Þjóðviljinn - 24.06.1964, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.06.1964, Blaðsíða 2
2 SIÐA Mðsmimi Miðvík-udagur 24. júrií 1984 Svíþjóð vann tvö- faldan sigur á Norðurlandamótinu Heim- ildarmennirnir Fyrir nokkrum dögum birti fréttastofa ríkisútvarps- ins — samkvsemt hárná- kvæmu mati sínu á „frétta- gildi“ — ýtarlega frásögn um ráðstefnu sem bandalag ís- lenzkra ljósmæðra átti að hafa haldið í Reykjavík, en það bandalag hefur aldrei verið til. Meginefni fréttar- innar var frásögn af ræðu sem nafngreindur Vestur-fs- lendingur átti að hafa haldið á ráðstefnu þessari og kveðj- um sem hann hefði flutt frá félagi íslenzkra Ijósmæðra vestanhafs, en það félag hef- ur raunar aldrei verið til heldur. Síðar um kvöldið skýrði fréttastofan svo frá því að öll þessi frásögn hefði verið uppspuni frá rótum og voru hlutaðeigendur beðnir mikillega afsökunar. Heimildarmenn hinnar upp- haflegu fréttar hafa vafa- laust verið lögreglustjórinn í Reykjavík og menntamála- ráðherrann. Flæktir í vef sínum Keflavikurgöngumenn voru innan við 120 segir lögreglu- stjórinn í Reykjavík. Þeim fækkaði ofan i 60 segir Morg- unblaðið t>eir voru 150 segir Tíminn Þeir voru 153 segir Alþýðublaðið Þeir voru 130 segir Visir. sem telur bá tölu sönnun þess hversu mjög hafi dofnað yfir Sam- tökum hernámsandstæðinga frá fyrri göngum, en sama blað skýrði á sínum tíma frá því að í fyrstu göngunni hefðu aðeins verið 60—70 manns. Þannig rætast enn þau gömlu sannindi að þeir sem vefa lygavef flækjast sjálfir í honum. Annars er það undarlegt að hemámsblöðin skuli ekki vera orðin leið á þessu talna- pexi. Þannig voru til dæmis áratugum saman spunnar upp tölur um allar kröfu- göngur í Reykjavík 1. maí, enda þótt meginhluti bæjar- búa hefði verið sjónarvottur að göngunum. Og eins ganga tölur hernámsblaðanna nú i berhögg við þúsundir vitna. sem óku til móts við gönguna í hundruðum bifreiða á sunnudaginn var eða fylgd- ust með henni í Hafnarfirði. Kópavogi og Reykjavík. Her- námsblöðin flekka aðeins sinn eigin skjöld með tilbún- um og ósamstæðum tölum, en þar var raunar ekki hvitt að velkja Morgunblaðið fylgir máli sinu eftir með því að birta ljósmynd sem tekin er úr flugvéi i mikilli hæð og sýn- ir einkanlega hið hrjóstruga landslag suðurnesja En það ætti naumast að vera nýjung, fyrir nokkurn mann að ísland er stórt i samanburði við mannfólkið Jafnvei þótt all- ir íslendingar gengju Kefla- víkurgöngu með ritstjóra Morgunblaðsins í broddi fylk- ingar yrði það aðeins lítill blettur á mynd. ef nægilega mikið af landinu væri haft í baksýn. — Austri. 