Þjóðviljinn - 24.06.1964, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 24.06.1964, Blaðsíða 12
Fiskoflinn þrjá fyrstu mán. Þjóðvilianum hefur borizt skýrsla frá Fiskifélaginu um afla báta og togara þrjá fyrstu mán- uði þessa árs, og er hér birt það helzta úr henni. Fiskurinn er talinn í tonnum, og í svigum eru sambærilegar tölur frá síð- asta ári: Þorskur ....... 88.607 ( 71.530) Ýsa .......... 17.828 ( 16.590Í TJfsi ........... 8.330 ( 3.166) Langa ........... 2.249 ( 2.784) Steinbítur .... 3.360 ( 6.329) Keila ........... 2.346 ( 3.535) Karfi ........... 3.507 ( 3.987) Síld .......... 64.366 ( 62.420) Loðna ........... 8.640 ( 0) Annar fiskur .. 1.427 ( 1.900) Þrír ættliðir í Kefíavíkurgöngunni Erindi um aðstoð við vanþróuð lönd Samtals ...... 200.650 (172.221) Þar af var bátafiskur 187.085 (156.843) en togarafiskur 13.566 (15.378)., Síldaroflinn um helgina 300 þús. mál í lok siðustu viku va heildar- síldaraflinn orffinn 301.331 mál 6g tunnur en var á sama tíma í fyrra 134.134 mál og tunnur. 295.915 mál hafa farið í bræðslu en 5.422 tunnur í frystingu. Nam vikuaflinn 147.075 málum og tunnum en var í sömu vikti í fyrra 77.484 mál og tunnur. Á miðnaetti sl. laugardag skipt- ist braeðslusíldaraflinn þannig eftir löndunarstöðum: .... 86.374 mál ..i.. 62.447 — .... 41.235 — .... 30.948 — .... 21.162 — .... 18.267 — Reyðarfjörður ....... 13.532 — Húsavík ............... 8.942 — Fáskrúðsfjörður .... 6.950 — Breiðdalsvík .......... 3.953 — Bakkafjörður . 2.105 — Raufarhöfn .. Siglufjörður Vopnafjörður Krossanes Seyðisfjörður Hjalteyri Þessi mynd er tekin í einum áningarstað Keflaví kurgöngunnar og er af þrem ættliðum er þátt tóku í göngunni. Talið frá vinstri: Kristin Thorlacius. Ásl aug Thorlacius, eldri og Áslaug Thorlacius, yngri. Bíleigendur á Siglufirði í stríði við try gging af élögin SIGLUFIRÐI — Mjög mikil óánægja er meðal bifreiða-^ eigenda hér á Siglufirði vegna þess að tryggingagjöld af bílum þeirra hafa hækkað miklum mun meira en annars- staðar á landinu. Á Siglufirði hafa tryggingaið- gjöldin af bifreiðum ekki aðeins hækkað eins og annarsstaðar á landinu, heldur hefur bærinn einnig verið fluttur milli áhættu- svæða, þannig að hækkun bif- reiðatryggingaiðgjaldanna hér nemur 100—115% á sama tíma Lóðaúthlutun í Árbæjarhverfi □ Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt úf- hlutun lóða undir þriggja hæða sambýlishús í Ár- bæjarhverfi, samtals 95 stigahús með 6 íbúðum hvert eða alls fyrir 570 íbúðir. Lóðunum var úthlutað til byggingarsamvinnufélaga, bygg- ingarmeistara, hlutafélaga og einstaklinga. Frestur til greiðslu gatna- gerðargjalds sem er 26 kr. á rúmmetra er settur til i. ágúst nk., og fellur lóðaúthlutunin úr gildi án sérstakrar tilkynningar hafi gjaldið þá ekki verið greitt. Gert er ráð fyrir að afhend- ing mæliblaða að lóðunum geti hafizt eftir 1. ágúst og trúlegt áð bygging á þeim geti ekki hafizt fyrr en í byrjun septem- ber. Óskilamunir að Miósiræti 3 Skrifstofa hernámsandstæð- inga að Mjóstræti 3 er opin