Þjóðviljinn - 24.06.1964, Blaðsíða 6
w
g SlÐA
ÞIÓÐVILJINN
Miðvilqudagur 24. júní 1964
Eins og kunnugt er af fréttum var blökkumannaleiðtoginn Martin Luther King settur í fang-
elsi ekki alls fyrir löngu cr hann leitaði inngöngu í veitingahús eitt, sem eingöngu er ættað
hvítum mönnum. Áður hafði King taiað tii mótmælagöngu scm taldi um 500 manns. Á l»á göngu
var ráðizt af hvitum ofstækismönnum, lögreglan beitti táragasi til að stilla til friðar cn bcindi
skeytum sínum einkum að blökkumönnununm. — Á myndinni sjáum við Martin Luther King í
St. Augustine skömmu áður en hinir hvitu ofsatrúarmenn réðust á gönguna. — Það er kald-
hæðni örlaganna að rétt í þann mund og Luther King slapp úr fangelsinu skyldi hann gerður
heiðursdoktor við einn virtasta háskóla Bandarikjanna.
Rafheili telur af og frá að
Bacon sé Shakespearehöf.
Spumingin um það, hvort
verk þau, sem eignuð eru Wíll-
iam Shakespeare, hafi í raun
og veru verið skrifuð af Fraanc-
is Bacon, er enn, eftir guð má
.vita,, hvað langt þvarg, alltaf
jafn æsispennandi fyrir Eng-
lendinga. Þegar haldið var há-
tíðlegt 400 ára afmæli skáld-
jöfursins fyrir skömmu, upp-
hófst deila um mikla fjárupp-
hæð, sem ánöfnuð var áhang-
endum Bacon-kenningarinnar.
720 þúsund krónur
Hæstiréttur Lundúna hefur
nú kveðið upp þann úrskurð.
ef urskurð skyldi kalla, að á
þessu stigi málsins geti hann
ekki tekið afstöðu til þess,
hvort gild sé sú ákvörðun frú
Evelyn May Hopkins, að á-
nafna í erfðaskrá sinni Xhe
Francis Bacon Society upphæð,
sem nemur 720 þúsund íslenzk-
ra króna.
„Gömul handrit”.
Hin látna æskti þess, að
peningunum yrði varið til þess
að styðja félagið í leit sinni
OAS-morð-
ineji fékk
15 ór
Þegar Edmond Jouhaud,
fyrrum hershcfðingi og foringi
fyrir OAS, var tekinn til fanga
í hermdarverkahríðinni í Oran
fyrir tveim árum, þá námu
fjórir hálfóðir Evrópubúar á
brott „kommúnistískt þenkj-
andi” konu, pyntuðu hana en
drápu síðan og skildu líkið
eftir í poka.
Einn hinna fjögurra; og sá
e:ni þeirra, sem náðst hefur.
hefur nú verið dæmdur í 15
ára fangelsi.
Konan sem myrt var hét Je-
anne Tarlao, og var henni gef-
ið að sök að hafa framselt Jou-
haud í hendur lögreglunnar.
Sannleikurinn var hins vegar
sá, að hún hafði hvergi nærri
komið. Eigi að síður var hún
numin á brott af óaldarlýð
OAS, með fyrrgreindum afleið-
ingum. Sá heitir Lucien Besse,
sem dæmdur var.
Wllliam Shakespeare
að „nokkrum gömlum hand-
ritum”. sem að sögn þeirra
Bacons-liða muni „sýna það
svo ekki verði um villzt, að
Shakespeare hafi verið bæði
ólæs og óskrifandi og að Bac-
on sé höfundur mest metnu leik-
rita heimsbókmenntanna”.
Ættíngjar á stjá.
En nánir ættingjar irú Hop-
kins höfðu sem betur fer eða
því miður ekki jafn brennandi
áhuga á þessu heillandi vanda-
máli. Þeir vilja því fá erfða-
skrána lýsta ógilda og halda
því fram, að maður eða kona
sem verji öllum sínum eignum
til slíkra hluta geti tæpast
verið með öllum mjalla.
En Hasstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu, að vanda-
málið væri sér um megn og
neitaði að taka nokkra afstöðu.
Stærðfræðin til hjálpar.
Nú hefur hinsvegar enskur
stærðfræðiprófessor komið
Hopkins-fjölskyldunni til hjálp-
ar. Prófessorinn heitir Norman
Thoma« og fyrir skömmu til-
kynnti hann það hátíðlega, að
með aðstoð elektrónískra ár-
talavélar sé hann búinn að
sanna það, að Francis Bacon
geti ekki hafa skrifaö leikrit
Shakespeares. Þó neyddist pró-
fessorinn til að viðurkenna það,
að furðuvélin sé ekki fær um
að svara því, hvort öruggt sé
á hinn bóginn að Shakespeare
hafi eftir allt saman skrifað
Shakespeare.
