Þjóðviljinn - 28.06.1964, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 28.06.1964, Blaðsíða 12
8 dagar eftir Gerið skil í dag birtum við fyrsta yf- irlitið yfir samkeppni deild- anna í Reykjavík, héraða og kaupstaða úti á landi. Allar deildir í Reykjavik nema 14. deild eru komnar á blað og margar allvel. Öll kjördæmin eru sömuleiðis komin á blað, og kaupstaðirnir eru allir komnir nema Siglufjörður, Neskaupstaður og Akureyri, en vonandi heyrum við frá þeim bráðlega. Aðrir eru tald- ir með í kjördæmunum. Það er ekki eins góð útkoma og var fyrir síðasta drátt á sama tíma, en ef til vill stendur það eitthvað í sam- bandi við fjarvistir fólks úr bænum. Við viljum biðja þá sem hugsa sér að fara úr bænum næstu daga að gleyma ekki að gera upp við okkur áður. Þá sem eru úti á landi viljum við minna á umboðs- menn okkar þar. Þeir eru þeir sömu í flestum tilfell- um og i siðasta happdrætti og munum við birta nöfn þeirra næstu daga, þ.e. þeirra sem við ekki höfum þegar birt. Þá viljum við vekja at- hygli utanbæjarmanna á að hægt er sömuleiðis að gera upp miðana með því að póst- leggja skil fyrir þá til okkar Utanáskriftin er: Happdrætti Þjóðviljans, Týsgata 3. Rvík. Við birtum þá samkeppn- ina: 1. 13. deild. Herskólahv. 50% 5. deild, Norðurmýri 33% r 15. deild, Smálönd 30% 4. 10. b. — Vogar 26% 5. 1. dcild, Vesturbær 25% 6. 4. a. — Þingholt 24% 7. 12. deild. Sogamýri 22% 8. 4. b. — Skuggahv. 20% 9. 7. deild, Rauðarárh. 20% 10. 8. a. — Teisrar 18% 11. 6. deild, Hlíðar 15% 12. 11. deild, Skerjafj. 11% 14. 2. deild, Skjólin 10% 15. Hafnarfjörður 10% 16. Norðurland vestra 10% 17. Suðurland 10% 18. Vesturland 10% 19. Reykjaneskjördæmi 9% 20. 9. deild. Lækir 7% 21. 8. b. — Lækir 7% 22. Kópavogur 7% 23. 10. a. — Heimar 5% 24. Austurlanfl 5% 25. Norðurland eystra 5% 26. Vestfirðir 5% 27. Vestmannaeyjar 1% Herðum sóknina. Gerið skil Opið á morgun frá kl. 9—12 og 1—6. — Afgreiðslan er á Týsgötu 3. Flýtir Varðar- ferðin ffyrir vegarSapin^n? Þelr sem leið hafa átt um Lyngdalsheiði undanfarnar vikur hafa vafalaust tekið eftir við- vörunarskiltum við veginn. þar sem leyfilegur hámarksþungi bif- reiða, sem um veginn fara, má ekki fara fram úr 2 tonnum. Á föstudaginn brá hinsvegar svo við, að kominn var stór vinnuflokkur með öflugar vélar á vettvang og hafin var lagfær- ing á þessum vegi, scm löngum hefur verið illur yfirferðar en mörgum þykir þó gaman að aka um. Þessa framtaksemi í sambandi við Lyngdalsheiðarveg settu sum- ir í samband við hónferð eina sem efnt verður til í dag um bessar slóðir. Það er bópfcrð Varðar. félags Sjálfstæðismanna I Reykjavík. Mikill fögnuður í íslenzkum herbúðum Það var ánægja ríkjandi og mikið um handabönd í herbúðum fslendinga, eftir fyrsta Ieikkvöld Norðurlandameistaramóts kvenna í fyrrakvöld. A myndnni sjást íslenzku landsliðsstúlkurnar um- kringja Asbjörn Sigurjónsson, formann HSÍ, og Axel Einarsson, formann framkvæmdanefndar móts- ins. Mótið heldur áfram í kvöld, sjá íþróttasíðu. (Ljósm. Bj. Bj.). Sunnudagur 28. júni 1964 — 