63. Stórstúkuþing 63. þing Stórstúku Islands var háð í Oddeyrarskóla á Ak- ureyri dagana 13. til 15. júni síðast liðinn. Þingið sátu rúmlega 60 full- trúar víðsvegar af landinu og var stórtemplar. Ólafur Þ. Kristjánsson, skólastjóri í Hafn- arfirði, í forsæti. Hann hafði tekið við yfirstjórn Reglunnar á Islandi við andlát Benedikts S. Bjarklind, lögfr., í septem- ber s.I. ár. Stórstúkuþingið var háð á Akureyri að þessu sinni til að minnast þess, að þar í bæ var Reglan stofnuð fyrir 80 árum, eins og getið var um í blöðum fyrr á árinu. Á sunnudaginn 14. júní söng séra Birgir Snæbjömsson há- tíðamessu f Matthíasarkirkju, en þingfulltrúar höfðu gengið til kirkju undir fánum Regl- unnar. Gestir þingsins voru dr. Ric- hard Beck, prófessor, og kona hans. Flutti dr. Beck þinginu kveðjur góðtemplara í Vest- urheimi. bæði norskra og ís- lenzkra. Þau hjónin færð’.i Reglunni gjöf í afmælissjóð hennar. Á mánudagskvöld efndi Þing- stúka Akureyrar til hófs í Sjálfstæðishúsinu þar. Meðal gesta í hófinu voru m.a. prest- ar hæjarins, bæjarstjóm Ak- ureyrar og bæjarstjóri, Magnús Guðjónsson, er flutti þar á- varp. Þakkaði hann Reglunni fyrir mikilvæg störf hennar f bæjarfélaginu um 80 ára skeið, og óskaði henni áframhaldandi vaxtar og viðgangs. Ölafur Þ. Kristjánsson flutti minni Regl- unnar og Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri, minni Akureyrar. Hófinu stýrði Stefán Ág Kristjánsson, forstjóri. Þing:ð samþykkti ýmsar á- lyktanir, m. a. þessarr ..Stórstúkuþingið fagnar því, að þeim röddum fjölgar sí- feilt scm mæla gegn áfengis- neyzlu, og minnir á blaða- greinar og útvarpserindi um á- fengisvandamálin, sem vakið hafa athygli og umtal að und- anförnu. Leggur stórstúku- þingið áherzlu á, að lagðar verði með öllu niður vínveit- ingar hjá opinberum stofnun- um og sýni forgöngumenn þjóðarinnar með því einlægan stuðning sinn við málið.” Þingslit fóru fram síðdegis á mánudag, 15. júní. I nýkjör- inni framkvæmdanefnd Stór- stúkunnar eru: Stórtemplar: Ölafur Þ. Kristjánsson, skólastjóri, Hafn- arfirði. Stórkanzlar: Indriði Indriðason, rithöfundur. R- vfk. Stórvaratemplar: Þórhild- ur Hjaltalín, Akureyri. Stór- kapilán: Þóra Jónsdóttir, Siglu- f:rði. Stórritari: Kjartan Öl- afsson, fulltrúi, Kópavogi. Stór- gialdkeri: Jón Hafliðason, fuli- trúi, Reykjavík. Stórgæzlu- maður löggjafarstarfs: Sveinn Helgason, stórkaupmaður, R- vík. Stórgæzlumaður ungl- ingastarfs: Sigurður Gunnars- son. frv. skólastjóri. Reykja- vík. Stórgæzlumaður ungm,- starfs: Gunnar Þorláksson, fulltrúi. Grettisgötu 6, Rvfk. Stórfræðslustjóri: Jón Hjart- ar. Borgamesi. Stórfregnritari: Njáll Þórarinsson, stórkaup- maður, Reykjavík. Fyrrv. Stór- templar: Séra Kristinn Stef- ánsson, Reykjavík. Heiðurs- fulltrúi Stórstúkunnar: Jón ögm. Oddsson. Umboðsmaður hátemplars er Stefán Ág. Kristjánsson, forstjóri, Akur- eyri. (Frá I.O.G.T.) Góðar síldveiði- horfur í Noregi Komið hefur í ljós við rann- sóknir, að allmikil sfld veður við Noregsstrendur næstu árin. Hefur þetta haft í för með sér lánsumsóknir svo miklar, að allir sjóðir eru á þrotum. Svíþjóð vann bæði karla- og kvennaflokkinn á nýafstöðnu Norðurlandamóti í bridge. Sænsku dömurnar báru höfuð og herðar yfir keppinauta sína en karlaliðin unnu nauman sigur frá Dönum, sem voru í öðru sæti. Röð og stig landanna í kvennaflokki voru á þessa leið: 