Þjóðviljinn - 07.07.1964, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 7. júlí 1964
ÞJ6ÐVIUINN
SÍÐA §
Knattspyrna — 1. deild
SKA GAMENN B YRJUDUILLA
EN UNNU SAMT ÞRÓTT 7:2
Hin gamla kempa Ríkarður var enn á ferðinni með liði
skora fyrsta mark Akraness í leiknum. —
sínu á sunnudaginn.
■ (Ljósm. Bj. Bj.).
Ilér sést hann
Það byrjaði ekki vel fyrir Akurnesingum í
síðari leik þeirra við Þrótt að þessu sinni. Þeg-
ar liðnar voru 9 mínútur af leiknum hafði Þrótt-
ur skorað 2 mörk en Akurnesingar ekki einu
sinni ógnað í eitt skipti.
Að vísu hefði Helgi átt að
verja síðara markið, og það
auðveldlega, en hann gleymdi
sér, hljóp of seint út, en Jens^
skallaði knöttinn í markið, eft-
ir aukaspyrnu, sem Haukur
tók mjög laglega
Fyrra markið kom rétt eft-
ir hornspyrnu á Akranes, og
var það Ingvi Steinþórsson
sem „potaði" knettinum í
hornið.
Fj'rsta ógnun Þróttar kom
á 3. mín., er Haukur skaut
föstu skoti að marki af stuttu
færi en Helgi varði vel.
Á þessum fyrstu 10 mínút-
um sýndi Akranes ekkert, og
virtist eiga erfitt með að fá
leikinn til að ganga létt og
leikandi, eins og þeim tekst
svo oft. Það er ekki fyrr en
á 11. min. sem þeir virðast
fara að skilja hvað er á seyði.
Þá hefja þeir áhlaup rétt við
eigin vítateig, og leika saman
þannig að samleikurinn geng-
ur frá manni til manns án
þess að nokkur einlei'ki, þar
til Eilífur fær knöttinn og þá
kominn út til hægri, leikur
laglega á varnarmann og
sendir siðan viðstöðulaust fyr-
ir markið en Ríkarður er þar
og sendir knöttinn vægðar-
laust í netið
Smátt og smátt fara Skaga-
menn að taka leikinn meir og
meir í sinar hendur, og á 20.
mínútu munar ekki miklu að
laust skot frá Eilífi sem Gutt-
ormur heldur ekki, fari í stöng
en hann nær honum aftur. Á
25. mínútu tekst Akranesi að
jafna, var það Eilífur sem gaf
Skúla mjög skemmtilega
knöttinn beint fram á miðju
vallarins þar sem hann var
frír, hleypur spöl inn og skor-
ar.
Tveim mín. síðar er dæmd
aukaspyrna á Þrótt. Sveinn
Teitsson spyrnir laglega að (
marki, og þegar knötturinn
hoppar í áttina til Ríkarðs, |
þar sem hann snýr baki að
marki Þróttar, tekst honum
að krækja knettinum afturfyr-
ir sig í mannlaust mark'ð
laglega gert. Þar með höfðu
Akurnesingar tekið forystuna
í möi'kum og náð algjörum I
undirtökum í leiknum. — 3:2.
Nokkru síðar fær: Ríkarður
háa sendingu fram Eilifur
sér hvað verða vill og skýzt
inn í onnu og býst við send-
ingu þangað, og það stóð
heima — Ríkarður skallar
mjög fallega til hans og nú
er honum leiðin opin að marki,
sem hann notar með hraða
og skýtur framhjá Guttormi
sem kom út á mótj honum.
Þetta var mjög glæsilega gert.
1 fyrri hálfleik höfðu tveir
Þróttarmenn orðið að hætta
og varamenn komið í þeirra
stað, og í byrjun þess síðari
var Eysteinn, bakvörðurinn
hægri, orðinn haltur, og var
eftir það í framlínu.
Þetta hefur veikt lið Þrótt-
ar, enda misstu þeir algjör-
lega þau tök sem þeir virtust
ná í upphafi leiksins. S'kaga-
menn sækja og fá ekki það
út sem mögulegt var, enda
var völlurinn mjög háll og.
erfiður við að eiga fyrir leik-
menn yfirleitt.
Á 13. mínútu er það Donni
sem skorar mjög laglega, eft-
ir að hafa leikið sér að því
að leika á bakvörð, og skaut
í bláhornið — 5:2.
Tíu mín. síðar er dæmt
horn á Þrótt, og tekur nýlið-
inn, Guðjón Guðmundsson það
frá vinstri. Spyrnan heppnast
mjög vel, og ekki síður skall-
inn hjá Eilífi, þar sem hann
hleypur til og sendir knöttinn
í netið á mjög skemmtilegan
hátt.
Þegar um 30 mínútur voru
af síðari hálfleik, virtist held-
ur lifna yfir Þrótti, og át,tu
þeir nokkrar' smásóknarað-
gerðir og átti Haukur þá gott
skot sem fór rétt framhjá.
En þessi sókn stóð ekki
lengi. Skagamenn tóku leik-
inn aftur í sínar hendur þótt
þeim tækist ekki að skora. Á
43. mínútu er Eilífur kominn
inn á^ markteiginn en er
brug*-") ílla og var réttilega
dæmd •» Itaspyrna, sem hann
svo sjálfur tók, og skoraði
af miklu öryggi.
Þannig lau'k leiknum 7:2
fyrir Akranes.
Akranesliðið var nokkuð
seint í gang, en jafnaði sig
er á leið. Hitt kom líka til,
Framhald á 3. síðu.
