Þjóðviljinn - 20.02.1964, Qupperneq 5
Finuntudagur 20. febrúar 1964
ÞIÖÐVILIINN
stoA g
Álit heimsmethafans, Valeri Brumels:
ÞAÐ ÞARF 2,20 m. TIL AÐ
SIGRA í HÁSTÖKKI í TOKÍÓ
Sovézka fréttastofan „Novostj Press“ hefur átt
viðtal við Valeri Brumel, heimsmethafa í há-
stökki, í tilefni hins nýbyrjaða olympíuárs.
Fyrsta spurningin var sú
sama og Brumel er langoftast
spurður i hinum fjölmörgu
bréfum sem honum berast: —
Hversvegna viltu iðka hástökk?
— Iþróttafréttamenn kalla
hástökkið nýtízkulegustu og
rómantískustu grein frjálsra i-
þrótta. Ég er alveg sammála
þessu.
— Hversvegna er það ný-
tízkulegt? Vegna þess að kapp-
amir á olympíuleikum fyrri
tíma kepptu ekki i hástökki,
heldur í ýmsum öðrum grein-
um. eins og hlaupum og köst-
um. 'Þegar tímar liðu þá voru
vísindin tekin í þágu íþrótt-
anna og hinar frumstæðu að-
ferðir gömlu Grikkjanna viku
fyrir nútíma tækni. En formið
er ennþá hið sama á íþrótta-
greinum og keppni, enda þótt
betri árangur náist nú vegna
bættra teknískra aðferða og
nýrra þjálfunaraðferða.
— Hástökkið er yngra, og
þar af leiðandi nýtízkulegra, en
hinar gömlu greinar frjálsra
íþrótta.
— Hvers vegna er hástökk
rómantísk íþrótt? Þegar mað-
ur færir hástökksrána stöðugt
hærra og hærra. þá er eins
cg maður sé að vinna bug á
náttúruöflunum, hinum ósýni-
lega krafti sem Newton kall-
aði þyngdarlögmál. Sérhver
sentimetri sem maður vinnur
af þessum máttugu náttúruöfl-
um færir þá sömu sigurgleði
og sérhver annar sigur mann-
legs máttar yfir náttúruöflun-
um.
— Ég ber þakkarhug í
brjósti til þess manns, sem
fann upp röndóttu hástökkssúl-
urnar og silfruðu rána. Ég
hugsaði aldrei um þessa hluti
þegar ég byrjaði að stökkva
hástökk fyrir tæpum tiu árum.
Ég fann bara gleðina yfir því
að stökkva, og ég hef haft
stöðugt vaxandi ánægju af því
síðan.
Ástralíumaður í spilið
Sp: Hvað segirðu um hinn
tvítuga Ástraliumann Anthony
Sneazwell, sem óvænt náði
..geimhæðinni” 2,20 m. f há-
stökki á síðasta ári?
— Það er ekki að ástæðu-
lausu að íþróttafréttaritarar
segja nú að hástökksbaráttan í
Tokíó verði ekki eingöngu milli
sovézkra og bandarískra há-
stökkvara. Sovétmenn, Banda-
ríkjamenn og Ástralíumenn
hafa hverjir sitt hástökkskerfi,
ef svo mætti segja. Eitt kerfið
tekur hinum fram í sumum
atriðum, en er lakara í öðrum,
en í grundvallaratriðum eru
þessi kerfi lík og byggð á til-
raunum og vísindalegum nið-
urstöðum hinna beztu þjálfara
í þessum löndum. Sjálfur byrj-
aði ég í hástökkinu þegar Banda
ríkjamenn voru allsráðandi og
ósigrandi taldir í hástökki. En
allt setn þurfti var nokkurra
ára vinnu sovézkra þjálfara.
og árangurinn kom í Ijós. Það
er. • ekkert eilífti einræði til í.
íþróttum, cg ógerningur að
segja hverjir „taka völdin”
næst. Það er miklu auðveldara
fyrir unga menn að byrja í
Skoblikova líka
heimsmeistari
Lidia Skoblikova, sú
sem sigraði í ölium
greinum skautahlaups
kvenna á olympíuleikj-
unum, varð heims-
meistari í skautahlaupi
kvenna, en heimsmeist-
aramót kvenna fór
fram í Kristinehamn í
Svíþjóð um síðustu
helgi.
Úrslit í einstökum greinum
urðu þessi:
500 m.
Lidia Skoblikova, Sovét, 46-f
sek.
Irina Jegerova, Sovét, 46,2
sek.
Maria Loveler. USA, 46,4
sek.
1500 m.
:.o\a nieð OL-verðlaun.
3000 m.
1. Skoblikova 5.114
2. Voron na 5.12,3 mín.
mín.
