Þjóðviljinn - 28.06.1964, Blaðsíða 1
Af efni SUNNUDAGS,
fylgirits Þjóðviljans í
dag, skal jjetta ntfnt:
■ Hve marga miljónatugi
græddi sjávarútvegurinn
á starfi sérfraeðings Bún-
aðardeildarinnar? — við-
tal við Geir Gígja skor-
dýrafræðing.
Erfitt slökkvi-
starf í Hampiðj-
unni í fyrrinótt
■ í fyrrinótt kom upp eldur í Hampiðjunni, og logaði
þar í efnisbirgðum verksmiðjunnar. Slökkviliðið var enn
á staðnum er Þjóðviljinn fór í prentun 1 gær, og vann
að því að ná hampböllum út úr verksmiðjunni.
■ Flogið til Angmagsalik —
grein með myndum eftir
Björn Þorsteinsson sagn-
fræðing.
■ Kapp er bezt með forsjá
— frásögn eftir Magnús
Jóhannsson frá Hafnar-
nesi.
■ Áður en jörðin var* til
— þýdd grein.
■ íslenzkur sigur er fyrir-
sögn sunnudagspistilsins.
■ Ennfremur: Bridgeþáttur,
krossgáta, verðlaunaget-
raun, Bidstrup-myndir og
fleira.
Þá fylgir og barnablaðið
ÓSKASTUNDIN blaðinu í
dag, fjörlegt og fjölbreytt
að efni.
Um kl. 1 í fyrrinótt voru lög-
reglumenn á eftirlitsferð í bíl í
austurbænum, þeir veittu þv'í at-
hygli að reyk lagði út úr birgða-
geymslu hampiðjunnar við Stakk-
holt. Er slökkviliðið kom á vett-
vang var þar mikill eldur laus,
en því tókst fljótlega að hefta
útbreiðslu hans. Erfitt reyndist
hinsvegar að slökkva í efnis-
sending af hampböllum, sem
vega um 300 kg hver, svo að
slökkviliðið varð að fá lyftara
til að koma þe'm út úr húsinu,
því að öðru vísi var ekki hægt
að komast fyrir eldinn svo ör-
uggt væri. Þetta var mikið
verk og tafsamt og vann slökkvi-
liðið að því alla nóttina og
langt fram á dag. Þegar Þjóð-
viljinn fór í prentun í gær var
slökkviliðið enn að störfum með
þrjá bíla á staðnum og eina
dælu. Litlar skemmdir urðu á
húsinu sjálfu og vélum. Elds-
upptök eru ókunn, en unnið var
við móttöku efnis til kl. 7 f
fyrrakvöld.
Síðasti dagur
myndlistar-
sýningar
Mjög mikil aðsókn hefur
verið að mynd V ttarsýning-
unni í Listasafni ríkisins, en
litssýning þessi var sem
kunnugt er opnuð í upphafi
listahátíðar Bandalags ís-
lenkra listamanna á dögun-
Iforu upptök jarð-
skjálftans í Rvík?
•k Samkvæmt upplýsingum Flosa Sigurðssonar veðurfræðinggs
sýndu jarðskjálftamælar Veðurstofunnar í Reykjavík jarðhræringar
um kl. 21.45 í fyrrakvöld en þá fannst greinilegur kippur víða í
Austurbænum, einkum í Laugarnesi og Kleppsholti.
★ f fyrstu var talið að þama héfði verið um að ræða jarðhrær-
ingar er átt hefðu upptök sín í Reykjavík eða nágrenni og þess
vegna hefði kippurinn fundizt svo vel þótt hann mældist veikur.
um. í dag, sunnudag, er síð-
asti sýningardagurinn og
verður sýningin opin kl. 1.30
til 10 síðdegis.
★ Það kom hins vegar í ljós í gær, að um sama leyti og kippurinn
fannst mun hafa orðið mikil sprenging í grjótnámi Reykjavíkur-
borgar við Elliðaárvog, m.a. hringdi fólk í nágrenni við grjótnámið
til lögreglunnar um kl. 21.50 í fyrrakvöld og kvartaði yfir ónæði af
völdum mikillar sprengingar þar. Er jafnvel talið, að sprengingin
kunni að hafa orsakað þessar hræringar. Blaðinu tókst hins veg-
ar ekki að afla sér upplýsinga um það í gær áður en það fór í
prentun hvemig á þessari miklu sprengingu hefur staðið.
Fjölbreytt blómasýning var
opnuð i Listamannaskálanum í
Reykjavík síðdegis í gær. Sýna
þar nokkrir garðyrkjubændur í
Hveragerði og Mosfellssveit, en
einnig hafa blómaverzlanirnar í
Reykjavík sérstakar sýningar-
deildir.
