Þjóðviljinn - 10.04.1964, Side 6

Þjóðviljinn - 10.04.1964, Side 6
ÞJðBVILIINN Fðstudagur 10. apríl 1964 g SlÐA' ■ Vísindaleg rannsókn hefur Ieit+ í Ijós* Húsmóiir með 4 í heimili gengur fimmtán km. á dag og eyðir 10 tímum í húsverkin Rarmsóknarstofnun í Niimberg í Vestur-Þýzkalandi hefur gert ýmsar athuganir á störfum húsmæðra. Valdar voru af handahófi nokkrar húsmæður og gengið á eftir þéim með skeiðklukku allan daginn til þess að mæla hve langan tíma verkin taki. Vísindamennirnir komust að jBeirri niðurstöðu, að verkin væru yfirleitt unnin skipu- lagslaust og mætti spara sér mikinn tíma með því að raða þeim betur niður. Rannsóknin fór fram með þýzkri nákvæmni og var hvert verk tekið sérstaklega fyrir og mælt hve langan tima það taeki: Þveginn 1 bolli ..... 5 sek. Litla bróður haldið á koppn- um 3 minútur. o.sirv. o.s.frv. 38 stig Rannsóknin leiddi ýmislegt markvert í ljós Til dæmis eyð- ir húsmóðir með 4-manna fjðlskyldu tíu tímum í hús- verkin að meðaltali. Ef hún hefur öll nýtízku heimilistæki svo sem sjálfvirka þvottavél og önnur rafmagnstæki, sem spara henni vinnu, getur hún komizt af með 6 tíma. Einnig leiddi rannsóknin til þeirrar niðurstöðu, að húsmóð- urstörfin krefðust meiri tíma og orku af konunni en krafizt mundi ef hún ynni úti — hvort sem það væri í verksmiðju eða á skrifstofu. Á morgnana verð- ur húsmóðir í 4-manna fjöl- skyldu að inna af hendi 38 verk. Hún gengur meir en 15 kílómetra á dag. Og svona mætti lengi telja. Er það nokk- ur furða þótt hún sé þreytt, þegar hún háttar á kvöldin? Skipulagsleysi Það sem vakti þó mesta at- hygli í sambandi við þessa skýrslu var, að flestar konur virðast vinna húsverkin án nokkurs skipulags. Þær æða úr einu í annað og kasta mikl- um tima á glæ með þessu móti. Þetta á sérstaklega við um matargerð, þar sem hægt væri að spara sér 45% af tímanum með góðu skipulagi. Við hrein- gemingu mætti draga 20% tím- ans frá og við uppþvottinn 16. Einnig hafa tilraunir leitt í Ijós, að skynsamleg niðurröð- un verkanna gæti gefið hús- móðurinni frí i nokkra tíma í viðbót. * En þá vaknar sú spuming. hvort hægt sé að skipuleggja verk húsmóðurinnar eins vel og vinnutímann í verksmiðj- unum. Á heimilinu þurfa mál- in að hafa sinn sérstaka gang. Kona, sem vinnur úti á það tii daanis ekki á hættu að þurfa að hætta mitt í störfum sínum og hlaupa nokkur mjög svo ónauðsynleg skref til þess að hjálpa litla bjálfanum. sem valdi óheppilegasta tímann, sem hann gat fundið. til þess að þurfa að pissa. Pólsk rísaskurðgrafa að verki Vélaverksmiðjan í Gliwice í Póiiandi byggði þennan risa. „Skurðgrafan" cr 22 metrar á hæð, 28 metra brcið og getur teygt sig yfir 62 metra. Hún hcfur 3 manna ,,áhöfn“, tvo sem stjórna henni og einn rafvirkja. Þetta er vél sem miklu afkastar. Hún getur fjarlægt 1800 lestir af moldáklukku- tíma. Grafan er mikíð notuð við kolanámur^ þar sem kolin liggja á yfirborði jarðar. Danskur prestur sviptur hempunni? Skammaði kóng og biskup úr stóinum Danska stjórnin hefur undanfarna daga setið á rök- stólum vegna stólræðu, sem flutt var annan páskadag. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem séra Harald Spbye of- býður kirkjumálaráðuneytinu og Kristilega Dagblaðinu. Blaðið krefst þess, að Spbye verði sviptur hempunni hið bráðasta — nú sé mælirinn fullur. Söbye hefur oft staðið uppi i hárinu á yfirmönnum sínum, m.a. hefur hann hvað eftir annað neitað að biðja fyrir konungsfjölskyldunni eins og helgisiðimir krefjast. En aldre: hefur hann þó gengið eins langt og núna á páskunum. Senni- lega hefði honum verið fyrir- gefið ef hann hefði látið við það sitja að hrópa: ,.Niður með konungsvaldið — upp með lýóveldið", en þegar þar við bættist óhróður ua biskup- inn, þótti hann hafa gengið feti of langt. Prestur réðst harkalega á biskup sirin. Leer Andersen í Helsingör, fyrir að hafa á sínum tíma verið á móti því, að hann fengi prest- vígslu. Kallaði hann biskup- inn hrakmenni og fleiri ljót- um nöfnum. Bodil Kock, kirkjumálaráð- herra, hefur beðið Söbye að koma á sinn fund. Séra Söbye sagði blaðamönnum. að