjunum ásamt kom sinni frú Helle Krag. Krústjoff tók á móti Krag r flugvellinum ásamt varaforsætis ráðherrunum Alexei Kosygin Anastas Mikojan og Konstantír Rúdnéff. Hermenn stóðu heiðurs- vörð á vellinum og leiknir voru þjóðsöngvar landanna. 1 móttökuræðu sinni lagði Krústjoff á það áherzlu, að Sov- étríkin vildu halda sem beztu samkomulagi við nágranna sína persónulegur kunningsskapu’- þjóðarleiðtoganna væri mikils- verður til styrktar vináttu op Viðræðuhnduí um hlutleysi Kamhodsju LIBREVILLE 19/2 — Franskar hersveitir börðu í dagf niður bylting/una í Gabon og settu Leon Mba, hinn afsetta forseta landsins, aftur inn í embætti. Herliðið var flutt flugleiðis til Gabon frá Brazze- ville og Dakar síðari hluta dags. Tók það strax á sitt vald mikilvæga staði og byggingar svo sem flugvöllinn í Libreville, útvarpið og helz'tu póst- hús og símstöðvar. Til bardaga kom er Frakkar tóku höfuðborgina á sitt vald, og varð nokkuð mannfall af báðum. Italíuforsetinn fer til Parísar PHNOMPEN 19/2 — Norodom Sihanouk, prins í Kambodsja, fór í dag þess á leit við Banda- ríkin, Thailand og Suður-Víet- nam að þau sendu fulltrúa til viðræðufundar um hlutleysi Kambodsja. 1 fréttatilkynningu, sem send var út af hinni opinberu frétta- stofu í Kambodsja, segir, að prinsinn leggi það til. að und- irritaður verði samningur fjög- urra rikja þess efnis, að Banda- ríkin, Thailand og Suður-Víet- nam ábyrgist hlutleysi og landa- mæri Kambodsja. Kambodsja mun svo hinsveg- ar lýsa yfir fullkomnu hlutleysi, standa fyrir utan öll hemaðar- bandalög og ekki leyfa erlendar herstöðvar í landinu. 1 yfiriýs- ingunni segir ennfremur, að fari svo, að þessi tillaga Kambodsja nái ekki fram að ganga muni heimurinn lýsa sök á hendur Bandaríkjunum, Thailandi og Suður-Víetnam fyrir það. að landið hafi séð sig neytt til að ganga í bandalag við Kínverska alþýðulýðveldið. Eácki er enn kunnugt um við- brögð viðkomandi ríkja við þess- um tilmælum Kambodsja. Eins og menn muna vakti það mikla athygli ekki alls fyrir löngu er Kambodsja frábað sér alla bandaríska efnahags- og hern- aðaraðstoð. Jens Otto Krag samvinnu þjóða í milli og friði í Evrópu. Krag þakkaði fyrir heimboðið og lagði áherzlu á það, að danska stjómin væri ákveðin i þvi að halda hinu góða sam- komulagi við Sovétríkin. Einnig kvað hann Dani myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að styrkja frið í heiminum. Þetta er i annað sinn sem Jens Otto Krag kemur til Sovét- ríkjanna, fyrsta skiptið var 1946, en þá var Krag meðlimur danskrar verzlunarsendinefndar. Fyrirhugað var, að Krag kæmi til Sovétríkjanna í fyrravor, en af því gat ekki orðið sökum þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Dan mörk. E^rsti viðræðufundur þeirra Krústjoffs verður á fimmtudag. Að loknum viðræðunum við Krústjoff mun Krag ferðast um Sovétríkin. Mun hann koma víða við, m.a. til Leningrad og Stal- ingrad. Það var á mánudagskvöld, sem bylting hófst í Gabon og fór hið friðsamlegasta fram, enda varð fátt um vamir hjá stjóm- inni og liðsmönnum hennar. Síðla miðvikudags tilkynnti svo PARlS 19/2 — Þeir Antonio Segni, ítalíuforseti, og Giuseppi Saragat, utanríkisráðherra, komu í dag tii Parísar í f jögurra daga opinbera heimsókn. Þeir félagar komu með flugvél til Parísar, og þegar eftir komu sína hélt Segni tii fundar við de Gaulle, Frakklandsforseta. Ræddust þeir við í þrjá