1. Svíþjóð 22 stig 2. Danmörk 13 st'g, 3. Noregur 13 stig, 4. Finnland 8 stig, 5. Island 4 stig; --------------------:----§ Hlaut 9,63 á landsprófínu I vor gengu 23 námsmeyjar undir landspróf í Kvennaskól- anum í Reykjavík. Framhalds- einkunn (6) náðu 22. þar af 16 fyrstu einkunn. Tvær hlutu ágætiseinkunn, Anna Björg Halldórsdóttir, Hafnarfirði, 9,63 — en það er hæsta einkunn sem tekin hefur ver ð á lands- prófi við Kvennaskólann — og Lára H. Maaek, Reykjavík, i 9,48. Islenzka kvennaliðið vann einn leik með 4 vinningsst:gum gegn 2 og var það gegn Finn- landi. Ekki var almennt bú- izt við að þær kæmust úr neðsta sætinu og má ef t:l vill segja að þau 4 stig, sem þær fengu hafi verið óvænt. Röð og stig landana í karla- flokknum var eftirfarandi: 1. Svfþjóð II. 39 st. 2. Danmörk II. 33 — 3. Noregur I. 27 — 4. Danmörk I. 25 — 5. Svíþjóð I. 23 — 6. Noregur II. 22 — 7. ísland II. 20 — 8. Finnland II. 18 — 9. ísland I. 17 — 10. Finnland I. 16 — Urslit: 1. Sviþjóð 62 st. 2. Danmörk 58 — 3. Noregur 49 — 4. ísland 37 — 5. Finnland 34 —. Islenzku sveitimar í karla- flokki hlutu tæp 40% vinn- inga. Hin lélega frammistaða þeirra kom töluvert á óvart. því almennt var þe:m spáð briðia sæti og jafnvel öðru af þeim bjartsýnustu. Næsta Norðurlandamót verð- ur haldið í Reykjavík árið 1966 og verður það fyrsta stórmót í bridge, sem haldið verður hér- lendis. Fyrra sunnudag var 10. sýningin á óperettunni Sardasfurstinnunni í Þjóðleikhúsinu. Ragnar Björnsson stjórnar nú hljómsvcitinni. Hann tók við stjórn hljómsveitarinnar á níundu sýningunni. Að- sókn hefur verið góð og oftast uppselt. Ópercttan veröur aðcins sýnd til 30. þ.m. en þá kemur rússneski ballettinn og verður þá að hætta sýningum á Sardasfurstinnunni. Oft er vandkvæðum bundið að ná í aðgöngumiða á síðustu sýningar og er leikhúsgest- um því vinsamlega bent á að tryggja sér aðgöngumiða tímaniega. Myndin er af Eygló og Erlingi í aðalhlutverkunum. 60 fulltrúar sátu 10 félög fatlaðra 700-800 félagar Sjötta þing Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, var háð á Húsavík dagana 29.—31. maí s.l. Þing:ð var sett í Sam- komuhúsinu föstudaginn 29. maí kl. 10 f.h. Formaður lands- sambandsins, Theodór A. Jóns- son. setti þingið með ræðu. Mættir voru til þings 34 full- trúar frá 8 félögum. Þingforsetar voru kosnir þe r Sigursveinn D. Kristinsson. R- vík og Jón Þór Buch, Húsavík, Þingritarar voru kosnir Sigmar Ó. Marfusson, Reykjavík. Heiðrún Steingrímsdótt’r, Ak- ureyri, Konráð Þorsteinsson Reykjavík og Friðrik Á. Magn- ússon Keflavík. Að lokinni kosningu starfs- manna þingsins flutti formaður same'ginlega skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra. Innan landssambandsins eru 10 fél. með á áttunda hundrað virka félaga og álíka marga styrktarfélaga. Skrifstofa landssambandsins er að Bræðraborgarstíg 9. Til hennar leituðu á síðasta starfs- ári á áttunda hundrað manns, þar af voru beinar fyrirgreiðsl- ur 247. 