Þjóðviljinn - 22.04.1964, Blaðsíða 1
að binda 40% af
sparífé /andsmanna?
Skotíð á
verkamenn
1 fyrradag, laust eftir
hádegi. skaut maður nokk-
ur þremur eða fjórum
skotum að verkamönnum
er voru að vinna í hús-
grunni að Austurbrún 6.
Ekki er ljóst hvort hann
hefur ætlað sér að vinna
mönnunum mein, en mað-
urinn var undir áhrifum
áfengis.
Maðurinn skaut af svöl-
um á fjórðu hæð húss
þama í grenndinni og
sinnti engu þó að skot-
mörkin færu þess á leit
með hrópum og köllum að
hann léti af þessari iðju;
kom seinna í Ijós að skot-
maðurinn var daufdumbur.
Þegar lögreglumenn komu
á vettvang hleypti hann
þeim þegar inn til sín. af-
henti þeim mótþróalaust
22cal. riffil, pakka af skot-
um og auk þess leyfi sitt
til að eiga byssu.
Máhð er í rannsókn.
Bezti afladagur
Akranesbáta
AKRANESI 2174 — Akra-
nesbátar lönduðu hér 450 tonn-
um í gær og er það langbezti
afladagur á vertíðinni. Mestan
afla höfðu Haraldur 70 tonn,
Höfrungur II. 44 tonn, Höfrung-
ur III. 42 tonn, Sigríður 41 og
Heimaskagi 33 tonn. Ofantald-
ir bátar afla allir með þorska-
nót.
□ Ef ég tryði því að raunverulegur tilgangur
með þessu frumvarpi væri að tryggja Seðlabank-
anum fjármagn til að auka lánveitingar til und-
irstöðuatvinnuveganna, skyldi ég hiklaust greiða
atkvæði með því, sagði Lúðvík Jósepsson í neðri
deild Alþingis í gær þar sem frumvarpið um
Seðlabanka íslands var til annarrar umræðu.
■ Sýndi Lúðvík enn fram
á að tilgangurinn með þessu
frumvarpi, sem miðar að því
í fyrsta lagi að hækka bind-
ingu sparifjár í Seðlabank-
anum úr 15—20% í 25% og
hinsvegar að veita bankan-
um einkaleyfi til útgáfu og
sölu á gengistryggðum verð-
bréfum, væri allt annar en
talsmenn þess og þá fyrst og
fremst Gylfi Þ. Gíslason
viðskiptamálaráðherra láta í
veðri vaka.
Benti Lúðvik á að látið væri
að því liggja að þessar ráðstaf-
anir, sem orsaka með öðru ef
þetta frumvarp nær frám að
ganga að 40% af fé landsmanna
verður runverulega bundið í
Seðlabankanum, eigi að auð-
velda Seðlabankanum að veita
rekstrar og afurðlán til undir-
stöðuatvinnuveganna t.d. sjáv-
arútvegs og landbúnaðar og til
eflingar gjaldeyrisvarasjóðum.
Að vísu kemur þetta hvergi
skýrt fram sagði Lúðvík, iðnað-
armálaráðherra felur sig á bak
við óljóst orðalag, en ég skora
á hann og ríkisstjórnina að
koma hreint fram í þessu máli
og játa raunverulegan tilgang
þessara ráðstafana.
Hlutfallsleg lækkun
Lúðvík benti auk þess á að
reynslan af starfsemi Seðla-
bankans sýndi að lánveitingar
hans til undirstöðu atvinnuveg-
anna hefðu, miðað við hækkun
verðlags. farið minnkandi und-
anfarin fjögur viðreisnarár.
Vitnaði hann í skýrslur bank-
ans þar sem segir að síðastlið-
in fjögur ár hafi afurðalán til
atvinnuveganna aukist að krónu-
tölu sem hér segir:
Til sjávarútvegs hafa afurð-
lán hækkað um 127,3 miljónir,
til landbúnaðar um 211,3 milj-
ónir, til iðnaðar um 334,7 milj-
ónir, en til verzlunar um 587.9
miljónir.
Framhald á 3. síðu.
Stjórnín reiSubúin
að ræða við ASÍ
Þjóðviljanum barst j gær eft-'
irfarandi fréttatilkynning frá
ríkisstjórninni:
„Ríkisstjórninni hefur með
bréfi. dags. 17. þ.m., borizt á-
lyktun Alþýðusambands íslands
um kjaramál, en ályktunin var
samþykkt á miðstjórnarfundi
sambandsins 16. þ.m.
í ályktuninni var þess óskað,
„að teknar verði þegar í slað
14DAGAR
upp viðræður milli rikisstjórnar-
innar og verkalýðshreyfingar-
innar um tilraun til stöðvunar
verðbólguþróunar og nm rétt-
látar og óhjákvæmilcgar launa-
og kjarabætur“.
Ríkisstjórnin hefur í dag til-
kynnt forseta Alþýðusambands
íslands, að rikisstjórnin sé
reiðubúin að hefja nú þegar við-
ræður, sem óskað er eftir í á-
lyktuninni“.
Blaðið hefur spurt, að fyrsti
fundur þessara aðila eigi að
hefjast fyrir hádegi í dag.