29. árgangur — 142. tölublad. ENNÞÁ SKRIF- AR JÓSAFAT Þjóðviljanum barst i gær svo- hljóðandi bréf frá Jósafat Arn- grímssyni: „Hr. ritstjóri Magnús Kjart- ansson 1 tilefni af frétt yðar í 141. tölublaði Þjóðviljans þann 27. júní, 1964, leyfi ég mér að fara þess á leít við yður að þér birtið bréf þetta í heíld. Þér hafið skrifað tugir greína um mig, þar sem ég er borinn margs konar glæpum. þar á meðal fjárdrætti, fjársvikum, smygli, að ég hafi skrifað undir falskar ávísanir, auk margra annarra lagabrota.' Ef yður tekst að sanna skrif yðar fyrir dómstólum, með fullri aðstoð rannsóknar dómsyf- irvaldanna, þurfid þér engu að kvíða — ef ekki — verðið þér að taka afleiðíngunum af gjörðum yðar, eíns og hver annar þjóð- félagsþegn. Þar eð ég er þess fullviss að þér viljið ekki ennþá eínu sinni, setjast í sjálfskipað dómaraem- bætti, og bera á mig glæpi sem ég hef aldreí framið, vonast ég til þess að þér bíðið með frekari skrif, unz sök mín er sönnuð, og málinu leítt til lykta. þá mun koma í ljós hver situr uppi með þjófsnafnbótina. í trausti þess. bíð ég ókvíðinn. Virðingarfyllst. Jósafat Arnvrímsson Holtsgötu 37. Ytri-Njarðvík“ Hernámsandstæðingar leggja fram Issta með nöfnum 194 göngumanna ■ I gær barst Þjóðviljanum eftirfarandi fréttatilkynn- ing frá Samtökum hemámsandstæðinga varðandi deilur þær sem upp hafa komið um fjölda þátttakenda við upp- haf Keflavíkurgöngunnar sl. sunnudag. Jafnframt fylgir fréttatilkynningunni skrá yfir nöfn 194 manna er hófu göngu við flugvallarhliðið í Keflavík. Fréttatilkynning samtakanna er svohljóðandi: Að undanfömu hafa staðið um það deilur, hversu margir þátt- takendur voru við upphaf Kefla- víkurgöngunnar að morgni 21. þ. m. Ýmis blöð hafa látið sér sæma að bera fyrir lesendur sína hin fáránlegustu ósannindi um þetta atriði, og er það reyndar í fullu samræmi við háttarlag þeirra í sambandi við fvrri mótmælaaðgerðir hernáms- andstæðinga. En þá tók stein- inn úr, þegar lögreglustjórinn í Reykjavík hóf afskipti af mál- inu með bví að láta útvarp;ð bera tii baka fyrri fregn þess efnis. að við upphaf göngunnar hafi verið 200 manns, og full- vrti jafnframt í krafti embætt- 5s síns. að þarna hefðu verið á ferð innan við 120 manns. Fram- kvæmdanefnd samtakanna taldi. að hér væri tvímælalaust um svo freklega misbeitingu emb- ættisvalds að ræða, að hún lét skrifa saksóknara ríkisins og krafðist rannsóknar í málinu. Nú hefur saksóknari svarað þvf til að hann sjái enga ástæðu til afskipta af því. Framkvæmda- nefndin hyggst ekki hefja deiluv við saksóknara um bessa afstöðu hans, en ljóst er, að hann telur bað ekki í sínum verkahring að fá úr þvf skorið, hvort sjálfur lögreglustjór;nn f Reykjavík sé oninber ósannindamaður eða ekki. Það er að vísu álit fram- kvæmdanefndarinnar, að ekki skinti neinu höfuðmáli. hvort bátttakendur við upphaf Kefla- vfkurgöngunnar voru þetta mörgum tugum fle;ri eða færri Hver skyniborinn maður hlýtur að skilja. að bessi ganga frá Keflavík til Reykjavfkur var fvrst og fremst táknræn athöfn tiltekinna