Með þessari sömu vél ,.sann-
Francis Bacon
aði” enskur vísindamaður, í
það skipti guðfræðingur, i
fyrra, að Páll postuli hafi ekki
skrifað nema fimm af þeim
bréfum, sem honum eru eign-
uð í heilagri ritningu.
Aðferðin.
Prófessor Thomas skýrir svo
frá, að aðferðin við þessa á-
kvörðun sé í því fólgin að
mata rafmagnsheilann á ýmis-
konar smáorðum og rannsaka
síðan stöðu þeirra og hve oft
þau hittast í textanum. Not-
kun slíkra smáorða telur
prófessorinn fremur vera ómeð-
vitaða en að yfirlögðu ráði.
Munurinn sé hins vegar svo
mikill á verkum þeirra „skáld-
bræðranna” Shakespeares og
Bacons, að útilokað sé að um
sama mann sé að ræða. Af
einstökum atrðum nefnir pró-
fe3sorinn það. að ,,höfundur
rita Shakespeares” notar orðið
,,on” átta sinnum oftar en
Bacon.
<Þ-
Aðeins einn
Beaverbrook
LONDGN — Max Aitken, son-
ur blaðakonungsins nýlátna,
Beaverbrooke lávarðar, lét svo
ummælt ekki alls fyrir löngu.
að hann afþakki titil föður
síns. — 1 mínu lífi skal aðeins
vera einn Beaverbrook lávarð-
ur, sagði Aitken.
Fundin lögregluskýrsla um
dvöl Leníns í Svíþjóð 1906
Rétt fyrir heimsókn Krústj- kallaði sig Ivan Petroff. Lenin sagði í þessari dvöl, að
ofs tii Svíþjóðar uppgötvaðist 1 skýrslunni segir meðal hann yrffi án efa sendnr til
skýrsla um heimsókn Leníns annars, aff Lenín hafi verið Síberíu ef til hans næðist.
til Stokkhólms árið 1906. Var sannfærffur sósialdemókrati og Skýrsla þessi, sem hefur ver-
hann á flótta undan ofsókn- verið áróffursmaður £ Mo«kvu ið hulin sjónum manna í naest-
armönnum í Rússlandi og og skrifaff sósíaliska leiðara. um 60 ár, fannst í lögreglu-
' skjölum, og var það dr. Stehn
Víetkong beitir
dönskum byssum
Prófessor Bernard B. Fall,
franskur sérfræðingilr, sem
rannsakað hefur stjómmál í
Víetnam síðustu tólf ár, og
heldur nú fyrirlestra um al-
þjóðastjórnmál við Howard-
háskólann í Washington, held-
ur því fram, að hersveitir Ví-
etkong beiti dönskum Madsen-
vélbyssum,
Prófessor Fall slær því föstu,
að stórlegá hafi verið ýktar
fréttir frá Washington og öðr-
um aðalstöðvum vesturveld-
anna um kínverska og sovézka
hjálp til hersveita Víetkong.
En þó að sovézk eða kín-
versk vopn finnist hjá herjum^
Víetkong sannar það ekki
neitt. Mestur hluti þessara
vopna kemur frá Laos.
— Og sú staðreynd, segir
frófessorinn, að nokkrar prýði-
legar Madsen-vélbyssur, fram-
leiddar af félaga okkar í At-
lanzhafebandalaginu, Dan-
mörku, sannar það ekki í sjálfu
Hnefaleik-
arar sólast
LONDON — Þrir atvinnumenn
í hnefaleik létust í gær eftir
að haf hlotið þung högg i
keppni.
Á sjúkrahúsi i London lézt
Lyn Jones, tvitugur að aldri,
sex tímum eftir að hann hafði
verið sleginn í sjöttu og síð-
ustu lotu af Colin Lake.
1 Manilla dó næstum sam-
tímis Rey Romero, sem legið
hafði meðvitundarlaus á
sjúkrahúsi síðan á aðfaranótt
laugardagsins.
Og í Tasmaníu lézt 18 ára
gamall maður, sem tók þátt í
keppni, skipulagðri af æsku-
lýðsfélagi nokkru. Veiktist
hann skyndilega er hann kom
til búningsherbergisins og við
læknisskoðun kom í ljós að
hann hafði hlotið slæmar
heilaskaddanir.
sér að Danmörk styffji komm-
únistana í Víetnam. Þetta þýð-
ir aðeins einfaldlega það, að
vopnakaupménn eiga enga
þjóðemistilfinningu, til né frá.