hann hefði ekkert á móti því að tala við hana, „en þó með þvi skilyrði, að hún sleppi því í þetta sinn að ráðleggja mér að fara til geðveikralæknis'* Eftir viðræður þeirra verð- ur úr því skorið hvort sér- Söbye fær að halda hempunni Kristilega dagblaðið hefur kraf izt þess í leiðara fyrir nokkr- um dögum, að presti verði vikið úr embætti og var fyr- irsögn greinarinnar: „Mælir- inn er fullur — séra H. Söbye verður að reka“. Páskagangan i Vestur-Þýzkalandi Veslur-þýzka friöarhreyfingin starfaði af miklum dugnaði yfit pátka að undirbúningi pánkagöng- unnar. Var farið um fjölda margar borgir í Vestur-Þýzkalandi til þess að minna menn á gönguna. Myndin er af undirbúningsstarfi hreyfingarinnar. Bretar veita Sovét- ríkjunum stórt lán Brezka stjórnin hefur lýst yfir samþykki sínu til að veita Sovétríkjunum lán til langs tíma, sem nemur 100 miljónum punda. Sovétríkin ku ætla að nota þetta lán til þess að kaupa heilar verksmiðjur af Bretum til fram- leiðslu á gerviþræði, kemískum áburði og teryleneefnum. Það er viðskiptamálaráðu- neytið, sem mun veita Sovét- ríkjunum lánið. Samtimis hóf- ust viðræður milli brezkra og sovézkra fulltrúa um nýjan fimm ára viðskiptasamning. Fyrir skömmu birti sovézka daghlaðið Pravda frétt um það, að fundizt hefðu óhemju- rikar olíunámur og gaslög aust- an við norðurhluta Úralfjalla. Hefur sovézka jarðfræðinga Iöngum grunað, að á þessu svæði væri mikið af olíu, en vegna erfiðra aðstæðna hefur ekki tekizt að finna hana fyrr. Vísindamenn reikna með, að á þessu svæði, Tiumen-hér- aðinu, sé fólginn í jörðu um það bil */a hluti allrar olíu Helmingi meiri viðskipti Heildarviðskiptin milli Sov- étrikjanna og Bretlands námu í fyrra urn 434 miljónum doll- og olíugasa, sem til sé í Sov- étríkjunum. f Tiumen-héraðinu fundust 10 olíulög og 20 gaslög og opn- ast nú geysilegir möguleikar fyrir iðnaðinn í Síberíu og Úral. Efnilegasta olíufélagið er við Tazoff og hið næstbezta við Oktheur, 800 kilómetrum norðvestur af kolanámunum í Kúznetsk. Sagði Pravda, að notkun olíugass við iðnaðinn í Kúz- netsk og stálverksmiðjurnar í Úral muni lækka kostnaðinn ara og sovézkir stjómarerind- rekar segja, að Sovétríkin vilji auka þessi viðskipti til helminga nú á skömmum tíma. Ákvörðun brezku stjómar- innar var tekin í trássi við vilja Bandaríkjanna, Vestur- Þýzkalands og fleiri banda- manna þeirra. Bandaríkja- menn halda því fram, að 5 ára lán frá vesturveldunum til kaupa á nauðsynlegum vélum gæti orðið tii þess að bjarga Sovétríkjunum frá algjöru hruni. Heilar verksmiðjur Sovétríkin hafa í hyggju að verja lánunum til kaupa á verksmiðjum í Bretlandi. Er hér um að ræða verksmiðjur, sem framleiða gerviþráð, kem- ískan áburð og terylenefni. ☆ ☆ ☆ Vlas Klentsoff, forstjóri stofnunar þeirrar í Sovétríkjun- um. sem annast vélainnflutn- ing, segir, að náðst hafi sam- komulag við mörg brezk fyr- irtæki um kaup á heilum verk- smiðjum. Nefndi hann fyrir- tæki eins og Imperial Chemi- cal Industries (ICI) og Court- aulds Ltd. Hengdi sig eftir sjónvarpsdagskrá Tólf ára gamall brezk- ur drengur hengdi *ig eftir að hafa horft á aðalsögu- hetjuna í sjónvarpsdagskrá binda endi á lif *itt með þe*sum hætti. Þes*i úr- »kurður kom frá likskoð- unarnefnd. scm kölluð var á vettvang. Drengurinn horíði á kvikmynd úr „villta vestr- inu“ í sjónvarpi ásamt bróður sínum 8 ára. Þeir voru einir heima daginn eftir og eftir hádegið fór yngri drengurinn út að leika sér með félögum sínum. Eldri bróðirinn hafði fengið þessa kvik- mynd mjög á heilann og mun hafa ætlað að leika hengingaratriðið sjálfur, en svo illa viljað til að kassinn hafi runnið und- an fótum hans. Þegar yngri drengurinn kom heim sá hann bróður sinn hanga í þvottasnúru, sem fest var við háan skáp í stofunni. Oiía, sem lengi var leitað loks fundin um 20%. PLASTBÁTUR Búlgarar hafa nú hafið framleiðslu nlastbáta. Þessi bátur rúmar fjóra mcnn og getur komizt 60 km á klukkustund. Hann var smíðaður í Varra við Svartahaf og cr talið víst að hann verði geysivinsæll næsta sumar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.