1 ágúst s.l. var haldinn i Reykjavik stjórnarfundur VNl (Bandalags fatlaðra á Norður- löndum). Sóttu fundinn full- trúar frá öllum Norðurlöndun- um og voru þar rædd ýmis hagsmunamál fatlaðra, Stærsta verkefni er landsam- bandið vinnur að, er undir- búningur að byggingu vinnu- og dvalarheimilis fyrir fatlaða í Reykjavík. Hefur Gísli Hall- dórsson ark'tekt tekið að sér að teikna húsið. A árinu var gefið út og dreift um allt landið kynning- arriti um tilgang og markmið samtakanna. Skuldlaus eign landssarht- ■ bandsins var í árslok kr. 814.610.00. Starfsemi einstakra félags- deilda var mjög góð. Á vegum þeirra eru nú reknar 2 vinnu- stofur. á ísafirði og Siglufirði. Þá munu taka til starfa á þessu ári vinnustofur í Reykjavík og á Akureyri. Félagslíf var mjög mikið hjá deildunum. Meðal samþykkta þingsins voru þessar: Tryggingamál. ,,Að löggjöf verði sett um endurhæfingu öryrkja á grund- velli þess lagafrumvarps, sem mill:þinganefnd hefur lagt fram. (Á vegum Sjálfsbjargar starfaði nefnd, er lagði fyrir þingið drög að lögum um end- urhæfingu öryrkja, eftir danskri fyrirmynd) Að lögin um ríkisfram- færslu sjúkra manna og pr- kumla verði endurskoðuð. Að endurskoðuð verði reglugerð um úthlutun örorkustyrkja frá 27. nóv. 1961. Sérstaklega verði fellt hið óréttláta ákvæði um úthlutun örorkubóta til fatl- aðra húsmæðra, en þeim tryggður sami bótaréttur og öðrum þjóðfélagsþegnum. Að aðstándendur barna með skerta orku, verði tryggð greiðsla á öllum kostnaði, sem af fötlun þeirra le'ðir.” Farartækjamál „1. Að' árlega verði úthlut- að til öryrk.ia allt að 250 bif- reiðum. 4—5 manna. 2. Að öryrkjar hafi frjálst val bifreiðategunda. 3. Að úthlutun bifreiða til öryrkja fari fram samkvæmt reglugerð. 4. Að heimiluð verði endur- veiting á farartækjum til ör- yrkja.” Atvinnu- og félagsmál „Að landssambandsstjórn ráði sjúkraþjálfara, sem geti ferðazt milli þeirra félags- deilda, sem slíkrar þjónustu kynnu að óska. Að kjörin verði milliþinga- nefnd. er kynni sér á hvern hátt húsnæðismál fatlaðra verði bezt leyst og giöri um það raunhæfar tillögur. Að þingið ítreki áskonm til Alþingis að brevta lögunum um Erfðafjársjóð.” Á sunnudag sátu þingfulltrú- ar hádegisverðarboð bæjar- stjórnar Húsavíkur. Bæjar- stjórinn, Áskell E:narsson bauð fulltrúa velkomna, gat um hið merkilega starf sem samtök- in vinna og árnaði þeim allra heilla. Sigursveinn D Krist- insson þakkaði fyrir hönd þing- fulltrúa. Trabant '64 Höfum nokkra nýja bíla, óráðstafaða nú þegar. — Kynnið ykkur skilmála okkar. B í L A V A L Laugavegi 90-92. Síldarsöltunarstúlkur Söltunarstöðina BJÖRG h/f, Raufarhöfn vantar enn nokkrar góðar síldarsöltunar- stúlkur í sumar. FRÍAR FERÐIR FRÍTT HÚSNÆÐI GOTT HÚSNÆÐI KAUPTRYGGING ÓDÝR FÆÐISSALA fyrir þær sem vilja. Fullkominn söltunarbúnaður er léttir og eykur afköstin. — Flokkunarvél — Afla- skip Ieggja upp síld hjá okkur — Upplýs- ingar í síma 36906 og hjá BJÖRG h/f, Raufarhöfn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.