EFTIR
•jft í dag er síðasti vetrar-
dagur. Við heilsum nýju
sumri á morgun þótt við
höfum haft hálfgert sum-
arveður undanfarnar vik-
ur. Om þcssi kaflaskipti í
árstíðunum vonum við að
sem flestir muni eftir blað-
ínu sínu og líti inn til
okkar í dag. Við höfum
opið frá kl. 9—12 Og 1—6
e.h. að Týsgötu 3 cn á
morgun verður ekki opið.
■+C Þrátt fyrir miklar ann-
ir hjá vertíðarfólki sunn-
an lands og vestan vonum
við að menn líti aðeins
upp úr fiskinum til þess
að senda okkur skil fyrir
5. maí. en þá drögum við
um Volkswagen og 12 aðra
ágæta vinninga sem gott er
að eignast fyrir lítinn pen-
ing ef heppnin er með.
ir 1 dag birtum við nöfn
umboðsmanna okkar í
Rey k j anesk j ördæmi.
Kópavogur: Björn Kristj-
ánsson, Lyngbrekku 14,
Hafnarfjörður: Hjörtur
Gunnarsson. Iláabarði 14,
Ytri Njarðvík: Oddbergur
Eiríksson, Grundarveg 17,
Keflavík: Sigurður Brynj-
ólfsson, Garðaveg 8, Sand-
gerði: Hjörtur B. Helga-
son. Uppsalavegi 6, Mos-
fellssveit: Runólfur Jóns-
son, Reykjalundi.
Harður árekstur
á Laugarásvegi
A tíunda timanum í - gær
kvöld var harður bifreiðaá-
rekstur á Laugarásvegi á móts
við Tómasarhaga. Var sendi-
ferðabifreiðinni R-4884 ekið aft-
an á annan sendiferðabfl, R-3858.
Kastaðist fremri bíllinn á ljósa-
staur og stöðvaðist þar, en aft-
ari bíllinn hentist út af Laug-
arásveginum. 1 aftari bílnum
var einn maður, en maður og
tvær konur f hinum fremri.
Mun önnur konan hafa meiðst
nokkuð i andliti. Bflarnir eru
báðir mikið skemmdir.
VETURÍNN AÐ KVEÐJA
1 dag er síðasti vetrardagur. Veturinn sem nú er að kveðja hefur
verið einmunagóður og hlýindin oft eins og á sumardegi enda blóm
og tré farin að springa út fyrir löngu. Meira að segja páskahretið
fórst fyrir að þessu sinni. Snjór hefur verið sjaldgæf sjón a.m.k.
hér sunnanlands í vetur. Þó kom ofurlítið föl í síðustu viku og þá
er þessi mynd tekin af laufguðu tré þöktu snjó. Fannst okkur til-
valið að kveðja veturinn með þessari fallegu mynd. — (Ljósm.
Þjóðv. A.K.)
Orðsending frá Caroiínusjóði
Eins og að undanfömu mun-
um við hafa kaffiveitingar og
kVöldvöku 1. maí til ágóða fyrir
Carolínusjóð. Þær félagskonur
og aðrir velunnarar félagsins er
vildu styrkja okkur með köku-
gjöfum, eru beðnar að hafa sam-
band við einhverja af eftirtöld-
um konum:
Agnes Magnúsdóttir, sími
32274, Elín Guðmundsdóttir.
15259, Halldóra Kristjánsdóttir,
33586, Margrét Sigurðardóttir,
35501, Sigríður Ólafsdóttir 16799,
Valgerður Gísladóttir, 11995 og
Margrét Ottósdóttir, 17808.
SAMÞYKKIR SKIPAEFTIRLITIÐ
ÓHÆFAR TEIKNINGAR SKIPA?
Á aðalfundi slysavarnar-
deildarinnar Ingólfs í
Reykjavík sem haldinn var
nýlega urðu miklar umræð-
ur um sjóslysamálin og sam-
þykkti fundurinn fjórar til-
lögur varðandi þau mál. Á
fundinum kom fram all-
þung .ádeila á Skipaeftirlit
ríkisins m.a. fyrir að hafa
samþvkkt teikningar og
smíði á nýjum skipum og
leyft bær uppstillingar of-
an þilja er ekki ná neinni
átt.
Það var Henry Hálfdánarson
skrifstofustjóri er hóf umræð-
ur um sjóslysamálin og ræddi
hann fyrst þá vankanta og skort
er væri á eftirliti með öryggis-
útbúnaði smábáta og galla á
skoöunarreglugerðinni í þessu
sambandi.
Þá ræddi hann um öryggis-
mál stærri skipa og lýsti skelf-
ingu sinni yfir þeim atburðum
er átt hafa sér stað á undan-
förnum árum. en á s.l. tveim
árum hafa Islendingar misst 28
skip í rúmsjó en aðeins í sára-
fáum tilfellum hefim mðtt rekja
Framhald á 9. síðu.
Dimission við Menntaskólann í gærdag
i gær fór fram dimission við Ménntaskólann i Reykjavík og var mikið um dýrðir að venju.
Kvöddu stúdentaefnin kennarana með kossi og óku síðan um borgina á vögnum. Á myndinni
sést hópur stúdentaefna fyrir framan Menntaskólann í gærmorgun og er verið aA kalla á
kennarana út. Fleiri myndir frá dimissioninni eru á 12 síðu. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
10DVILIINN
Miðvikudagur 22. apríl '1964 — 29. árgangur — 91. tölublað.