einstaklinga. en ekki ne:n tæmandi liðskönnun, og allur sá piikli fiöldi, scm f hana s"fnaðist undir lokin off tók. bát* f útifundinum við Miðbæjar- skólann. segir fvrst og fremst tfl um bað. hve eindrepins stuðn- inps stefna Eamtaka hornáms- nndstro^inga nýtur meðal al- mennings. En ósannindi ber engum að líða, allra sízt þegar háttsettir embættismenn hafa þau í frammi, enda kynni þá að verða óvandaðri eftirleikurinn, ef ekki yrði spornað gegn. þegar annar eins valdamaður og lögreglu- stjórinn ' Reykjavík gerist tals- maður ósanninda og blekkinga. Og fyrst nú Ijóst er orðið, að dómstólarnir fást ekki til að líta á þau sönnunargögn, sem Samtök hemámsandstæðinga hafa boðizt til að leggja fram f þessu máli, þá telur fram- kvæmdanefndin rétt og sjálf- sagt, að leggja þau nú þegar fyrir almennmg . Eins og fram hefur komið snýst þessi deila fyrst og fremst um það, hve margir hemáms- andstæðinpar hófu Keflavfkur- gönguna 1964. Á 2. síðu birtast því nöfn þeirra þátttakenda f upphafi göngunnar, sem skrif- stofa samtakanna hefur á skrá hjá sér. Þessi nöfn eru 194, en á listann vantar hinsvegar nöfn nokkurra þeirra hemámsand- stæðinga, sem fóru í einkabílum úr Reykjavík og nágrenni suður að hliði Keflavíkurvallar um- ræddan morgun eða komu úr nærliggjandi byggðarlögum án þess að hafa látið skrá sig á skrifstofunni. Það fer því ekki á milli mála að í upphafi Kefla- víkurgöngunnar voru um 200 manns eins og talning þátttak- enda reyndar staðfesti. Rykfallinn Pósturinn, sem menn sóttu í pósthólf sfn á Póststofunni í R- vík í gærmorgun, var heldur betur rykfallinn og skítugur. Unnið er þessa dagana að endur- bótum á forstofutröppum póst- hússins og var slitlagið á tröpp- unum brotið af með loftbor í fyrrakvöld. en þess þá ekki gætt að ganga svo tryggilega frá dyra- umbúnaði pósthólfsherbergisins að stevpurykið smygi ekki inn um allt. En hvað þá um þá fullyrð- ingu lögreglustjóra, að í upp- hafi göngunnar hafi verið inn- an við 120 manns? Treystir hann sér enn til að standa við hana? Treystir hann sér til að sanna það til dæmis, að af þeim 194 einstaklingum. sem hér fylgir skrá yfir, hafi 80—90 — átta- tíu til níutíu — alls ekki verið staddir við hlið Keflavfkurflug- vallar umræddan morgun? Gjöri hann svo vel. Gjöri hver sem er Syo vcl og sýni fram á, að eitt einásta þessara 194 nafna sé falsað. Hinu mætti svo gjarnan skjóta að lögreglustjóra í lokin, hvort hann kæri sig um, að þetta fólk komi í heimsókn til hans á skrifstofuna í Pósthússtræti ein- hvern næstu daga og vottfesti þetta sönnunargagn með kurt- eislegu handtaki. Hafi hann hug á slíku, þarf hann aðeins að setia sig í samband við skrif- stofu hemámsandstæðinga f Mjóstræti 3 (opið kl. 14 — 18,30) og tiltaka heimsóknartímann. Listinn með nöfnum þeirra sem hófu gönguna frá hliði flugvallarins er birtur á 2. síðu. Þjóðviljinn hefur birt fréttir um mál Jósafats og mun að sjálfsögðu halda þvf áfram eftir því sem tilefni gefast til. En dómarasætin skipa aðrir menn og hafa verið önnum kafnir mánuðum