daglega frá kl. 14 til 18.30. Nokkrir óskilamunir frá göng- unni eru á skrifstofunni og er göngufólk beðið að athuga um þá. Um leið og forsvarsmenn Keflavíkurgöngu þakka fyrir all an fjárhagsstuðning, sem her- námsandstæðingar hafa veitt samtökunum viljum við benda á að ennþá er tekið á móti fjárframlögum vegna mikils kos'naðar við gönguna og út- gáfu dreifiblaða í sambandi við hana. Listi yfir lóðaúthlutunina verður birtur í blaðinu á morg- un, svo og skilmálar borgar- ráðs. og gjaldahækkunin er um 50 af hundraði annars staðar. Fyrir tveim vikum sendu sigl- firzkir bifreiðaeigendur, eigend- ur rösklega 200 bifreiða. trygg- ingafélögunum í Reykjavík mót- mæli. þar sem þess var krafizt að fyrmefndur flutningur Siglu- fjarðar milli áhœttusvæða yrði ekki framkvæmdur heldur yrði bærinn talinn til sama áhættu- svæðis og áður. Nú hefur það gerzt á málinu, að tryggingafélag eitt á Norður- landi hefur boðið Siglfirðingum verulega lækkun á tryggingaið- gjöldum bifreiða frá því sem fyrirhugað var og fyrr var greint frá. ÞJÓÐVILJANN vantar ungling til blaðburðar í MÚLAHVERFI. Afgreiðslan sími 17-500. Norrænu fiskimálaráðstefn- unni var haldið áfram i gær. Um morguninn heimsóttu þátt- takendur frystihús í Reykjavík, Isbjörninn, frystihús Tryggva Ófeigssonar að Kirkjusandi og frystihús Bæjarútgerðarinnar. Síðan var haldið í Háskólann og þar flutti Jöran Hult for- stjóri frá Svíþjóð íyrirlestur um stofnun þá í Svíþjóð, sem sér um laxarannsóknir. Eftir hádegi flutti Poul Fr. Jensen verkfræð- ingur frá Danmörku fyrirlestur um alþjóðlega stöðlun á fiski og fiskafurðum. Þá var sýnd kvikmynd um fisklirannsóknir við Austur-Grænland, dr. phil. Paul M. Hansen frá Danmörku flutti skýringar. Um kvöldið sátu þátttakendur ráðstefnunn- ar svo veizlu í Hótel Sögu í boði Samtaka fiskframleiðenda Og fiskútflytjenda. ☆ ☆ ☆ í dag, klukkan 10 f. h. heldur Garl Lindskog forstjóri frá Sví- þjóð fyrirlestur í Háskólanum um aðstoð við vanþróuðu lönd- in á sviði fiskveiða. Eftir há- degi er svo þátttakendum boðið í siglingu upp í Hvalfjörð til að skoða hvalstöðina. Ráðstefn- unni lýkur á föstudagskvöld á Þingvöllum. Brœla á miðunum 1 fyrrinótt var stormur a síldarmiðunum fyrir austan og nær ófært veiðiveður á miðunum. Hamravík kastaði þó og fékk sjö hundruð mál. Löndunarbið er á öllum Aust- fjarðarhöfnum svo og á Rauf- arhöfn. Rosafrétt Vísis var alveg tilhæfulaus Vísir birtir í gær yfir þvera forsíðu með stóru letri furðufrétt: ,,1000 ÍBÚÐUM ÚTHLUTAÐ TIL REYKVÍK- INGA I DAG ‘. Enginn minnsti fótur er fyrir fréttinni, en hún heldur áfram í sama dúr og virðist sá sem birtir þannig forsíðu- frétt yfir þvera forsíðu Vísis hafa misskilið gersamlega frétt um lóðaúthlutun borgarráðs í gær, svo hann virðist halda að ÍBÚÐUM hafi verið úthlutað. Og birtir rosafrétt sína auðvitað Reykjavdkurihaldinu til dýrðar. Verður spaugilegt að sjá „leiðréttingar“ blaðsins í dag á þessari einstæðu rosafrétt, sem varla mun eiga sinn líka í íslenzkri blaðamennsku. Framhaldssaga eftir höfund „llngu