HARALDS SAGA HARÐRAÐA I MYND-
UM HEFST í ÞJÓÐVILJANUM í DAG
Athygli lesenda skal sérstaklega vakin á íslenzku myndasögunni, sem
byrjað verður að birta hér í blaðinu í dag — á 7. síðu. — Þessum línum
fylgir fyrsta myndin í sögunni, Haralds sögu harðráða, og listamaðurinn
sem teikningarnar gesði, Kjartan Guðjónsson.
SVARTUR MARKAÐ-
UR OG BIÐRAÐIR
Biðraðirnar blasa við fyrir framan
alla banka borgarinnar
■ Stundum hæla stjórn-
arblöðin sér af því að við-
reisnarstjómin hafi af-
numið biéraðir á íslandi
og vísa þá einatt til bið-
ráðaáranna þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn voru áður
í stjóm undir forustu Stef-
áns Jóhanns. En biðrað-
ir hafa sannarlega ekki
verið lagðar niður; þær
blasa við fyrirframan alla
banka borgarinnar á
hverjum einasta morgni,
eins og myndirnar sýna.
í bönkunum hefur verið
á boðstólum sú vöruteg-
und, sem eftirsóknarverð-
ust hefur verið á verð-
bólgutímum, þegar hægt
var að borga lán með sí-
minnkandi krónum.
■ Óbreyttum borgurum
sem til dæmis hafa þurft
á láni að halda til að koma
sér upp þaki yfir höf-
uðið hefur einatt gengið
mjög erfiðlega að fá úr-
lausn í bönkunum, en
hverskonar spákaupmenn
virðast hafa notið hins
mesta trausts, eins og ný-
leg dæmi sanna, oft án
þess að legg'ja fram lág-
markstryggingu.
■ Þegar bankamir neita
hefur það orðið þrauta-
lendingin fyrir marga að
kaupa peninga á svörtum
markaði. Þeir peningar
sem þar em seldir munu
þó yfirleitt einnig komn-
ir úr bönkunum — eftir
annarlegum krókaleiðum.
Skorað á Joknson forseta
ai taka völd í Mississippi
Velta Loftleiða 475 milj. kr. 1963
Sætanýtingin var
nær 80% á sl. ári
■ Á aðalfundi Loftleiða sem haldinn var fyrir helgina
kom það m.a. fram í skýrslu framkvæmdastjóra félagsins,
Alfreðs Elíassonar, að veltuaukning félagsins á sl. ári
varð 15%. Jókst veltan úr 415 milj. kr. í 475 milj. kr.
WASHINGTON 27/6 — Stúd-®
entarnir þrír sem hurfu frá
Mississippi á sunnudaginn
eru ófundnir enn. Mannrétt-
indasamband blökkumanna
(NAACP) hefur farið þess
á leit við Johnson forseta að
hann taki öll völd af fylkis-
stjórninni í Mississippi.
Formaður sambandsins, Roy
Wilkins, segir að ef það verði
ekki gert verði lífi manna í
Mississippi stofnað í bráða hættu.
Sambandið ætlar að senda
nefnd manna til fylkisins að at-
huga hvort leitinni að stúdentun-
um hafi verið stjórnað með þeim
hætti sem æskilegast hefði verið.
Fylkisstjórin, Paul Johnson,
hvatti bændur í norður- og mið-i
hluta Mississippi til að taka þátt
í leitinni að stúdentunum. John-
son fylkisstjóri taldi það nokk-
urn veginn víst að stúdentamir
myndu finnast, en bætti því við
að það yrði líklega ekki fyrir
sinn dag.
Dregið eftir 8 daga
Allt sl. ár höfðu Loftleiðir í
notkun 5 flugvélar af gerðinni
DC-6B og var sætanýting hjá
félaginu 77.9% en var 77.8% ár-
ið áður. Heildar flugstundafjöldi
flugvéla félagsins varð 17.933
auk 289 stunda með leiguvélum.
Var meðalflugstundanýting á sól-
arhring 10 tímar á vél eða svip-
uð og árið áður. Alls voru
flognar 7 miljónir km.
Á árinu fluttu vélar félagsins
83.807 farþega á öllum flugleið-
um félagsins og er það 7.8%
aukning frá árinu áður.
Félagið skilaði bönkunum rúm-
um 95 milj. króna í gjaldeyri á
árinu en þurfti hins vegar ekki
á neinni yfirfærslu að halda.
Þá ákvað stjórn félagsins á
árinu að festa kaup á tveim
flugvélum af gerðin"' °T U og
er verð þeirra 400 'rr, Er
fyrri vélin þegar k^ ' ’ands-
ins og hefur ver’ð ‘rkin í not-
kun.
»
*
1