stundarfjórðunga. Samhliða þessu fóru fram við- ræður utanríkisráðherranna, þ.e. Saragat og Maurice Couve de Murville. Á fundi sínum ræddu þeir forsetarnir einkum um það, hvemig styrkja megi fransk- ítalska vináttu og samvinnu. Stjómmálafréttaritarar í París halda því fram, að ekki sé við því að búast að viðræður for- setanna um nánara stjómmála- samband ríkja Efnahagsbanda- lagsins hafi í för með sér nein- ar ákveðnar aðgerðir. í móttökuræðu sinni á Orly- flugvellinum sagði de Gaulle m.a. að Italíuforseti hefði jafn- an unnið að þvi að bæta sam- búð Frakklands og Italíu, og vafalaust myndu þessar viðræð- ur stuðla að nánari og betri útvarpið í Libreville, að upp- reisnin hefði verið barin niður. Það var liðsforingi nokkur í her Gabons, Palar að nafni, sem þetta tilkynnti. Ekki nefndi Pal- ar þessi að franskt herlið væri samvinnu landanna. Segni svar- aði í svipuðum dúr, cg kvaðst sannfærður um það, að góður árangur myndi verða af viðræð- um þeirra kolleganna. Ekki hefu enn verið skýrt nánar frá viðræðum utanríkis- ráðherranna né fundi forset- anna. Lœknar í verkfalli RÓMABORG 19/2 — Yfirlækn- ar við sjúkrahús á ítalíu hófu í dag tveggja daga verkfall til að leggja áherzlu á kröfur sín- ar um endurbætur á sjúkrahús- um landsins, hærri laun og eft- irlaun. Meðan á verkfallinu stend- ur munu yfirlæknamir ekki starfa nema í nauðir reki. Aðr- ir sjúkrahúslæknar munu hefja þriggja daga verkfall í næstu viku. Þá hafa um tvö hundruð þúsund verkamenn í lyfjaiðnaði landsins hafið verkfall, sem standa skál í þrjá daga. komið til landsins. sagði aðeins að vonlaust væri fyrir uppreisn- armenn að sýna mótþróa. Hvatti hann þá til að leggja niður vopn og hét þeim sakaruppgjöf, er það gerðu. I París var það tilkynnt, að herlið Frakka myndi taka að sér að sjá um ró og frið í landinu. Stjómmálakúgun Stjórnmálafréttaritarar í Ga- bon halda því fram, að upp- reisninni hafi það fremur öðru valdið, að Mba forseti hafi kné- sett og kúgað alla pólitíska mót- spymu í landinu. Síðari hluta miðvikudags var allt orðið með kyrrum kjörum í Libreville. Elr Frakkar höfðu náð höfuðstaðn- um á sitt vald og sett Mba aftur inn í embætti hófu þeir þeg- ar að endurskipleggja stjómina. Hefur Jean Aubame verið skip- aður forsætisráðherra í nýrri, tíu manna stjóm. Aubame hef- ur lengi verið þekktur sem and- stæðingur Mba forseta. Varaforsetinn. kærði Embættismenn í París lögðu á það áherzlu í dag, að Frakkar hefðu gripið inn í rás viðburð- anna í Gabon samkvæmt samn- ingi, sem gerður var milli Ga- bon og Frakklands 1961, en þar eru ákvæði um að Frakkar skuli ef þörf gerist halda uppi lög- um og reglu í landinu. Frétta- stofa Reuters skýrir svo frá. að það hafi verið varaforseti lands- ins, Paul-Marie Yembit, sem far- ið hafi þess á leit við stjóm- ina í Frakklandi að hún sendi herlið til landsins. Yembit var ekki staddur í höfuðborginni er uppreisnin varð, og slapp því undan. Hlaut sjálfstæði 1960 Gabon er lítið ríki á vestur- strönd Mið-Afríku. Það laut áður Frökkum, en hlaut sjálfs- forræði 1957. 1958 varð landið meðlimur franska samveldis- ins, og sjálfstæði sitt hlaut það í ágúst 1960. Landið er 267 þús. ferkm. að stærð, íbúar um 500 þús. Franska er hið opinbera mál í landinu. en ýmsar Bantú- málízkur eru talaðar af alþýðu manna. Höfuðborgin er Libre- ville með um 30 þús. íbúa.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.