Vetraríþróttir að sumarlagi
SKÍÐAFERÐIR Á
FJÖLL í SUMAR
Stigakeppni í frjálsum íþróttum
KR 6JÖRSIÚR
06 UR VALSUB FRl
Afmælismóti KR í frjálsum íþróttum lauk á
laugardaginn á Laugardalsvellinum. KR vann
stigakeppnina með yfirburðum, bæði gegn úrvali
FRÍ og gegn ÍR. Árangur var sæmilegur í sum-
um greinum, en hvergi góður, nema hástökk
Jóns Þ. Ólafssonar, sem þó er langt frá hans
bezta árangri.
Eins og getið hefur
verið um áður hér á
síðunni, verður efnt til
allmargra skíðaferða í
Kerlingarfjöll í sumar,
en slíkar ferðir njóta
vaxandi vinsælda.
íþróttakennararnir Valde-
mar Örnólfsson og Sigurður
Guðmundssón standa fyrir
skíðanámskeiðum þar
efra. Nú er nægur snjór í
Kerlingarf jöllum, og vart mun
hægt að verja sumarleyfinu
öllu betur en að dvelja þar
við útilíf og skíðaiðkanir.
Efnt verður til 6 ferða, er
standa í ca. 10 daga hvert:
1. ferð: Brcttför 6. júlí. Komu-
dagur til Rvíkur 13. júlí .
2. ferð: Brottför 15. júlí.
Komudagur til Rvíkur 22.
júli.
3. ferð: 1!4. júlí til 31. júlí
4. ferð: 4. ágúst til 10. ágúst.
5. ferð: 12. ágúst til 18. ág.
6. ferð: 20. ágúst til 26. ág.
Helgarferðir
Þá er ákveðið að efna til
helgarferða inn til Kerlingar-
fjalla, ef næg þátttaka fæst.
Verður farið úr Menntaskóla-
portinu kl. 8 e.h. á föstudög-
um og haldið til baka síðdeg-
is á sunnudögum. Einnig er
ve.ið að athuga um ferðir
inn á Hofsjökul í sambandi
við áðurnefndar ferðir.
Mun skrifstofa Ferðafélags
íslands og Þorvarður Örnólfs-
son gefa nánari upplýsingar
um ferðir þessar.
Þeir sem þess óska geta
fengið leigð skíði og stafi í
allar ofangreindar ferðir, ef
þeir gæta þess að taka það
fram við innritun.
Staðaní
1. deild
Staðan í 1. deild Knatt-
spyrnumóts Islands er nú
þessi:
L U J T Mörk Stig
Akranes 7 5 0 2 21:13 10
Keflavík 5 3 2 0 12:6 8
KR 4 3 0 1 9:5 6
Valur 6 2 0 4 15:17 4
Fram 6 1 1 4 11:17 3
Þróttur 6 1 1 4 7:7 3
Veður var ágætt til keppni
þegar seinni hluti mótslns fór
fram. Lokaniðurstaða stiga-
keppninnar var sú. að KK
hlaut 119 rtig, en úrvaislið
FRl 73. Að hinu leytinu fékk
KR 121 stig en IR 69.
Stigakeppni af hálfu úrvals-
liðs FRl fór gjörsamlega út um
þúfur. Aðeins sárafáir þeirra
iþróttamanna utan IR, sem
valdir höfðu verið í úrvals-
liðið, kornu til keppninnar.
Þetta sta^ar m.a. af þvl, að
héraðsíþróttamót Skarphéðins
og Þingeyinga fóru fram á
Sigriður Sigurðardóttir, ÍR, sigrar í 100 m. hlaupi kvenna, rétt á undan Halldóru Helgadóttur,
KR. Báðar fengu sama tíma — 13,8 sek. (Ljósm. Bj. Bj.j.
Keppcndur í 800 m. hlaupi að loknum fyrri hringnum. Röðin er
þessi: Halldór Guðbjörnsson KR, Agnar Leví KR, Helgi Hólm
ÍR Þórarinn Arnórsson ÍR og Valdemar Björnsson í UMSE
(Ljósm. Bj. Bj).
sama tíma og þessi stigakeppni.
Þetta er furðulegur skipulags-
galli af hólfu þeirra, sem þess-
um málum ráða.
Stigakeppnin milli KR og
ÍR var einnig of ójöfn til að
vera spennandi eða vekja á-
huga fjöldans. Hugmyndin er
hinsvegar góð, en það verður
að hafa fyrirkomulagið eitt-
hvað öðruvísi til þeo'- ið jaína
leikinn, t.d. breyta t 1 með
keppnisgreinar, eða bæta
kvennakeppni við í stigare'kn-
inginn.
Úrslit í
á mótinu
þessi:
einstökum greinum
á laugardag urðu
110 m. grindahlaup:
Valbjöm Þorláksson (KR)
15,5 sek.
Kjartan Guðjónsson (ÍR)
15,8 sek.
Þorvaldur Benediktsson (KR)
15,8 sek.
Jón Þ. Ólafsson (IR) 18,4 sek.
Þristökk:
Þorvaldur Benediksson (KR)
13,88 m.
Úlfar Teitsson (KR) 13,49 m.
Jón Þ. Ólafsson (ÍR) 13,40 m,
Ólafur Unnsteinsson (IR)
13,21 m.
Stangarstökk:
Valbjöm Þorláksson (KR)
4.15 m.
Páll Eiríkssom (KR) 3,65 m.
Valgarður Sigurðsson (IBA)
3.55 m.
Erlendur Valdemarsson (1R>
3.15 m.
Magnús Jakobsson (UMSB)
3,15 m.
Spjótkast;
Björgvin Hólm (ÍR) 60,97 m.
Valbjöm Þorláksson (KR)
59,85 m.
Kristján Stefánsson (IR)
57,75 m.
rill Eiríksson (KR) 57,54 ra.
Framhald á 3. sfftu.
✓
k ■
1 \
L
rt
i