1. Skoblikova 2,26,7 mín. 3. Valentina Stenina, Sovét,
2. Voronina, Sovét, 2.28,0 5,14.4 mín.
mín.
3. Mustonen, Finnl.. 2.28,9 Samanlagt:
mín. 1. Lidia Skoblikova 194,450
2. Inga Voronina 196,733
100 m. 3. Tamara Rylova 198,517
1. Skoblikova 1.34,9 min. 4. Kaja Mustonen, Finnl.
2. Inga Vononina, Sovét, 199,750.
1.35,5 mín. 5. Irina Jegerova.
3. Tamara Rylova, Sovét, 6. Pil Hva Han, Norður-
1.36,4 mín. Kóreu.
Þessi myntl er tekin i metstökki Brumels síðastliðið sumar. i
Ilann er að stökkva 2,28 metra.
hástökki nú en fyrir nokkrum
árum. Þeir hafa reynslu heilla
rannsóknastofnanna 'beztu há-
stökkvara til að byggja á.
Sp: Hvaða árangur telurðu
að þurfi til að sigra í hástökki
á olympíuleikunum í ár?
— Ekki minna en 2,20 m.
— Ef til vill kann sumum að
þykja þetta fremur lág tala
miðað við heimsmetið. En í
fyrsta lagi eru heimsmet ekki
sett samkvæmt pöntun, og í
öðru lagi má benda á árangur-
inn á undanförnum olympíu-
leikum. Charles Dumas nægði
2.12 til að sigra í Melboum
1956. Robert Shavlakadze sigr-
aði með 2.16 m. í Róm 1960,
sem þótti afbragðsgóður árang-
ur á þeim tíma. Nú er maður
með 2,16 m. ekki einu sinni
öruggur með bronzverðlaunin.
Nú er 2.20 m. orðin raunhæf
úrslitatala til að ræða um á
plympfuleikum (ef veðrið spill-
ir ekki, eins og stundum vill
verða). Ég er sannfærður um
að baráttan um verðlaunasætin
kemur til með að verða háð
í kringum þessa hæð, og meira
að segja er hugsanlegt að sig-
urvegarinn stökkvi örfáum
sentimetrum hærra. Það er
staðreynd að í dag eru fjórir
hástökkvarar í fullu fjöri i
heiminum, sem stokkið hafa
2.20 m. Það er ekki óhugsandi
að þessi hópur verði orðinn
stærri í haust.
Keppínautarnir
— Ég hef því miður ekki
haft tækifæri til að keppa við
Ástralíumanninn Sneazwell.
Mér er sagt að hann sé ná-
kvæmlega jafnhár og jafnþung-
ur og jafngamall og ég. Sov-
ézki landsþjálfarinn, Korobkov,
sem sá hann stökkva 2,20 m.
segir að margt sé ábótavant við
stökkstil hans. og getur hann
því átt eftir að bæta árangur
sinn verulega. Hann hefur
ekkert keppt við aðra beztu
hástökkvara heimsins, og get-
ur það háð honum nokkuð á
olympíuleikunum, nema hann
hafi því sterkari taugar. En
þarna er áreiðanlega hæfileika-
maður á ferðinni.
— Óneitanlega álít ég mögu-
leika míns gamla vinar, John
Thomas, mun meiri en Ástral-
íumannsins. Þessi reyndi og á-
gæti hástökkvari hefur stóra
möguleika, og hann byrjaði ol- j
ympíuár.ð í baráttuskapi, og
stökk 2.19 m. Bandaríkiamað-
urinn Gene Johnson mun einn-
ig án efa stökkva 2,20 m á ár-
inu, ef hann bætir stökkstíl
sinn.
— Svíinn Kjell-Ake Nilsson
hefur tekið miklum framför-
um undanfarið og stokkið 2,15
metra. Hann gatur orðið skeinu-
hættur í sumar, og landi hans
Stig Petterson veitir honum
stöðugt harða keppni. Kínverj-
inn Ni-Sí-sín, sem stokkið hef-
ur 2,20 m., mun því miður
sennilega ekki keppa í Tokío.
Þar með held ég að séu upp-
taldir helztu erlendu keppi-
nautarnir, en það myndi gleðja
mig mikið ef þessi hópur
stækkaði og breikkaði þegar
fer að líða á árið. Af sovézk-
um hástökkvurum, sem lik-
legir eru, má nefna Viktor
Bolshov, sem stökk 2,15 m. s.l.
sumar og hinn 18 ára gamla
Valeri Skvortsov. sem stökk
2,09 m. Þessa ungu menn vant-
ar fyrst og fremst meiri tækni
og meiri hraða í stökkin. Með-
alstökkhæð 10 efstu manna _á
afrekaskrá Sovétríkjanna 1963
er 2,12 m. Meðal þeirra er
Viktor Slabchuk, sem er 21
árs og stökk 2,11 m., Shavlak-
adse með 2,10 m. og Igor Kas-
karov, sem varð þriðji á OL
1956, og stökk í fyrra 2,10 m.