saman. Það var Ólaf- ur Þorláksson rannsóknardómari en ekki ritstjóri Þjóðviljans sem hélt Jósafat í 45 daga gæzluvarð- haldi, og rannsókn hans mun engan veginn lokið enn. Sfðan kemur málið til kasta saksókn- ara ríkisins sem tekur ákvarðan- ir um frekari dómsmeðferð. Hin stórfellda fjárkröfugerð Jósa- fats Amgrímssonar á hendur rit- stjórum þriggja Reykjavfkur- blaða mun að sjálfsögðu ekki koma til álita fyrr en dómstólar landsins hafa komizt til botns í beirri dularfullu fjármálaflækju sem kennd hefur verið við nafn hans. *Uarnasprenging ’ Randaríkjunum WASBINGTON 25/6 — Bandaríkjamenn sprengdu í dag kjamasprengju í Nevada-eyðimörkinni. — Sprengjan var álitin veik en hefur þó svo mikinn eyðileggingarmátt, að hún gæti eyðilagt jafn stórt svæði og 20.000 tonn af TNT-sprengiefni. Þetta var tíunda neðanjarðarspreng- ingin í Bandaríkjunum í ár. Tölusettu og árítuðu eintökin eru nú með öllu uppselJ Þeír sem gerast áskrifendúr að listasögunni fyrir haustið fá bæði bindin á upphaflegu áskriftarverði, kr. 1500. Þjóðviljinn sneri sér f gær til Arnórs Hannibalssonar, starfsmanns Listasafns ASÍ og spurðist fyrir um, hvern- ig gergi sala á upplagi því af listasögu Bjöms Th. Björnssonar. sem Ragnar i Smára gaf alþýðusamtökun- um sem stofnframlag til hyggingar listasafns. — Þúsund eintök af lista- sögunni voru tölusett og á- rituð af forseta ASÍ og höf- undi bókarinnar, sagði Arn- ór. Þessi eintök eru þegar seld, og hafin sala á bókinni ótölusettri, bæði hér hjá Al- þýðusambandinu og einrig í bókabúðum í sumar mun Magnús Magnússon, skóla- stjóri, einnig vinna á vegum safnsins sem sölumaður os er ætlunin að hann heim- sæki a.m.k. alla stærstu kaupstaðina útl á landi. En verkalýðsfélögin þurfa að gera stór átak í sölu bók- arinnar, því upplagið sem þeim var gefið var 5000 ein- tök eins og kunnugt er. Til bessa hafa verkalýðsfélögin í Vík í Mýrdal, Húsavík, Dal- vík og Hrísey staðið sig bezt miðað við meðlimafjölda, en gerð var áætlun um hve mörg eintök hvert félag þyrfti að selja miðað við meðlimatölu. strax og Ragn- ar hafði skýrt frá hugmynd sinni um að láta útsáfu lista- sögunnar standa undir kostn. aði við byggingu listasafns- ins. Eins og kunnugt er var horfið að því ráði að láta listasöguna koma út í tveim bindum, og er hið síðara væntanlegt í haust. Þetta eykur að sjálfsögðu kostnað allan við útgáfuna, en mið- stjórn Alþýðusambandsins ritaði verkalýðsfélögunum bréf á s.l. vori, þar sem þeim er gefinn kostur á að safna áskriftum að báðum bindun- um á hinu upphaflega verði kr 1500 fram til haustsins. En þeir sem gerast áskrif- endur síðar geta búizt við því. að þurfa að greiða hærra verð fyrir verkið. Þá er einnig rétt að benda mönnum á, að listasagan fæst hjá Al- þýðusambandinu á áskriftar- verð'nu kr. 1500. Það er þvi ráðlegt fyrir alla þá, sem vilja tryggja sér þessa merku og fallegu bók, að gerast áskrifendur að henni oem allra fyrst, — a. m.k. ef þeir vilja fá hana á npphaflrzu áslcrif-arverði > *

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.