Sú staðreynd. sem prófessor
Fall svíður mest í augum, er
það, að nfu tíunduhlutar af
öllum vopnum Víetkong skuli
vera bandarísk vopn sem tek-
in hafa verið af herjum stjóm-
arinnar. Það er. segir prófess-
orinn að lokum. auðveldara fyr-
ir Víetkong að hertaka vopn
og skotfæri frá stjómarherj-
unum en fá sovézk og kínversk
vopn frá Hanoi.
Vísindalegt
guðleysi"
MOSKVU — Tass-fréttastofan
hefur skýrt svo frá, að komið
hafi verið á fót í Moskvu
rannsóknarstofnun fyrir vís-
indalegt guðleysi. Verður
stofnunín tengd akademíu
þjóðfélagsvísinda þar i borg og
til hennar vandað í hvívetna.
Síðasti kolafarm-
urinn sóttur til
Svalbarða
Flutningabátur flutti nýver-
ið síðasta kolafarminn frá
Svalbarða og bíður nú hópur
fólks eftir að fá að fara heim
til Noregs vegna yfirvofandi
atvinnuleysis.
Eftir að flutningunum er
lokið frá staðnum verða settir
vaktmenn á staðinn og verður
þá öðruvisi um að litast en
áður. þegar kol voru unnin
þar í sem ríkustum mæli
Telur sér nú 694 kjörmenn
WASHINGTON 22/6 — Fjórtán fulltrúar Repúblikana í ríkinu
Montana tilkynntu það á föstudagskvöld, aA þeir muni styðja
Barry Goldwater á flokksþinginu 13. júlí. Tclur Goldwater sér
nú vísa 694 kjörmenn. Þó er á það bent, að af þeim hafi aðeins
118 lýst því formlega yfir, að þeir styóji hann til forsetafram-
boðs. — Myndin er tekin af Goldwater í hópi áhangenda sinna
þcgar hann kom til Los Angeles skömmu fyrir prófkosninguna
frægu.
Dahl' sem fann hana. Er álit-
ið að Lenín hafi komið fimm
sinnum til Sviþjóðar á tfmabil-
inu 1905 — 1917, en hingað til
hafa engar upplýsingar fundizt
um þessar heimsóknir svo
góðar sem skýrsla þessi. Mun
þama hafa verið launsamkoma
kommúnista. Annar útsendari
á slika samkomu var Jósep
nokkur Stalín og hafði hann
einnig dulnefni. En hann var
sendur úr landi af Stokkhólms-
lögreglunni eftir einnar nætur
dvöl í tugthúsi, að því er
skýrslan greinir.
Þess má geta í þessu sam-
bandi að forystumenn sænsku
verkalýðshreyfingarinnar höfðu
á þessum tíma mjög náið sam-
starf við bolsjevikkana rússn-
esku og var Branting forystu-
maður um það samstarf.
Lögregluútboð
PRETORIA 22/6 — Allt
lögreglulið í Suður-Afriku
hefur verið kvatt saman
og öll leyfi hafa verið aft-
urkölluð. Ástæðan fyrir
þessu eru skemmdarverk
sam framin hafa verið und-
anfama daga. Það er dag-
blaðið Die Transvaler, sem
frá þessu skýrir 1 dag og
bætir við, að lögreglan sé
nú reiðubúin að mæta
hverju sem að höndum
kunni að bera.
Flóð í Nepal
NEW Dehli 2176 — Meir en
fimmtíu manns eru sagðir
hafa látið líf sitt í miklum
flóðum undanfarið í aust-
urhluta Nepal. Fjöldi
manns hefur misst heimili
sín og mikið eignatjón
hefur orðið, einnig hefur
fjöldinn allur af húsdýrum
drukknað. Mikill matar-
skortur ríkir nú í héraðinu.
Orusta við Víetkong
SAIGON 2276 — Haft er
eftir góðum heimildum í
Saigon að 20 fallhlífarher-
menn úr her stjómarinnar
hafi fallið og 72 særzt í
viðureign við skæruliða
Víetkong í dag. Það fylgir
sögunni, að eitthvað af
mannfallinu sé af völdum
stjórnarhersins sjálfs þar
eð fallhlífahermönnunum
hafi ekki tekizt að koma
sér undan áður en flugvél-
ar stjórnarhersins hófu
skothríð sína.
Víetkong á hinsvegar að
hafa misst 12 manns, en 3
eru sagðir hafa verið tekn-
ir höndum.
Kappakstur að slysi
LE MANS 22/6 — Þrír á-
horfendur létu lífið á laug-
ardag á kappakstursbraut-
inni í Le Mans, þegar á
rákust tveir bílar af gerð-
inni Ferrari og Cobra.
i
i