ljónanna“ Irwin Shaw. Þá er lokið frásögninni um skólastrákana hans Scherfigs og í dag hefst ný og að sjálf- sögðu mjög spennandi fram- haldssaga í blaðinu. Hún er eftir bandarískan höfund, Irwin ShawA, Hann er fæddur árið 1913 í New York, var þar við háskólanám og hefur síðan lagt gjörfa hpijd á margt. Skömmu fyrir stríð fór einkum eitt þeirra, „Fína fólkið", mjög víða, en það er gamanleikur um gangstera. En þekktasfcur er Shaw fyrir stríðssögu sína „Ungu Ijónin" en eftir henni var gerð kvik- mynd sem töluvert umtal vakti. Sagan sem hefst i dag heitir „Tvær viknr í annarri borg“. Hún fjallar um vinsælt efni, Amerikana í útlöndum — að þessu sinni eru þeir settir nið- ur í Rómaborg í tvær vikur og eru þar saman komnir fyrrverandi leikari og svo kvikmyndaframleiðandi og núverandi og fyrrverandi eig- inkonur og margt fólk annað. Og gerast ósköpin öll á þess- um tveim vikum sem sagan stendur. DREGID EFTIR12 DACA í dag eru 12 dagar eftir, þar til dregið verður í 2. flokki Happdrættis Þjóðviljans 1964. Þessa 12 daga verðum við að nota vel og ætfcu þeir sem fengiff hafa senda miða ekki draga það til síðasta dags að gera skil. Blaðið okkar er alltaf 1 fjárþröng og er þvi hver peningur kærkominn, sem inn kemur fyrir selda miða. Gerum myndarlegt á- tak þessa síðustu daga svo að árangurinn af happdrættinu megi verða sem mestur og beztur. Hafið samband við skrifstofu happdrættisins að Týsgötu 3, sími 17514, opin kl. 9—12 og 1—6 e.h. í dag kynnum við svo 5. vinninginn í happdrættinu sem er 21 dags ferð frá Reykjavík um Miinchen til Júgóslavíu. Lagt verður af stað 5. september og flogið til Lúxemborgar, en næsta dag verður haldið til Munch- en og gist þar. — 7. septem- ber verður haldið með lang- ferðabifreið í hálfsmánaðar ferðalag suður til Júgóslavíu. Farið verður um Salsburg til Villach og gist þar en síðan haídið suður Karavankefjöll og Prokorenskarð til hins fræga Alpavatns Bled. Þaðan verður farið um Bosníu með viðkomu í Banja Luka og Jajece til Sarajevo en þangað verður komið á þriðja degi ferðarinnar. Frá Sarajevo verður svo haldið með fram Neretaánni til Mostar og að lokum til Dubrovnik sem nefnd hefur verið „peria Adríahafsins*1 Þar verður dvalizt í 4 daga og farnar stuttar ferðir um nágrennið og verið á baðströndinni. Far- ið verður í stuttar ferðir til Kotorflóa, Lovcenfjalls, Split- eyju, Salona. Plitvicevatns og hinir frægu Postojnahellar skoðaðir. Frá Spliteyju verður haldið til Zafar, Opatija, Bled, Gostein og Miinchen, en þang- að verður komið á 15. degi ferðarinnar þann 21. septem- ber. Heimleiðis verður flogið frá Luxemborg 24. eða 25. september. ■Júgóslavía er nú orðin eitt- hvert vinsælasta ferðamanna- land Evrópu, og fá eða engin Evópulönd munu verða ódýr- ari að ferðast um auk þess sem landið hefur upp á að bjóða marga mjög fagra og sérkennilega staði og frægar baðstrendur. mommiiNN Miðvikudagur 24. júní 1964 — 29. árgangur — 138. tölublað. Frá norrænu fiskimálaráðstefnunni

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.