Heimsmet I ár?
Sp: Hvemig er æfingum
þínum háttað núna?
— Ég æfi fjórum sinnum í
viku. Meirihluti þriggja æfing-
anna fer í þrekæfingar og
stökk með þunga á herðunum.
Einnig æfi ég ^alsvert hraðann
og hleyp úti. Einni æfinguni
er varið til skíðaiðkana. Auk
þessara aðalæfinga eru svo
ýmsar séræfingar.
— Það er alltaf verið að
spyrja mig hvort ég muni gera
tilraun til að setja nýtt heims-
met í sumar. Ég mun taka þátt
í nokkrum stórmótum fyrir Ol-
impíule'kana. Þar ber hæst
landskeppnina við Bandaríkin
í Los Angeles í júlí og sovézka
meistaramótið í ágúst. Ég mun
reyna að gera mitt bezta á
þessum mótum.
Kópavogsbúar! — Kópavogsbúar!
HÖFUM OPNAÐ
rafvélaverkstæði að Melgerði 6. — Önnumst vind-
ingar og viðgerðir á heimilistækjum, nýlagnir húsa
og viðhald raflagna. Ennfremur viðgerðir á raf-
kerfum bifreiða.
RAFNYTING s7f símí 41678.
Grétar Kristjánsson Jón Pétursson.
Körfuknattleikur
Kðrfuknattleiks'
mót skólanna
Körfuknattleiksmót
skólanna hefst sunnu-
daginn 1. marz n.k. kl.
13,30 í íþróttahúsi Há-
skólans. Verzlunarskóli
íslands sér um fram-
kvæmd mótsins í ár.
Keppt verður í tveim flokk-
um karla og einum flokki
kvenna. Skipting í flokkana
er þannig:
1. fl. karla: Háskól'nn,
Menntaskólinn, 4.—6. bekkur,
Verzlunarskólinn, 4.—6. bekk-
ur Kennaraskólinn. 3.—4.
bekkur, Iðnskólinn, 3.—4. bekk-
ur og aðrir hliðstæðir skólar.
2. fl. karla: Allir lægri bekk-
ir fyrrgreindra skóla.
Kvennaflokkur er aðeins
einn sameiginlegur fyrir alla
bekki fyrrgreindra skóla.
Keppnin er útsláttarkeppni.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast fyrir 25. þ. m. til Bene-
dikts Jakobssonar. Með hverri
bátttökutilkynningu fylgi 100
króna gjöld. Allar nánari upp-
lýsingar í síma 10390 frá kl.
10—12 f.h. í íþróttahúsi Há-
skólans.
Dámarafundir
mei K. Knudsen
Danski handknatt-
leiksdómarinn Knuó
Knudsen, sem verður
dómari í landsleikjum
íslendinga og Banda-
ríkjamanna um helg-
ina, heldur hér um-
ræðufundi með hand-
knattleiksdómurum á
vegum dómaranefndar
HSÍ, en formaður henn-
ar er Hannes Þ. Sig-
i
urðsson.
Umræðufundir með danska
handknattleiksdómaranum ■
Knud Knudsen fara fram í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar,
n.k. fimmtudags og föstudags-
kvöld og hefjast kl. 20 bæði
kvöldin.
Einnig er ráðgerður fundiir
á sunnudagsmorgun kl. 10 fyr-
ir hádegi í fimleikasal Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar.
Allir handknattleiksdómarar
í Reykjavík og nágrenni eru
hvattir til þess að sækja þessa
fundi.
Ovæntír olympíumeistarar
Ludmilla Belusova og Olcg Proíopopov urðu fyrst til að hreppa
gullverðlaun á vetrarolympíuleikunum í Innsbruck. Þau hlutu
verðlaun sín fyrir sigur í par-Iisthlaupi á skautum, en í öðru
sæti urðu Marika Kilius og Hans Jiirgen Baumler, Þýzkalandi, en
Þau eru fimmfaldir Evrépumeistarar og margfaldir heimsmeist-
arar í þessari grein. Sigur sovézka parsins kom talsvert á ó-
vart. En þau sýndu mikil tilþrif og fataðist aldrei. Þýzka par-
ið varð hmsvegar fy.-i þvi óláni að hrasa og missti þar með af
gullinu. Á niyndinni =jást sigurvegararnir brosandi með gull-
verðlaunin. __